Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Page 6
22 roof p'fM/ -r rn/ rri'fpör‘T FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. Steven Segal leikur enn eitt hörkutólið í Hart á móti hörðu. Bíóhöllin: Hart á móti hörðu Steven Segal hefur á undanfórn- um árum náð að skipa sér á bekk með eftirsóttustu leikurum í hasar- myndir. Segal, sem er meistari í austurlenskum sjálfsvarnaríþrótt- um, hefur það sem þarf til í þannig myndir. Hann hefur með tímanum skapað ákveðna persónu sem virð- ist fara vel í kvikmyndahúsagesti og hafa þær þrjár kvikmyndir, sem hann hefur leikið í, allar náð mikl- um vinsældum. Hart á móti hörðu (Marked for Death) er nýjasta kvikmynd haris. Sem fýir leikur Segal harðan nagla sem ekki lætur sér allt fyrir brjósti brenna. John Hatcher er fyrrver- andi leyniþjónustumaður sem snýr aftur tíl þess hverfis sem hann ólst upp í. Hann kemst að því að mikið eiturlyíjuvandamál er í hverfinu sem á rót sína að rekja til eiturlyfja- salans Scarface sem allir íbúar hverfisins hræðast. Steven Segal á sérstæðan feril að baki. Hann fæddist í Detroit. Faðir hans er kennari og móðir hans hjúkrunarkona. Hann á þrjár syst- ur. Segal var aðeins sjö ára þegar hann byijaði að æfa sjálfsvarnar- íþróttir. Hann valdi aikido sem tal- in er erfiðust jápanskra sjálfs- varnaríþrótta og sú sem reynir mest á andlegu hliðina. Þegar Segal var sautján ára fluttist hann til Japans þar sem hann með tíman- um setti á .stofn eina skólann sem kennir sjáífsvamarlist sem rekinn er af útlendingi. Sá skóli starfar enn þann dag í dag og hefur um það bil tvö þúsund nemendur. Seg- al dvaldi í Japan í fimmtán ár. Fyr- ir nokkmm árum flutti hann til Los Angeles þar sem hann setti á stofn sams konar skóla og hann stofnaði í Japan. Fyrir atbeina þekktra leik- ara, sem komu til hans í nám, komst hann í kvikmyndimar. -HK Háskólabíó: Sjö finnskar kvikmyndir í tilefni finnskrar menningarvik- ur verða sýndar nokkrar nýjar finnskar kvikmyndir og hafa sum- ar þeirra vakið mikla athygli. Myndimar, sem við fáum að sjá, eru eftir alla helstu leikstjóra Finna. Opnunarmynd á sérstakri boðssýningu verður Amazon, sem er heimildarmynd um regnskóga Amazon. Leikstjóri hennar er Miki Kaurismaki sem ásamt bróður sín- um Aki er talinn fremstur meðal jafningja í Finnlandi. Miki á eina aðra mynd á hátíðinni, Leningrad kúrekar fara til Ameríku, sem er um ömurlega rokkhljómsveit sem reynir að slá í gegn í Ameríku. Tvær kvikmyndir eru eftir bróð- ur hans, Aki Kaurismáki. Ariel er mynd um venjulegt fólk sem er at- vinnulaust, verður ástfangið og flækist í glæpi. Ég réð mér atvinnu- morðingja er um mann sem langar mikið til að deyja en þorir það ekki og leigir sér því morðingja. Aðrar kvikmyndir á fmnskum menningardögum eru Pessi og 111- usia eftir Heikki Partansen. Mynd- in er gerð eftir smásögu Yrjö Kokko sem hann skrifaði í síðari heims- styrjöldinni. Sléttan eftir Peikka Parikka gerist á heitum sunnudegi í smáþorpinu Kauhave. Hakala fjölskyldan hefur kallað saman ættingja