Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 1
Stöö 2 á föstudagskvöld:
Góður, illur
og grimmur
Góður, illur og grimmur er þriðja
og síðasta myndin í dollaraþrfleikn-
um, en það kallast þær myndir sem
Clint Eastwood lék í undir stjórn
Sergios Leone. Myndin sló í gegn á
sínum tíma en í henni eru nokkur
atriöi sem hafa verið fyrirmyndir í
seinni tíma vestrum og ekki að
ástæðulausu.
Svokallað brúaratriði í þessari
mynd er velþekkt og sama er að segja
um atriðið þegar Lee Van Cleef flýg-
ur á kjúklingalæri gegnum glugga.
Ofbeldið og óraunveruleikinn náðu
hámarki í þessari mynd en samt sem
áður nær hún því að vera launfyndin
á köflum.
Clint Eastwood skapaði vissa típu
í þessum myndum, típu sem vildi
loða við hann seinna á ferlinum.
Hann varð óneitanlega frægur eftir
þessar þijár myndir og ferillinn
blómum stráður eftir það. Leikstjór-
inn, Sergio Leone, varð ekki síður
þekktur af þessum verkum sínum
og fylgdi fljótlega þessari þríliðu eftir
með myndinni Once upon a Time in
the West sem ekki þótti síðri.
Hér hefur verið minnst á leikara
og leikstjóra sem gerðu það gott en
tónlist Ennio Morricone gefur þess-
um myndum ekki síður sinn svip.
Myndin Góður, grimmur og illur fær
þrjár og hálfa stjörnu í kvikmynda-
handbók Maltins. Með helstu hlut-
verk fara Clint Eastwood, Lee Van
Cleef, Eli Wallach, Rada Rassimow,
Mario Brega og Chelo Alonso.
Aðalstöðin
tekur Púlsinn
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á dagskrá Aðalstöðvarinnar
án þess þó að heildarsvipur sé breytt-
ur. Útvarpsstjórinn, Helgi Pé, er
kominn í hádegissútvarpið og rabbar
við hlustendur á hveijum degi milli
12 og 1.
Helsta nýbreytnin er beint útvarp
Aðalstöðvarinnar frá félagsheimili
tónlistarmanna, Púlsinum. Á hveiju
þriðjudagskvöldi klukkan tíu gefst
hlustendum færi á að hlusta á lifandi
tónlist og heyra rabb við músíkanta
á staðnum.
Ásgeir Tómasson etur saman for-
stjórum þessa lands í spurningaleik
á hverjum degi kl. 15.00. Hver for-
stjóri eða forsvarsmaður fyrirtækis
má hafa með sér tvo samstarfsmenn
til aðstoðar. Sigri menn þrisvar sinn-
um komast þeir í úrvalsdeildina sem
keppir síðar.
Annar daglegur dagskrárliður er
Akademían sem margir eru orðnir
hluti af. Á hverjum degi fær einhver
meðlimur klukkustund til umráða
og má ræða sitt hjartans mál. Stjórn-
málamenn hafa verið iðnir við að
mæta í akademíuna svo og forstjórar
en Biskupsstofa reið á vaðið með
biskup íslands, Ólaf Skúlason, í far-
arbroddi.
Á sunnudögum verður Aðalstöðin
uppi um íjöll og firnindi með Júlíusi
Bijánssyni. Hann fjallar um útiveru
í víðasta skilningi, skíðin, skautana,
fjallajeppana, vélsleðana, gönguferð-
ir og hestamennsku.
Þeir sem hneigjast til inniveru og
bóka geta svo fylgst með Guðríði
Haraldsdóttur á sunnudagskvöldum
þegar hún tekur bækur úr bókahill-
unni. Guðríður fjallar um bækur,
rithöfunda og les úr nýútkomnum
Ásgeir Tómasson iætur toppana
takast á í síðdegisþætti sínum kl.
15.00 alla daga.
bókumjafnóðum og þærberastíjóla-
bókaflóðinu.
Sjónvarp föstudag og laugardag:
Dauðasök
Dadah is Death heitir tveggja þátta
sjónvarpsmynd sem Sjónvarpið sýn-
ir og er titillinn fenginn að hluta úr
mállýsku Malasíubúa þar sem Dadah
þýöir eiturlyf. Árið 1983 settu stjórn-
völd í Malasíu ný og hert viðurlög
gegn eiturlyflasmygli og var slík iðja
lýst dauðasök. Fyrstu sakamennirn-
ir sem gultu nýbreytninnar voru
Ástralirnir Kevin Barlow og Geoff
Chambers. Annar þeirra, Chambers,
átti að baki áralöng afskipti af eitur-
lyfiasölu en Barlow var ungur og fé-
vana útlendingur í leit að auðfengn-
um peningum.
