Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 5
20 Messur Árbæjarkirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Miðvikudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 16.30. Fimmtudagur: Föstumessa kl. 20. Sr. Guömundur Þorsteinsson. Áskirkja: Kirkjudagur Safnaðarfélags Ásprestakalls. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sigurður Bjömsson syngur einsöng. VeislukafFi eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Miövikudagur: Föstumessa kl. 20.30. Árni Bergur Sigur- björnsson. Brei ðhol t skirkj a: Barnaguðsþj ónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Daníel Jónasson. Kaffisala kirkjukórsins að guðsþjónustu lokinni. Þriöjudagur: Bænaguðsþjónusta kl. 18.30. Altaris- ganga. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Ein- söngurÉiríkur Hreinn Helgason. Messu- kaffi Dýrfirðinga. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matthíasson. Digranesprestakall: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Kl. 11. Fjölskylduguðs- þjónusta. Prestur sr. Ingólfur Guð- mundsson. Organleikari Kjartan Sigur- jónsson. Barnasamkoma í safnaðarheim- ilinu á sama tíma. Kl. 14. Messa vegna Leikmannastefnu. Predikun flytur Guð- mundur Magnússon prófessor. Altaris- þjónustu annast sr. Ingólfur Guðmunds- son. Miövikudagur: Hádegisbænir í kirkjunni kl. 12.15. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Erlendur Sigmundsson. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Miðvikudagur: Föstuguðs- þjónusta kl. 18.30. Kristín Pálsdóttir guð- fræðinemi. Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Umsjón Jóhanna Guðjóns- dóttir. Messa kl. 14. Altarisganga. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organ- isti Guðný M. Magnúsdóttir. Þriðjudag- ur: Fyrirbænir í Fella- og HólakirKju kl. 14. Fimmtudagur: Helgistund fyrir aldr- aða í Gerðubergi kl. 10. f.h. Sóknarprest- ur. Fríkirkjan í Reykjavík: Barnaguðsþjón- usta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Að guðsþjónustu lokinni verður „opið hús" í safnaðarheimilisbyggingunni. Húsið er nú fokhelt. Boðið verður upp á hress- ingu, gerö verður grein fyrir byggingunni og nýtingarmöguleikum hennar. Af- mælishátíð kvenfélagsins í tilefni 85 ára afmælisins verður kl. 19.30 í Templara- höllinni. Allir velunnarar safnaðar og kvenfélags velkomnir allan daginn. Þriðjudagurkl. 20.30: Föstuguösþjónusta. Grgelleikari Violeta Smid. Cecil Haralds- son. Grí-farvogssókn: Messuheimili Grafar- vogssóknar, Félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Barnamessa kl. 11. Skólabíllinn fer frá Húsahverfi kl. 10.30 í Foldir og síðan í Hamrahverfi. Guðsþjónusta kl. 14. Sig- urður Jóhannesson predikar og kynnir Gídeonfélagið. Organisti Sigríður Jóns- dóttir. Sóknarprestur. ' . Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Eldri börnin uppi í kirkjunni, yngri börn- in niðri. Messa kl. 14. Altarisganga. Sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Arni Arin- bjarnar. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 14. Miðvikudagur: Helgistund fyrir aldraða kl. 11. Prestarnir. Hallgrímskirkja: Sunnudagur: Messa og barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl Sigur- bjömsson. Kvöldmessa með altarisgöngu kl. 17. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðju- dagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur: Föstumessa kl. 20.30. Eftir messu talar dr. Sigurbjöm Einarsson biskup um trú og trúarlíf. Umræöur og kaífi. Kvöld- bænir með lestri Passíusálma mánudag, þriðjudag, fimmtudagogfostudagkl. 18. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lámsson. Háteigskirja: Kl. 10. Morgunmessa, sr. Amgrímur Jónsson. Kl. 11. Barnaguðs- þjónusta. Kirkjubíllinn fer um Suður- hlíðar og Hlíðar fyrir og eftir guðsþjón- ustuna. Kl. 14. Messa, sr. Tómas Sveins- son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Sókn- amefndin. Hjallaprestakall: Messusalur Hjalla- sóknar, Digranesskóla. Barnamessur kl. 11. Foreldrar em hvattir til að fylgia bömunum til messu. Sóknarnefndin. Kársnesprestakall: Barnastarf í safnað- arheimilinu Borgum sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Organisti Guömundur Gilsson. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Fundur með aðstandendum ferm- ingarbarna í Borgum að lokinni guðs- þjónustu. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Óskastund barnanna, söngur, sögur leikir. Þór Hauksson guðfræðingur og Jón Stefánsson annast stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigurður FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. Iistasafn íslands: Fiðrildi og furðudýr Á morgun, laugardaginn 16. mars, klukkan 14.00 veröur opnuð í Lista- safni íslands sýning sem ber heitið Fiörildi og furðudýr. Hér er um aö ræða sýningu sem á eru verk, bæði myndir og skúlptúrar, sem nemend- ur Bústaðaskóla hafa gert. Bústaöaskóli er sérskóli og hann sækja börn sem af ýmsum ástæðum hafa átt erfitt uppdráttar í heima- skóla. Nemendur eiga mislanga dvöl í skólanum, allt frá hálfu skólaári upp í þijú ár. í Bústaðaskóla er lögð mikil áhersla á skapandi starf og síðastlið- ið haust var ákveöið að efna til verk- efnis meðal nemenda sem væri fólgiö í því að nemendur byggju til dýr sem þeir hefðu sjálfir þróað. Hið innra var markmiöiö að nemendur lærðu að vinna saman, taka tillit hver til hugmynda annars og aö þeir fengju þá tilfmningu að dýrið væri sameig- inleg afurð þeirra en ekki séreign einhvers eins. Lögð var áhersla á tjáningu nemendanna við dýragerð- ina. Með því að teikna, mála og smíða dýr fengju nemendurnir tækifæri til að tjá sjálfa sig. Úr þessari vinnu nemendanna komu út annars vegar fiðrildi og hins vegar furðudýr ýmiss konar. Jafnframt því að búa til dýrin tjáðu nemendurnir sig í orðum um vinnu sína og hugmyndir. Þá urðu til text- arnir eða ljóðin sem fylgja mynd- verkunum. Sýningin stendur til 5. apríl. Áhugaleikfélagið Hugleikur: Sveinn sálugi Sveinsson Hugleikur sýnir rammíslenskt leikrit í Brautarholti 8. Ahugaleikfélagið Hugleikur frum- sýnir á morgun, 16. mars, nýtt ís- lenskt leikhúsverk í nýju leikhús- næði að Brautarholti 8. Leikritið, sem heitir Sagan um Svein sáluga Sveinsson í Spjör og samsveitunga hans, gerist í íslenskri sveit fyrir all- löngu og er eftir Unni Guttorms- dóttur og Önnu Kristínu Kristjáns- dóttur. Aðdáendur Hugleiks eru hvorki sviknir um fortíðina né sveitaróm- antíkina aö þessu sinni. Leikritið gerist á þeim tíma þegar enn var reimt í sveitum landsins og skyggnar konur krossuðu sig og blessuðu bæj- ardyrnar. Galdrar voru þá heldur ekki með öllu aflagðir og holdið var stundum veikt þá sem nú. Eða kannski var það þvert á móti sterk- ara en andinn. Hugleikur hefur nú flutt sig um set og leikritið verður sýnt í sal Kvik- myndaverksmiðjunnar hf. að Braut- arholti 8. Næsta sýning verður 19. mars. Gallerí Sævars Karls: Þórunn S. Þor- grímsdóttir sýnir Þórunn S. Þorgrímsdóttir opnar í dag, fóstudaginn 15. mars, málverka- sýningu í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9. Verkin á sýningunni eru unnin 1988-1991 og eru tempera- og olíuiitir á léreft. Eftir stúdentspróf stundaði Þórunn nám í myndlist og leikmyndateiknun við Hochschule fúr Angewandte Kunst, Wien 