Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Blaðsíða 12
12
Spumingin
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
Lesendur
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór?
Hulda Soffia Jónasdóttir 6 ára: Ég
veit það ekki.
Sigurlaug Lilja Jónasdóttir 5 ára: Ég
ætla að verða hestakona og dýra-
læknir.
Trausti Jónsson 8 ára: Prentari eins
og pabbi minn. Hann vinnur í Odda.
Arna Sigrún Haraldsdóttir 8 ára:
Hárgreiðslukona eða ljósmóðir.
Jón Friðrik Garðarsson, að verða 8
ára: Kokkur, ég held að það sé gaman
áð búa til mat.
Lárus örn Lárusson 8 ára: Bygginga-
meistari eins og pabbi.
Skipaútgerö ríkisins:
Enginn
grundvöllur
Eitt skipa Skipaútgerðar ríkisins, Esja, við athafnasvæði útgerðarinnar í
Reykjavíkurhöfn.
Skattborgari skrifar:
Fyrir nokkrum vikum skrifaöi
Benedikt Gunnarsson framkvæmda-
stjóri grein í DV undir fyrirsögninni
„Skipaútgerð ríkisins - Tíma-
skekkja". Aldrei slíku vant birtist
svo á síðum blaðsins svargrein frá
forráðamönnum útgerðarinnar
skömmu síðar. Kom þá í ljós hið at-
hyglisverðasta mál. Sem sé, að þegar
uppgjör lá fyrir eftir árið varð 70
milljón króna „hagnaður“ hjá út-
gerðinni þegar búið var að reikna 155
milljón króna „flóabátastyrk" inn í
dæmið.
Ekkert var minnst á að þetta þýddi
85 milljón króna tap sem skattborg-
arar yrðu að greiöa. Þessi afkoma
útgerðarinnar er hálf bágborin í ljósi
þess að eldri skuldir, fjármagns-
kostnaður, svo og vextir voru að
mestu leytí felldir niður. En á árun-
um eftír 1980 stóð útgerðin í miklum
og íjárfrekum framkvæmdum á hús-
eignum sínum (vöruskemmu) svo og
skipakaupum - keypti m.a. tvö notuð
skip frá Noregi og eitt nýsmíðað frá
Englandi.
Þar sem afkastageta skipa iítgerð-
arinnar jókst við þessar breytingar,
og í harðnandi samkeppni við hin
skipafélögin, hófust svo hálfsmánað-
arlegar óarðbærar Færeyjasiglingar
með hálftóm skip báðar leiðir.
Stuttu síðar birtist á síðum dag-
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Svo fór að lokum að stríð hófst gegn
Vesturlöndum. Miðvikudagurinn 17.
janúar 1991 verður ekki framvegis
gleðidagur í hugum friðsamra
manna heldur dagur mistaka,
grunnhyggni og óvissu. Líka er leitt
til þess að hugsa að það voru banda-
menn en ekki andstæðingar þeirra
sem skutu fyrsta skotinu og hleyptu
þar með öllu í bál og brand og heims-
friðnum í stórfeflda hættu. - Þetta
segir manni að ráðamenn heimsins
eru ennþá við sama heygarðshornið
og fyrrum og hafa ekki fengið nægju
sína af styijöldum og valdafíkn.
Saddam Hussein og lýöurinn í
kringum hann er ekki bamanna
Guðm. Ingi skrifar:
Greint var frá því í Mbl 24. jan. sl.
að bæjarráð Kópavogs hefði sam-
þykkt að ný kirkja fyrir Digranes-
prestakall yrði reist við Víghól í
Kópavogi. Nú eru þijár sóknir í
Kópavogi sem fara ört vaxandi þ.e.
blaðanna fréttatilkynning frá Eim-
skip hf. um að það hefði skilað 300
milljón króna hagnaði á árinu 1990,
en stefnt hafði verið í 350 miflj. kr.
hagnað. Ekki er vitað til að Eimskip
hafi fengið neinar ívilnanir í greiðsl-
um á sínum framkvæmdum né á
vöxtum. - Þó keypti félagið tvö stór
ekjuskip og kom upp stórum krana
bestur, víst er um það. En núna virð-
ast Vesturlandamenn vera í „skýjun-
um“ yfir velgengni heija sinna enda
hafa allar árásarferðir flugheijanna
gengið „vonum framar" og sam-
kvæmt nýjustu fregnum (þegar þetta
er ritað) hafa írakar misst 150 þús-
und manns á þessum tveimur fyrstu
átaka-sólarhringum.
