Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Qupperneq 8
24
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991. °
Veðrið næstu viku:
Kalt um helgina en hlýnar
þegar líður á vikuna
samkvæmt spá Accu-Weather
Snjór og kuldi verður ríkjandi
'þessa helgi og fram í næstu viku.
Hitinn rétt skríður yfir frostmark
þegar líður á vikuna en þó mun snjóa
víðast hvar áfram. Það er orðið nokk-
uð vorlegt um að litast í Evr ópu sam-
kvæmt meðfylgjandi korti frá Accu-
Weather í Bandaríkjunum. Vorið er
komið i París, Frankfurt, Vín og
sunnar í Evrópu er enn hlýrra. í
Barcelona verður 17 gráða hiti á
laugardag og þar hlýnar enn frekar
í næstu viku. Sömu sögu er að segja
af öörum stöðum í Suður-Evrópu og
líkur á yndislegu páskaveðri þar um
slóöir. A íslandi hlýnar frekar þegar
líður á vikuna og hver veit nema ís-
lenskt vor sé á næsta leiti.
Ef íslandskortið er skoðað nánar
og byrjaö á Vestmannaeyjum má sjá
að þar mun snjóa á laugardag og
sunnudag. Þar verður hiti 1-2 gráður
um helgina en strax á mánudag verð-
ur hann kominn upp í 3 gráður. Einn-
ig má búast við næturfrosti í Eyjum
og alskýjað verður fram eftir vik-
unni.
Snjór á Suðausturlandi
Suðaustan til á landinu mun einnig
snjóa um helgina. Á Kirkjubæjar-
klaustri snjóar fram á þriðjudag
samkvæmt spánni. Á sunnudag
veröqr líklega 2 gráða frost en síðan
hlýnar lítils háttar þar til hiti veröur
kominn í 3 gráöur. Ekki léttir mikið
til á Klaustri næstu daga.
Hjarðarnes er næsti veðurathug-
unarstaður og þar er líka gert ráð
fyrir snjókomu um helgina. Hiti
verður yfir frostmarki næstu daga
og á þriðjudag má búast viö 3 gráða
hita og hálfskýjuðu veöri.
Kaldar nætur fyrir norðan
Ekki er gert ráð fyrir snjókomu á
Egilsstöðum um helgina en þar mun
líklega snjóa á þriðjudag. Fremur
kalt verður í lofti en aðallega á nótt-
unni, allt að 7 gráða frost um helgina
en úr því mun draga þegar líður á
vikuna. Ekki mun létta neitt til á
þessu slóðum næstu daga ef spáin
stenst.
Frá Egilsstöðum má halda eins og
leið liggur til Raufarhafnar. Þar
verður 2 gráða frost á laugardag sem
fer niður i 3 gráður á sunnudag. Mun
kaldara verður á nóttunni, allt að 6
gráður, og mun þetta mikla nætur-
frost haldast út vikuna. Á Raufar-
höfn snjóar á þriðjudag og miðviku-
dag.
Osköp svipað veður verður á Sauð-
árkróki og Akureyri, að minnsta
kosti hvað kulda varðar. Ekki mun
snjóa á Akureyri um helgina en bú-
ast má við snjókomu á mánudag.
Einnig verður úrkomulaust á Sauð-
árkróki þessa' helgi en á mánudag
byrjar að snjóa og mun líklega snjóa
fram eftir vikunni.
Úrkomulaust fyrir vestan
Samkvæmt kortinu frá Accu-
Weather er ekki að vænta snjókomu
á Vestfjörðum næstu daga. Þar mun
líklega hlýna lítils háttar aö degi til
í næstu viku en næturfrost verður
allan tímann og það töluvert.
Á höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum má búast við snjókomu um
helgina. Á sunnudag Unnir snjó-
komu í Reykjavík og hlýna mun í
veðri. Mestur hiti verður á þriðju-
dag, 3 gráður. Suðurnesjamenn
munu fá meiri snjó, sennilega alla
dagana nema mánudaginn. Mánu-
dagurinn verður líka hlýjasti dagur-
inn en síðan mun kólna.
-JJ
o * * * * * Cb * * * * * * * * * *
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
MÁNUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR
MIÐVIKUDAGUR
Veðurhorfur í Reykjavík næstu 5 daga
Kalsaveður, hvasst
ogsnjókoma
hiti mestur 0°
minnstur -3°
Skýjað og gengur
ámeðéljum
hitimestur -1
minnstur -5°
Skýjað að mestu
ogkalt
hiti mestur 2°
minnstur -2°
Skýjaðog
éljagangur
hiti mestur -3°
minnstur -1“
Þungbúiðog
kalt i veðri
hiti mestur 2°
minnstur -3°
Veðurhorfur á Islandi næstu 5 daga
Samkvæmt langtímaveðurspá
NOAA (bandarísku veðurstof-
unnar) fyrir marsmánuð, sem
birtist í DV fyrir skömmu, á
meðalhitinn á íslandi að vera
vel yfir meðallagi næstu vikur.
