Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Side 3
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. 19 Dans- staðir Bjórhöllin Gerðubergi 1, sími 74420 Láfandi tónlist öll kvöld vikunn- ar. Blúsbarinn Laugavegi 73 Lifandi tónlist öll kvöld. Blús- brot leikur um helgina. Breiðvangur í Mjódd, simi 77500 Söng- og skemmtidagskráin Við eigum samleið flutt á laugar- dagskvöld. Dagskráin er byggð á söngferli Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar. Danshöllin Fjölbreytt skemmtun með fyr- irtaksskemmtikröftum föstu- dags- og laugardagskvöld. Casablanca Diskótek fóstudags- og laugar- dagskvöld. Dans-barinn Grensásvegi 7, simi 688311 Dansleikur á fóstudags- og laugardagskvöld. Blár sunnu- dagur. Danshúsið Glæsibæ Álfheimum, s. 686220 Hljómsveit Finns Eydal ásamt Helenu Eyjólfsdóttur skemmtir föstudags- og laugardagskvöld. Fjörðurinn og Nillabar Strandgötu, Hafnarfirði Fjörðurinn lokaður 1 kvöld vegna einkasamkvæmis. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi á laug- ardagskvöld. Hljómsveitin Nítró leikur á Nillabar á fostudags- og laugardagskvöld. Gikkurinn Ármúla 7, sími 681661 Opið öU kvöld vikunnar. L.A. Café Laugavegi 45, s. 626120 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Hátt aldurstakmark. Lídó Lækjargötu 2 BaU fóstudags- og laugardagskvöld. Sportklúbburinn Borgartúni 32, s. 29670 Opið föstudags- og laugardags- kvöld á Stönginni. Aðgangur ókeypis. Hótel Borg Orator, félag laganema, hefur tekið við skemmtanastjóm á hótel Borg. Diskótek um helgina. Hótel ísland Ármúla 9, sími 687111 Rokkað á himnum, glettin saga um sálina hans Jóns og gullna hliðið á föstudags- og laugar- dagskvöld. Anna og flæking- amir í Ásbyrgi, Blúsmenn Andreu í Café ísland og diskó- tek í norðursal. Hótel Saga Sýning á Næturvaktinni, skemmtun, á laugardagskvöld. Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi. Keisarinn Laugavegi 116 Ball fóstudags- og laugardagskvöld. Tveir vinir og annar í fríi Á fóstudags- og laugardagskvöld skemmtir hljómsveitin Loðin rotta. .STÓRKOSTLEG ASKRIFIAR Fjölbrautaskóli Vesturlands: Duílogdaður Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi frumsýnir í kvöld, föstu- daginn 15. mars, leikritið „Hay Fe- ver“ eða Dufl og daður eftir Noel Coward. Leikstjóri er Árni Blan- don og hafa nemendur, ásamt leik- stjóranum unnið upp nýja þýðingu á verkinu sem byggist á frumþýð- ingu Boga Ólafssonar en hann kall- aði verkið „Heysótt“. Þetta fræga verk hefur aðeins einu sinni verið sett upp áður hér á landi en það var á Herranótt árið 1948. Sem fyrr segir verður frumsýn- ing í kvöld og önnur sýning á sunnudagskvöld. Síðustu sýningar verða helgina eftir. Leikarar í Dufli og daðri sem verður frumsýnt i Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í kvöld. Púlsinn: Fjölbreytileikinn ríkjandi Rúnar Þór r a Gikknum Rúnar Þór og hljómsveit skemmta á Gikknum í Ármúla 7 í kvöld, fóstudaginn 15. mars og á morgun, laugardaginn 16. mars. Fyrir síðustu jól gaf Rúnar Þór út plötuna Frostaugu sem hefur notið mikiUa vinsælda. Hann spilar lög af þeirri plötu og af hinum fjór- um sem hann hefur gefið út. Meðai þekktra laga Rúnars Þórs eru Brotnar myndir og píanólagið 1.12.’87. Með Rúnari Þór spila þeir Jón Ólafsson á bassa og Jónas Björns- son á trommur. Rúnar Þór skemmtir gestum Gikksins, Ármúla 7, í kvöld og annað kvöld. Það verður fjölbreytt tónlist á Púlsinum um helgina. í kvöld, fóstudaginn 15. mars, heldur Kvartett Tómasar R. Einarssonar seinni tónleika sína með sömu skipan liðsmanna, utan að í stað KK-dúetts verður söngkonan Ellen Kristjánsdóttir sérstakur gestur kvöldsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og