Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Side 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
17
íþróttir
• Liverpool er enn á höttunum
eftir sterkum miðverði en viröíst
hafa géfist upp á að krækja í Dean
Yates hjá Notts County og hefur
nú snúið sér að Craig Short sem
er félagi Yates í vörnixmi hjá
Notts County. Dalglish hefur lika
áhuga á miðvallarspilaranum
Phil Draper hjá sama félagi en
það hafa líka Arsenal, Totten-
ham, Everton og Sheífield Wed-
nesday. Dalghsh hefur i tvígang
brugðið sér á Gay Meadow til aö
fylgjast með umræddum leik-
mönnum og útsendarar félagsins
eiga nú orðið fast sæti á heima-
velli Notts County.
Kendall villólmur
kaupa Mark Ward
• Howard Kendall, stjóri Ever-
ton, hefur nú boðið 900 þúsund
pund í Mark Ward, leikmann
Man. City, en því var snarlega
hafnað. Kendall keypti einmitt
Ward til City á sínum tíma og lét
þá Ian Bishop og Tony Morley í
skiptum til West Ham. Vakti sú
aögerð htla ánægju hjá aðdáend-
um Man. City. Þrátt fyrir neitun
City-leikmanna gafst Kendall
ekki upp en hefur í milhtíðinni
beint spjótum sínum að Steve
Hodge hjá Nottingham Forest.
Einhver órói virðist hrjá Hodge
hjá Forest þessa dagana, mýmörg
hð vilja fá þennan snjalla leik-
maim í sínar raðír en Clough ger-
ir hvaö hann getur til að halda i
leikmanninn, enda er hann mik-
ilvægur hlekkur í hði Forest.
Endurbætur
á leikvöllum
• Tæplega 7,7 milljónum punda
hefur verið úthlutað til knatt-
spymuliða í Englandi og Skot-
landi til að vinna aö endurbótum
á knattspyrnuvöllum, stefna á að
því að eingöngu verði starfræktir
vellir sem bjóða upp á sæti. Við
þessa úthlutun fengu Liverpool
og Glasgow Rangers um 2 mihj-
ónir hvort félag um sig en önnur
hð sem fengu úthlutun voru
Crystal Palace, Aston Viha, Ever-
ton, Tottenham, Man. Utd,
Aberdeen og Hibernian. Rangers
mun nota sína upphæð th að
vinna við aðalstúkuna á Ibrox
Park en áætláöur kostnaður við
þær breytingar hljóðar upp á 14
milljónir punda.
David Lee vill fara
• David Lee, hinn 21 árs gamh
leikmaöur Chelsea, er ekki beint
ánægður með líiið á „brúnni"
þessa dagana og hefur lagt fram
beiðni þess efnis að hann verði
seldur til annars félags. Bobby
Cambeh, sfjóri Chelsea, var þó
ekki hrifinn af þessu uppátæki
stráksins og sagði þvert nei.
FerSaunders
til Rangers
• Glasgow Rangers er eitt þeirra
liða sem gæti vel hugsað sér aö
fá velska framherjann Dean
Saunders frá Derby County í sin-
ar raöir. Walter Smith, aðstoöar-
stjóri Rangers, segir að hann hafi
oft brugðið sér suður til að horfa
á hann spila en bætti við aö hugs-
anlegt kaupverð gerði það að,
verkum að áhuginn væri kannski
minni eneha. Smith segir að ekki
sé gott aö átta sig á kaupverðinu,
enda gæti þaö verið einhvers
staðar á bihnu tvær th fimm
milljónir punda.
Shrewsbury
verðlaunað
• Shrewsbury hefur veriö verð-
launað fyrir að slá út Wimbledon
á heimavehi og fær nú Arsenal
eða Leeds I heimsókn í næstu
umferð. John Bond, stjóra
Shrowsbury, leist ágætlega á
dráttinn og segir aö ekki komi til
greina að „selja“ leikinn á Hígh-
bury eða Ehand Road.
