Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991. > Djúpbáturinn Fagranes og ríkis- forsjárhyggjan Rekstur Djúpbátsins Fagraness hefur nokkuö veriö til umræöu í fjölmiðlym vegna þess að til hefur staöiö aö kaupa skip í staö gamla Fagranessins sem þjónað hefur íbúum Ísaíjarðarsýslna síöan 1962 að það koma hingað nýbyggt. Er nú svo komið aö gamla skipið stenst ekki þær kröfur sem geröar eru til farþegaskipa og því ljóst að ákveöa þarf hvort endurnýja á skipið eöa leggja niður rekstur Djúpbátsins h/f. Ljóst er að eyjunum Æðey og Vigur má þjóna t.d. með minni bát- um, eins og reynslan hefur sýnt að hagkvæmt hefur þótt í Breiðafirði. Þannig er sinnt póstflutningum t.d. til Skáleyja en þangað hefur nýja Breiðafjarðarferjan Baldur aldrei komið þegar þetta er ritað. Fleiri kröfur um ríkisstyrki Er ekki rétt að huga að þvi á þess- um tímamótum hvernig við viljum haga okkar samgöngumálum í framtíðinni hér á norðanveröum Vestfjörðum? Nýverið var sett á stofn nefnd til að .kanna hagkvæmni opinberra fjárfestinga vegna jarðgangá'gerðar um Breiðadals- og Botnsheiðar. Væri ekki eðlilegt aö nefndin kannaði þörfina fyrir ferju á Djúpið og hagkvæmni eöa óhagræði þess að reka margfalt samgöngunet? Rökrétt væri að spyija hvort ekki væri jafneölilegt eöa jafnvel eðli- legra að styrkja kaup á flugvélum sem sinna sjúkra- og póstflugi. Ef talið er rétt að ríkisreka samgöngu- tæki í samkeppni við sjálfstæðan einkarekstur veröur þá ekki að endurskoða skattheimtuna á einkareksturinn? Er eðlilegt að á meðan ríkissjóður greiðir 70% rekstrarkostnaðar Djúpbátsins verði aðrir að greiða vegaskatta og aðra skatta vegna sömu þjónustu við sömu neitendur? Verður ekki að reikna meö að fljótlega komi fram kröfur um styrki til þeirra sem eru í vöru- flutningum á sama svæði og Djúp- báturinn eða verða settar hömlur á starfsemi þeirra til að tryggja af- komu nýju feijunnar? ffve lengi má treysta Stóra bróður (ríkinu) til að standa undir sífellt auknum kröfum um styrki til þjónustu sem jafnvel er ekki óskað af neytend- um? Ríkisforsjárhyggja hamlar allri rökrænni umræðu og gagn- rýnendum er brigslað um óvild þegar þeir setja fram aðrar skoðan- ir en þær sem forsjárhyggjunni hentar. Þörf fyrir ríkisstyrktan bát? Ég hef búið hér við ísafjarðardjúp í 19 ár, lengst af í Súðavik en i työ ár var ég búsettur í Reykjanesi. Ég hef tekið fullan þátt í umræðum um samgöngumál, auk þess hef ég unnið við vegagerð og við snjó- mokstur á veginum um Djúp. Tel ég mig þekkja alfvel til samgöngu- mála hvað svo sem þeim kann að finnast sem óska Ármanni Leifs- syni þess að sitja fastur i snjósköfl- um meö bílaflota sinn í stað þess að þyggja ráð skömmtunarsjóra samgöngukerfisins. Þegar ég fluttist hingaö að Djúpi 7Þ3 náði vegurinn héöan að norðan- ver.ðu aðeins í Seyðisfjörð í Súða- KjaHarinn Valsteinn Heiðar Guðbrandsson hreppsnefndarmaður Arnesi, Súðavík víkurhreppi. Þá var vegasamband við Inn- Djúpið aðeins nokkra sumarmán- uði á ári, um Þorskafjarðarheiði. Þá var Fagranesið nauðsynfegt samgöngutæki og mestöll fram- leiösla bænda flutt meö bátnum til neytenda. Það er rétt að það komi fram aÓ til stendur að kaupa notaöa bíla- feiju frá Noregi smíðaða árið ’75 til að leysa gamla skipið af hólmi. Nýja skipið er talið vera í góðu lagi, það er 40,46 m langt. En er þörf fyrir ríkisstyrktan bát af þessari stærð til að annast sam- göngur í ísafjarðardjúpi, eru sam- göngur þannig í Djúpið að bílfeiju sé þörf? Djúpbáturinn fær rúmlega 17 milljónir króna i styrk af fjárlög- um ríkisins á ári sem er nokkru meira en kostaði aö halda vega- kerfinu opnu síðastliöinn vetur, þó þar sé um að