standa til klukkan 23.30 en þá tekur stuðhljómsveitin Galíleó við. Þá hljómsveit skipa þeir Sævar Sverrisson, Rafn Jóns- son og Öm Hjálmarsson. Á laugardagskvöldið verða djass- tónleikar frá klukkan 21.20-23.30. Þá spilar kvartett sem skipaður er Norðmönnunum Philip A. Kruse á trompet, Sven Haugen á bassa, Freddy H. Nielson á píanó og svo íslenska trommuleikaranum Pétri Grétarssyni. Þessir sömu tónlistar- menn halda tónleika ásamt Söng- sveitinni NA-12 frá Húsavík sunnu- daginn 17. mars. Söngsveitin NA-12 er blandaður kór með tólf kórfélög- um sem syngja aðallega létt sveiflu- lög. Þessir tónleikar hefjast klukk- an 21.30. Rigoletto aftur ásvið í kvöld, 15. mars, og á morgun, 16. mars, verða sýningar á Rigo- letto hjá íslensku ópemnni eftir mánaðar hlé. Sólrún Bragadóttir fer með hlutverk Gildu en hún kemur sérstaklega frá Ríkisópe- runni í Hannover þar sem hún starfar á fóstum samningi. Meö hlutverk Rigoletto fer Ivan Kusnjer frá Tékkóslóvakíu en hann er talinn í fremstu röð barít- ónsöngvara síns heimalands. Hann syngur við Þjóöarópemna í Prag. Spánverjinn Ernesto Grisales er í hlutverki Hertogans en hann er heimsfrægur tenórsöngvari sem unnið hefur til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Blái fiðringurinn á Rauða ljóninu Hljómsveitin Blái fiðringurinn spilar á Rauða ljóninu, Eiðistorgi, um helgina. Hljómsveitina, sem leggur áherslu á rokkaðan og hressan blús, skipa þau Linda Gísladóttir söngur, Skúli Thor- oddsen saxófónn, Magnús Sigurð- arson gítar, Árni Bjömsson bassi og Kjartan Guðnason trommur. Aðstandendur gamanleiksins Gripið í tómt sem frumsýndur verður á morgun. Ungmennafélag Biskupstungna: Nú stendur yfir á Hótel Sögu ít- ölsk vika og er boðið upp á ítalskan mat í veitingasalnum Skrúði. í til- efni þessarar ítölsku viku kemur ítalski gítarleikarinn og söngvar- inn Giorgio Carana og flytur tónlist fyrir kvöldverðargesti. Nauðungaruppboð á eftirtalinni fasteign fer fram á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, á neðangreindum tíma: Vélsmiðja á Tálknafirði, þingl. eign Vélsmiðju Tálkníifjarðar h/f, föstu- daginn 22. mars 1991 kl. 9.30. Upp- boðsbeiðandi er Fjárheimtan h/f. Strandgata 13, neðri hæð, Patreks- firði, þingl. eign Sigríðar Kr. Aðal- steinsdóttur og Orra Haraldssonar, fostudaginn 22. mars 1991 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em Byggingar- sjóður ríkisins, Lífeyrissjóður Vest- firðinga, Landsbanki Islands og Tryggvi Bjamason hdl. SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU Gripið í tómt Ungmennafélag Biskupstungna frumsýnir á morgun, laugardaginn 16. mars, nýjan íslenskan gaman- leik með grafalvarlegu ívafi sem ber heitið Gripið í tómt. Höfundur verksins er Pétur Eggerz sem leik- stýrir einnig. Lagahöfundur er Ingvi Þór Kormáksson en lögin eru samin sérstaklega fyrir verkið. Textar em einnig eftir höfundinn, Pétur Eggerz. Útsetningu og upp- töku laga annaðist Sigurður Rúnar Jónsson. Aðalhlutverkið er í höndum Brynjars Sigurðssonar sem leikur leynilögreglumanninn Leynráð Ljóstran, en alls taka 14 manns þátt í uppsetningunni, allir heimil- isfastir Tungnamenn. Leiksýning þessi er liður í M- hátíð á Suðurlandi og verður hún sýnd í uppsveitum, á Selfossi og í Kópavogi. SÝSLUMADUR BARSASTRANDARSÝSLU Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, á neðangreindum tíma: Bjarkarlundur í landi Berufjarðar, Reykhólahreppi, þingl. eign Gests h/f, föstudaginn 22. mars 1991 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Byggðastofii- un og Hróbjartur Jónatansson. S" j—» “7 f \ ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.