Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991. 9 Boris Jeltsin, forseti Rússlands. Símamynd Reuter Jeltsin sakaður um brot gegn stjórnarskránni Boris Jeltsin, forseti Rússlands, hefur veriö sakaður af Æðsta ráði Sovétríkjanna um að hafa brotið gegn stjórnarskrá Sovétríkjanna meö því að krefjast afsagnar Gor- batsjovs Sovétforseta í sjónvarpsá- varpi. Ummæh Jeltsins voru sögð jafn- gilda hvatningu til borgarastyrjaldar og sagði einn hægri mannanna í Æðsta ráðinu að tími væri kominn til að íhuga hvort lýsa þyrfti yfir neyðarástandi um öll Sovétríkin. Fulltrúar í borgarráði Leningrads ákváðu að samþykkja yfirlýsingu Jeltsins þar sem sagði að Gorbatsjov væri með einræðistilburði og væri að blekkja þjóðina. Ágreiningurinn miUi Rússlands og miðstjórnarinnar í Kreml hefur vax- ið að undanfómu vegna tillagna Val- entins Pavlov forsætisráðherra um verðbætur. Rússland, Úkraína og Hvíta-Rússland vUja sjálf hafa yfir- ráð yfir bótagreiðslum fyrir verð- hækkanir, meðal annars í formi launahækkana og fría. Pavlov segir að sovésk yfirvöld þuríi að tryggja að önnur lýðveldi fái réttbætar bæt- ur. Reuter Georgia: Þjóðaratkvæðagreiðsla um úrsögn úr Sovétrikjunum Yfirvöld í sovéska lýðveldinu Ge- orgíu ætla að láta fara fram þjóðarat- kvæðagreiðslu um úrsögn úr Sovét- ríkjunum 31. mars næstkomandi. Georgía ætlar ekki að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýja sambandsríkjasamninginn sem fara á fram 17. mars. í frétt frá upplýsingaskrifstofu Ge- orgíu í Helsingfors í Finnlandi segir að yflrvöld í Georgíu vonist til að þjóðir heims fylgist með úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hafa yfirvöld áhyggjur af því að athyglin beinist eingöngu að atburðum í Eystrasaltsríkjunum. Sovéska þingið hótaði í gær að lýsa yfir neyðarástandi í Georgíu þar sem yfir þrjátíu manns hafa látið lífið í þjóðernisróstum á þessu ári. Var yfirvöldum í Georgíu veittur þriggja daga frestur til að lýsa sjálf yfir neyð- arástandi um alla Suður-Ossetíu og stöðva blóðbaðið. Þegar ríkir neyðar- ástand í vissum hlutum Suður-Osse- tíu. Yfirvöld í Georgíu lýstu ógilt full- veldi héraðsins í desember síðast- liðnum eftir að leiðtogar þess kváð: ust heldur vilja vera áfram í Sovét- ríkjunum en tilheyra sjálfstæðu ríki Georgíu. Reuter Tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Quincy Jones er eftir afhendingu Grammy-verðlaunanna ótvíræður konungur dægurmenningar í Bandarikj- unum. Símamynd Reuter Quincy Jones sópaði að sér verðlaunum Tónskáldið og hljómsveitarstjór- inn Quincy Jones er ótviræður kon- ungur dægurmenningar í Bandaríkj- unum eftir að Grammy-verðlaunun- um var úthlutað í 33. sinn í gær. Hann vann til sex verðlauna fyrir verk sín á síðasta ári. Verðlaunin voru afhent í Radio Music Hall í New York. Öryggis- gæsla var með fádæmum mikil af ótta við að hryðjuverkamenn létu til sín taka nú þegar spennan er hvað mest í Persaflóastríðinu. Verðlauna- afhendingunni var útvarpað beint til hermanna Bandaríkjanna í Saudi- Arabíu. írska söngkonan Sinead O’Connor vann til verðlauna eins og búist var við. Hún stóð þó við fyrri orð sín og kom ekki til athafnarinnar. Hún seg- ir að Grammy-verðlaunin snúist um sölumennskuna eina en ekki list- ræna verðleika. Útlönd Viðurkenning Litháens veldur misskilningi í Sovétríkjunum: Vigdís forseti ætti að fara sér hægt - segir Gennadi Janajev, varaforseti Sovétríkjanna „Það er í lagi að Vigdís Finn- bogadóttir spretti úr spori í mara- þoni en hún ætti að fara sér hægar í stjórnmálunum en hún hefur gert,“ sagöi Gennadi Janajev, vara- forseti Sovétríkjanna, þegar frétta- maður sænsku fréttastofunnar TT spurði hann hvort viðurkenning íslendinga á Litháen væri íhlutun í sovésk innanríkismál. Varaforsetinn virðist hafa mis- skihð íslenska stjórnskipan því að hann kennir forsetanum um að ákveðiö var að viðurkenna Litháen svo fljótt sem auðið væri. Janajve gagnrýnir einnig Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svía, harkalega fyrir að gera málefni Eystrasaltsríkjanna að sænsku innanríkismáli þegar það sé með réttu sovéskt innanríkismál. Eftir þeim fréttum sem er að fá á æðstu stöðum í sovéska stjórnkerf- inu kemur ekki til greina að Eystrasaltsríkin fái sjálfstæði frek- ar en önnur lýðveldi Sovétríkj- anna. Þó taka yfirvöld enn fram að ekki standi til að beita hervaldi í lýðveldunum. TT Varaforseti Sovétrikjanna virðist kenna Vigdísi Finnbogadóttur forseta um að íslendingar hafa gengið fram fyrir skjöldu í að viðurkenna Lithá- en. Hér er Vigdís við opnun íslenskrar listsýningar i Moskvu á siðasta ári. Símamynd Reuter MENNINGARÞING ÍSLENSK MENNING - ALÞJÓÐLEG ÞRÓUN Svavar Gestsson Guðbergur Bergsson Hjálmar H. Ragnarsson Sigurður Pálsson Stefán Jón Hafstein Gísli Sigurðsson Helga Hjörvar Hjörleifur Stefánsson Steinunn Sigurðardóttir Halldór Guðmundsson Laugardaginn 23. febrúar efnir menntamála- ráðuneytið til menningarþings í Borgartúni 6. Þingið stendur frá kl. 10 -17. Dagskrá: Ávarp forseta íslands. Ræða menntamálaráðherra. Ræða framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Aðrir fyrirlesarar verða: Gísli Sigurðsson bókmenntafræðingur Guðbergur Bergsson rithöfundur Helga Hjörvar skólastjóri Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld Hjörleifur Stefánsson arkitekt Sigurður Pálsson rithöfundur Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur. Að fyrirlestrum loknum hefjast pallborðsumræður. Umræðustjóri verður Stefán Jón Hafstein dagskrárstjóri. Ráðstefnunni stjórnar Halldór Guðmundsson útgáfustjóri. Þeir aðilar sem fengið hafa boð um þátttöku eru hvattir til að skrá sig. Aðrir sem áhuga kunna að hafa geta látið skrá sig í síma 609592 nú þegar en þátttaka verður takmörkuð við 150 manns. MENNT AMÁL ARÁÐUNE YTIÐ Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.