íþróttir
Bandarískur körfuknattleikur:
Portland enn
á sigurbraut
- Lakers vann Boston stórt
Einn leikur fór fram í NBA-dehd-
inni í körfuknattleik í fyrrinótt.
Gömlu stórveldin Boston og Los
Angeles Lakers áttust þá við á
heimavelli Boston. Búist var við
spennandi leik en gestirnir frá Los
Angeles fóru á kostum og sigruðu
örugglega með 17 stiga mun, 87-104.
Portland Trailblazers er sem fyrr
með besta vinningshlutfalhð í deild-
inni. Portland hefur unnið 36 leiki
og aðeins tapað sjö th þessa. Lakers
sem leikur í sama riðli og Portland
hefur tápað 11 leikjum. Lakers byrj-
aði tímabihð illa en hefur tekið stökk
upp á við eftir því sem á tímabhið
hefur hðið.
Orlando Magic er það hð sem hefur
unnið fæstu leikina. Liðið hefur að-
eins unnið 10 leikiö en tapaö 32 og
vinningshlutfahið aðeins rúmlega 23
prósent.
Staðan í riðlunum í NBA-dehdinni
eftir þennan leik er þessi. í töflunni
eru fyrst unnir leikir, þá tapaðir og
los vinningshlutfall í prósentum:
Atlantshafsriðill:
Boston.............
76ers..............
Washington.........
..30 11 73,2%
..23 19 54,8%
..18 23 43,9%
New York New Jersey Miami 18 23 14 27 11 31
Miðriðill
Chicago 29 12
Detroit 30 13
Mhwaukee 27 17
Atlanta 24 17
Indiana 17 24
Charlotte 13 27
Gleveland 13 28
Miðvesturriðill
SASpurs 29 10
Utah 27 15
Houston 22 20
DaUas 14 26
Minnesota 13 26
Denver 11 30
Orlando 10 32
Kyrrahafsriðill
Portland 36 7
LA Lakers 30 11
Phoenix 27 13
Golden State 23 17
Seattle 19 20
LA Clippers 15 27
Sacramento 11 28
-GH
• Tarry Porter hjá Portland Trailblazers smeygir sér framhjá Bill Cartwright í liði
Chicago Bulls í leik liðanna fyrir skömmu. Porter hefur leikið stórt hlutverk með Port-
land í vetur. Simamynd Reuter
Atavin genginn í
raðir Granollers
- félagið vill halda í Geir Sveinsson
• Atavin leikur með Granollers á
næsta tímabili.
Spænska handknattleikshðið
Granollers gekk um helgina frá
þriggja ára samningi við sovéska
landsliðsmanninn Atavin og mun
hann byrja að leika með liðinu á
hausti komanda.
Atavin er af mörgum tahnn einn
•besti handknattleiksleikmaður í ■
heiminum í dag, aíhhða leikmaður í
vörn og sókn. Atavin kemur frá Len-
ingrad.
Geir Sveinsson landsliðsmaður
hefur síðustu þrjú ár leikið með
Granohers en samningur hans við
félagið rennur út í vor.
„Atavin styrkir liðið mikið“
„Forráðamenn Granollers hafa rætt
við mig um að ég framlengi samning
minn við félagið. Þeir vhja að ég leiki
áfram með hðinu en viðræður um
það eru á frumstigi. Við munum setj-
ast niður í lok mars og þá fæst endan-
lega úr því skorið hvort ég framlengi
samninginn. Þetta veltur á hvaða
mannskapur verður hjá hðinu á
næsta tímabhi en koma Atavins til
félagsins er óneitanlega gífurlegur
styrkur," sagði Geir Sveinsson
landsliðsmaður í stuttu spjalh viö
DV í gær. -JKS
Doug _Ellis, stjórnarformaður Aston
Vhla, er orðinn mjög áhyggjufuhur um
stöðu félagsins í dehdinni og óttast jafnvel
fall í 2. deild. Til að koma í veg fyrir það
er hann tilbúinn að leggja í'ram fé svo að
hægt sé að kaupa þá leikmenn sem geta |
hugsanlega lyft Aston Villa upp töfluna.
