Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Síða 4
26
LAUGARDAGUR 9. MARS 1991.
' V
Þessari hlífðargrind, sem er srnellt upp i loft aftast i þverbaknum, er með
einu handtaki smellt niður þannig að hún verði til hlífðar milli farangurs-
og farþegarýmis. Handhægt, einfalt, öruggt.
Hluti af flotanum sem íslenskir fjölmiðiamenn höfðu til að kynna sér í skíðalöndum Svíþjóðar í síðasta mánuði
Reynsluakstur
Volvo 960 og 940
- framhald
Hins vegar verður ekki skilist svo
við 9-bílana frá Volvo að ekki sé
minnst á topplúguna. Hún er hreint
afbragð. Með því að lyfta aftari hluta
hennar upp fæst afbragðs loftræsting
án þess að vindgnauð aukist að neinu
marki, jafnvel á góðum hraða. Raun-
ar er bíllinn prýðilega hljóðeinangr-
aður, bæði hvað snertir dyn frá vegi
og vindgnauð. Og miðstöðvarnar -
ekki má gleyma þeim, með jafnhita-
kerfi sem Svíar kalla erkondissjón
að enskum sið. Jafnhitakerfið er
mjög gott, nema hvað okkur gekk
illa að þíða frosnar tær; vorum ekki
nógu lagnir á að fá hitann ofan í fóta-
brunnana til að líða virkilega nota-
lega á fótunum. Hins vegar er mið-
stöðvarkerfið við það miðað að geta
hreinsaö móðu af framrúðu á fáein-
um sekúndum - og það virkar.
Þetta er orðin löng rolla. Enda við
hæfi, eftir fjögurra daga viðkynningu
af sex mismunandi bílum af 9-gerð-
inni og ríflega 1200 kílómetra akstur.
Margt er ósagt: Til að mynda hefur
ekki verið minnst einu orði á hið
víðfræga Volvo-öryggi. Þó er ljóst að
hvergi hefur verið slakað á því við
Vióbótarhirsla yfir varahjóli, undir aöalgólfi farangursrýmis í þverbak.
gerð 9-bílanna. Á upplýsingafundi
með tæknimönnum öryggisrann-
sóknadeildar Volvo í Torslanda við
Gautaborg var skírskotað til frægrar
tilraunar þýska blaðsins Auto Motor
und Sport (sbr. DV-bíla, 3. nóv. 1990)
frá í sumar þar sem Volvo lenti í
þriðja sæti á eftir tveimur þýskum
eðalvögnum og spurt hvort Volvo
vildi segja eitthvað þar um. Svarið
var á þá leið að Auto Motor und Sport
hefði aðeins gert eina svona tilraun
sem í sjálfu sér væri of lítið til að fá
marktæka niðurstöðu; til þess að nið-
urstaða væri marktæk þyrfti endur-
teknar tilraunir sem allar leiddu til
sömu niðurstöðu. í annan stað hefði
verið svo lítill munur á þeim þremur
bílum, sem best komu út úr tilraun-
inni - BMW, Mercedes Benz og Volvo
- að Volvo þyrfti varla að gráta yfir
þriðja sætinu, jafnvel þó að mark-
tækt væri.
SHH
Honda
með loft
Allir Honda-bílar, sem seldir
verða á Bandaríkjamarkaði frá
og með árinu 1994, verða með
öryggisloftpúða bæði fyrir öku-
mann og framsætisfarþega.
Eini framleiðandinn, sem fram
að þessu hefur boðið þetta ör-
yggisatríði í Bandaríkjunum, er
Porsche.
Reiknað er með að bæði
Mercedes Benz og Chrysler
verði samstiga Honda hvað
varðar loftpúða fyrir framsæt-
isfarþega. Þessir loftpúöar blás-
ast upp á augabragði lendi bíll-
inn í árekstri og eiga þeir að
varna því að ökumaður og far-
þegi kastist fram við árekstur-
inn.
Ekki er reiknað með því að
aðrir framleiðendur verði til-
búnir með púða beggja megin í
bílum sínum fyrr en árið 1995.
Til hliðar eru litlar hirslur fyrir verkfæri og smádót.
DV-bílar - myndir SHH
Tilboð vikunnar
Mercedes Benz 240, dís-
il, 79. V. 350.000 -
250.000.
Minilite
BMW Touring 325 IX ’90.
V. 3.400.000.
afturá
markað
Engum
líkur
RENAULT
Renault II GTL ’89.
V. 770.000.
BMW 318i ’86. V.
920.000.
Citraen AX Sport ’89.
V. 780.000.
Margir muna eftir „Mini-
lite“-álfelgunum sem á sínum
tíma voru fyrst hannaöar fyrir
Austin Mhú. Þessar felgur voru
í reynd fyrstu álfelgurnar sem
náðu virkilegum vinsældum og
fyrir utan Mini sáust þær á sín-
um tíma á ýmsum bf lura allt frá
Lotus-gerð Ford Cortina upp í
glæsibíla á borð við Aston
Martín. í vaxandi samkeppni
annarra framleiöenda hvarf
Minihte af markaði en nú er
byrjað að framleiða þessar
þekktu álfelgur aftur og verða
eflaust margir nú til þess að
endurnýja kynnin.
Þú færð góðan bíl hjá okkur á
hagstæðari kjörum en þig grunar!
A thugið: BM W og Renault bílar í okkar eigu eru yfirfarnir á verkstæði okkar.
Tilboð vikunnar
Daihatsu Charade TS
’88. V. 530.000-470.000.
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 676833 og 686633
Fer á kostum
: ''Æ
Ford Bronco II ’84. V. 950.000. Range Rover Vogue ’87. V. 2.900.000.