Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
7
i>v Sandkom
Tippari
vikunnar
Nokkirungir
framsóknar-
mennveöjuðu
uinur.-litioieiu-
vígiFmnsIng-
ólfssonarog
GuðmundarG.
utn hUgina.
Áttumonnaö
..tÍPi»"á!lVP :
iniii-gatkvaHli
framtg'óðendur
fengju í fyrsta sœti. Sá sem næst varð
réttri niðurstöðu skyldi eignast pottinn.
semívoru7þúsundkrónur,sam- .
kvæmt áreiðanlegustu heimildum. Þeg-
ar úrslitin lágu fyrir kom á daginn að
einn ha©i tippað akkúrat á atkvæða-
tölu efsta manns. Heimildir segja að þar
hafiEggert Skúlason, fyrrverandi
fréttastjóri á Timanum og núverandi
fréttaniaöur Stöðvar2, veriðáferðinni.
Hann spáöi þvi að Finnur fengi 236 at-
kvasði í fyrsta sæti og sú varð raunin.
Hér verða úrslitin í þessari skoðana-
könnun ekki vefengd að einu né neinu
leyti en því verður hins vegar ekki neit-
að að [tessi hundaheppni gefur sögum
um „marklaust gabb“ byr undir báða
vængl
Sterkir pabbar
Árna Mathie-
sentókstaldeilis
jiíiðsemhann
ætiaöisér.aðná
þrtðjasætií
próÓqörl sjálf-
stæðismamtaa
Reykjanesí-Það
másjálfsagt
segjanurgtgoti
lunAtnaogekki
aðefaaðhann
hefúrunniðyelfyrirsigrinum. Því
verður hins vegarekki neitaöað pabbi
gamli er fimasterkur í kiördæminu og
sonurinnörugglega notið góðs af. Þó
það nú væri. Enþað eru fleiri pabbar
sem eru sterkir í sínum kjördæmum.
Það á einnig við um Eriðjón Þórðarson,
þingmann Vestlendinga iþrjá áratugi.
Friðjón ætlar að hætta og í framhaldi
af því hafa augu manna frekar beinst
að Sturlu Böðvarssyni, bæjarstjóra i
Stykkishólmi, sem mögulegum arftaka
Priðjóns. Sturla hefúr haft augastað á
þessusæti um nokkurt skeið og telur
sig eiga góða möguleika. Þá hefur jafn-
vel veriö búist við að Friðjón yrði helsti
stuðningsmaður Sturlu islagnum. Nú
hefúr það hins vegar gerst að sonur
Friðjóns, Siginður Rúnar Friðjónsson,
nyólkurbússtjóri í Búðardal, hefúr
einnig gefið kost á sér fyrir sjálfstæðis-
menn á Vesturlandi. Þvi er ekki nema
eðiilegt að menn spái í h vort róðurinn
verði ekki þungur hjá bæjarstjóranum.
Tengiliður
Þarsemverið
eraðræðaum
venslogpóiitik
erekkiúrvegi
aðgetaþess
hvernigÁmí
ogSiguröur
tengjast. ]>oir
(*nt í satna
. stjórnmálít- '
flokkiogeiga
báðir„sterka
pabba“. Þeirtengjasteinnigáenn
annan veg, en Ámi og Siguröur em
sv o gott sem mágar. Þannig er að
Ámi er unnusti systur Sigurðar,
Steinunnar.
Smurbrauðið,
mamma
Ogþáyfirialit
aörasáima. Það
varí brúð-
kaupsveísiu
fyrirnokkrum
árum að'móðir
brúðarinnar
stóðupp.Vildi
hún fylgja dótt-
ursinniúr
hlaöimeð
nokkrumorð-
um. Orö móðurinnar urðu hins vegar
fljótt æði mörg ogþarkom aðsú gamla
hafði talaö viðstöðulaust í rúman hálf-
tíma Gestimir vora fámir að þreytast
og hötðu misst þráðinn fyrír löngu,
enda ekki fengið neitt að eta. Sonurinn
á heimilinu sá að nú voru góð ráö dýr
efsú gamla átti ekki að steindrepa veisl-
una tneö raupi sínu. Skjædilega spratt
hann á fætur ogkallaði: Mamma,
mamma, tíkin er komin í smurbrauð-
ið!!Ogþaðvareinsogviðmanninn
mælt...
Haukur Lárus Hauksson
Fréttir
Yngsti atvinnumaður okkar í knattspymu?
Verkmenntaskólinn
verður á sínum stað
- segir Guðmundur Benediktsson, 16 ára leikmaður Þórs á Akureyri
Guðmundur Benediktsson leikur sér með knöttinn. DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
Það er nokkuð síðan menn fóru
að ræða um það norður á Akureyri
að í 4. flokki Þórs í knattspyrnu
væri piltur sem án efa ætti eftir að
gera það gott í knattspyrnunni, og
sumir höfðu á orði að hann ætti
eftir að verða atvinnumaður í
þeirri íþrótt. Þessi piltur er Guð-
mundur Benediktsson, og þótt
hann sé mjög ungur í dag, rétt ný-
lega orðinn 16 ára, þá virðist sem
spádómar um atvinnumennsku
séu á góðri leið með að rætast, og
Guðmundur verði yngsti atvinnu-
maður okkar íslendinga.