Svo áhyggjufullur er Ellis að hann segir I
að ekki þurfi endhega aö selja leikmenn
fyrst til að útvega fjármagnið. Þeir leik-
menn, sem eru nefndir til sögunnar sem |
hugsanlegir bjargvættir, eru Vinny Sam-
ways hjá Tottenham og Gary Penrice, j
framherji Watford.
Allir eru hins vegar ákveðnir í að styðja
við bakið á Josep Venglos framkvæmda-
stjóra en hann gerði tveggja ára samning |
við félagið í upphafi keppnistímabhsins.
Yfirlýsing frá Skotfélagi Reykjavíkur
Vegna blaöaskrifa Carls J. Ei-
ríkssonar og Skotsambands íslands
í DV 21. og 23. janúar 1991 um meint
„ný“ íslandsmet Tryggva Sig-
mannssonar í Noregi, vill stjórn
Skotfélags Reykjávíkur taka fram
eftirfarandi:
í skýrslu stjórnar Skotsambands
íslands, sem lögð var fram á þingi
sambandsins í desember 1987, er
skrá yfir íslandsmet í nokkrum
greinum. í þeirri skrá stendur orð-
rétt: „5. Skammbyssa, loftbyssa 60
skot 567 stig Carl J. Eiríkss'on 22.
júlí 1985, Isle of Man.“ (eldri skot-
skífur). Þessum árangri náði Carl
á Eyjaleikunum á Isle of Man 1985,
en þaö var alþjóðlegt mót eyþjóða.
Þrátt fyrir þetta birtist eftirfar-
andi frétt frá Skotsambandi íslands
í Morgunblaðinu 2. febrúar 1989:
„Tryggvi Sigmannsson skotmaður
setti nýtt íslandsmet í keppni með
loftbyssu á opnu móti í Förde í
Noregi á dögunum. Hann hlaut 567
stig af 600 mögulegum." (eldri skot-
skífur). Engum getur dulist að hér
fór Skotsamband íslands með rangt
mál því að árangur Tryggva getur
ekki talist nýtt íslandsmet, þegar
eldra met, sem STÍ hefur skráð í
metaskrá sína mörgum árum áður,
er jafnað.
Skotsambandið virðist síðan
halda uppteknum hætti í fréttatil-
kynningu sem birtist í Morgunv
blaðinu og DV þann 17. og 18. þessa
mánaðar. Þar segir að Tryggvi hafi
sett nýtt íslandsmet í loftskamm-
. byssu ef hann fékk 566 stig á móti
í Noregi (nýjar skotskífur), og að
hann hafi með því bætt íslandsmet-
ið um eitt stig. En Carl J. Eiríks-
son, Skotfélagi Reykjavíkur, hlaut
einmitt 566 stig (nýjar skotskífur)
í sömu grein á Reykjavíkurmeist-
aramótinu 19. maí 1990.
í yfirlýsingu sinni í DV 23. þessa
mánaðar reynir Skotsambandið að
réttlæta fréttina um „nýtt“ met
Tryggva með því að segja að Skot-
félag Reykjavíkur hafi ekki upp-
fyllt skhyrði til að fá met viður-
kennd, þegar Reykjavíkurmeist-
aramótið var haldið. Þessu vhl
stjórn Skotfélags mótmæla. Mótiö
var auglýst í byssudálki DV bls. 27
í DV 4. maí 1990 og var þannig aug-
lýst með 15 daga fyrirvara. Samt
fuhyrðir STÍ í DV 23. þessa mánað-
ar að rétt auglýsing mótsins sé eitt
af þeim skilyrðum sem Skotfélag
Reykjavíkur uppfyllti ekki.
