Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
Utlönd
Saddam Hussein í viðtali við fréttamann CNN í Bagdad:
Hótar að hlaða Scud-
f laugar ef navopnum
- segist þakklátur fyrir baráttu Vesturlandabúa gegn stríðinu
Saddam Hussein hefur varaö and-
stæðinga sína viö að senn hvaö líður
fari Scud-eldflaugar íraka aö bera
efna- og sýklavopn. Til þéssa hafa
flaugarnar aðeins veröi hlaðnar
hefðbundnum vopnum. Hann sagði
einnig að flaugarnar gætu borið
kjarnavopn.
Forsetinn lét þessi orð falla aðeins
fáum klukkustundum eftir að enn
ein eldflaugaárásin var gerð á borgir
í ísrael og Saudi-Arabíu í gærkveldi.
Hótun Saddams um að nota eitur- og
sýklavopn kom fram í viötali sem
bandaríski stríðsfréttaritarinn Peter
Arnett átti við hann í Bagdad.
í viðtalinu sagði Saddam aðspurð-
ur að hann mundi nota þau vopn sem
jöfnuðust á við vopnin sem beint
væri gegn írökum. Þetta er fyrsta
viðtalið sem tekið er við Saddam eft-
ir að gagnsókn bandamanna hófst
þann 17. janúar. Hann hefur áður
hótað liði bandamanna leynivopnum
en ekki sagt svo berum orðum að
írakar hyggist hlaða Scud-eldflaugar
sínar eiturvopnum.
Eiga ekki kjarnavopn
Vestrænar leyniþjónustur segja að
írakar hafl yfir þessum vopnum að
ráða en ekkert bendi til að þeir hafi
lokið við smíði kjarnorkusprengju.
írakar hafa ekki hikað við að nota
efnavopn í hernaði. Þáð sannaðist í
stríðinu við írana á síðasta áratug
og einnig gegn Kúrdum í norður-
héruðum landsins fyrir rúmum
tveimur árum. Þá létu 4000 óbreyttir
borgarar lífið á einu kvöldi.
í viðtalinu viö Peter Amett virtist
Saddam mjög rólegur og yfirvegaður.
Hann var spurður hvort hann hefði
einhverjar efasemdir um að stríð
hans við bandamenn kynni að vera
fyrirfram tapað. Hann sagðist ekki
efast um sigur íraka.
Réttlætanlegt að nota olíuna
Saddam sagði ennfremur að rétt-
lætanlegt væri að nota olíu sem vopn
í þessu stríöi vegna þess að banda-
menn hefðu hafið þann leik með því
að gera árásir á olíubirgðastöðvar
Saddam Hussein sagði í viðtalinu við Peter Arnett að hermenn hans myndu ávinna sér virðingu alls heimsins
þegar bardagar hæfust á landi. Hér er hann í liðskönnun á vígstöðvunum. Simamynd Reuter
íraka. Þetta er fyrsta vísbendingin
frá írökum um að þeir hafi viljandi
dælt olíu í Persaflóa síðustu daga en
þeir hafa til þessa haldiö því fram
að olíuflóðið þar stafaði af loftárás-
um bandamanna.
Saddam var spurður um írösku
flugvélarnar sem síðustu daga hafa
lent á flugvöllum í íran. Deildar
meiningar eru um hvort flugmenn
þeirra eru liðhlaupar eða hvort hug-
myndin er að geyma vélarnar á ör-
uggum stað og nota þær á síðari stig-
um stríðsins.
Saddam sagði að írakar og íranar
hefðu svipaðar skoðanir á stríðinu
og báðar þjóðimar litu á það sem
stríð milli hinna trúuöu og heiðingj-
anna. Með þessum orðum gaf hann
í skyn að íranar kynnu að skila flug-
vélunum en þeir hafa þó heitið að
gera það ekki fyrr en að stríðinu
loknu. Saddam tók þó fram að hann
myndi virða hveija þá afstööu sem
íranar tækju til málsins.
Þakklátur friðarsinnunum
Saddam sagði að guð einn réði hve-
nær stríð á landi hæfist. Hann sagði
að hermenn íraka myndu ávinna sér
virðingu alls heimsins þegar hæfni
þeirra í bardögum yrði lýðum ljós.
Hann sagðist óska Bandaríkja-
mönnum alls hins besta og vona að
enginn þeirra manna þyrfti að láta
lífið. Hann sagðist einnig þakklátur
fyrir friðargöngur á Vesturlöndum
og baráttu manna þar gegn stríðinu.
Reuter
Saddam Hussein virtist rólegur og
yfirvegaður i viðtalinu.
Simamynd Reuter
Arnett sagður reyndasti
stríðsfréttaritari heims
Peter Arnett, starfsmaður CNN-sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku.
Símamynd Reuter
Það þykir engin tilviljun að eini
vesturlenski fréttamaðurinn í
Bagdad skuli vera Peter Arnett.
Hann er líklega reyndasti stríðs-
fréttaritari heims. Hann hefur orðið
vitni að stríðshörmungum frá því
snemma á sjöunda áratugnum. í Ví-
etnamstríðinu varð hann að nokkurs
konar goðsögn og fyrirmynd margra
annarra. Hann fékk einnig mestu
viðurkenningu sem bandarískum
blaðamönnum er veitt, það er Puhtz-
erverðlaunin.
Amett var lengur í Víetnam en
nokkur annar fréttamaður eða í 13
ár. Frá 1962 til ársloka 1975 starfaði
hann þar fyrir AP-fréttastofuna.
Fréttir hans bámst um allan heim.
