Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Blaðsíða 1
Sjónvarp á nýársdag: Wolfgang Amádeus A árinu sem nú fer í hönd veröa 200 ár liðin frá því aö einn mesti tón- snillingur er mannkyn hefur eignast var jarösettur í ómerktri fjöldagröf í fátækrakirkjugarði suður í Vínar- borg. Til aö minnast þessa munu tónlist- armenn, hljómplötuúgáfur og sjón- varpsstöðvar, víös vegar um hinn Meðal þeirra verka, er heyrast í dagskránni, eru fyrstu tónsmíðar Mozarts. vestræna heim, heiðra minningu tónskáldsins með hinum fjölbreyti- legasta hætti á árinu. M.a. hafa sjón- varpsstöðvar í Evrópu gert einnar og hálfrar klukkustundar langa dag- skrá í sameiningu um tónskáldið og er hún nú sýnd í 15 löndum álfunnar um þessar mundir og nú bætist ís- land í hópinn. í dagskrá þeirri, sem nú er í boði, verður fylgt í fótspor Mozarts á nokkrum ferðalaga hans, þá er hann sótti heim borgir í Austurríki, Tékkóslóvakíu, Frakklandi, Þýska- landi, Ítalíu og Niðurlöndunum. Sjónvarpsstöðvar í viðkomandi lönd- um hafa lagt til „tónhstarmynd- bönd“ frá hinum ýmsu áfangastöð- um, þar sem rakin er stuttlega dvöl tónskáldsins á hverjum stað, leikin tónlist, er hann samdi í viðkomandi landi, og brugðið upp listaverkum eftir samtíðarmenn hans. Meðal þeirra verka, er heyrast í dagskránni, eru fyrstu tónsmíðar Mozarts, er píanóleikarinn Paul Bad- ura-Skoda leikur á hljóðfæri í Moz- art-safninu í Salzburg, er var í eigu tónskáldsins. Af öðrum verkum má nefna úrval úr óperunum Idomeneo, Le Nozze di Figaro og Don Giovanni auk Ave Verum Corpus, flautukvart- etts k.285 og þekktra verka fyrir píanó. Stöð 2 á nýársdag: Pappírstungl og Fiskurinn Wanda Stöð 2 sýnir tvær léttar og skemmtilegar gamanmyndir á ný- ársdag. Hin fyrri er fjölskyldumyndin Pappírstungl sem komin er til ára sinna en hefur litlu tapað á vegferð- inni. Myndin fjallar um feðgin sem ferðast vítt og breitt um Bandaríkin, selja biblíur og pretta náungann eilít- ið. Það eru feðginin Tatum og Ryan O’Neil sem leikar þetta þokkapar en Tatum litla fékk óskarinn fyrir leik sinn. Myndin fær fjórar stjörnur hjá Maltin. Mynd kvöldsins er önnur óskars- verðlaunamynd. Hún er töluvert nýrri og heitir Fiskurinn Wanda sem sýnd var hér á landi fyrir tveimur árum. Það er Monty Python maður- inn John Gleese sem heldur hér um stjórnvölinn og á hann bæði heiður- inn af handriti og leikstjórn. Banda- ríski leikarinn Kevin Kline nældi sér aftur á móti í óskarinn fyrir sinn þátt í myndinni. Gleese leikur teprulegan mála- færslumann sem fellur fyrir glæsi- legri stúlku sem Jamie Lee Curtis Feðginin Tatum og Ryan O’Neil i hlutverkum sínum. leikur. Ástmaður hennar er hálf- gerður neðanbeltis Rambó í alltof síðum frakka og vinur skötuhjúanna er stamandi gullfiskasafnari. Mála- færslumaðurinn er að verja kunn- ingja þeirra sem situr inni fyrir rán. Ekki er allt með felldu hjá vinunum og sitja þeir á svikráðum hvor við annan. Sjónvarp á gamlársdag: Áramótaskaupið Nei, það er þó alveg á hreinu að ekki líðum við skauplaus í aldanna skaut. Skaupið er orðið jafnómiss- andi íslensku þjóðinni og greiðslu- kortin enda lætur það sig ekki vanta í kvöld fremur en endranær. Það er Andrés Sigurvinsson leik- stjóri sem leiðir harðsnúinn og óvæginn flokk í krossferð útúrsnún- inga, afbakana og eggbeitts háðs um atburði og persónur nýliðins árs og engum er hlíft, enda væri það nú skárra! Á þriðja tug leikara blandast inn í Skaupið með einu eða öðru móti en handritshöfundar eru þeir Gísli Rúnar Jónsson og Randver Þorláks- son er hafa skyggnst í kveija kirnu „skandala" og skemmtunar á árinu 1990; allt í því skyni að geta borið fram sem mergjaðast og magnaðast Skaup. Áramótaskaupið hefst kl. 22.30 en stjómandi upptöku var Björn Emils- son. Ýmsar persónur koma við sögu og þar á meðal þessi. Stöð 2 á gamlársdag: Tvær kvikmyndir Stöð 2 sýnir tvær kvikmyndir á gamlársdag. Hin fyrri heitir beint á ská og er gamanmynd sem lýsir starfi lögreglumannsins Frank Dreb- in sem leikinn er af Leslie Nielson. Frank þessi Drebin er líklega heimskasti lögreglumaðurinn síðan hinn eini sanni Clouseau var upp á sitt besta. Sumum hefur þó þótt sem ímyndunarafl leikstjórans hafi hlaupið með hann í gönur. Orðaleik- ir gegna stóru hlutverki í myndinni og segir í kynningu að áhorfendur séu hvattir til að hlæja með mynd- inni á þessum síðasta degi ársins. Síðari myndin er kínverska stúlk- an og segir hér frá því að ítalskur strákur verður skotinn í kínverskri stúlku. Slíkt á ekki upp á pallborðið hjá fjölskyldum þeirra enda togast meðlimir fjölskyldnanna á um völd í undirheimunum. Þau eru þó stað- ráðin í að láta ekkert stía sér í sund- ur og hefur það í för með sér ófyrir- sjánlegar afleiðingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.