Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Side 18
26 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1990. fþróttir Stúfarfrá Englandi John Gayle, leikmaður Wimbledon, þykir mikill harðjaxl og er Vinny Jones hjá Sheffield United nánast eins og skátadrengur við hliðina á Gayle. Samskiptum þeirra um helgina lauk með því aö Gayle var sendur í bað en fyrr í vikunni hafði áður- nefndur Gayle komist í fréttirnar fyrir aö slást við félaga sinn og fyrirliða Wimbledon, Terry Phel- an, á æfmgu. Þau slagsmál end- uðu með því að Phelan þurfti að bregða sér á slysavarðstofu með gat á höfðinu. Barnes til meginlandsins? John Bames hefur ákveðið að skrifa ekki undir nýjan samning við Liverpool þrátt fyrir að boð meistaranna hljóði ekki upp á nein sultarlaun. Barnes stóð sig hörmulega á HM i sumar en hef- ur samt ekki gefið upp von um að komast i knattspyrnuna á meginlandinu. John Holmes, ráð- gjafl leikmannsins, segir aö Bar- nes vilji spila á meginlandinu og sé að líta í kringum sig. „Það hefur ekkert tilboð komið fram en ég hef samt sagt Barnes að skrifa ekki undir nýjan samning við Liverpool,“ segir Holmes. Anderson fær frjálsa sölu Viv Anderson, leikmaður Man.Utd, hefur fengið frjálsa sölu. Leicester hefur þegar boðið Anderson samning en honum var hafnað. Leicester hefur þó ekki geflð upp alla von og ætlar aö gera aöra tilraun til að krækja í leikmanninn. Walker fær 25 milljónir Des Walker, varnarmaðurinn knái hjá Nottingham Forest, er einn hæst launaði leikmaðurinn i ensku knattspyrnunni. Árslaun Walkers er talin vera nálægt 25 milljón íslenskra króna ogþað er um helmingi meira en Brian Clo- ugh, stjórinn, fær í sinn hlut. Hughton til West Ham? Chris Hughton, sem fékk frjálsa sölu frá Tottenham í sumar, leit- ar nú logandi pósi að nýju félagi. Hougton þykir líklegur til að halda sig í London og er West Ham sterklega nefnt í því sam- bandi sem næsti viðkomustaður fyrrum írska landsliðsmannsins. Leeds leítar að framherjun Hann stækkar óðum listinn með þeim framheijum sem Leeds Un- ited sækist eftir. Nýjustu nöfnin eru Dean Saunders, Derby, og Gary Penrice hjá Watford. How- ard Wilkinson, stjóri Leeds, er ekki ánægður með markaskorun liðsins og vill bæta um betur. Russo til Leeds? Alex Russo frá Argentínu hefur æft með Manchester United að undanförnu en er floginn heim til að taka þátt í landsliðsæfing- um. United ætlar ekki að kaupa hann en Howard Wilkinson hefur boðið Russo að æfa með Leeds til reynslu í einn mánuð. Clough margt til lista lagt Brian Clough gerir ýmislegt fleira en að stjórna knattspyrnu- liöi. Hann hefur nú nýlokið við smáhlutverk hjá ITV sjónvarps- stöðinni í þætti um einkaspæj- arann Ken Boom. Textinn sem Clough fer með hljóðar upp á heilar þrjár línur. Cooper á leið frá Rangers Neale Cooper, varnarmaður Glasgow Rangers, er á sölulista hjá félaginu og er að öllum líkind- um á leið til meginlandsins. Coo- per fæst fyrir 20 miHjónir en leik- mannsins er einna helst minnst fyrir frammistöðu sína meö Aberdeen áriö 1983 þegar félagið