Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
13
Ríkisstjóm sem rekald eitt
Er hún líka ólögleg?
Egill Jónsson skrifar:
Þaö er einsdæmi aö ríkisstjórn hafl
fengiö jafnmikla gagnrýni frá al-
menningi, þ.m.t. flöldasamtökum
sem telja tugþúsundir manna og
þessi sem nú situr og rennur senn
skeiö sitt á enda. - Ég man t.d. ekki
eftir ríkisstjóm sem hefur hlotið dóm
vegna afskipta sinna af málefnum
vinnumarkaðarins. Eöa ríkisstjórn
sem setur bráöabirgðalög þvert ofan
í dóm gegn henni eins og gerðist í
málum BHMR.
Ég minnist þess líka aö viö myndun
hennar var þaö staðhæft viö forseta
landsins að meirihluti væri á þingi
eftir stjórnarmyndun. Það var ekki
staöreyndin. Heldur varö að finna
hann sérstaklega og kom þá í ljós aö
slitrur Borgaraflokksins vom tiltæk-
ar til aö styöja við bakið á núverandi
forsætisráöherra sem lofaði ráö-
herraembættunum tveimur sem
hann hafði verið svo forsjáll að
geyma uppi í erminni ef í harðbak-
kann slægi.
En því er ég aö senda þessi skrif
að nú er almælt aö ríkisstjómin sé
jafnvel sek um brot á stjómarskrá
lýðveldisins meö því aö setja bráöa-
birgðalögin í byijun ágústmánaðar
sl. - Og þar var notuð sama aðferö
og fyrir ríkisstjórnarmyndunina,
segja að fyrir bráöabirgöalögunum
væri meirihluti á Alþingi. Að þeim
ummælum fengnum hefur forseti
skrifaö undir bráðabirgðalögin. - En
hvað er til ráða í slíku þjóðfélagi ef
rétt reynist að forsetinn hafl jafnvel
verið blekktur tfl að skrifa undir lög
sem ekki hafa fengist og fást sýnilega
ekki samþykkt á Alþingi nema með
hrossakaupum við kjörna umboðs-
menn þjóðarinnar, þingmennina?
Verður ekki að kanna þetta mál ofan
í kjölinn. - Er ríkisstjórnin bara rek-
ald og ólögleg í þokkabót? Um þetta
þarf þjóðin að fá fullvissu sína.
TILKYNNING TIL
LAUNASKATTSGREIÐENDA
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein-
dagi launaskatts fyrir október er 15. nóv. nk. Sé
launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða drátt-
arvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og
með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
FIMMTI
GÍR í ÞÉTTBYLI!
yUMFERÐAR
RÁÐ
Seinkun á f réttum hjá RÚ V
Axel hringdi:
Ég beiö eftir útvarpsfréttum -sl.
fimmtudagskvöld (8. nóv.) kl. 22. Ég
hafði ekki heyrt fréttir þetta kvöld
eða horft á þær í sjónvarpi og var
að vinna utan heimilis. Bjóst ég ekki
við öðru en kl. 22 væru fréttir á rétt-
um tíma að venju. - Þetta brást hins
vegar og ég varð af fréttum það
kvöldið.
Þetta sama kvöld var útvarpað sin-
fóníutónleikum frá Háskólabíói og
þeir fóru fram yfir fréttatímann og
allt til kl. 22.15, að því mér var tjáð
síðar. - En einnig þá gekk frétta-
tíminn ekki fyrir, heldur veðurfréttir
eftir því sem mér var hka sagt! Þetta
finnst mér mjög órétt. Er ekki hægt
að stemma þetta betur saman? Það
er ekki í fyrsta sinn sem tónleikar
ganga fram yfir fréttatíma hjá RÚV.
Og hvers vegna skyldu veðurfréttir
verða að ganga fyrir almennum
fréttalestri? Hveijir eru svo að-
þrengdir að fá veðurfréttir að þeir
geti ekki beðið eftir að margfalt fleiri
landsmenn hlusti á almennar fréttir?
- Þetta verður að lagfæra hjá RÚV,
því það gengur ekki lengur í allri
samkeppninni að Ríkisútvarpið sé
Bréfritara gremst mjög að tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar hafi forgang
á útsendingu frétta rikisútvarpsins. - Sínfóniuhljómsveilin á æfingu.
að syndga upp á náðina með fasta
dagskrárliði og láta þá sitja á hakan-
um fyrir aðra og minna eftirsótta liði
eins og Sinfóníuna.
Alvarlegt mál
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Skýrt var frá því í sjónvarpi fyrir
stuttu, af séra Karh Sigurbjörnssyni,
að unglingar í grunnskólum væru
byrjaðir að beita yngri nemendur
flárkúgun. - Þeir heimta peninga af
þeim, allt að 500 krónum á viku, og
hóta líkamsmeiðingum ef ekki er
borgað.
Presturinn sagði þetta nánast bros-
andi. En hér er ekkert gamanmál á
ferðinni. Það er stóralvarlegt mál,
blátt áfram óhugnanlegt, ef börn
undir fermingaraldri temja sér hætti
mafiubófa á Italíu. Þarna verður að
taka í taumana án tafar. - Slíkum
nemendum á að víkja úr skóla um-
svifalaust og setja á stofnanir fyrir
vandræðabörn.
Þetta mál hefur fleiri hhðar. Ein
þeirra lýtur að sjónvarpinu. Svona
athæfi var sýnt á skjánum nýlega.
Þar læra börnin oft ljóta hluti. Væri
ekki ráð að vanda þessi prógrömm
betur?
Önnur hlið snýr að kvenréttinda-
baráttunni. Hún beinist öll að því að
konur yfirgefi heimihn og fari út á
vinnumarkaðinn, sitji þar við skrif-
borð eða tölvu, í stað þess að gegna
móðurhlutverkinu. Börnin eru á
flækingi umhirðulaus. Er ekki tíma-
bært að eiginkonan skipi á ný heið-
urssess hinn æðsta í þjóðfélaginu? -
Það er öllum fyrir bestu.
Hringid
í síma
milli
kl. 14 og 16
eða skrifið
ATH.: Nafix og
simi verður
að fylgja bréfum.
Fjöldi bílasala, bílaumboða og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og
í öllum verðflokkum með góðum árangri.
Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR á
laugardögum þurfa að berast í síðasta lagi fyrir
kl. 17:00 áfimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla
daga frá kl. 09:00 til 22:00 nema laugardaga frá
kl. 09:00 til 14:00 og sunnudaga frá kl. 18:00 til
22:00.
Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verður að berast
fyrir kl. 17:00 á föstudögum.
AUGLÝSINGADEILD
27022