Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Á skrift <- Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991.
Loðnuskipstjórar:
Mætum hverri
loðnutorf unni á
fætur annam'
„Maöur mætir hér hverri loönu-
torfunni á fætur annarri. Þetta eru
stórar torfur, allt aö 50 til 60 faðma
þykkar, 200 til 300 metra breiðar og
mörg hundruö metra langar. Það
hefur greinilega bæst mikið viö á sið-
asta sólarhring," sagöi Sævar Þórar-
insson, skipstjóri á Alberti GK, í sam-
tali viö DV í gær.
Hann sagöi aö skipin hefðu verið
að veiða upp undir landsteinum viö
Ingólfshöföa daginn áöur en nú væru
göngurnar allt aö 6 mílum utar.
Helgi Valdimarsson, skipstjóri á
Berki NK, sagðist vera á heimleið
með fullfermi. Hann fékk aflann út
af Reykjanesi.
^ „En svo þegar maður kom að Ing-
ólfshöfða mætti maður hverri loðnu-
torfunni á fætur annarri. Það er
meiri loðna á ferðinni nú en í fyrra.
Þessar mælingar fiskifræðinganna
hafa sannað sig sem alger fjar-
stæða," sagði Helgi.
„Ég vildi óska þess að nýjar göngur
væru að koma. En þetta sem þeir eru
að finna við Ingólfshöfða er sama
loðnan og síðast var mæld. Það var
mælt vestan við Vestmannaeyjar í
byrjun vikunnar. Þar mældust vera
400 þúsund lestir, eins og við höfðum
æ áður bent á. Þessi loðna, sem þeir
rekast á við Ingólfshöfða, eru þessar
75 þúsund lestir sem við mældum að
hefðu bæst við á dögunum," sagði
Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar í samtali við DV í
gær.
Hann sagði að þegar mest gekk á í
loðnuveiðunum áður fyrr hefði hver
gangan á fætur annarri komið á mið-
in. Nú væri það ekki þannig, en hann
sagðist vona að þarna væri um meira
magn að ræða en áður hefði verið
mælt.
„Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son fer til mælinga á laugardaginn.
Það kemur þá væntanlega í ljós hvort
hér er um viðbót að ræða eða ekki,"
sagðiJakob. -S.dór
Árni stefnir í
borgarstjórann
Árni Sigfússon boréarfulltrúi mun
ætla sér borgarsijórastólinn að Davíö
Oddssyni förnum, að því er heimild-
armenn DV sögðu í morgun. Árni er
sagður hafa verið frumkvöðull að
undirskriftasöfnuninni um aö Davíð
færi I formannsslaginn í Sjálfstæðis-
flokknum gegn Þorsteini Pálssyni.
Þannig kæmi fyrr að því að Davíð
léti eftir borgarstjóratitilinn. í morg-
un var enn ekki vitað hvort af for-
mannsslag yrði í Sjálfstæðisflokkn-
um og þá hugsanlega í framhaldinu
baráttu um titil borgarstjóra í
Reykjavík. -HH
LOKI
Þá erfundinn Golíat!