til að deila niður arfi afa sem dó í Ameríku. Rapsy og Dolly eftir Matti Ljás er gamanmynd sem fiallar um mann sem samþykkir það sem aðrir segja áður en þeir opna munninn. Finnsku kvikmyndirnar sjö, sem eru á finnskri menningarviku, verða allar sýndar í Háskólabíói frá laugardegi til fóstudags. -HK Bíóhöllin: Hinn mikli Denzel Washington, sem þekktastur er fyrir dramatísk hlutverk í myndum á borð við Cry Freedom og Glory. í Hinn mikli (Mighty Qu- inn) slær hann á léttari strengi í sakamála- mynd sem gerist í karabíska hafinu. Leikur hann lögregluforingjann Xavier Quinn sem er lögreglustjóri á friðsælli eyju. Sá friður er úti þegar viðskiptajöfur er myrtur. Grunur fellur fljótlega á þjóöhetju eyjarskeggja, Maubee, sem er elskaður af konum en öfund- aður af mönnum. Quinn og Maubee voru æskuvinir en leiöir þeirra skildu þegar Quinn gekk til liðs við lögregluna. Eftir að hann hafði veriö í þjálfun hjá FBI fékk hann viður- nefnið Hinn mikli Quinn hjá eyjarskeggjum og er það nafn notað í niðrandi tónn. Rann- sókn Quinns á moröinu reynist heldur ekki auðveld því hann kemur alls staðar að lokuð- um dyrum. Það er leikstjórinn og leikarinn Robert Townsend sem leikur Maubee. Aðrir þekktir leikarar eru James Fox, Mimi Rogers og M.Emmet Walsh. -HK Denzel Washington og Robert Townsend leika aðalhlutverkin i Hinum mikla. Jetson-fjölskyldan á góðri stund. Laugarásbíó: Jetson-fólkið Jetson-fiölskyldan er vinsælt teiknimyndafólk sem hingað til hefur eingöngu veriö í sjónvarpi. Jetson-fólkið (Jetsons: The Movie) er aftur á móti kvikmynd í fullri lengd. Fjölskyldan er Georg Jetson, kona hans, June, og böm þeirra, Judy og Elroy. Myndin gerist seint á 21. öldinni þegar maðurinri getur farið allra sinna ferða um geiminn og hefur vélmenni til starfa í þjón- ustu sinni. Georg vinnur hjá stórfyrirtæki manns sem Spacely heitir og hugs- ar hann ekki um neitt annað en gróða og meiri gróða. Rekstur einn- ar af verksmiðjum hans, sem er á lítilli plánetu úti í geimnum, hefur gengið illa og er George sendur ásamt fiölskyldu sinni til að bjarga málinu. -HK BÍÓBORGIN Á síðasta snúningi Vel uppbyggður tryllir um martröð húseiganda i stríði við geggjaðan leigjanda. Traustir leikarar en Kea- ton fer á kostum. -PÁ Memphis Belle * Sfiórnlaus frá fiugtaki, flýgur á tómu, hrapar sem steinn. Máttlaus, bæði sem persónudrama og spennumynd. -GE Uns sekt er sönnuð *** Athyglisverðar persónur í flóknum þriller þar sem gátan er óleyst fram á síðustu stundu. Harrison Ford er frábær. -HK Góðir gæjar **** Mjög vel leikin og spennandi maf- íumynd, hrottafengin en um leiö raunsæ. Besta mynd Martins Scor- sese frá þvihann gerði RagingBuIl. -HK BÍÓHÖLLIN Hart á móti hörðu *'/» Glæsipinninn Segal bryður bein af hörku í nokkrum fantagóöum bar- dagaatriðum en steindauöir kaflar innámilli -GE Hinn mikli ** 14 Óvenju glöggt auga fyrir smáatrið- um plús frábær leikur Denzel Was- hington halda uppi miðlungsgóöri flækju. -GE Hættuleg tegund **!4 Krassandi kvikmynd um köngu- lær. Samband af gamanmynd og