Þess sjást ekki merki enn sem
komið er en á meginlandinu
sjáum við nú tveggja stafa
hitatölur í fyrsta skipti i langan
tíma. Þvi má gera • ráð fyrir
hlýnandi veðri á næstunni og
þegar á mánudag fer hitinn upp
fyrirO’ áSuðurlandi.
ívið kaldara veröur á Norður-
landi en þó ekki að neinu ráði.
Búast má við allhvössu veðri á
köflum viða um landiö og
snjókomu fbaman af vikunni en
síðan súldarveðri.
LAU. SUN. mán. ÞRI. MIÐ.
-1/-4sn l/-5as 0/-5as
Egilsstaðir -2/-7as -1/-7as 1/-3as 1/-4sn 2/-4as
Galtarviti -2/-7hs -1/-9hs -1/-5as 1/-3as 1/-4as
Hjarðarnes 1/-2sn 1/-4sn 0/-4sn 3/-3hs 1/-4as
Keflavflv. 2/-3sn 1/-2sn 3/0as 2/-3sn 1/-3sn
Kirkjubkl. 0/-3sn -2/-4sn 1/-3sn 3/-2as 2/-3as
Raufarhöfn -2/-6hs -3/-8hs 0/-5as -2/-6sn -1/-6sn
Rey^javík 0/-3sn -1/-5as 2/-2as 3/-1as 2/-2as
Sauðárkrókur -2/-9hs -1/-8hs 0/-3sn -1/-5sn 0/-4sn
Vestmannaey. 2/-2sn 1/-4sn 3/-1as 3/-1as 3/-2as
Skýringar á táknum
he - heiðskírt
0 ls - léttskýjað
0 hs - hálfskýjað
sk - skýjað
as - alskýjað
I
0O
I*
ri - rigning
sn - snjókoma
sú - súld
s - skúrir
m i - mistur
þo - þoka
þr - þrumuveður
Veðurhorfur í útlöndum næstu 5 daga
BORGIR LAU. SUN. MAN. ÞRI. MIÐ. BORGIR LAU. SUN. mAn. ÞRI. MIÐ.
Algarve 16/11 hs 17/9as 16/8hs 21/10he 23/12he Malaga 17/11he 19/11 hs 17/9hs 19/10hs 20/9he
Amsterdam 12/5as 11 /5ri 10/5sú 8/4as 7/3sú Mallorca 17/10hs 16/8hs 15/10sú 16/10as 17/11as
Barcelona 17/8hs 17/7hs 15/7hs 24/12he 23/9he Miami 28/22hs 28/21hs 26/18sú 27/19he 26/20hs
Bergen 6/2ri 5/2sú 6/1 hs 7/3as 5/2ri Montreal 3/-3he 4/-2he 3/-3hs 2/-5sn . 0/-10hs
Berlín 12/3he 13/4as 14/6sú 8/3sú 9/4as Moskva 3/-1sk 6/1 hs 7/2sú 5/0as 3/-4sn
Chicago 7/1 he 4/0sn 3/-3sn 5/0hs 6/1 he New York 10/0he 11/3he 7/2ri 3/-4sn 1/-5sn
Dublin 11 /6ri 9/4sú 9/3hs 10/6hs 11/7as Nuuk -2/-6hs -1/-5hs 0/-4sn -6/-12hs -4/-10hs
Feneýjar 15/9hs 12/6as 11/7sú 10/5as 12/4hs Orlando 25/16hs 27/14hs 25/14hs 26/14hs 27/16he
Frankfurt 14/7hs 12/6sú 11/5sú 12/6as 11/5hs Osló 4/1 ri 5/2ri 3/0sú 4/1 as 5/2as
Glasgow 11 /4ri 8/4sú 8/3hs 9/3as 12/5as París 16/7ri 12/6sú 10/4as 15/6he 17/9he
Hamborg 12/6sú 11/5sú 10/4sú 12/6hs 11/5hs Reykjavík 0/-3sn -1/-5as 2/-2as 3/-1as 2/-3as
Helsinki 0/-5sn 1/-4sn 2/-5as 3/-4hs 2/-5hs Róm 17/7hs 14/8sú 12/6sú 15/6he 17/7hs
Kaupmannah. 6/1 ri 4/2ri 5/2sú 6/3ri 5/3sú Stokkhólmur 6/1 sú 3/1 sn 3/0as 4/1 as 3/-2hs
London • 13/6sú 11 /5ri 10/3hs 12/7hs 13/5he Vín 16/6hs 17/7hs 14/5sú 16/7hs 17/5he
Los Angeles 16/7he 16/7hs 14/9sú 18/10he 20/9he Winnipeg 1/-6he 1/-6hs 2/-7hs • -2/-7sn 0/-8as
Lúxemborg 13/5sk 8/3sú • 8/2as 10/4hs 11/5he Þórshöfn 6/3hs 6/2sú 8/5sú 7/4as 8/4as
Madríd 15/4as 13/6as 14/5hs 17/7he 19/9he Þrándheimur 6/3as 6/3sú 4/0as 5/2as 6/3as