ræða einn allra versta snjóavetur sem hér gerir. Hagsmunamál neytenda í dag sjá sex stórir tíu hjóla flutn- ingabílar, bílar af nýjustu gerð, um landflutninga á leiðinni ísafjörð- ur - Reykjavík og fara þeir fram og til baka í hverri viku eða samtals tólf sinnum í viku. Þá fer einnig póstbíll tvisvar í viku frá ísafirði svo langt sem hann kemst inn í Djúp, út Strönd og upp í dali, helst á alla bæi, og sömu daga fer mjólk- urbíllinn á þá bæi sem framleiða mjólk. Á sumrin fer hann veginn á enda en á veturna aðeins á svæðið vestanvert í Skálavík. Þegar hefur verið fjárfest í því sem þarf til að bændur geti notið þess hagræðis að mjólkurbíllinn sæki til þeirra mjólkina allt árið. Þetta er líka hagsmunamál neyt- enda ekki síður en bænda. Frést hefur að ráðuneytið hafi gefið grænt ljós á að skipið verði keypt og verður að vona að fyrir því verði séð að rekstur ferjunnar hamli hvorki uppbyggingu vega um Djúp né dragi úr snjómokstri. Ég harma það að ekki skuli betu'r takast til en raun ber vitni að hag- ræða í samgöngumálum Vestfjarða þrátt fyrir langþráð jarðgöng og stórbætt vegakerfi, sem þó á von- andi eftir að batna mikið í framtíð- inni. Vonandi verða þingmenn fljótir að tryggja fjármuni í Mjóa- fjarðarbrú því að þar er á feröinni framkvæmd sem er forsenda nán- ari félagslegra samskipta við Djúp. En svo vikið sé að feijunni þá er hún byggð þannig að aka má beint um borö en til þess þurfa að koma til sérstakar feijubryggjur. Slíkar bryggjur kosta tugi ef ekki hundrað milljónir, tvær slíkar, önnur á ísafirði eða Súðavík en þaðan er nokkuð styttra inn í Djúp en frá ísafirði. Þessi nýja ferja veröur að lesta bæði bíla og aðra fragt með krana, það veröur tafasamara en ef hægt væri að aka um borð. Líkur eru því á aö fljótlegra sé aö aka inn í Djúp á bíl en að fara með ferjunni. Valsteinn Heiðar Guðbrandsson „Rökrétt væri að spyrja hvort ekki væri jafneðlilegt eða jafnvel eðlilegra að styrkja kaup á flugvélum sem sinna sjúkra- og póstflugi.“ Er þörf fyrir ríkisstyrktan bát af þessari stærð til að annast samgöngur i ísafjarðardjúpi? LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! Andlát Ragnheiður Bjarnadóttir, Furu- grund 70, Kópavogi, andaðist mánu- daginn 18. febrúar. Guðmundur Betúelsson, Kaldá, Ön- undarfirði, andaðist á Flateyri 20. febrúar. Kjartan G. Jónsson, fyrrverandi kaupmaður, Sóleyjargötu 23, Reykja- vík, er látinn. Jaröarfarir Ragnar Jósep Jónsson, Hátúni lOa, lést 16. febrúar á Landakotsspítala. Útforin fer fram frá Fossvogskirkju 27. febrúar kl. 13.30. Hilmar Jensson, Kleppsvegi 72, Reykjavík, er lést 16. febrúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju fóstudag- inn 22. febrúar kl. 15. Hjörtur Hákonarson frá Stardal, áð- ur starfsmaður Vegagerðar ríkisins, verður jarðsunginn frá Langholts- kirkju fóstudaginn 22. febrúar 1991 kl. 13.30. Sigríður Kristjánsdóttir, Njálsgötu 92, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fóstudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Sigfríður Jónsdóttir, Háeyrarvöllum 10, Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir frá Syðra-Langholti, Kjartansgötu 10, Reykjavík, sem lést 14. þ.m., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. febrúar kl. i5. Runólfur Ólafsson, Vcdlarbraut 13, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fóstudaginn 22. fe- brúar kl. 14. Jóhann Sigfússon, útgerðarmaöur frá Vestmannaeyjum, Gnoöarvogi 66, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 22! febrúar kl. 16.30. Sigríðui J. Kjerúlf-sjúkraliði lést 8. febrúar. Hún fæddist 2. september 1909 í Brekkugerði í Fljótsdal, dóttir hjónanna Elísabetar