Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1990, Qupperneq 1
17
Merkilegt ræktunarstarf hefur verið unnið að Sólheimum.
Sjónvarp á sunnudagskvöld:
Sólheimar í
Grímsnesi
í júlí síðastliðnum voru sextíu ár
liðin frá stofnun vistheimilisins að
Sólheimum í Grímsnesi. Það var
Sesselja Sigmundsdóttir sem lagði
grunninn að þeirri starfsemi sem nú
þrífst með ágætum á þessum fallega
stað. Bryndís Schram gerði sér ferð
austur í afmæhð og hitti fyrir íbúa
staðarins. Félagslíf vistmanna er
ijölskrúðugt og þegar leik sleppir
vinna íbúarnir við kertagerð, smíða-
vörur, vefnað og teppagerð. Þá er líf-
ræn garðrækt með mesta móti og
margháttað gull sótt í greipar Móður
jarðar; agúrkur, tómatar, pipar og
blóm af öhum tegundum. Hver og
einn hefur hér starfa með höndum
og leggur sinn skerf til þessarar
verksmiðju mannshandarinnar.
Þessu til viðbótar hefur verið starf-
rækt leikfélag að Sólheimum. Á af-
mæhnu var sett upp verkið „Stígvél-
aði kötturinn" og verður Sólheima-
fólk í leikferö í höfuðborginni á
næstu dögum.
Sjónvarp á sunnudagskvöld:
Þýsk sjónvarpsmynd
eftir íslenska konu
Sjónvarpið frumsýnir verk ís-
lensks kvikmyndaleikstjóra, Mar-
grétar Rúnar Guðmundsdóttur, á
sunnudagskvöld. Myndin heitir
Hættu þessu voli, Hermann og sér
Margrét um handrit og leikstjórn.
Styrkur fékkst til tíu mínútna verks
en mynd Margrétar er 40 mínútur
að lengd og fjármagnaði hún því
meginhlutann sjálf. Til framkvæmda
valdist samstæður hópur sem lét sig
hafa það aö vinna í þrjár vikur kaup-
laust.
Myndin var síðan frumsýnd á kvik-
myndahátíöinni í Munchen árið 1989
og urðu viðbrögð áhorfenda mjög
sterk. Sitt sýndist hverjum um ágæti
myndarinnar og tilgang en velflestir
tóku afstöðu.
Margrét Rún er þrítug að aldri og
hefur undanfarin ár numið kvik-
myndalist við Hochschule fur
Fernsehen und FUm í Munchen.
Eurosport í næstu viku:
Sigurjón og Úifar keppa
um heimsbikarinn í golfi
-bein útsending frá Orlando í fimm daga
Á miðvikudaginn kemur hefst á
Grand Cyprus golfvellinum í Or-
lando á Floridaskaganum keppni
um heimsbikarinn í golfi. Tveir frá
hveiju landi keppa um geysihá
peningaverðlaun sem í heild nema
um það bil 60 milljónum íslenskra
króna, þar af eru fyrstu verðlaun
rúmlega átta milljónir. Það eru
ekki hvaða þjóð sem er sem fær að
taka þátt í þessu móti. Fyrir utan
sterkustu golfþjóðir heims er
nokkrum þjóðum að auki boðin
þátttaka og var íslendingum boðið,
sjálfsagt vegna góðrar frammi-
stöðu síðast er við tókum þátt í
keppninni, en þá kepptu Ragnar
Ólafsson og Sigurður Pétursson
fyrir íslands hönd.
íslenska liðið er skipað tveim
sterkustu kylfingum íslands í dag,
Úlfari Jónssyni og Sigurjóni Arn-
arsyni, og eru þeir að því best er
vitað einu áhugamennirnir sem
taka þátt í þessu sterka móti, þar
sem margir af bestu golfleikurum
heims eru meðal þátttakenda.
Þeim flölmörgu sem fylgst hafa
með golfþáttum í sjónvarpinu ættu
mörg nöfnin að vera kunnugleg.
Má nefna að meðal keppenda eru
Bernard Langer, Payne Stewart,
Jodie Mudd, Ronan Rafferty, Ian
Woosnam, David Feherty, Magnus
Persson, Jose Rivero, Mark James,
Frank Nobilo, Sam Torrance, Gor-
don Brand jr. og Peter Senior. Af
þessu má sjá að Úlfar og Siguijón
verða í góðum hópi kylfinga þegar kvöld, verður þá sjónvarpað í tvo dag og sunnudag verður mótið
þeir hefja leik á miðvikudaginn. klukktíma. Á fimmtudaginn verð- hluti af íþróttapakka í beinni út-
Sem áður segir mun Eurosport ur sjónvarpað frá 19.00-21.30. Á sendingu sem hefst kl. 12.30 og end-
sýna beint frá mótinu og hefst út- fóstudaginn verður sjónvarpað frá ar kl. 19.00. -HK
sending kl. 20.00 á miðvikudags- kl. 19-21.30 og 0.30-2.30. Á laugar-
Úlfar Jónsson, islandsmeistari í golfi 1990, verður annar keppenda ís-
lendinga á heimsbikarnum í golfi í Orlando sem hefst í næstu viku.
Stöð 2 á fimmtudagskvöld:
Draumalandið
með Ómari
Ómar Ragnarsson heldur nú úr
hlaði með nýstárlega ferðaþætti sem
hann hefur kosið að nefna Drauma-
landið. í hverjum þætti fær Ómar til
liðs við sig viðmælanda sem á sér
sérstakt draumaland á íslandi. Að
sögn Ómars er draumalandið staður
eða svæði sem viðkomandi hefur
sérstakt dálæti á, annaðhvort vegna
þess að hann unir sér þar svo vel eða
þá að þetta er staður sem hann hefur
lengi dreymt um að stíga fæti á. Til
þess að leysa ferðavandann eru not-
aðar flugvélar og bílar og úr vefður
ferðalag sem er mislangt og gengur
misvel. Á meðan á ferðinni stendur
notar Ómar tækifærið og spjallar við
þátttakandann, forvitnast um hann
sjálfan og viðhorf hans, einkum þó
til draumalandsins.
í fyrsta þættinum fylgjumst við
með ferðalagi hjónanna Egils Ólafs-
sonar, Stuðmanns og leikara, og
Tinnu Gunnlaugsdóttur leikkonu í
ævintýralegri jöklaferð. Egill hafði
átt sér draum um slíka ferð en tíminn
Ómar Ragnarsson ferðast með fólk til draumalandsins.
hafði alltaf verið naumur til slíkrar
ævintýraferðar. Draumaland Egils
og Tinnu er í Kverkfjöllum en til
ferðarinnar höfðu þau eitt laugar-
dagssíðdegi, alls um níu tíma. Þetta
dæmi var leyst með því að flytja þau
hjónin frá Norðfirði upp í Kverkíjöll
og til Egilsstaða á þessum fáu
klukkustundum með því að nota
flugvél og bíl. Þetta tókst og urðu þau
hjón reynslunni ríkari.