1971-1972, Myndlista- og handíðaskóla íslands 1972-1973 og Hochschule der Kúnste, Berlín 1973- 1979. Þórunn hefur haldið einkasýning- ar og tekiö þátt í samsýningum og starfað við leikmyndateiknun hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykja- víkur og við kvikmyndir. Sýningin stendur til 12. apríl og er opin á verslunartíma frá klukkan 9-18 og 10-12 á laugardögum. Þórunn S. Þorgrimsdóttir sýnir i Gallerí Sævars Karls. Þórdís Alda ásamt einu verka sinna. Forleikur í dýr- umogvírum Þórdís Alda Sigurðardóttir opnar sunnudaginn 17. mars sýningu í Ás- mundarsal við Freyjugötu. Á sýning- unni, sem nefnist Forleikur í dýrum og vírum, verða myndir unnar á pappír með olíukrít, vatnslitum, kol- um, prentsvertu, sparsli og pressuð- um vír. Auk þess skúlptúr unninn í vír, járn og pappa. Þetta er önnur einkasýning Þórdis- ar Öldu en sú fyrsta var 1987 í Reykjavík. Síðan þá hefur hún mikið notað vír tfl myndmótunar og nú einnig yfirfært hann með þrykki á tvívíðan flöt. Þórdís er fædd 1950 og býr í Mos- felisbæ. Hún nam í 3 vetur við Mynd- listarkóla Reykjavíkur, 4 ár við Myndlista- og handíðaskóla Islands og útskrifaðist þaðan úr myndmót- unardeild 19884. Eftir það var hún einn vetur við nám í Ákademie der Bildeneden Kúnste í Múnchen. Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14-18 en henni lýkur 24. mars. Þetta er sýning bæði fyrir börn og fullorðna. Litla svið Borgarleikhússins: Skýin eftir Aristofanes Á morgun, laugardaginn 16. mars klukkan 15.00, verður leiklestur á litla sviði Borgarleikhússins á þeim fjörlega skopleik Skýjunum eftir Ari- stofanes í þýðingu Karis Guðmunds- sonar leikara. Þetta leikrit var skrifað fyrir 2400 árum. Hópur leikara flytur þetta verk og er miðaverö 500 krónur. Fyr- ir jólin var þetta leiklesið að ósk Soff- íu, félags heimspekinema við HI, og flutt í Odda. Allir bókmenntaunn- endur eru hvattir til að líta inn í Borgarleikhúsið á morgun.' Daníel í Slunkaríki Daníel Magnússon opnar sýningu í Slunkaríki á ísafirði á morgun, laugardaginn 16. mars. Á sýningunni verða lágmyndir unnar með bland- aðri tækni í tré og eldhúsfílabein. Þetta er fimmta einkasýning Daní- els en auk þeirra hefur hann tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin er öllum opin. Blessað bamalán Finnur Baldursson, DV, Mývatnssveit: Undanfarið hefur UMF Mývetning- ur æft gamanleikinn Blessað barna- lán eftir Kjartan Ragnarsson. Leik- stjóri er Ragnhildur Steingrímsdóttir og formaður leiknefndar er Kári Þor- grímsson. Leikendur og starfsfólk eru um 20. Æfingar hafa gengið vel, enda áhugi nægur eins og vera ber hjá áhugamannaleikhúsi. Frumsýning verður í kvöld, 15. mars, í Skjól- brekku og önnur sýning verður sunnudaginn 17. mars. Þá er fyrir- hugað að fara með sýningar í ná- grannabyggðir eftir því sem aðstæð- ur leyfa. Art-Hún: Míneatúrar Um þessar mundir eru tvö ár liðin frá því að Art-Hún hópurinn tók upp á því að hafa vinnustofur og sýning- arsal á einum og sama staðnum, að Stangarhyl 7. Af því tilefni hafa myndlistarmennirnir í Art-Hún brugðið á leik og unnið myndverk út frá stærðinni 25x25 sem hámarks- stærð. Sýning á þessum „míneatúr“- verkum verður opnuð á morgun, laugardaginn 16. mars, klukkan 14 og verður opin daglega frá 12-18 en 14-18 um helgar. Sýningin stendur til 24. mars. Art-Hún hópurinn meö sýningu á míneatúrum. Ásgeir Smári sýnir í Gallerí Borg. Gallerí Borg: Borgar- landslag Nú stendur yfir í Gallerí Borg sýn- ing Ásgeirs Smára Einarssonar. Ás- geir Smári sýnir olíuverk og sýning- una nefnir hann Borgarlandslag en viðfangsefni hans eru húsin og fólkið í borginni. Ásgeir Smári er fæddur 1955 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1974-1979 og er þetta 9. einkasýning hans. Fyrir réttu ári sýndi Ásgeir Smári vatnshta- og olíumyndir í Gallerí Borg og seldust allar myndirnar þá. Sýningin stendur til 26. mars og virka daga er opið frá klukkan 10-18 og frá klukkan 14-18 um helgar. Haukur Guðjónsson. Þóra Einarsdóttir syngur einsöng. Organisti Jón Stefáns- son. Merkjasöludagur kvenfélagsins og kafFisala eftir messu. Sóknarnefndin. Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Barnastarf á sama tíma. Heitt á könnunni eftir messu. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala kvenfélagsins í safnaðar- heimilinu eftir guðsþjónustuna. Strengjasveit spilar. Fimmtudagur: Kyrrðarstund í hádeginu. Orgelleikur, fyrirbænir, altarisganga. Sóknarprestur. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Um- sjón Sigríður Óladóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Samkirkjulegri bænaviku lýkur. Erl- ingur Nielsson, kafteinn í Hjálpræðis- hemum, predikar. Ritningarlestra ann- ast Jóna Bjarnadóttir, fulltrúi aðventista, Daniel Glad trúboði, fulltrúi hvítasunnu- manna, og Jóhann Hauksson, fulltrúi Rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Her- söngsveitin syngur ásamt kór Neskirkju. Sr. Heimir Steinsson, formaður Sam- starfsnefndar kristinna trúfélaga, flytur lokaorð. Sr. Frank M. Halldórsson. Mið- vikudagur: Föstuguðsþjónusta kl. 20. Fimmtudagur: Biblíuleshópur kl. 18. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir guðsþjón- ustuna. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Fjölskyldumessa kl. 11. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur. sr. Solveig Lára Guðmundsdótt- ir. Bamastarf á sama tíma í umsjón Kristínar Þórunnar Tómasdóttur og Eirnýjar Ásgeirsdóttur. Aðalsafnaðar- fundur eftir messu þar sem borinn verð- ur fram léttur hádegisverður. Fríkirkjan, Hafnarfirði: Guðsþjónusta kl. 11. (Ath. breyttan tíma.) Barnasam- koma í safnaðarheimilinu á sama tíma. Einar Eyjólfsson. Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Helgi Bragason. Gunnþór Ingason. Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Barnakórinn syngur og böm úr Tón- listarskóla Grindavíkur leika á ýmis hljóðfæri. Messa kl. 14. Egill Hallgríms- son guðfræðingur predikar. Kór Grinda- víkurkirkju syngur. Organisti Siguróli Geirsson. Kaffisala eftir messu til ágóða fyrir ferðasjóð fermingarbarna. Tónleik- ar í kirkjunni mánudag kl. 20.30. Sóknar- prestur. Kirkjuvogskirkja: Kirkjuskóli laugar- dag kl. 13 í umsjón Sigurðar Lúthers og Hrafnhildar. Sóknarprestur. Eyrarbakkakirkja Bamaguösþjónusta kl. 10.30. Sóknarprestur. Tillcyimingar Finnsk bókakynning í Norræna húsinu Laugardaginn 16. mars kl. 16 verður kynning á bókum frá Finnlandi í fundar- sal Norræna hússins. Timo Karlsson sendikennari kynnir bækur sem komu út í Finnlandi 1990 og gestur á bókakynn- ingunni verður Kjell Westö rithöfundur. Með þessari bókakynningu hefst finnsk menningarvika og verða ftnnskar kvik- myndir sýndar í Háskólabíói frá laugar- degi 16. mars til fóstudagsins 22. mars. Auk þess veröur dagskrá í Norræna hús- inu, Hótel Borg, á Akranesi og Akureyri. KökubasarSöngskólans í Reykjavík Laugardaginn 16. febrúar munu nemend- ur Söngskólans í Reykjavík standa fyrir kökubasar í Blómavali, Sigtúni. Þetta er gert í fjáröflunarskyni til kaupa á mynd- bandstökuvél og skjá fyrir skólann en þessi kennslutæki hefur sárlega vantaö hingað til. Basarinn stendur frá kl. 13-16 og á því tímabili verður boðið upp á söng- atriði sem nemendur og undirleikarar þeirra ílytja. Mælsku- og