Hann var á sjálfum vígvellinum og
þegar til Saigon kom gat hann leið-
rétt tilkynningar blaðafulltrúa hers-
ins.
Amett fór ekki frá Saigon áöur en
hermenn Noröur-Víetnam tóku
borgina eins og flestir aðrir banda-
rískir fréttamenn. Hann var beðinn
að koma heim en neitaði og hélt
áfram skrifum sínum.
Peter Arnett, sem nú er 57 ára,
hélt áfram að starfa sem stríðsfrétta-
ritari að loknu Víetnamstríðinu. Þeg-
ar AP-fréttastofan vildi fela honum
önnur verkefni fór hann yfir til
CNN-sjónvarpsstöðvarinnar. Síðan
hefur hann fylgst með stríðum í Mið-
austurlöndum, Afganistan og Mið-
Ameríku.
í nokkur ár starfaði Arnett í
Moskvu fyrír CNN. Hann var ekki
ánægður þar því sjónvarpsstöðin
vildi ekki leyfa honum að ferðast um
sovésku lýðveldin og greina frá deil-
um og róstum í þeim. Síðustu árin
hefur Arnett haft bækistöð í ísrael.
Hann bað um að fá að fara til
Bagdad, ekki vegna þess að hann
þyrfti að sanna eitthvað meira, eins
og hann sagði, heldur vegna þess að
hann vildi ekki missa af tækifærinu.
28. janúar
08.40 - írakar segjast hafa skotiö
niður flugvél bandamanna.
Sögðu þeir liana hafa fallíð log-
andi til jarðar i Tyrklandi en
tyrknesk yfirvöld vísa fréttinni á
bug.
09.15 - Jórdanskir fióttamenn fá
að fara frá írak.
10.40 - írönsk yfirvöld segja þrjá-
tíu og sex íraka hafa flúið yfir
landamærin um nóttina og beðið
um hæli.
12.40 - Einn leiðtoga írösku
sijórnarandstöðunnar segir
menn sina muni berjast gegn
bandamönnum ef til átaka kemur
á landi.
14.10 - írakar segja loftárás
bandamanna á olíubirgðastöð í
Kúvæt hafa orsakað olíuflóðið.
15.15 - Bandaríkjamenn tilkynna
að þeir hafi misst Harrier-flugvél
í orrustu. Er það fyrsta tilkynn-
ing bandamanna um flugvéla-
missi síðastliðnar 72 klukku-
stundir.
15.29 - Olíumálaráðherra Saudi-
Arabíu segir íraka hafa dælt yfir
ellefu milljónum tunna af hráolíu
í Persaflóa.
15.48 - Sovéskur herforingi segir
bandamenn hafa hæft íraskar
efna- og sýklavopnageymslur en
margar séu enn heilar.
15.57 - Kohl Þýskalandskanslari
ítrekar boð þýskra yfirvalda um
aðstoð til handa ísraelum gegn
eldflaugaárásum frá írak. írakar
komu sér upp vopnabirgðum með
aðstoð þýskra fyrirtækja.
18.02 - Heimildarmenn breska
hersins segja um hundrað írask-
ar flugvélar hafa lent í íran frá
þvi að stríðiö hófst.
18.10 - írakar skjóta eldflaug að
Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu.
Tilkynnt er að hún hafí verið
skotin niður.
19.12 - Eldflaugaárás á ísrael frá
írak. Sjónarvottar segja brot úr
eldflaug hafa fallið á Vesturbakk-
ann. ísraelski-herinn segir engan
hafa særst.
19.38 - Bandaríkin og Sovétríkin
fresta fyrirhuguðum leiðtoga-
fundi sem ráðgerður var í
Moskvu 11. til 13. febrúar. Ástæð-
an er sögð vera Persaflóastríðið.
19.59 - Varaforseti Sýrlands sakar
ísrael um að hagnýta sér stríðið.
Segir hann aukna fiárhagsaðstoð
til ísraela muni hindra fríðarvið-
leitni í Miðausturlöndum.
20.43 - Fréttaritari CNN-sjón-
varpsstöðvarinnar bandarísku,
Peter Arnett, kveöst hafa tekið
viðtal við Saddam Hussein íraks-
forseta í Bagdad.
21.41 - írakar segja stríðsfanga
hafa særst í loftárásum banda-
manna.
29. janúar
00.30 - Bandaríska sjónvarpsstöð-
in CNN hefur það eftir Saddam
Hussein að Scud-eldflaugar hans
geti borið kjarnorku-, efna- og
sýklavopn. í sjónvarpsviðtalinu
útilokar Saddam ekki að efna-
vopnum verði beitt.
01.05 - Sendiherra írans hjá Sam-
einuöu þjóðunum kveðst hafa
fullvissað framkvæmdastjóra
stofnunarinnar um að stjórn
hans muni kyrrsetja þær irösku
flugvélar og flugmenn sem komiö
hafa til írans þar til stríðinu lýk-
ur.
01.30- Talsmaður Bandaríkjahers
segir sérfræöinga munu þurfa aö
hreinsa tvo oliuflekki. Annar
þeirra er þegar sagður farinn að
menga strendur Saudi-Arabíu.
01.50 - Meirihluti fulltrúa í Ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna
ákveður að verða ekki við beiðni
ýmissa arabaþjóða um opnar
umræður um Persaflóastríðið.
03.04 - Handsprengjum varpað
inn í skrifstofu British Petroleum
í Aþenu.
06.05 - Sendiherra írans hjá Sam-
einuðu þjóðunum kveðst í út-
varpsvíðtali við íranska útvarpið
hafa komiö á framfæri mótmæl-
um við yfirvöld í Bagdad vegna
lendinga íraskra flugvéla í iran.