varð Evrópumeístari bikarhafa. Ottarsvaf róttínótt - eftir fyrsta sigur FH, 29-21, gegn KA „Ég sef rótt í nótt og get vaknaö hress á morgun,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen, þjálfari og leikmaður FH, eftir aö lið hans hafði unnið fyrsta leik sinn á keppnistímabilinu í gær- kvöldi. FH-ingar tóku á móti KA- mönnum og unnu Hafnfirðingar ör- uggan sigur, 29-21. Meistaranir höföu aðeins fengið eitt stig úr 4 fyrstu leikjum sínum á mótinu Pressan var því óneitanlega mikO á Hafnfirðingum fyrir leikinn í gær- kvöldi. FH-ingar voru mun sterkari í leikn- um og það var aðeins fyrstu mínút- urnar sem jafnræði var með liðun- um. FH hafði yfir, 15-9, í leikhléi og í síðari hálfleik héldu FH-ingar ör- uggri forystu og spurningin var ein- ungis hve stór sigurinn yrði. „Liöið sýndi í kvöld hvers það er megnugt. Varnarleikurinn var miklu sterkari en í undanförnum leikjum og liðsheildin öflugri. Þaö er mikið eftir af mótinu og stefnan er að ná einhverju af 6 efstu sætunum í deild- inni,“ sagði Þorgils Óttar í spjalli við DV. Bergsveinn Bergsveinsson mark- vöröur og Stefán Kristjánsson voru bestu menn FH-liðsins í gærkvöldi en aðrir leikmenn komust einnig vel frá sínu. Hjá KA var Erlingur Kristjánsson bestur og þá átti Axel Bjömsson einnig ágætan leik í markinu. Mörk FH: Stefán Kristjánsson 9, Gunnar Beinteinsson 5, Pétur Pet- ersen 4, Guðjón Árnason 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Halfdán Þórðar- son 2, Óskar Ármannsson 1, Óskar Helgason 1 og Magnús Einarsson 1. Mörk KA: Erlingur- Kristjánsson 5, Jóhannes Bjarnason 5, Hans Guð- mundsson 4, Sigurpáll Aaðalsteins- son 3, Pétur Bjarnason 2 og Guð- mundur Guðmundsson 2. Dómarar voru Egill Már Markús- son og Kristján Sveinsson og dæmdu þeir félagar prýðilega. -RR FH og Stjarnan lentu í basli - en eru efst í 1. deild kvenna FH og Stjarnan eru í tveimur efstu sætum 1. deildar kvenna í hand- knattleik eftir tvo leiki sem fram fóru í gærkvöldi. Bæði liðin komust þó í hann krappan, FH vann Selfoss eftir mikla baráttu, 24-19, í Kaplakrika og Stjarnan lagði Gróttu í jöfnum leik á Seltjarnarnesi, 16-18. Selfossstúlkurnar voru yflr í hálf- leik gegn FH, 9-11, og það var ekki fyrr en undir lokin sem FH náði að tryggja sér sigurinn. Þá kom reynsluleysi nýliðanna í ljós. • Mörk FH: Arndís Aradóttir 7, Rut Baldursdóttir 6, Björg Gilsdóttir 5, Kristín Pétursdóttir 2, Hildur Harðardóttir 2, María Sigurðardóttir 1, Helga Gilsdóttir 1. • Mörk Selfoss: Auður Hermanns- dóttir 8, Hulda Bjarnadóttir 5, Guð- björg Bjarnadóttir 4, Guörún Her- geirsdóttir 2. Á Seltjarnarnesinu var mikið um mistök af hálfu beggja liða en Stjörnustúlkurnar gerðu færri mis- tök en heimaliðiö, og það réð úrslit- um. Sólveig Steinþórsdóttir átti mjög góðan leik í marki Gróttu. Mörk Gróttu: Sigríður Snorradóttir 5, Laufey Sigvaldadóttir 3, Sara Har- aldsdóttir 3, Brynhildur Þorgeirs- dóttir 3, Helga Sigmundsdóttir 1, El- ísabet Þorgeirsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdótt- ir 8, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Her- dís Sigurbergsdóttir 3, Ragnheiður Stephensen 2, Margrét Theodórs- dóttir 1. -ÁBS Markahæstir í 1. deild karla í handknattleik Valdimar Grímsson ----------------- Val - 47/9 Siguröur Bjarnason -------------- Stjörnunni - 38/4 Gústaf Bjarnason ------------- Selfossi - 36/4 Hans Guömundsson KA - 35/5 Stefán Kristjánsson KR - 33/6 Handbolti l.deild karla FH-KA 29-21 Víkingur.. ...5 5 0 0 132-107 10 Valur ...5 5 0 0 123-103 10 Stjarnan... ...5 5 0 0 119-98 10 Haukar.... ...4 3 0 1 93-96 6 KR ...5 2 2 1 117-115 6 ÍBV ...4 2 0 2 96-92 4 KA ...5 2 0 3 117-108 4 FH ...5 1 1 3 115-118 3 ÍR ...5 1 0 4 117-127 2 Fram ...5 0 1 4 98-119 1 Selfoss ...5 0 1 4 92-117 1 Grótta ...5 0 1 4 102-121 1 2. deild karla Völsungur-Þór Ak.........25-29 HK.........3 3 0 0 78-44 6 Njarðvík...3 2 1 0 75-61 5 ÞórAk......3 2 1 0 73-66 5 UBK........2 2 0 0 50-28 4 Ármann.....3 2 0 1 51-50 4 Aftureld...2 1 0 1 33-38 2 Völsungur..3 1 0 2 61-78 2 Keflavík...3 0 0 3 62-73 0 ÍH.........3 0 0 3 59-73 0 ÍS.........3 0 0 2 42-73 0 1. deild kvenna FH-Selfoss................24-19 Grótta-Stjarnan...........16-18 FH...........7 6 0 1 138-117 12 Stjarnan....7 5 0 2 151—119 10 Fram.........5 4 0 1 116-90 8 Víkingur.....5 4 0 1 106-92 8 Valur........7 3 0 4 132-144 6 Grótta......5 1 0 4 79-92 2 ÍBV.........6 1 0 5 110-130 2 Selfoss.....6 0 0 6 98-146 0 Víðavangshlaupið: Sigurður og Martha Sigurður P. Sigmundsson, UFA, og Martha Ernstdóttir, ÍR, urðu sigur- vegarar í karla- og kvennaflokki í víðavangshlaupi íslands sem haldið var í Keflavík á sunnudag á vegum Ungmennafélags Keflavíkur. Keppt var í átta flokkum og urðu helstu úrslit þessi: Piltar, 12 ára og yngri 1. Magnús Guðmundss., Gróttu .5:33,50 2. Smári Stefánsson, UFA.5:43,70 3. Kristm. Sumarliðas., HSH.5:56,80 Stúlkur, 12 ára og yngri 1. Edda Mary Óttarsdóttir, KR ...6:20,90 2. Unnur Bergsveinsd., UMSB....6:32,40 3. Hulda Geirsdóttir, UMSB....6:34,80 13-14 ára piltar 1. Aron T. Haraldsson, UBK....5:20,20 2. Jóhann Jónasson, ÍR........5:33,60 3. Jóhann Ilannesson, ÍR......5:34,80 13-14 stúlkur 1. Laufey Stefánsdóttir, Fjölni... .5:53,90 2. Hólmfr. Guðmundsd., UMSB..6:06,20 3. Anna Lovísa Þórsdóttir, KR....6:17,90 Drengjaflokkur 1. Gunnar Guðmundsson, FH...10:33,50 2. Hákon Sigurðsson, HSÞ......10:40,60 3. Starkaður Barkars., UMFK ..10:53,10 Karlaflokkur 1. Sigurður P. Sigmundss., UFA ............................29:06,90 2. Jóhann Ingibergsson, FH...29:23,60 3. Daníel Guðmundss., USAH...29:30,30 4. Þorsteinn Jónsson, FH.....29:30,40 5. Kristján Ásgeirsson, ÍR...30:31,00 Kvennaflokkur 1. Martha Ernstdóttir, ÍR...11:30,90 2. 