STI var kunnugt um mótið. Nið-
urstöður úr þvi ásamt öðrum mót-
um á árinu 1990 voru sendar th
STÍ. Þar var tekið fram að um ís-
landsmet væri að ræða. Engin mót-
mæh komu þá frá STÍ. Niðurstöður
mótsins voru einnig birtar í Morg-
unblaðinu og DV þann 22. maí 1990
pg var einnig þar tekið fram að um
íslandsmet væri aö ræða. Þá komu
heldur engin mótmæli fram. Liður
c. í 2. grein í móta- og keppendaregl-
um ÍSÍ, sem STÍ vitnar th, fjallar
um keppni mihi héraða og á því
ekki við um keppni innan héraðsv
Reykjavíkurmeistaramótiö var
keppni innan héraðs (ÍBR). Mótið
var heldur ekki mót milli félaga
innan héraðs, því að Skotfélag
Reykjavíkur er eina skotfélagið
innan ÍBR.
Það er ekki rétt að umsókn um
mótið hefði átt að berast til STÍ
fyrir 1. mars 1990 eins og STÍ fuh-
yrðir, því að mótið var hvorki al-
þjóðamót né landsmót, sbr. 3. grein
sem STÍ vitnar th. Framkvæmda-
nefnd mótsins sá um að senda rétt-
um aðha skýrslu um mótiö sam-
kvæmt 6. grein. Skýrslan kom til
félagsins samdægurs, það er 19.
maí 1990. Skýrslan er undirrituð
af 3 mönnum er sáu um mótið, en
fimm keppendur tóku þátt í mót-
inu. Rétt er að minna á að síðari
hluti 12. greinar laga STÍ og 18.
grein laga ÍBR hafa ekki lengur
gildi, en því ræður hefð.
Af því sem hér hefur verið sagt
telur stjóm Skotfélags Reykjavíkur
að Reykjavíkurmeistaramótið í
loftskammbyssu 1990 hafi verið
löglegt í alla staði. Skotféiag
Reykjavíkur telur ekki annað fært
en að að láta reyna á staöfestingu
íslandsmets Carls J. Eiríksonar í
loftskammbyssu hjá réttum aðhum
sem væntanlega eru íþróttadóm-
stólar, þar sem stjórn STÍ neitar
staðfestingar.
F.h. stjórnar Skotfélags
Reykajvíkur:
Árni Þór Helgason
Baldur Bjarnason
Björn Birgisson
AiiAmi imaIÍmh
w jm ■■■■ w ■
3 40 milliomr
■ ISIHilHJwKHflH
Gurmar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Lið Guðna Bergssonar í ensku
knattspyrnunni, TottenhamHotsp-
ur, á við mikla fiárhagsörðugleika
að stríða og hefur komið fram í
fréttum að félagiö þurfi jafnvel að
selja- sína bestu leikmenn til að ná
endum saman.
Einna helst hefur verið talað um
• Guðni Bergsson og Paul Gascoigne á góðri stund. Guðni er metinn
á 40 milljónir en Gascoigne á iitlar 750 milljónir íslenskra króna!
að Totteihiam muni selja þá Gary
Lineker og Paul Gascoigne. Breska
blaðið Today veltir þessum mögu-
leikum fyrir sér og birtir lista yfir
alla leikmenn félagsins og hversu
mikið fengist fyrir hvern og einn.
Eins og við var búist er Paul Gas-
coigne dýrastur og verðlagður á 7,5
mihjónir punda eða um 750 milljón-
ir íslenskra króna. David Howells
er sagður kosta 2 mihjónir punda
eða um 200 milljónir króna, Paul
Stewart á 1,7 mihjón punda eða um
170 mhljónir króna.. Tottenham
borgaði Manchester City á sínum
tíma 170 nhfijónir króna fyrir Stew-
art en öruggt má telja að Totten-
liam fengi ekki þá upphæð fyrir
hann í dag. Gary Lineker er verð-
lagður á 1,5 mihjónir punda eða um
150 milljónir en það er sama upp-
hæð og Tottenham borgaði Barcel-
ona fyrir hann á sínum tíma. Nay-
im er sagður kosta það sama og
Lineker, Paul Waish 1,2 mihjónir
punda eða um 120 mihjónir króna
og Vinny Samways á eina rnhljón
punda eða um 100 mihjónir. Að
sögn breska blaðsins Today eru
aðrir leikmenn Tottenham sagðír
kosta mun minna en áðurnefndir
leikmenn og að mati blaösins
myndi Guðni Bergsson kosta 400
þúsund pund eða ura 40 mihjónir
íslenskra króna.