Guðmundur hefur að undan-
fornu verið hjá belgíska 1. deildar
liðinu Ekeren að líta þar á aðstæð-
ur og forráðamenn félagsins vilja
ólmir gera við hann samning. En
það eru fleiri sem hafa áhuga á pilt-
inum, hann er á leiðinni til þýska
liðsins Stuttgart til að líta á aðstæð-
ur þar og þá hafa ensk stórlið eins
og Everton, Tottenham og nú síðast
Arsenal látið vita að þau hafi áhuga
á að sjá til piltsins og ræða við
hann.
Á ferð og flugi
„Það er búið að vera nóg að gera
hjá mér síðan í ágúst,“ sagði Guð-
mundur þegar DV ræddi stuttlega
við hann nú í vikunni, en Guð-
mundur var þá nýkominn heim frá
Belgíu. Og það er víst óhætt að
segja að Guðmundur hafi haft nóg
að gera aö undanfórnu.
„Þessi lota byijaði meö Noröur-
landamóti drengja í Finnlandi í
ágúst en þar lék enska landsliðið
líka. Mér gekk ágætlega í þessu
móti og þaðan er sennilega áhugi
ensku liðanna kóminn,“ segir Guð-
mundur. „Síðan lék ég með 18 ára
landsliðinu gegn Englandi hér
heima og fiskaði tvö víti í þeim leik.
Næst spilaði ég með drengjaliðinu
tvo leiki gegn Wales í Evrópu-
keppninni, við töpuðum útileikum,
0-1, en unnum síðari leikinn, 6-0,
og þá skoraði ég eitt mark. Næst
lék ég með 18 ára hðinu gegn Aust-
urríki í leik sem við unnum, 3-0,
ég skoraði tvö mörk og fiskaði víta-
spyrnu. Loks spilaði ég með 18 ára
liðinu gegn Belgíu í 1-1 leik og þá
kom belgíska liðið Ekeren inn í
mýndina."
Enginn tími fyrir námið
Guðmundur lauk grunnskóla-
námi sl. vor og innritaðist í íþrótta-
braut Verkmenntaskólans á Akur-
eyri í haust. „Ég mætti fyrsta dag-
inn og fékk stundaskrá en síðan
hefur lítið orðið úr skólagöngunni.
Þetta byrjaði á því aö ég þurfti allt-
af að vera að fá frí til að geta leikið
með landsliöunum og þegar boðið
um að æfa með Ekeren kom lá beint
við að leggja námið sem í rauninni
var ekkert nám á hilluna.
Ég hef reyndar aldrei verið neinn
sérstakur skólamaður. Fótboltinn
á allan hug minn þessa dagana en
ef þetta dæmi gengur ekki upp þá
veit ég að Verkmenntaskólinn
verður á sínum stað, hann fer ekki
neitt.“
Guðmundur var í 3 vikur hjá
belgiska liðinu Ekeren sem er miðl-
ungslið í 1. deild. Þegar hann fór
svo heim fyrir skömmu vildu for-
ráðamenn félagsins að hann færi í
alvöru aö huga að þvi að gera
samning við þá og komu reyndar
með uppkast að samningi. Ég er
að skoða þetta samningsuppkast
ásamt foreldrum mínum, en við
erum ekkert að flýta okkur.“
Það verður ekki langt stoppiö hér
heima hjá Guðmundi, því 16. nóv-
ember á hann að vera mættur hjá
þýska liðinu Stuttgart þar sem Ás-
geir Sigurvinsson er meðal starfs-
manna.
„Ásgeir hringdi í mig áður en ég
fór til Belgíu og hann hringdi svo
aftur á meðan ég var þar og ræddi
við pabba og þá var ákveðiö að ég
færi til Stuttgart og æfði þar í ein-
hvern tíma. Það verður gaman aö
skoða þetta, og ég reikna með að
búa hjá Ásgeiri þann tíma sem ég
verð í Stuttgart."
Ekki samning strax
Það er því nóg aö gera hjá strákn-
um en hann ætlar ekki að flana að
neinu varðandi atvinnusamning.
