Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. Ef þú vilt út að borða VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651 693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a. sími 19555. Arnarhóll Hverfisgötu 8 10, sími 18833. Asía Laugavegi 10, sími 626210 Askur Suðurlandsbraut 4. sími 38550 Suðurlandsbraut 14. sími 81344. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Bandidos Hverfisgötu 56, sími 21630 Ðorgarvirkið Þingholtsstræti 2-4. sími 13737 Café Garður Garðatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6. sími 78060. Café Mílanó Faxafeni 11. sími 678860. Duus hús v/Fischersund. sími 14446. Eldvagninn Laugavegi 73. sími 622631 . Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30, sími 50249 Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 1 1 556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 34780. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar, sími 678555. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34. sími 31 381 Hornið Hafnarstræti 15. sími 13340. Hólmi Hólmaseli 4,.sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11. sími 11440. Hótel Holt Bergstaóastræti 37. sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 687111 Hótel Lind Rauðarárstíg 1 8. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg. sími 25224 Hótel Saga Grillið, sími 25033. Súlnasalur. sími 2022-1 . Skrúöur. sími 29900. Ítalía Laugavegi 1 1. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. sími 1 5520 Ksbarett, Matkrá o Austurstræti 4. sírrji 10292. Kaffivagninn Grandagarði. sími 15932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kína-Húsið Lækjargötu-8. sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 1 4430. Madonna Rauðarárstíg 27 29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11, sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950. Marinós pizza Laugavegi 28. sími 625540. Njálsgötu 26. sími 22610. Motigolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 68831 1 Naustið Vesturgötu 6 8. sími 1 7759. Ópera • Lækjargötu 2, sími 29499. Pétursklaustur Laugavegi 73. áími 23433. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10, sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119, sími 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 1 4 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 11690. Rauða Ijónið Eióistorgi. sími 611414 Rauði sófinn 'Laugavegi 126. sími 16566, 612095 Setrið Sigtúni 38. sími 689000. Siam Skólavörðustíg 22. sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegf 68. sími 54999. Sjanghæ Laugavegi 28. sími 1 651 3. Stjáni blái Skipholti 37. sími 33322. Svarta pannan Hafnarstræti 17, sími 16480. Sælkerinn Austurstræti 22, sími 11633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a. sími 1 3088 Torfan Amtmannsstíg 1. sími 1 3303. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegí 45. simi 21255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22. sími 1 3628. Við Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666. Viva Strætó Lækjagötu 2. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344. Ölver v/Álfheima, sími 686220. Café Garður, Garðatorgi, Garðabæ, sími 657676. Opið 18-1 sunnudaga til fimmtudaga og 18-3 föstudaga og laugardaga. Öl af krana: Löwenbráu 0,5 I er á 480 krónur en 0,3 I kosta 350 krónur. Flöskuöl kostar 400 krónur. Veitingamaður er Smári Hreiðarsson. DV-mynd Brynjar Gauti DV kíkir á Café Garð: Myrkragarður Enn er haldið út fyrir borgar- mörkin í kráaröltinu. í verslunar- miðstöðinni við Garðatorg í Garðabæ er Café Garður. Café Garður er ekki gamall staður. Hann hefur nýlega fengið andlits- lyftingu og gerir sitt til að anna þörf Garðbæinga fyrir eins sjálf- sagöa staði og krár. Café Garður er á annarri hæð inni í þessu umfangsmikla verslun- arhúsnæði en skiiti, sem auglýsir staðinn, blasir við manni á bíla- stæðinu. Þegar komið er upp á stigapallinn geta gestir reyndar vilist inn á sólbaðs- og heilsustofu en ef radarinn er rétt stilltur beygja menn til hægri. Það sem þá blasir við er harla óvenjuleg sjón ef miðað er viö megnið af starfandi krám. Rýnir notar yfirleitt lýsingarorðin demp- aður og mjúkur yfir staði þegar verið er að lýsa andrúmsloftinu almennt en þama í gættinni kom honum ekkert annað í hug en orðið dimmt. Garður er vægast sagt mjög dimmur staður. Hönnunarlega séö er þarna um nokkuö dæmigert steinsteypuhúsnæði. Hins vegar er óvenjulegt að sjá staði sem eru dökk(rúst)rauðir bókstaflega í hólf og gólf. Myrkraverk Veggir og loft eru dökkrauð og á gólfinu er dökkrautt teppi. Áklæði á löngum bekk, sem bugðast inn eftir salnum vinstra megin, er munstrað þar sem dökkrauður lit- ur er mest áberandi í augum rýnis. í hverri bugðu bekkjarins er borð og um það lágir bólstraðir kollar. Salnum er skipt eftir endilöngu með mjaömarháum skilvegg sem liggur í vinkil milli tveggja súlna en þar fyrir innan er töluvert horn- laga gólfpláss þar sem borð eru dekkuð, dökkrauðu. Þetta horn er frekar berangurslegt en