í kjölfar erfiðrar íjárhagsstöðu
Tottenham og þeirrar staðreyndar
að núverandi framkvæmdastjóra
félagsins, Terry Venables, hefur
ekki veriö boðinn nýr freistandi
samningur, eru breskir sparksér-
fræðingar farnir að velta því fyrir
sér hver muni taka við af honum.
Eins og alltaf eru veðbankar fljótir
að taka við sér og hjá þeim þykir
lang liklegast að Argentínumaður-
imi Ossie Ardiles verði næsti fram-
kvæmdastjóri á White Hart Lane.
Aðrir sem nefndir eru th sögunnar
eru Bobby Robson hjá PSV í Holl-
andi, Joe Royle Oldham, Steve
Coppeli Crystal Palace, Bobby Go-
uld QPR, John Toshack Real Soci-
edad á Spáni og Steve Perryman
Watford.
• Héðinn Gilsson.
Héðinn allur
að koma til
Héðinn Ghsson skoraði 5 mörk þegar lið hans,
Dússeldorf, sigraði Berlin á útivelh, 17-22, í 2.
deild þýska handboltans um helgina. Sigur
Dússeldorf var öruggur og á tímabih í síðari
hálfleik var munurinn átta mörk. Héðinn og
félagar eru í efsta sæti, eru með tveimur stigum
fleira en lið Hameln sem á þó einn leik th góða.
íslenska landshðið í handknattleik leikur tvo
leiki gegn Ungverjum 11. og 12. febrúar í Laug-
ardalshöh. Fá íslenskir handboltaáhugamenn
að sjá Héðin á fjölum Haharinnar?
„Ég hef ekkert heyrt frá forráðamönnum HSÍ
og þar af leiðandi get ég ekki svarað því nú.
Það er toppleikur á dagskrá þann 10. febrúar
en þá leikum við gegn Hamlen á útivelli. Horst
Bredemeier, þjálfari Dússeldorf og þýska lands-
Uðsins, hefur sagt við mig að ef til mín verður
leitað vegna landsleikjanna þá fái ég leyfi frá
félaginu til að fara en ekki fyrir eftir leikinn
gegn Hameln. Ef ég kem í leikina þá er líklegt
að Bredemeier komi til íslands og fylgist með
leikjunum,“ sagði Héðinn Gilsson í samtah við
DV.
-GH
IS vann
toppslag-
inn við
Haukana
ÍS sigraði Hauka, 49-48, í viður-
eign tveggja efstu liðanna í 1.
dehd kvenna í körfuknattieik
sem fram fór í gærkvöldi.
ÍS hafði örugga forystu í hálf-
leik, 25-12, en að venjulegum leik-
tíma loknum var staðan jöfn,
43-43, og Haukum brást þá víta-
skot á síðustu sekúndunni. í
framlengiflgu skoraði síðan Vig-
dís Þórisdóttir sigurkörfu ÍS þeg-
ar aðeins tvær sekúndur voru
eftir.
Með þessum sigri stendur ÍS
mjög vel að vígi en liðið hefur nú
fjögurra stiga forskot á Hauka.