'Hulda Pálsdóttir, ÍR....12:26,40 3. Þorbjörg Jensdóttir, ÍR..13:42,30 Öldungaflokkur 1. Sighvatur Guðmundss.,ÍR... .30:38,00 2. Ágúst Ásgeirsson, ÍR......34:44,00 3. Vöggur Magnússon, ÍR......35:28,00 -GH Úrslitin eru sigur fyrir færeyska knattspyrnu - sagði Páll Guðlaugsson, þjálfari Færeyja, eftir 4-1 tap gegn Dönum „Þrátt fyrir að leikurinn hafl tap- ast lít ég á úrslitin sem sigur fyrir færeyska knattspyrnu og er stoltur af frammistöðu leikmannanna. Dan- ir reiknuðu með markaregni en okk- ur tókst að brjóta niður sóknarleik danska liðsins og sköpuðum okkur mörg góð marktækifæri í leiknum,“ sagði Páll Guðlaugsson, hinn íslenski landsliðsþjálfari Færeyinga, eftir 4-1 ósigur þeirra gegn Dönum á Idræts- parken í Kaupmannahöfn í gær- kvöldi. Þetta var annar leikur Fær- eyinga í Evrópukeppni landsliða en þeir slógu í gegn með 1-0 sigri á Austurríki í fyrsta leiknum, eins og heimsfrægt er orðið. Michael Laudrup skoraði fyrir Dani strax á 9. mínútu en á 22. mín- útu fengu Danir mikið kjaftshögg þegar Allan Mörköre, 18 ára Klakks- vikingur, sem var að leika sinn þriðja landsleik, jafnaði, 1-1, eftir fyrirgjöf frá Torkil Nielsen. Lars Elstrup náði að koma Dönum í 2-1 rétt fyrir hlé, Michael Laudrup skoraði aftur á 49. mínútu og Flemming Povlsen inn- siglaði sigur Dana með marki á loka- mínútunni. „Það var stórkostlegt að skora þetta mark og þegar ég sá Torkil komast að endalínunni með boltann vissi ég að nú var tækifærið komið. Ég er ánægður með okkar frammi- stöðu, við höfum sýnt að viö verðum ekki leiddir til slátrunar í þessari keppni. Leikirnir við Austurríki og Danmörku hafa fært okkur sjálfs- traust sem kemur okkur að notum í næstu leikjum,“ sagöi Allan Mörköre sem bætti því viö að Michael Lau- drup hefði leikið stórkostlega og ver- ið besti maöur vallarins. „Sumir töluöu um að vinna 6-0 en fyrir mig skipti mestu máli að fá bæði stigin. Færeyingarnir reyndust jafnerfiðir og ég átti von á. En danska liðið lék ekki eins vel og ég vonaðist eftir og náði ekki að brjótast upp kantana eins og ég hafði lagt fyrir,“ sagði Richard Möller Nielsen, lands- liðsþjálfari Dana. Michael Laudrup var ekki ánægð- ur með leikinn en hann hafði spáð 6-0 sigri Dana. „Ég á erfltt með að gleðjast yfir sigrinum. Færeyingarn- ir voru hvorki betri né verri en ég bjóst við, það vorum við sem vorum ekki nógu góðir. Það var erfitt að brjótast í gegnum tíu manna varn- armúr Færeyinga og þegar þeir jöfn- uðu leikinn fóru sumir okkar á taug- um,“ sagði Michael Laudrup. Guðmundur Haraldsson dæmdi leikinn og var frammistöðu hans ekki sérstaklega getið í fréttaskeyt- um. Áhorfendur voru 38.500 en mest höföu áður 4500 manns séð færeyska liöið leika þegar það mætti íslending- um í Þórshöfn í sumar. -VS Noregur: Elverum efstí 2. deild Hermundur Sigmundsson, DV, Noregt Elverum, liðiö sem Þórir Her- geirsson þjálfar, hefur farið af stað með miklum látum í 2. deild- innl. Liðiö vann sig upp úr 3. deild á síðasta keppnistímabili og bjuggust flestír við þungum róðri hjá því I vetur. Eftir 3 umferðir hefur Elverum forystu í sínum riðli, hefur unnið alla leiki sína með talsverðum mun en með liö- inu leikur einn islendingur, Grímur Hergeirsson, bróðir Þór- is. Halla Géirsdóttir, sem leikur í markinu hjá Junkeren í 2. deild kvenna, hefur staðið sig mjög vel og hefur átt drýgstan þátt í tveim- ur stórsigrum liðsins í fyrstu 2 umferðunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.