Jónsdóttur og Jörgens Kjerúlf. Tveggja ára gömul fór hún í fóstur að Arnheiðarstöðum í Fljótsdal til föðurömmu sinnar, Sig- ríðar Sigfúsdóttur, og seinni manns hennar, Sölva Vigfússonar. Sigríður starfaði lengst af á Kleppsspítala. Hún giftist Ásbirni Guðmundssyni en hann lést árið 1988. Þau hjónin eignuðust eina dóttur en hún lést árið 1983. Útför Sigríðar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Messur Árbæjarkirkja: Föstumessa í kvöld kl. 20. Safnaðarstarf Hallgrímskirkja: Kvöldbænir meö lestri Passíusálma kl. 18. Kársnessókn: Starf meö öldruðum í Borgum í dag kl. 14 í umsjón frú Hildar Þorbjamardóttur. Æskulýðsstarf -10-12 ára bama í Borgum í dag kl. 17.15. Laugarneskirkjá: Kyrrðarstund í hádeg- inu i dag. Orgelleikur, fyrirbænir, altaris- ganga. Léttur hádegisverður eftir stund- ina. Barnastarf 10-12 ára í dag kl. 17. Æskulýðsfundur 10-12 í kvöld kl. 20. Neskirkja: Opið hús fyrir aldraðg i dag kl. 13-17. Biblíuleshópur í dag kl. 18 í umsjón sr. Guðmundar Óskars Ólafsson- ar Ljósmyndaklúbburinn kl. 20. Áhuga- fólk velkomið. Fyrirlestrar Fyrirlestur í Ásmundarsal Út er komið annað tölublað myndasögu- blaðsins Gisp. Likt og fyrsta blaðið er það 68 síður, prentað á endurunninn pappír og fáanlegt á öllum helstu útsölustöðum. Efni blaðsins eiga Helgi Þorgils Friðjóns- son, Freydís Kristjánsdóttir, Helena Guttormsdóttir, Sigurður Ingólfsson, Þorri Hringsson, Þórarinn Leifsson, Halldór Baldursson, Ólafur Engilberts- son, Jóhann L. Torfason og Bjarni Hin- riksson. Samhliða útkomu blaðsins stendur nú yfir sýningin „Arkitektúr í myndasögum" í Ásmundarsai við Freyjugötu. í kvöld, 21. febrúar, kl. 20.30 mun Bjarni Hinriksson halda fyrirlestur í tengslum við sýninguna. Ókeypis að- gangur. Tilkyimingar Bókamarkaður í Kringlunni í dag 21. febrúar kl. 14 opnar bókamark- aður Félags íslenskra bókaútgefanda bókamarkaö undir kjörorðinu „Gamla krónan í fullu gildi“ á þriðju hæð í Kringlunni. Ódýrasta bókin kostar 35 kr. og meðalverð bóka er 240 krónur. Mikiö er af bókum sem ekki hafa komið á bóka- markaði áður. Eins og í fyrra er boðið upp á sérstaka bókapakka. Bækurriar eru þá flokkaðar eftir efni og aldurshópum og seldar nokkrar saman í pakka á enn hagstæðara verði. Ódýrustu pakkarnir eru á kr. 495. Vaka-Helgafell verður með sérstaka tilboðspakka í tilefni afmælis Vöku-Helgafells. Allar fáaniegar Árbæk- ur Ferðafélagsins eru seldar á markaðin- um. Auk þess eru þúsundir annarra bóka á raunverulegu afsláttarverði. Afsláttur- inn er alltaf mikill, oft ótrúlegur og mest- ur 95 prósent. Markaðurinn stendur til sunnudagsins 3. mars og er opið frá kl. 10-19 mánudaga, þriðjudaga, miðviku- daga og fimmtudaga, kl. 10-20 föstudaga, kl. 10-18 laugardaga og kl. 12-18 sunnu- daga. Árshátíð Bolvíkinga- félagsins veröur haldin í Vetrarbrautinni (Þórs- kaffi) Brautarholti 20, laugardaginn 23. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar verða afgreiddir í Braut- arholti 20,3. hæð á laugardag kl. 13.30-16. Fundir Digranesprestakall Aðalfundur kirkjufélagsins verður í safn- aöarheimilinu við Bjarnhólastíg i kvöld kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður myndbandssýning. Kaffi verður borið fram og endað á helgistund. Tapað fundið Seðlaveski tapaðist Svart seðlaveski með skilríkjum tapaðist á bílaplani við Jörfabakka föstudaginn sl. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 670073. Gleraugu töpuðust íLídó Gleraugu í brúnleitri jámumgjörð töp- uðst á tónleikum með Todmobile í Lídó, Lækjargötu á föstudagskvöldið sl. Finnandi vinsamlegst skili þeim í Lídó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.