IS........10 9 1 521-409 18
Haukar....10 7 3 538-408 14
Keflavík.. 9 5 4 574-432 10
ÍR........ 9 5 4 450-418 10
KR........ 9 2 7 386-449 4
Grindavík... 9 0 9 254-607 0
-vs
Enn brást Snæ-
felli úthaldið
- og tapaði fyrir Keflavík, 92-95
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykldshólmi:
Eins og svo oft áður í vetur virtust
leikmenn Snæfehs ekki hafa úthald
á lokamínútunum þegar þeir fengu
Keflavík í heimsókn í gærkvöldi.
Snæfeh var yfir í hálfleik, 57-42, bg
Keflavík náði ekki forystunni fyrr
en sex mínútur voru eftir. Þá gerðu
gestirnir 11 stig í röð og breyttu stöð-
unni í 81-85, og sigruðu síðan, 92-95.
Leikurinn var mjög hraður og
skemmthegur, Keflvíkingar reyndu
ávaht að keyra upp hraöann en Snæ-
fell að halda honum niðri. Um 250
áhorfendur sköpuðu skemmtilega
stemningu og studdu dyggilega við
bakið á heimamönnum.
Bárður Eyþórsson, nýkjörinn
íþróttamaður ársins í Stykkishólmi,
fór á kostum hjá Snæfelh í fyrri hálf-
leik, dreif Uðið áfram með mikilli
baráttu og gerði þá 21 stig. í síðari
hálfleik voru það hins vegar Keflvík-
ingarnir Falur Harðarson og Albert
Óskarsson sem tóku völdin og léku
frábærlega, einkum Falur sem sýndi
snhldartilþrif.
Auk Fals og Alberts lék Tom Lytle
ágætlega hjá Keflavík og var öflugur
í fráköstunum. Hjá Snæfehi var Tim
Harvey virkilega sterkur, auk Bárð-
ar, og Brynjar Harðarson lék vel.
Stig Snæfehs: Tim Harvey 28, Bárð-
ur Eyþórsson 25, Brynjar Harðarson
15, Sæþór Þorbergsson 13, Hreinn
Þorkelsson 5, Ríkharður Hrafnkels-
son 4, Þorkell Þorkelsson 2.
Stig Keflavíkur: Falur Harðarson
28, Albert Óskarsson 25, Tom Lytle
16, Sigurður Ingimundarson 14, Jón
Kr. Gíslason 9, Júlíus Friðriksson 2,
Hjörtur Harðarson 1.
Kristján Möller og Leifur S. Garð-
arsson dæmdu leikinn mjög vel.
Pétur enn f rá vegna meiðsla
- gæti orðið klár 1 slaginn gegn UMFG á fimmtudag
„Eg er betri af meiðslunum en alls
ekki orðinn nógu góður. Ég hef verið
í sérstakri meðferð vegna þessara
meiðsla og hef ekkert getað æft frá
því ég meiddist. Það er auðvitað
slæmt að missa úr leiki en maður
verður að vona það besta enda eigum
við erfiða leiki framundan í úrvals-
deildinni,“ sagði Pétur Guðmunds-
son, körfuknattleiksmaður hjá
Tindastóh, í samtali við DV í gær.
Pétur meiddist sem kunnugt er í
leik gegn Keflavík í Keílavík fyrir
um hálfum mánuði. Þá reif hann út
úr hásin og hefur hann misst af
nokkrum síðustu leikjum Tindastóls.
Liðinu hefur gengið afleitlega í síð-
ustu leikjum og framundan eru þrír
erfiðir leikir í úrvalsdehdinni.
Tindastóll á að leika í kvöld gegn
Njarðvík á Sauðárkróki, Grindavík á
heimavehi á fimmtudaginn og loks
gegn KR á sunnudaginn á Króknum.
„Ég verð örugglega ekki með gegn
Njarðvíkingum í kvöld en ég veit
ekki með leikinn gegn Grindavík á
fimmtudag," sagði Pétur ennfremur
í gærkvöldi.