Já, það er hryllilegt að verða vitni
að þvílíkum hildarleik sem á sér stað
um þessar mundir við Persaflóann,
vitandi að skálmöld leysir engan
vanda og hefur aldrei gert. Það eina
sem styijaldir bjóða er eyðilegging,
dauði og hörmungar hjá saklausu
fólki. Heilu borgimar verða rústir
einar, engum til gagns. Og margt
Kársnes-, Digranes-, og Hjallasókn. -
Til stendur að reisa tvær kirkjur í
austurbæ Kópavogs en Kópavogs-
kirkja í Borgarholti þjónar Kársnes-
prestakalli, fyrir vesturbæ Kópa-
vogs.
Misráðið er að reisa tvær kirkjur
í Sundahöfn.
Er ekki kominn tími til fyrir ráða-
menn þjóðarinnar, sem sýknt og
heilagt tala um sparnað í ríkisrekstr-
inum svo og sölu á óarðbæram ríkis-
fyrirtækjum, að losa sig við Skipaút-
gerð ríkisins, þar sem enginn grund-
völlur er lengur fyrir að ríkisútgerð
geti borið sig?
bendir nú til þess að írakar muni
bíða lægri hlut í viðureign þessari
við bandamenn. - Samt gæti sá
draumur breyst í andhverfu sína
þegar loftárásunum lýkur og kemur
að framrás landhersveitanna.
Auðvitað vonar maður að þessari
vitfirringu ljúki sem fyrst. Eg geri
mér þó grein fyrir því að ekki er víst
að þessi von min rætist. Þessi skálm-
öld gæti orðið þess valdandi að það
kreppti að okkur íslendingum. Þess
vegna legg ég til hér og nú að íslend-
ingar slíðri nú sverðin og mæti þeim
hugsanlegu erfiðleikum samstilltir
en ekki sundraðir.
í austurbæ Kópavogs. Reisa ætti eina
veglega kirkju sem væri með aðstöðu
þannig að tvær athafnir gætu farið
fram samtímis. Einnig yrði þar góð
aðstaöa fyrir safnaðarheimifl sem
væri hægt að skipta niður í stóra
sali. Þeir séra Þorbergur Krisljáns-
son og séra Kristján Þorvarðarson
ættu að heíja samstarf og einnig báð-
ar sóknimar. Samstaða ætti að nást
um eina stóra og fallega kirkju, frem-
ur en að byggja tvær. - Samstarf
sóknanna skilar sér þannig í öflugra
starfi og göfugt er að sameinast um
svo stórt verkefni sem kirkjubygging
er.
Ef litið er til staðarvals er undar-
legt að ætla að taka lóð við Víghólinn
þar sem er útsýnisskífa með víða
fjallasýn og tel ég að kirkjan myndi
byrgja útsýni í norðaustur frá skíf-
unni. - Faflegur staður fyrir kirkju
þessa er t.d. sunnan Digranesvegar,
skammt austan Bröttubrekku, með
fallegt útsýni yfir „Voginn“. Einnig
hefði verið hægt að hafa kirkjuna
sunnan Digranesvegar, á móts við
Skálaheiði, en þar er víst búið að
skipuleggja íbúahverfi. - Samein-
umst um að byggja eina kirkju fyrir
austurbæinga í Kópavogi.
Frábærsýning
Gestur skrifar:
Um daginn var mér óvænt boð-
iö í Nemendaleikhúsið í Lind-
arbæ. Ég fór með hálfum huga
því aö ég hef haft heldur nei-
kvæða afstööu til Nemendaleik-
htissins, án þess þó aö hafa kynnt
mér starfsemi þess í gegnum árin.