„Ég er alveg ákveðinn í að gefa
þessu góðan tíma og skoða alla
möguleika sem bjóðast. Líklegast
er að ég bíði fram yfir útslitakeppni
Evrópumóts drengjalandsliöa sem
verður í Sviss í vor, þar verða ör-
ugglega margir útsendarar frá lið-
um víðs vegar í Evrópu og hver
veit nema eitthvað nýtt gæti komið
upp á borðið þar. Ég ætla aö skoða
alla möguleika og það spilar fleira
inn í þetta en peningar. Það væri
t.d. ekkert spennandi að fara að
gera samning einhvers staðar þar
sem ég kæmi til með að vera ó-
ánægður, bara vegna þess að góð
laun væru í boði.“
Það er ekki víst að forráðamenn
Ekeren í Belgíu séu ánægðir með
þennan gang mála. Þeir hafa lagt
hart að Guðmundi að ganga til
samninga, vilja aö henn geri það á
þessu ári, komi síðan út strax eftir
áramótin og hafa gefið í skyr. að
líklega kæmist hann í aðallið fé-
lagsins strax í vor. Það sem liggur
að baki er án efa þaö í og með að
ef Guðmundur skrifar undir samn-
ing í Belgíu áöur en hann verður
17 ára telst hann ekki útlendingur
í belgísku knattspyrnunni. Arnór
Guðjohnsen fór einmitt þessa leiö
og skrifaði undir atvinnusamning
við belgíska liðið Lokeren daginn
áður en hann varð 17 ára. En Guð-
mundur ætlar að fara sér hægt
enda ekki amalegt að vita af liðum
eins og Arsenal og Tottenham „bak
við hornið" þótt ekkert hafi enn
gerst í þeim málum annað en að
þessi félög hafa beöið um leyfi að
fá að hafa samband við hann.
Félagarnir spenntir
Það eru ekki allir 16 ára ungling-
ar sem hafa tækifæri til að fara til
stórliða í Evrópu og æfa með þeim
eins og Guðmundur er að gera
þessa dagana og eiga jafnvel von á
að gera samning við eitthvert þess-
ara liða. Jafnaldrar Guðmundar
eru án efa spenntir að fylgjast meö
gangi mála.
„Jú, þeim finnst þetta allt saman
spennandi eins og mér,“ segir Guð-
mundur. „Þeir spyrja mikið út í
þetta og það fer ekki hjá því að það
sé aöeins minnst á peninga, þeir
spyrja gjarnan hvort ekki séu mikl-
ir peningar i þessu dæmi en það
er hlutur sem ég ræði ekkert."
Lærði mikið hjá Fram
Guðmundur er fæddur Þórsari
enda sonur Benedikts Guðmunds-
sonar sem lék knattspyrnu og
handbolta af krafti á árum áður.
„Ég var ekki hár í loftinu þegar ég
fór að fara með pabba á æfingar
og þá lék ég mér meö boltann. Guö-
mundur hóf síðan aö æfa sjálfur
og vakti strax athygli fyrir óvenju-
mikla leikni. Hann lék með yngri
flokkum Þórs allt upp í 4. flokk en
þá flutti fjölskylda hans til Reykja-
víkur í smátíma.
„Ég spilaöi meö Fram fyrra áriö
mitt í 4. flokki og framan af síðara
árinu í þeim flokki. Á þessum tíma
læröi ég mjög mikið hjá Magnúsi
Einarssyni, sem þjálfaði mig, og
þetta var besti skóli sem ég hef
komist í. En svo fluttum við norður
aftur og þá hélt ég áfram með Þór.
Guðmundur hefur síðan leikiö
meö Þór af krafti og sl. sumar bæði
í 3. og 2. flokki. Harin fékk hins
vegar fá .tækifæri með meistara-
flokki félagsins þótt margir hefðu
verið á þeirri skoðun að hann gæti
hresst verulega upp á framlínuna
þar enda óvenju markheppinn leik-
maður.
„Ég fékk bara tvö tækifæri með
meistaraflokki, kom tvisvar inn á
í síöari hálfleik. Ég er ekkert óhress
með aö fá ekki fleiri tækifæri en
mér fannst þó að ég hefði frekar
átt aö fá að spreyta mig í öðrum
leikjum þar sem Þór gekk betur.“
Guðmundur var í sumar yngsti
leikmaðurinn sem leikið hefur í 1.
deild- en það er fátt sem bendir til
þess að Þór fái notið krafta hans
áfram. En Guðmundur hefur ekki
einungis gert það gott á knatt-
spyrnuvellinum með Þór.
Landsliðsmaður í
handknattleik
„Ég hef alltaf verið með Þór í
handboltanum og var valinn í ungl-
ingalandsliö í fyrra. Þá var ég hins
vegar farinn að minnka við mig í
handboltanum og ákvað að fara
ekki. Þá var ég byrjaður að æfa
með meistaraflokki í fótboltanum
og ákvað að taka það fram yfir. Það
er hætt við því aö það verði lítill
handbolti hjá mér á næstunni."
segir Guömundur.
Ekki varaliðsmaður
Þeir sem þekkja Guðmund segja
að hann sé ákveðinn ungur maður.
og metnaður hans að ná langt í
knattspyrnunni sé mikill.
„Ég hef engan áhuga á því að fara
að gera samning við eitthvert lið
upp á það að verða svo fastur leik-
maður með varaliði, þaö á bara
ekki við mig. Það er örugglega nið-
urdrepandi að lenda hjá einhverju
stórliði og vera fastur í varaliði sem
spilar fyrir 100-200 áhorfendur og
enginn möguleiki aö sanna sig neitt
þar. Ég hef því htinn áhuga á
slíku,“ sagöi Guðmundur.