Þetta mál vakti heimsathygli á sín-
um tíma og þá einkum fyrir skelegga
baráttu móður Barlows, Barböru
Barlow, fyrir lífi og frelsun sonar
síns. Máliö dróst mjög á langinn og
stóð málarekstur í þrjú ár áður en
dómur féll.
Sjónvarpsmyndin, sem er i tveimur
hlutum, verður sýnd fóstudags- og
laugardagskvöld. Myndin er banda-
rísk/áströlsk frá árinu 1988. Með að-
alhlutverkið fer Julie Christie en
hún leikur hina baráttuglöðu móðir.
Það eru áströlsku leikararnir Hugo
Weaving og John Polson sem leika
sakborningana en indverski leikar-
inn Victor Banarjee leikur verjand-
ann.
Tveir Astralir voru handteknir á flugvellinum í Malasíu með heróín í fórum
sínum. Þeir voru hinir fyrstu sem áttu yfir höfði sér dauðadóm fyrir slíkt
athæfi eftir að lögum þar i landi var breytt.
Hér hefur hinn pireygði komið höndum yfir einn gæjann.
Alfa aftur í loftið
Kristilega útvarpsstöðin Alfa hóf
útsendingu að nýju í gær. Að út-
varpsstöðinni stendur hlutafélag
sem heitir Kristileg fjölmiölun hf.
sem samanstendur af 200 einstakl-
ingum úr ýmsum kirkjudeildum og
kristnum félögum. í fyrstu er áætlað
að útvarpa alla virka daga frá kl. 8.45
til 17.00 og bæta helgardagskrá við
þegar líöur á fyrsta mánuðinn.
Tónlist skipar veglegan sess í dag-
skránni og er lögð áhersla á þægilega
gospeltónlist. Alfa ætlar að vera með
eigin fréttir og leggja áherslu á já-
kvæðar fréttir úr hinum kristna
heimi. Ýmsir dagskrárgerðarmenn
sjá um hina mismunandi þætti en
aðeins eru tveir starfsmenn fast-
ráðnir. Alfa sendir út á FM 102,9
EFFEMM á morgnana:
Frá hinu opinbera
Alla virka daga frá kl. 7.30 til 10.00
stjórna Gunnlaugur Helgason og Jón
Axel Ólafsson morgunþætti FM 957.
í morgunþætti þeirra félaga er að
fmna stuttan dagskrárlið sem heitir
„Frá hinu opinbera". Þar fer „frétta-
maðurinn" Unnar Kvarerann í
könnunarleiðangur um frumskóg
stjórnamálanna og grefur upp hin
ótrúlegustu mál sem enginn annar
fréttamaður nær. í þessum dags-
skrárlið fær Unnar stjómmálamenn
til að samþykkja ótrúlegustu hluti.
Unnar fær sitt pláss i útsendingu FM
kl. 7.50 og 8.50 alla daga.
Sjónvarp á sunnudag:
Séra Matthías
á Akurcyri
Næstkomandi sunnudag eru rétt
155 ár liðin frá fæðingu þjóðskálds-
ins Matthíasar Jochumssonar og
viku þaðan í ffá eru 70 ár síðan
hann lést.
Sjónvarpið hefur látið gera þátt
um þjóöskáldið og fetar Gísli Jóns-
son íslenskufræðingur í fótspor
Matthíasar um Akureyri.
Sjónum er beint aö lifshlaupi
Matthíasar í höfuðstaö Norður-
lands en þar var hann þjónandi
prestur i rúm 13 ár og átti þar heim-
ili í 34 ár. Sýndar eru svipmyndir
frá æviskeiði séra Matthíasar, frá
þvi hann fluttist noröur 25. maí
1886 og allt tíl dauðadags, 18. nóv-
ember 1920. í myndinni reynir Gísli
að bregða Ijósi á það samfélag sem
hinn skáldhneigði klerkur flutd
inn í þar nyrðra, segir af aldafari
á Norðurlandi þeirra tíma og
óvenjulegum harðindum er skóku
bú og byggð í þann tíð.
Áhorfendur kynnast persónunni
og listamanninum Matthíasi og
viðtökum er hann mætti í hinum
nýju heimkynnum. í þættinum
koma fram ýmsir fræðimenn og
afkomandi skáldsins, auk skóla-
kórs Menntaskólans á Akureyri.
Sýndur verður hluti einnar elstu
kvikmyndar er tekin var hérlendis
þar sem Matthías er staddur í
ræðustól aö Hrafhagili.