Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991. Útlönd Albanía: Kröf ur náms- manna uppfylltar - en þolinmæði yfirvalda á þrotum Albanskir kommúnistaleiðtogar hafa látið undan kröfum náms- manna í annað sinn á þremur mán- uðum en hafa samtímis varað við að þeir þoli ekki öUu meira. í desember síðastliðnum var starfsemi stjórnar- andstöðuflokka heimiluð. í yfirlýsingu, sem útvarpað var í albanska ríkisútvarpinu í gær, sagði að yfirvöld hefðu samþykkt að stroka nafn Envers Hoxha, fyrrum leiðtoga landsins og tákni stalínismans, út úr nafni háskólans í höfuðborginni Tir- ana. Litið er á þetta sem mikinn sigur fyrir þá tugi þúsunda mótmælenda sem nokkrum klukkustundum áður höfðu fellt styttu Hoxha af stalli, velt höfði styttunnar að háskólanum og migið á það. Fréttir hafa borist af svipuðum aðgerðum í hafnarborg- inni Durres. Að sögn albanskra fréttamanna söfnuðust þúsundir manna saman á götum Tirana í gærkvöldi til að fagna sigrinum. Þriggja daga hungurverk- fall sjö hundruö námsmanna var stöðvað. Ramiz Alia forseti, eftirmaður Hoxha einræðisherra, kom fram í sjónvarpi í gærkvöldi og lýsti því yfir að hann tæki alla stjórn landsins í sínar hendur og að hann ætlaði stofnsetja forsetaráö. Fréttamennirnir sögðu að Alia hefði ekki getið um það hvort stjórn- arandstöðuflokkarnir fengju sæti í ráöinu né hvernig starfsemi þess yrði háttað. Gramoz Pashko, einn stofnenda Lýðræðisflokksins, sagði að mögu- legt væri að Alia hygðist mynda bráðabirgðastjórn. Pashko sagði að Alia hefði hvatt landsmenn til að sýna stillingu og halda aftur til vinnu sinnar. Alia hefði jafnframt tekið fram að ef ekki kæmist á ró myndi hann ef til vill þurfa aö lýsa yfir neyðarástandi eftir þrjá daga. Utvarpsfréttamenn í höfuðborg- inni sögðu að eftirlit hefði verið hert og skriðdrekar væru fyrir utan höf- uðstöðvar kommúnistaflokksins, helstu stjórnarbygginguna og ríkis- útvarpið. Að sögn Pashkos meiddust nokkrir í átökum við lögregluna í gær, þar af einn alvarlega. í útvarpsyfirlýsingu yfirvalda í gær voru Lýðræðisflokkurinn, óháð verkalýðsfélög og leiðtogar náms- manna sökuð um að hafa kynt undir óeirðunum. Pashko vísaöi þessum ásökunum á bug. Hann bætti því við að hann útilokaði ekki þann mögu- leika að reynt yrði að þagga niður í honum og öðrum stjórnarandstöðu- leiðtogum og aö hann yrði handtek- inn. Reuter Tugir þúsunda albanskra mótmælenda felldu í gær af stalli risastóra brons- styttu af fyrrum einræöisherra landsins, Enver Hoxha. Yfirvöld uröu viö kröfum háskólanema og samþykktu að fella nafn Hoxha úr heiti háskólans í Tirana, höfuðborg Albaníu en vöruðu við að lýst yrði yfir neyðarástandi ef ekki kæmist á ró í landinu fljótlega. Simamynd Reuter Eldsvoði í skemmtiferða- í Karíbahaf inu skipi Flytja varð 3800 menn frá borði skemmtiferðaskipsins Sovereign of the Seas eftir aö eldur kom upp í því á siglingu um Karíbahafið í gær. Sov- ereign of the Seas er eitt stærsta og glæsilegasta skemmtiferðaskip heims og öryggiskröfur um borð miklar. Enginn slasaðist, hvorki úr hópi farþega né áhöfn skipsins. Eldurinn kom upp i geymslurými á fimmta þilfari skipsins sem er um 74 þúsund lestir að stærð. Skipið lá í höfn í San Juan á Puerto Rico. Slökkviliösmenn fóru um borö og réðu niðurlögum eldsins á skömm- um tíma. Skipið átti að leggja úr höfn skömmu eftir að eldurinn kom upp. För þess tafðist um nokkrar klukku- stundir en von er á því til Miami á laugardaginn á áætluðum tíma. Ekki er vitað hvað olli því að eldurinn kviknaði. Reuter Flest er nú bannað: Má kóngurinn ekki f lytja? Dómsmálaráðuneyti Grikklands hefur krafist þess aö rannsakað verði hvort Konstantín, fyrrum konungi, hafi verið heimilt aö flytja vaming í níu gámum frá sumarhúsi sínu, nærri Aþenu, til Bretlands. Mál þetta hefur valdið miklu upp- námi í Grikklandi og hefur stjórnin setið undir ámæli fyrir að láta óátal- ið þótt konungurinn flytti úr landi eignir sem með réttu ættu aö tilheyra þjóðinni. Konungurinn má halda eigum sín- um í Grikklandi þótt hann hafi verið hrakinn frá völdum. Stjórnarand- staðan segir að