Launhækki
vegna viðskipta-
kjarabata
„Ég tel rétt að launþegar njóti un. bæja og kennarasamböndin hafa
þess viðskiptakjarabata sem orðið Hluti þess viðskiptakjarabata, gert kröfu til þess að fá launabætur
hefúr og mun því leggja til að laun sem orðið hefur umfram það sem vegna viðskiptakjarabatans. Aftur
ríkisstarfsmanna hækki sem hon- gert var ráð fyrir, rennur í verð- á móti munu Alþýðusambandið og
um nemur. Ég tel hins vegar nauö- jöötunarsjóð. Samtstendur eftirað Vinnuveitendasambandið ekki
synlegt að aðrir vinnuveitendur launafólk á rétt á launahækkun hafagertneittíþessumáliennsem
verði samstiga ríkinu í því að bæta sem myndi auka kaupmátt launa komiö er. En ef ríkið hækkar laun
launafólki viðskiptakjarabatann. um 1 prósent. Þetta stafar fyrst og sinna starfsmanna hljóta aðrir
Þar með er launafólk fariö að njóta fremst af því að verðbólgan er launþegar aö gera kröfu til þess
árangurs þjóðarsáttarinnar," sagðí minniengertvarráðfyriríþjóðar- sama.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- sáttarsamningunum. -S.dór
ráðherra í samtali við DV í morg- Bandalag starfsmanna ríkis og
VÁ;
.?Í.V .. . V
V. . • ’
Steingrimur Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson tóku á móti Edgar Savisaar, forsætisráðherra Eistlands
(t.h.), og Lennart Meri utanríkisráðherra (t.v.) i Stjórnarráðinu í morgun. Áformað er að gestirnir fari i útsýnisflug
yfir Heklu í dag ef veður leyfir. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Élfyrir
norðan og
austan
Á morgun verður noröaustan-
og austanátt, allhvöss eða hvöss
við suðurströndina en hægari í
öðrum landshlutum. Norðan- og
austanlands verður él en slydda
suð-
austanlands. Úrkomulítið suð-
vestanlands. Hiti verður á bilinu
1 til -3 stig.
Ferðaskrifstofuslagur:
Úrval/Útsýn
kærirSamvinnu-
ferðir-Landsýn
Ferðaskrifstofan Úrval/Útsýn hef-
ur kært Samvinnuferðir-Landsýn
fyrir auglýsingu sem birst hefur í
dagblöðum að undanförnu. Forráða-
menn Úrvals/Útsýnar segja að þar
sé geröur villandi verðsamanburður
milli þess sem Samvinnuferðir bjóða
upp á á Mallorca og þess sem Úr-
val/Útsýn býður upp á.
Hörður Gunnarsson, forstjóri Úr-
vals/Útsýnar, staðfesti í samtali við
DV að hann hefði kært þessi vinnu-
brögð •Samvinnuferðamanna til Fé-
lags íslenska ferðaskrifstofa og Verð-
lagsstofnunar.
Þá hefur íslenska auglýsingastofan
kært þessa sömu auglýsingu til siða-
nefndar Sambands íslenskra auglýs-
ingastofa.
Kæran verður tekin fyrir á stjórn-
arfundi Félags íslenskra ferðaskrif-
stofa í dag. -S.dór
Stúlka skarst
í andliti
Allharöur árekstur varð um klukk-
an níu í gærkvöldi á Reykjavíkurvegi
í Hafnarfirði. Við áreksturinn kast-
aðist önnur bifreiðin á ljósastaur og
skarst ökumaðurinn, ung stúlka,
mikið í andliti þegar hún skall í
framrúðuna. -kaa
Edgar Savisaar:
Stuðningur ís-
lands mikil hjálp
Edgar Savisaar, forsætisráðherra
Eistlands, kom til landsins í gær frá
Svíþjóð ásamt Lennart Meri, utan-
ríkisráðherra Eistlands. Þeir ræða í
dag við íslenska ráðamenn en halda
utan á morgun.
Savisaar sagði við fréttamenn að
ísland hefði hjálpað mikið í baráttu
Eystrasaltsþjóðanna og greitt fyrir
stuðningi frá öðrum Evrópuríkjum.
Hann sagði jafnframt að erindi
þeirra til íslands væri að samræma
sjónarmið landanna en stuðningur
íslands hefði verið ómetanlegur og
átt sinn þátt í að stöðva valdbeitingu
hers Sovétmanna í Eystrasaltsríkj-
unum.
Þá sagði Savisaar að viðurkenning
íslands á sjálfstæði Litháens heföi
haft mjög jákvæð áhrif á baráttu
Eistlands og teldi hann nú að önnur
ríki fylgdu í fótspor íslendinga.
Þeir Edgar Savisaar og Lennart
Meri ræða í dag við Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra. -JGH
> C72177 V
SMIÐJUKAFFI ^
StHDOM FRÍTT H£/M
OPNUM KL. 18VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR