Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Side 5
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991. 5 - Ég hefviljaö stefna að því aö annað foreldrið hafi þennan valkost. Þannig lagði Reykjavíkurborg til hliðar 50 milljónir á þessu ári til undirbúnings slíkmn styrk. Ég er mjög fylgjandi þessu en það þarf auðvitað að vera í samvinnu við ríkisvaldið því þetta er viðkvæmt fyrir sköttum. ÁVSÍaðráða? Jóhann Páll Símonarson, Reykjavík: Þú hefur sagt að Vinnuveitenda- sambandið ætti ekki að stjórna þér. Ætlar þú að standa við það? - Égsagðiaðhagsmunasamtökættu að fá að skýra sín mál og á þau skal hlusta eins og aðra en það á ekki að láta þau stjórna sér. Ég stend við það. Matthías sjávarút- vegsráðherra? Jóhann Rúnar, Keflavík: Hefur Sjálfstæðisflokkurinn ein- hveija stefnu í sjávarútvegsmálum og verður Matthías Bjarnason sjáv- arútvegsráðherra í næstu ríkisstjórn ef þiö komist að? - Sjálfstæðisflokkurinn hefur, einn flokka, lagt áherslu á að móta þurfi sjávarútvegsstefnu. Við teljum að móta þurfi heildarstefnu sem taki til allra geira sjávarútvegsins, heild- stæða mynd sem taki til veiða, vinnslu og sölu á erlendum mörkuð- um. Varðandi spurninguna um Matthí- as þá ráðstöfum viö ekki ráðherra- embættum fyrir kosningar. Landbúnaðar- stefnan Hannes Hilmarsson, Akureyri: Hver er landbúnaðarstefna Sjálf- stæðisflokksins og hvað hyggist þið gera í þeim málum ef þið komist í ríkisstjóm? - Áokkarlandsfundivarmótuð stefna. Framleiðendur hafa mikinn skilning á því að framleiðsluna þurfi að laga að neyslunni. Sumt af þeim tillögum, sem komið hafa fram að undanfórnu, líst okkur sjálfstæðis- mönnum ekki illa á. Annað gengur í þveröfuga átt og t.d. líst okkur afar illa á tillögur um flatan niðurskurð. Hvað varðar búvömsamninginn þá á eftir að ganga frá honum á þinginu og hann á eftir að taka breytingum. Við höfum tahð að það væri ekki nóg að taka á framleiðslunni heldur hefði átt að framlengja samninginn sem var um eitt ár svo hægt væri að taka á sölumálunum hka. Þori alveg í Jón Baldvin Þráinn Stefánsson, Reykjavík: Jón Baldvin bauð þér th kapp- ræöna en þú neitaðir. Þorðir þú ekki í hann? - Meðfuhrivirðingufyrir JóniBald- vin þá er ég ekkert hræddur við hann. Alþýðuflokkurinn finnur sig afskiptan í kosningabaráttunni og sér ofsjónum yfir góðri fundarsókn hjá okkur og vill fá hjálp hjá okkur við að fá fólk á fundi til sín sem hef- ur gengið illa. Við erum ekki í neinu sérstöku kapphlaupi við Alþýðu- flokkinn. Við viljum láta kjósa milli okkar og alls vinstra liðsins. Við skipuleggjum okkar kosningabar- áttusjálfir. Stef nan í um- hverfismálum Ursula Junemann, Mosfellsbæ: Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í umhverfismálum? Er það einhver lausn að dæla skolpinu bara lengra útísjóinn? - OkkarframtakhéríReykjavíker einhver mesta bylting sem gerð hef- ur verið í umhverfismálum á íslandi hvað þennan þátt varðar. Það er eftir að vinna frekar að hreinsistöðvum og fleiru. Þarna tala verkin meðan aðrir geta bara státað af einum j eppa og umhverfisráðuneyti. Stjómmál AðildaðEB? Einar Sigurbergsson, Reykjavík: Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í sambandi við aðÚd að EB? - InngangaíEvrópubandalagiðer ekki á dagskrá og verður ekki næsta áratuginn þó Framsóknarflokkurinn hafi ekki áttað sig á því. Við höfum sagt varðandi tvíhhða samninga við EB að aldrei verði gengið inn á okkar lögsögu né yfirráðum yfir henni fómað á nokkra lund. Lánasjóður íslenskra námsmanna Gunnar Ingi Valgeirsson, Reykjavík: Telur þú að 75% tekjutenging lána Lánasjóðs íslenskra námsmanna sé vinnuletjandi og auki hkur á því að stúdentar fái greitt undir borðið? - Éghefmiklaráhyggjurafaðferð- um sem eru vinnuletjandi. Ég vann Davíð Oddsson svarar spurningum fuha vinnu með öllu mínu háskóla- námi. Ég hef áhyggjur af lánasjóðn- um sem heild og þeim ógöngum sem hann er kominn í. Ég tel að núver- andi fyrirkomulag hvetji til þess að fólk sé lengur í námi en það þarf. Sjóðinn þarf því að endurskoða í góðri sátt og samvinnu við náms- menn. Áaðskerða ellilvfeyri? Sveinbjörn Axelsson, Reykjavík: Við hvaða tekjumörk telur þú að eigi að miða skerðingu ellilífeyris? - Viðhöfumþástefnuaðellhífeyrir eigi ekki að skerðast neitt. Alhr aldr- aðir hafa lagt grunn að honum og eiga að fá hann óskertan. Borgin sjái um löggæsluna Hafliði Helgason, Reykjavík: Ofbeldi hefur aukist í Reykjavík, af hveiju er ekkert gert th að fyrir- byggjaþað? - Þaðhefurmargtveriðgertthþess. Sumir tala um að borgin sé stór, hins vegar las ég nýlega um mann sem var lúbarinn og krúnurakaður í litlu sveitarfélagi út á landi svo ofbeldi er ekki bara bundið við Reykjavík. Löggæslan hefur sagt að hún sé of fáhðuð, að hún hafi ekki mannskap til að sinna því sem henni ber. Lög- gæslan var á sjnum tíma undir stjórn borgarinnar og þá var vel fyrir séð. Mér finnst ekkert óeöhlegt að borgin sjálf reki löggæsluna og sjái um stjórn á henni. Það er betra fyrir- komulag en að fjarlægt ríkisvald stjórni lögreglunni. Stöðvumskatta- hækkanir Þórarinn Einarsson, Neskaupstað: Hvemig á að lækka skatta og draga úr ríkisútgjöldum? - Þaöberaðstöðvaskattahækkun- arskriðuna. Fjármálaráðherrann er • að undirbúa miklar skattahækkanir, hann hefur sagt að skattarnir séu of lágir. Formaður Framsóknarflokks- ins hefur sagt á opnum fundi að skattar séu hér allt of lágir, það þurfi að hækka þá. Svavar Gestsson hefur sagt að það þurfi að hækka skatta um 10 mihjarða. Þetta vhjum við byija á að stoppa. Þegar það er búið og stöðva útgjaldaaukningu ríkisins er hægt að byrja á að snúa sér að því að lækka skatta á nýjan leik. Hugar- farið skiptir mestu máh, Skattar eru th að mæta útgjöldum. Ef þú stöðvar útgjaldahækkun annars vegar, síðan aukast sameiginlegar tekjur lands- manna hins vegar um 2 til 3 prósent á ári þá ertu þegar búinn að skapa þér aðstæður th að lækka skatta. Öflugtríkisvald Björgvin Kristbergsson, Reykjavik: Mega þroskaheftir kj ósa? - Já. Sjálfstæðisflokkurinnsegirað við þurfum að hafa öflugt ríkisvald hér og við þurfum að hafa þjóðfélag- ið með þeim hætti að það geti gert öryggisnet fyrir þá sem eiga undir högg að sækja og það beri að rétta þeimhjálparhönd. Minna umfang ríkisvaldsins Björn Guðmundsson, Hafnarfirði: Hvemig er hugsanlegt að draga úr ríkisbúskapnum og vill Sjálfstæðis- flokkurinn gera það? - Okkar vhji stendur til þess. Það samræmist okkar póhtísku lífsskoð- unum að því minna umfang sem er á ríkisvaldinu því betra. Því meira sem hver einstaklingur ráðstafar sínu fé, því betra. Við viljum koma th móts við þessi sjónarmið með því að auka útboð, auka aðstööu einka- rekstursins til þess að hafa þjónustu með höndum. Við viljum selja ríkis- fyrirtæki og nota peningana til að styrkja okkur á öðrum sviðum. Skapa okkur skhyrði til þess að lækka skatta og svo framvegis. Við viljum í fáum orðum sagt minnka yfirbyggingu ríkisvaldsins. Litlar þjóðir og málfrelsi Sigurður Grétarsson, Reykjavík: Finnst þér að htlar þjóðir eins og ísland eigi að fá minni tíma til að fjalla um sín málefni hjá alþjóðasam- tökum á borð við Sameinuðu þjóð- irnar heldur en fjölmennar þjóðir? - Nei, ekki í sjálfu sér. Þar gilda ákveðnar reglur. Hins vegar hefur það nú sýnt sig að í ákveðnum lykil- ráðum alþjóðlegra stofnana eins og th að mynda hjá Öryggisráöi Sam- einuðu þjóðanna eigum við íslend- ingar ekki sæti. Efnumekki tilóspekta Soffla Bjarnadóttir, Reykjavík: Mun Sjálfstæðisflokkur fylgja eftir læknadeilunni sem Ólafur Ragnar hóf ef Sj álfstæðisfloKkurinn fær fjár- málaráðuneytið? - Nei, Sjálfstæðisflokkurinn efnir ekki til óspekta gagnvart einni th- tekinni stétt í þeim thgangi að slá sjálfan sig til riddara rétt fyrir kosn- ’ingar. Opinberrannsókn áGranda Kristján Jakobsson, Reykjavík: Þolir borgarstjóri opinbera rann- sókn á því hvernig staðið var að stofnun Granda? - Já. Kynferðislegt ofbeldi Ásgerður Sigurðardóttir, Seltjarnar- nesi: Hvað hefur þú gert sem borgar- stjóri th að taka á kynferðislegu of- beldi gagnvart konum og börnum og hvað þú hyggist gera í þessum mál- um þegar þú verður kominn á þing? - Borginermeðumfangsmiklaþjón- ustu í þessum málaflokki sem fellur undir okkar félagslegu þjónustu. Jafnfram hefur borgin stutt peninga- lega samtök sem hafa látið þessi mál th sín taka. Svona mál, sem eru í eðh sínu afskaplega viðkvæm, hljóta að fá meðferð hjá barnaverndar- nefndum og hjá félagsráðgjöfum. Þetta á að vera að verulegu leyti mál sveitarfélaga, ekki ríkis, nema þau mál sem varða lögreglu. Takatil innan ráðuneytanna Bjarni Kjartansson, Tálknafirði: Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að minnka ríkisumsvif, fækka ráðu- neytum og taka til í kerfinu? - Viðhöfumfyrstogfremsttalaðum að fækka þingmönnum en það gerir maður ekki fyrr en um næstu kosn- ingar. Hins vegar höfum við talað um að sameina ráðuneyti en ég skal ekki segja hvernig til tekst með það. Um þetta þarf að semja ef við förum í ríkisstjórn væntanlega við aðra flokka. En síðan er hægt að taka til innan ráðuneytanna og í stofnunum ráðuneytanna. Ráðuneytin sjálf eru flest hver ekki mjög mannmörg og það er miklu meiri fjöldi á ríkisins vegum í stofnunum. Engu að síður þarf að taka á þessum málum. Beinirskattar ekkistórtekjulind Hrafnkell Jónsson, Vestmannaeyj- um: Er það ekki góð kjarabót fyrir laun- þega að afnema tekjuskatt á nokkr- um árum og hætta að mismuna fólki? Taka upp til dæmis lúxusskatt? - Égbýstviðaðþaöyrðimikilkjara- bót en það hefur ekki gengið þótt margir flokkar hafi rætt þetta. Menn hafa oftast endað þannig að hafa ekki tekj uskatt af lægri launum þótt það hafi gengið í öfuga átt að undan- fórnu. En beinir skattar í sjálfu sér er ekki stór tekjulind fyrir ríkið, það er staðreynd og þeir eru til þess fahn- ir aö draga úr áhuga manna á að afla sér tekna. Fyrir mitt leyti get ég ekki lofað að þetta yrði gert. Fyrirtæki í sam- keppniverðiseld Steindór Steindórsson, Reykjavík: Eiga það að verða kveðjur þínar th Reykvíkinga, þegar þú lætur af störf- um sem borgarstjóri, að ljá því máls að fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborg- ar, sem bæði eru mjög stöndug og vel rekin, verði seld th einkaaðha? Þá á ég við Rafmagnsveitu Reykja- víkur, Hitaveitu Reykjavíkur og SVR. - Éghefsvaraðþessuþannigaðég er almennt hlynntur því að fyrir- tækjum í samkeppni sé komið í hend- ur einkaaðila eins og hægt er, eins og ég beitti mér fyrir varöandi Bæj- arútgerðina. En það gegnir ööru máli með einokunarfyrirtæki, þar er vandinn miklu meiri og miklu fleiri sjónarmið sem þarf að athuga. Ég sé ekki í fljótu bragði hvernig einkaaðil- ar ættu að reka Strætisvagna Reykjavíkur því að Reykjavíkurborg greiðir 360 milljónir á ári í það fyrir- tæki. Skattalækkanir í áföngum Hilmar Gudmundsson, Dalvík: Sjálfstæðismenn vhja lækka skatta um að minnsta kosti 17,6 mhljarða. Hvar ætlar þú aö ná í þessa peninga og hvar ætlar þú að skera niður? - Þettaerumarkmiðsemmennvilja setja sér og við höfum skýrt frá þvi hvernig viö vhjum bera okkur að. Ég hef margsagt aö þetta yröi gert í áföngum og tæki langan tíma eins og alltaf að stöðva skriðþunga skatta- hjóls sem hefur verið komið af stað af núverandi ríkisstjórn sem ætlar sér að hækka skatta. Skattahækkanir eru til að mæta auknum útgjöldum. Við ætlum ekki að auka útgjöldin. Þvert á móti ætl- um við að nota þann hagvöxt sem kemur og þær auknu tekjur sem rík- ið fær með auknum hagvexti th að borga niður skuldir og byrja að lækka skatta. Síðan ætlum við að losa okkur viö fyrirtæki eins og banka og fá tekjur af því. Þetta auð- veldar okkur leið að því markmiði að lækka skatta. Verðáfram maðurallra Magnús Magnússon, Reykjavík: Þú hefur sýnt það sem borgarstjóri að þú ert allra maður. Ef þú verður forsætisráðherra ætlar þú þá að halda áfram að vera allra maður? - Þaðviléggera.Égheftekiðá móti 30-40 manns í viðtalstímum í hverri viku og það hefur verið af- skaplega gagnlegt fyrir mig því ég hef fengið að fylgjast með því sem er að gerast í þjóðhfinu og ekki lok- ast af og einangrast. Ég vildi ekki missa af þessum þætti. Áróðursbæklingur fjármálaráðherra Andrés Andrésson, Reykjavík: Hvað finnst þér um útgáfu ráð- herra Alþýðubandalagsins og for- sætisráðherra á allskonar áróðurs- ritum á kostnað ríkissjóðs nú síðustu daga fyrir kosningar? - Mérfinnsthúnhafagengiðalveg afskaplega langt og með mikilli ósvífni. Fjármálaráðherra dreifir bæklingi sem kostar milljónir á mihjónir ofan og það sem verst er að þetta eru ekki hlutlausar upplýs- ingar heldur áróður. Þegar Þorsteinn Pálsson var íjármálaráðherra var gefinn út samskonar bæklingur með samskonar ávarpi fjármálaráðherr- ans en ekki með röngum upplýsing- um og hann var gefinn út af Sj álf- stæðisflokknum og greiddur af hon- um á sama tíma og þessi bækhngur er gefinn út á kostnað ríkissjóðs. Bæklingurinn heitir „í hvað fara skattpeningarnir þínir?“ og bækhng- urinn svarar því sjálfur, hann fer í áróður fyrir Alþýðubandalagið. á beinni línu. Blaðamenn DV fylgjast með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.