hrollvekju. Varla fyrir þá sem eru raunverulega hræddir við áttfætl- ur. -PÁ Passað upp á starfið ** Ágæt iðnaöarframleiðsla. James Belushi er góður, Charles Grodin erennbetri. -PÁ Rocky 5 ** Óþarft en vel meint framhald sem er mun skárra en síöustu þrenn slagsmál. Stallone er skammlaus. -GE Aleinn heima ★* !4 Gamanmynd um ráðagóöan strák sem kann svo sannarlega að taka á móti innbrotsþjófum. Mjög fynd- in í bestu atriöunum. MacCaulay Culkin er sfiarna framtíðarinnar. Einnig sýnd í Bíóborginni. -HK HÁSKÓLABÍÓ Guðfaðirinn III *** Ekki jafiigóð og fyrirrennarar en verðugur lokakafli á eina mestu og bestu tríólógíu kvikmyndasögunn- ar. -HK Sýknaður **!4 Samleikur Irons og Close er hreint ótrúlega vel heppnaöur en myndin er sögð frá sjónarhorni sem sveltir áhorfandamt. -GE Allt i besta lagi *** Giuseppe Tornatore er mikill kvik- myndageröarmaður. Þótt Allt í besta lagi sé ekki eins mikið verk og Paradisarbíóið er hér um mjög góða kvikmynd að ræða og sem fyrr má treysta á Mastroianni. -HK Kokkurinn, þjófurinn, konan hans og elskhugi hennar *** Áreitið og hrottafengið listaverk um ást, kynlif og.mat. Ekki við allra hæfi. -PÁ Nikita *** Sterkt myndmál er aðal Lucs Bes- , son nú sem fyrr. Hnökrar i per- sónusköpun koma ekki í veg fyrir góða skemmtun. -HK Skjaldbökurnar *★ 54 Snilldarlega útbúnar tánings- skjaldbökur og Qörug saga gera þetta að hinni bestu skemmtun fyr- irbreiðanaldurshóp. -GE Paradísarbíóið ***!4 Það líður öllum vel eftir að hafa séö þessa einlægu og frábæru kvik- mynd. -HK LAUGARÁSBÍÓ Dreptu mig aftur ** veltir sér blygðunarlaust upp úr einkaspæjaraformúlunum, oft með góðum árangri. -GE Stella ** Sagan kemur fáum á óvart en góð- ar persónur og leikendur halda myndinniáfloti. -GE Leikskólalöggan *★ Einfeldningsleg saga byrjar ágæt- lega en fer yfir væmnismörk í lok- in. Schwarzenegger stendur sig furðuvel. -GE REGNBOGINN Dansar við úlfa *** Löng og falleg kvikmynd um nátt- úruvernd og útrýmingu indiána. Glæsileg frumraun Kevins Costn- ers.Örugguróskar. -PÁ Litli þjófurinn *** Grátbrosleg þroskasaga, arfur méistara Truffauts í vandaðri út- setningu Claude Millers. Kærkom- intilbreyting. -PÁ Samskipti ** Christopher Walken á góða spretti í forvitnilegri kvikmynd sem spyr margra spuminga en veitir fá svör. -HK Aftökuheimild * Van Damme er ekki vandinn held- ur einstaklega óírumlegur og óspennandi söguþráður. -GE Ryð ★**'/: Sterktdrama. Öll vinnamjög vönd- uð og fagmannleg. -PÁ Skúrkar ** !4 Háðskt og meinfyndið löggugrin frá Fransmönnum. -GE STJÖRNUBÍÓ Á barmi örvæntingar *** Hörkugóð skemmtun. Meryl Stre- ep er hreint frábær og Shirley MacLaine gefur henni lítið eftir. -HK Pottormamir * 'h Hroðvirknislegt framhald þar sem söguþráður er nánast enginn og frumleikinn horfinn. Börnin einu leikaramir sem standa fyrir sínu. -HK Á mörkum lifs og dauða ** Góð hugmynd en klúðurslega unn- in og ekki alltaf sjálfri sér sam- kvæm. Myndræna hliðin er of- keyrð i von um að auka áhrifin. -GE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.