rýni finnst Kráarýni Haukur L. Hauksson eitthvað vanta til að mýkja það og gera meira kósí, til dæmis myndir á veggina. Viöarinnréttingar eru dökkar en barinn er ansi myndarlegur þar sem hann teygir sig inn eftir staðn- um hægra megin. Yfir honum hanga hundruð glasa sem eru böð- uð einkennilega sægrænni flúr- birtu. Dýrka syndina í þessu myrkraverki, sem Garður er í augum rýnis, er gjörsamlega ómögulegt að fara á mis við barinn. Til þess þurfa menn að vera hvort tveggja í senn staurblindir og dauðadrukknir. Þar sem maður sit- ur í bugðótta sófanum og slakar á yfir ölglasi andar maður að sér framandi andrúmslofti þar sem nær ekkert veröur til að rjúfa sam- band manns við glasið. Ljóstýrur í loftinu og lítil kertaljós í „glösum“ á borðunum ná síöan að sveipa staðinn rómantískum blæ. Rýni datt í hug að Garður væri tilvalinn fyrir fólk í viðhaldsstússi og hefði áhuga á að dýrka syndina fyrir augum sem fæstra. Fáir voru á Café Garði þegar rýn- ir tyllti sér þar í vikunni. Nokkrir matargestir gerðu sér að góðu þá rétti sem ágætur matseðillinn hef- ur upp á að bjóða og örfáir aðrir dreyptu á drykk. Það var friðsælt á Garði og yfir mann færðist þægi- leg ró. Einhvers staöar úr loftinu heyrðist í plötusnúði einhverrar stöðvarinnar þjóna gestum. Á Café Garði rennur Löwenbráu úr krönum. Kostar lítill 350 krónur og stór 480. Flöskuöl kostar 400 krónur krónur. Þjónustan var af- skaplega létt og vinaleg. Kranaöl Rýnir hefur orðið þess var þann tíma sem hann hefur bragðað á Löwenbráu úr krana á hinum ýmsu krám á höfuðborgarsvæðinu aö sá mjöður er ákaflega misjafn á bragöið. Oftar en ekki finnst rýni alveg vanta þetta feita rjómabragð sem fyllt hefUr munninn einhvers staðar í Þýskalandi og einnig hér- lendis af og til. Þess í stað smjattar maður á frekar römmum og flötum andskota sem maður þrælar þó í sig vegna þess eins að þessir dropar eru nú einu sinni helvíti dýrir. Þessi orö eiga ekkert frekar við Garð en aöra staði. Þeir hjá umboð- inu hljóta fjandakornið að fylgjast vel með ölgræjunum en sá grunur læðist að manni að þetta sé græjun- um og meðferð þeirra að kenna en ekki bruggmeisturunum. Löwen- bráu af flöskum og dósum er nefni- lega stabíll og mjög oft betri en sá af krana, hversu undarlega sem þetta nú hljómar í eyrum öldýrk- enda. En út á Garð er svo sem ekkert hægt að setja sé maöur á annað borð fyrir þessa myrku, mjúku staði. • • ÍÍÍÍiÍÍlLtiitlifiiiiltÍÍiÍilliÍltllllálÍi íttxiiiitiixfziiitiiill AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92. sími 21818. Fiðlarinn Skipagötu 14. sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20. sími 26690. Hlóðir Geislagötu 7. sími 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87 89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. simi 26366 Sjallinn Geislagötu 1£, sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9. sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11.'sími 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21. sími 1 2960. Muninn Vestmannabraut 28, sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1. sími 1 2577. Skútinn Kirkjuvegi 21, sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30, sími 1 2000. Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 17. simi 14040. Glóðin Hafnargötu 62. sími 117,77. Flughóteliö Hafnárgötu 57. sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19. sími 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengr. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4. sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1. Hverag., s. 34700 Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1, Self., sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Amarbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18, sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102, sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Bravó Nýbýlavegi 22. sími 46085. Chick King Suöurveri. Stigahlíð 45 47. s. 38890. Éikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 1 4248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 1 3. sími 54424. Höfðakaffi Vagnhöfða 1 1, sími 686075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. sími 1 3620 Jón bakan Nýbýlavegi 14; sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030 Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. simi 77444. Óli prik Hamraborg 14. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizzaofninn Gerðubergi. sími 7901 1 Pizza snögg-sneið Skólavöróustíg 2. sími 1 3320 Geróubergi. sími 7901 1 Pítan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Selbitinn Eiðistorgi 13 15. sími 611070. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavogi 27. sími 19380. Toppurinn Bíldshöföa 12. sími 672025. Uxinn Álfheimum 74. sími 685660. Vogakaffi Smiðjuvegi 50. sími 38533. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Líiugavegi 116. sími 25171 AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sími 14777 itaji

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.