þessar eigur eigi að falla undir ríkið. Konungurinn lét flytja frá sumarhúsinu bækur, lista- verk, góðmálma og gimsteina. Konst- antín hefur búið í Bretlandi frá því hann var hrakinn frá völdum árin 1967. « Reuter Tveir eiturlyflasmyglarar plataðir Bandaríska alrfkislögreglan segist hafa handtekið tvo áhrifamikla menn úr Medelin-eiturlyfjahringnum í Colombíu. Mennirnir sáu um að koma illa fengnu fé í umferð. Lögreglan segir að þeir hafi verið plataðir til að eiga viðskípti á skútu úti fyrir strönd Venesuela, utan lögsögu landsins. Þar með þurfa Bandaríkjamenn ekki að gefa yfirvöldum í Colombíu skýr- ingar á handtökunni. Mennirnir heita Jorge Ignacio Restrepo Lopez og Julio Robolledo. Lög- reglan segir aö þeir hafi gegnt lykilhlutverki í að koma fjármunum eitur- lyljahringsins undan eftirliti lögreglunnar. Þeir voru handteknir þann 11. febrúar og verða dregnir fyrir dóm i Los Angeles. Lögreglan segir að hún hafi fylgst með mönnunum í sex mánuði áður en látið var til skarar skríða. Margrét II. Danadrottning tók vió þökkum Bush til handa Dönum. Með þeim á myndinni eru Hinrik prins og Barbara forsetafrú. Símamynd Reuter George Bush Bandaríkjaforseti bauð Margréti II. Danadrottningu og Hinrik mann hennar sérstaklega velkomin til Bandaríkjanna og fór fógr- um orðum um þau og Dani. Talaðí hann um „bandamenn og vini“ þegar hann ávarpaði drottninguna og nefhdi sérstaklega þátt korvettunnar 01- ferts Ficher í að halda uppi viöskiptabanni á írak. Bush sagðí að Danir hefðu alltaf lagt mikilvægan skerf til að viðhalda friöi og frelsi í heiminum. Hann þakkaði þeim sérstaklega fyrir snögg viðbrögð þegar írakar réðust inn í Kúvæt og sagði aö Danir hefðu verði fremstir í flokki þjóða til að rísa upp gegn ofbeldi íraka. Maf íuskelf ir af vígvellinum Ákveðið hefur verið að flytja Giovanni Falcone, lögreglustjóra á Sikil- ey, til í starfi og fá honum eftirleiðis sæti bak við skrifborð í Róm. Fal- cone átti mikinn þátt í að margir af frammámönnum mafíunnar á Sikiley voru dregnir fyrir dóm og dæmdir til fangavistar árið 1987. Mennirnir voru sekir fundnir um morð en hefur nú mörgum veriö sleppt vegna fonngalla á réttarhöldunum. Á Sikiley er því spáð að mafían færí sig nú mjög upp á skaftið þegar hópur af skæðustu morðingjum hennar er aftur kominn á vettvang en harðasti baráttumaöurinn gegn mafíunni fær það verkefni að naga blý- anta. Falcone hefur ekkert viljað segja um þetta mál og í dómsmálaráðu- neytinu er engar fréttir heldur að hafa. Falcone sá til þess í réttarhöldunum miklu árið 1987 að 338 glæpamenn voru ákærðir og dæmdir í samtals 2.700 ár. Eftir þetta reyndi mafian einu sinni að myrða Falcone en mistókst. ísraelsmenn hlæja að gasinu Isaac Stern leikur á fiðluna með gasgrímu fyrir andlitinu. Símamynd Reuter ísrelsmenn reyna allt sem þeir geta til að láta hótanir íraka um aö gera efnavopnaárásir á landiö ekki fara í taugarnar á sér. Við flestar skemmt- anir í landinu þykir nú ástæða til að hafa gasgrímur á lofti. Á myndinni má sjá hinn kunna fiðluleikara, Isaac Stem, leynast á bak við grímuna á æfingu með fílharmóníuhljómsveit ísraels. Stern fór sérstaka för til ísraels í von um að geta stytt landsmönnum stundir á meðan þess er beðið að Persaflóastríðinu ljúki. Við komuna til landsins lagði hann til að eftirleiöis yrði ekki leyft aö selja önnur vopn til Mið-Austurlanda en og örvar. Dauðaref sins fyrir hryðju verk í öldungadeild Bandarikjaþings er nú verið að ræða frumvarp sem heim- ilar dómsyfirvöldum aö refsa hryðjuverkamönnum með lífláti verði þeir sekir fundnir um aö myrða Bandaríkjamenn heima eða erlendis. Amd- stæðingar dauðarefsingar reyndu að stöðva frumvarpið en írávísunar- krafa þeirra var felld með lifium mun. Eins og lögin eru nú má aðeins dæma menn í lífstíöarfangelsi ef þeir gerast sekir um að myröa Bandaríkjamenn utanlands ef tii þeirra næst. I Bandaríkjunum eru í gildi lög sem heimila yfirvöldum aö handtaka menn utan lögsögu landsins gerist þeir sekir um brot gegn bandarískum þegnum. Routor

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.