• I kvöld er einnig á dagskrá ann-
ar leikur í úrvalsdehdinni í körfu en
þá leika Grindvíkingar gegn KR-
ingum í Grindavík. Hér er um tvo
toppleiki að ræða en keppnin um
sæti í úrslitakeppni úrvalsdeildar
harðnar nú með hverjum leik og all-
ir leikir eru mjög mikilvægir. Fjögur
hð komast í úrslitakeppnina, tvö
efstu lið í hvorum riðli. Sex hð beij-
ast um þessi fjögur sæti; Njarðvík,
KR, Keflavík, TindastóU, Grindavík
og Haukar.
-SK
Sport-
stúfar
Kristján Bemburg, Belgía:
1.^ • Eitthvert mesta
knattspymumanns-
/7 m efni um áraraðir er
komið fram í Belgíu.
Knattspyrnumannsefnið, sem
hér um ræöir, heitir Lamptey og
kemur frá Afríkuríkinu Ghana.
Lamptey er 16 ára að aldri og
hefur slegið í gegn með stórliðinu
Anderlecht í vetur en með því
félagi lék Amór Guðjohnsen í
mörg ár. Lamptey skoraði tvö af
mörkum Anderlecht um helgina
gegn FC Liege. Margir spá því að
þessi ungi drengur eigi eftir að
ná langt, jafnvel að verða enn
betri en sjálfur Maradona.
Keshi neitaói að
sitja á bekknum
• Keshi, sem átt hefur fast sæti
í Uði Anderlecht, rauk á dyr um
helgina þégar honum var til-
kynnt að hann ætti að sitja á
varamannabekknum. Forráða-
menn Anderlecht taka hart á
þessari hegðun og er talið öruggt
að Keshi fái peningasekt.
Portó með stigs
forskot á Benfica
• Portó og Benfica bít-
ast um meistaratith-
inn í portúgölsku 1.
deildinni í knatt-
£
spyrnu. Um helgina gerði Portó
1-1 jafntefli gegn Boavista á úti-
velli og á sama tíma skhdu Pen-
afiel og Benfica jöfn, 1-1. Portó
er með 39 stig í efsta sæti, Benfica
er með 38 en á leik th góða og í
þriðja sæti er Sporting með 33
stig.
Papin á skotskónum
í Frakklandi
• Jean Pierre Papin skoraði tvö
mörk í stórsigri Marseille, 6-0, á
Nantes um helgina og er marka-
hæsti leikmaðurinn í frönsku 1.
deildinni. Papin hefur skorað 18
mörk, Laurent Blanc, Montpelli-
er kemur næstur með 12 mörk
og Francois Omam Biyik, leik-
maður Rennes og miðherji lands-
liðs Kamerún, hefur skorað 11
mörk.
Becker í efsta sæti
á heimsafrekalistanum
• Eftir sigur Boris
Becker á opna ástr-
/1 alska mótinu í tennis
um helgina er hann í
efsta sæti á heimsafrekalistanum
sem gefinn var út í gær. Staða
fimm efstu manna á listanum er
þessi: j
1. Boris Becker....Þýskalandi
2. Stefan Edberg.....Svíþjóð
3. Ivan Lendl...Tékkóslóvakíu
4. Andre Agassi..........USA
5. Pete Sampras..........USA
Aðalfundur ÍK
Aðalfundur íþróttafélags Kópa-
vogs verður haldinn laugardag-
inn 2. febrúar. Hann fer fram í
húsnæði félagsins í íþróttahúsinu
Digranesi og hefst klukkan 15.
Forest vann stór-
sigur á Palace
Nottingham Forest
tryggði sér í gærkvöldi
/7 % sæti í 4. umferö ensku
bikarkeppninnar í
knattspyrnu með því að sigra
Crystal Palace, 3-0, á City Ground
í Nottingham. Liðin höíðu áður
skihð jöfn tvívegis. Gary Parker
gerðu tvö mörk og Gary Crosby
eitt en mörkin komu á 11 mínútna
kafla snemma í síðari hálfleik.
Forest sækir heim 2. deildar lið
Newcastle í 4. umferðinni sem
annars var leikin síðasta laugar-
dag.