- En þessa kvöldstund breyttist
afstaða min heldur betur.
Sýnt var amerískt leikrit, Leik-
soppar. í sem fæstum orðum þá
var sýningin mjög skemmtileg.
Leiksvið og áhorfendasvæöi er
fremur óhefðbundið og skapaði
stomningu þegar í upphafi. Leik-
arar nýdtu sér vel nálægð við
áhorfendur. -Skemmtilegtleikrít
með góðum leikuram og gaf mér
ógleymanlega kvöldstund. Ég
hvet sem flesta til að leggja leið
sína í Lindarbæ þar sem sýnt er
leikrit fyrir hinn venjulega
mann.
Dýrirogódýrir
Einar Bjaraason skrifar:
Ég hef talsvert gert að því að
kaupa tilbúinn mat og fara með:
heim tilmín, einkum áfóstudags-
kvöldum eftir vinnu. Ég hef bæði
keypt kj úklinga og aðra rétti sem
eru seldir til að taka með sér
: heim. - Ég hef skipt' bæði við
matvöruverslanir og skyndibita-
staði. Ég hef tekið eftir því að
undanfómu, og reyndar í tals- .
verðan tíma, að vei-ðið á þessum ’
skyndibitastiiðum er orðið alh,
allt of hátt. Þar er álagningin orð-
in ansi há.
Sem dæmi get ég gefið verö á
steiktum kjúklingi í Miklagarði
sem kostar heill og án nokkurs
meðlætis kr. 690 en á skyndibita-
stað, eins og. t.d. á Svörtu pönn-
unni, kr. 1390. Þetta nær ekki
nokkurri átt og hvet ég fólk til
að kanna verðmismun ef það vill
í raun spara peningana.
Teletexf hjáSky
Ari Thor skrifar:
Ég horfi yfirleitt eingöngu á rík-
issjónvarpið og er núna afar
ánægður með að Sjónvarpið skuli
senda út teletext en það er hægt
að fletta upp tölvuupplýsingum
um veður, leiki og ótal margt
annað efni. - Flest ný sjónvarps-
tæki geta tekið á móti þessu og
þarf þá bara aö bíða þar til Sky
News sendir út og þá virka allt i
einu fullt af tökkum áfjarstýring-
unni. Era þar u.þ.b, 800 blaðsíöur
af upplýsinguni og skemmtiethi.
Kunningi minn í Grimsey nær
þessu t.d. mjög vel svo að dreiii-
kerfið hjá Sjónvarpinu virðist
ráða við þetta. Þeir sem eiga ný-
legt sjónvarp geta því náð þcssu
ef jieirhafa teletext möguleika. -
Þarna sló RÚV Stöð 2 við, hvort
sem þeir hjá RÚV vita af þessu
eða ekki.
Íþróttirí
Hólminum
Hólmari skrifar.
í nóvember sl. var nýtt og glæsi-
legt íþróttahús vigt hér í Stykkis-
hólmi. Sýnd voru td. heimatilbú-
in íþróttaatríði. Hæst bar þó leik
héimamanna og Vals í úrvals-
deildinni í körfu. - Sá leikur varð
til þess að húsiö fékk þó umfjöll-
un í fjölmiðlum. Svekktur Hólm-
ari hringdi í Þjóðarsálina,
óánægður með litla umfjöllun -
og ekkert i sjónvarpsfréttum. s
Sagði þá stjórnandi þáttarins
að yflrleitt væri nú lítið sýnt frá
svona atburðura, sama hvar á
landinu væri. Og ekkert frekar
frá Reykjavík. Á dögtmum var
vígt nýtt íþróttahús í Þorlákshöfn
og þá var sýnt frá þeim atburði í
Sjónvarpinu, einniger samskon-
ar hús var vígt í Hafnarfirði. -
Kannski hefur umræðan þá haft ;
einhver áhrif eftir állt.
Útsýnisskífa á Víghóli í Kópavogi. - Ekki vill bréfritari kirkjubyggingu þar.
Vesturlönd í „skýjunum“
Byggjum eina kirkju