rökræðukeppni l-ráðs ITC Síðari umferð mælsku- og rökræöu- keppni I-ráðs ITC verður haldin sunnu- daginn 17. mars kl. 13.30 í Kornhlöðunni í Bankastræti. ITC-deildirnar Björkin og Ýr keppa. ITC deildin Ýr leggur til að miöbær Reykjavíkur veröi riftnn og byggöur upp í nútímastíl. ITC Björkin andmælir. Fundurinn er öllum opinn. Kaffiveitingar. Úrslit í „freestyle“ Úrslit í íslandsmeistarkeppni unglinga í „freestyle“-dansi verða í kvöld, 15. mars, kl. 20 og kostar kr. 300 inn. Sl. fóstudag voru undanútslit í Tónabæ og var keppt um titilinn Reykjavíkur- og Reykjanes- meistarar í „freestyle". Mikil stemming var í húsinu og fylgdust u.þ.b. 400 manns með keppninni. Úrslit urðu eftirfarandi. í hópdansi: Hópurinn ímynd en hann skipa: Tinna Hrafnsdóttir, María Heba Þorkelsdóttir, Nanna Kristin Magnús- dóttir og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. í einstaklingsdansi: Unnur Pálmarsdóttir. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur afmælisfagnað sunnudaginn 17. mars í Templarahöllinni v/Eiríksgötu. Hefst hann með borðhaldi kl. 19.30. Skemmtiatriði. Frekari upplýsingar gef- ur Sigurbjörg, s. 685573, eða Málfríður, s. 19111. Taflfélag Kópavogs Hraðskákmót Kópavogs verður haldið sunnudaginn 17. mars kl. 14. Teflt verður að Hamraborg 5 í sal Taflfélags Kópa- vogs. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt verður af staö frá Digranesvegi 12 kl. 10. Nú hitt- umst við í rúmgóöum sal á Digranesvegi 12. Veriö meö í skemmtilegu laugardagst- rimmi í góðum félagskap. Nýlagað mola- kaffi. Kynningardagur Stýrimanna- skólans í Reykjavík Árlegur kynningardagur Stýrimanna- skólans í Reykjavík hefst í dag kl. 14 með svonefndu flotgallasundi við Faxagarð í austurhluta gömlu hafnarinnar í Reykja- vík þar sem togarabryggjan var áður. Eins og sl. ár eru áformaðar ýmsar uppá- komur við höfnina. Aðalkynning Stýri- mannaskólans hefst síðan laugardaginn 16. mars kl. 13 með ávarpi skólameistara Stýrimannaskólans á Sal Sjómannaskól- ans. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir, sem -vjengjast sjávarútveginum, siglinga- og öryggistækjum, kynna starfsemi sína. Kvenfélagið Hrönn verður með kafflveit- ingar í matsal Sjómannaskólans kl. 13.30. Auk kynningar á tækjum skólans og fyr- irtækja, tengdum sjávarútvegi, verður ýmislegt á boðstólum. Lok kynningar- dagsins eru áætluð kl. 18. Nemendur Stý- rimannaskólans sjá alfarið um kynningu skólans og allan undirbúning fyrri dag- inn. Þetta er 100. skólaár frá stofnun Stý- rimannaskólans árið 1891 og er kjörorð dagsins „Siglingar og sjósókn er nauðsyn - Stýrimannaskóli í 100 ár“. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðar- mannaflokkur íslands - 75 ára Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmanna- flokkur íslands - varð 75 ára 12. mars. Af því tilefni verður haldin vegleg af- mælishátíð í Súlnasal Hótel Sögu sunnu- daginn 17. mars. Hátíðin hefst kl. 14.30. Þá mun Lúðrasveit. verkalýðsins taka á móti gestum við innganginn. Þegar inn er komið taka við ljúfir tónar Hljómsveit- ar Hauks Morthens. Kynntir verða fram- boöslistar á Reykjanesi, Suðurlandi, Norðurlandi vestra og Austurlandi. Þá fer fram leiklestur. Flutt verður skemmtidagskráin Blái hatturinn. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra og formaður Alþýöuleikhússins flytur hátíðarræðu. Kynnir á hátíðinni verður Össur Skarphéðinsson. Ljúífeng- ar veitingar verða fram bornar í veisl- unni. Miðaverð á hátíðina er kr. 500. All- ir velkomnir. Ráðstefnur „Islenskt tónlist í vaskinn“ Samtök höfunda, flytjenda og hljóm- plötuframleiðenda munu nk. sunnudag, 17. mars, kl. 14 halda ráðstefnu í húsa- kynnum FÍH aö Rauðagerði 27, Reykja- vík, undir yfirskriftinni „íslenskt tónlist í vaskinn". Á fundinum munu mennta- málaráðherra, Svavar Gestsson, og fíár- málaráöherra, Ólafur Ragnar Grimsson, halda erindi. Ennfremur mun Jakob Magnússon ávarpa fundinn. Panelum- ræður verða að loknum framangreindum erindum með þátttöku ráðherranna, auk Eiríks Tómassonar, framkvæmdastjóra STEFS, Steinars B. ísleifssonar, fram- kvæmdastjóra Steina hf. og formanns Sambands hljómplötuframleiðenda, Magnúsar Kjartanssonar, formanns Fé- lags tónskálda og textahöfunda, og Gunn- ars Guömundssonar héraösdómslög- manns. Á milli erinda verður flutt íslensk tónlist með íslenskum tónlistarmönnum. Tórúeikar Stórtónleikar í Háskólabíó Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúörasveit Akureyrar halda sameiginlega tónleika laugardaginn 16. mars í sal 2 kl. 16. Fjöl- breytt efnisskrá er á tónleikunum. Sveit- irnar spila hvor í sínu lagi og síðan sam- an. Fjöldi spilara þegar sveitirnar spila saman er 70 og er því um stórhljómsveit að ræða. Lúðrasveit LR heimsótti Lúðra- sveit LA á Akureyri fyrir um ári. Þar héldu sveitirnar svipaöa tónleika. Þessi samskipti sveitanna hafa gert mikla lukku. Stjórnandi LR er Eiríkur G. Ste- fensen, form. Kristján Á. Ingólfsson. Stjórnandi LA er Atli Guðlaugsson. Form. er Einar Jónsson. Allir eru vel- komnir á þessa tónleika. Píanótónleikar í Garðabæ Sunnudaginn 17. mars nk. mun Guðríður St. Sigurðardóttir píanóleikari halda ein- leikstónleika í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ. HeQast þeir kl. 20.30. Hér er um að ræða endurtekna tón- leika sem haldnir voru við góða aðsókn í íslensku óperunni sl. mánudagskvöld. Á efnisskránni eru verk eftir C.P.E. Bach, J. Haydn, A. Skrjabin og C. Debussy. Tónleikarnir eru haldnir á vegum EPTA - Evrópusambands píanókennara. Ferðalög Útivist um helgina Laugardagur 16. mars Hellisheiði á skíðum Tveggja daga upphitunarferð fyrir lengri og erflðari skíðagönguferðir. Gengið um HengOssvæðið. M.a. verður gengið' á Skeggja, gist í húsi og tjöldum. Brottfór á laugardagsmorgun kl. 9 frá BSÍ. Farar- stjóri Óli Þór Hilmarsson. Sunnud. 17. mars Kl. 10.30: Með Hengladalaá Gangan hefst á Kambabrún. Þaðan verð- ur gengið upp með Hengladalaá og komið til baka um Sleggjubeinsskarð. Kl. 13 Skarðsmýrarfjall - Sleggjubeins- skarð. Gengið upp á Skarðsmýrarflall og niöur viö Sleggjubeinsskarð. Útivist um páskana 28.3- 1.4: Landmannalaugar - Básar. Skíðaganga í erfiðari kantinum fyrir vant fólk. Gist í skálum. 30.3- 1.4: Þingvellir - Skjaldbreiður - Geysir. Skíðaganga frá Þingvöllum upp á Hlöðuvelli og niður í Haukadal. Gist í tjöldum. 28.3- 31.3: Snæfellsnes - Snæfellsjökull: Gist aö Lýsuhóli. Gengið á Snæfellsjökul - mælt með gönguskíðum, þó ekki skil- yrði. Síðari daginn verður farið í strand- göngu á nesinu. 30.3- 1.4: Þórsmörk - Básar: Ekið inn í Bása og gist í Útivistarskálunum. Göngu- ferðir um Goðaland og Þórsmörk við allra hæfi. Ferðafélag íslands Sunnudagur 17. mars kl. 13 Reykjavik að vetri: Lokaáfangi Elliðarárdalur - Mörkin 6 Nú er komið að fimmtu og síðustu göngunni í hringferð Ferðafélagsins um útivistarsvæði Reykvíkinga. Að því til- efni er öllum boðið í ókeypis ferð með Ferðafélaginu. Farið með rútu frá Mörk- 21 inni 6 að hólnum Skyggni við Elliðavatn og gengið þaðan um Elliðarárdalinn, El- hðaárhólma og Sogamýri að framtíðarað- seturstað Ferðafélagsins að Mörkinni 6. Tilvalin ganga fyrir flölskylduna. Brott- fór frá Mörkinni 6 kl. 13 (í Sogamýrinni á mótum Skeiðarvogs og Suðurlands- brautar). Sunnudagur 17. mars - skiðaferðir Kl. 10.30 Hellisheiði - Innstidalur. Ekið austur á Hellisheiði og gengið þaðan á skíðum í Innstadal. Nægur snjór. Kl. 13 Bláfiöll - skiðakennsla og skíða- ganga. Ekið að Þjónustumiðstöðinni í Bláflöllum og gengið þaðan. Finnur Torfi Hjörleifs- son mun veita þátttakendum tilsögn í skíðagöngu. í Bláflöllum eru þægilegar gönguleiðir fyrir skíðafólk. Allir vel- komnir, félagar og aðrir. Verð í skíða- gönguna er kr. 1.100. Brottför frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far- miðar við bíl. Sýningar Art-Hún Stangarhyl7 Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafík og myndir, unnar í kol, pastel og olíu, í sýningarsal sínum aö Stangarhyl 7. Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18. Árbæjarsafn sími 84412 Safnið er opið eftir samkomulagi fyrir hópa frá því í október og fram í maí. Safnkennari tekur á móti skólabörnum. Upplýsingar í síma 84412. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd 26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá Suðurlandi. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Á sunnudaginn kl. 14 opnar Þórdís Alda Sigurðardóttir sýningu á myndum. unn- um á pappír meö olíukrít, vatnslitum, kolum, prentsvertu, sparsli og pressuð- um vír, auk þess skúlptúr unninn i vír, járn og pappa. Sýningin ber yfirskriftina „Forleikur í dýrum og vírum". Opið verð- ur daglega kl. 14-18 meðan á sýningunni stendur. Síðasti sýningardagur er pálma- sunnudagur 24. mars. FÍM-salurinn Garðastræti 6 Guörún Matthíasdóttir sýnir málverk. Sýningin er opin kl. 14-18 alla daga og stendur til 18. mars. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Þar er nú dýning á olíumálverkum eftir Ásgeir Smára Einarsson. Sýninguna nefnir hann Borgarlandslag en viöfangs- efni Ásgeirs er húsið og fólkiö í borg- inni. Sýningin stendur til 26. mars og er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Gallerí einn einn Skólavörðustíg 4 John Hopkins sýnir verk, unnin meö ljós- myndatækni. Sýningin er opin daglega kl. 14-18 til 21. mars. Gallerí B12 Baldursgötu 12 Kristján Kristjánsson sýnir nokkur eldri verk sína. Sýningin ber nafnið Bak við tjöldin og spannar 10 ára hugleiðingar og leit listamannsins um lönd dulhyggj- unnar að tíöarbera tilveru og tilgangs. Sýningin stendur til 24. mars og er opin virka daga kl. 12-16 og um helgar kl. 14-18. Gallerí List Skipholti í Gallerí List er komið nýtt, skemmtilegt og nýstárlegt úrval af listaverkum: hand- unnið keramik, rakúkeramik, postulín og gler í glugga, skartgripir, grafik, ein- þrykk og vatnslitamyndir eftir íslenska listamenn. Opið kl. 10.30-18. Gallerí Samskipti Síðumúla 4 Nýtt arkitektagallerí til kynningar á ís- lenskum arkitektúr, arkitektum og hug- smíðum þeirra. Guðjón Bjarnason, arki- tekt og myndlistarmaður, sýnir þennan mánuð. A sýningunni eru flöldamörg verk, teikningar, likön og samstarfsverk- efni í íslensku og erlendu umhverfi, en mörg hver hafa hlotið viðurkenningar á undartfórnum árum. Sýningin er opin á virkum dögum kl. 8-18 og kl. 10-14 á laug- ardögum og lýkur 1. apríl. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 í dag opnar Þórunn S. Þorgrímsdóttir málverkasýningu. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekiö þátt í samsýning- um síðan 1979 og starfað við leikmynda- teiknun hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reyhjavíkur og við kvikmyndir. Verkin á sýningunni eru unnin 1988-91, tempera- og olíulitir á léreft. Sýningin stendur til 12. apríl og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18 og 10-14 á laugardögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.