Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Page 9
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991. 9 Utlönd Stöðugt fleiri Kúrdar láta lífið vegna hungurs og vosbúðar á flóttanum frá írak til Tyrklands og írans. Hér má sjá kúrdísk hjón jarða barn sitt. Símamynd Reuter Griðland Kúrda ekki á dagskrá - Bush gerir lítið úr ósætti um málið George Bush Bandaríkjaforseti leggur nú áherslu á að fullt sam- komulag sé meðal fyrrum banda- manna í Persaflóastríðinu um hvað gera skuli til að tryggja öryggi Kúrda. Bretar hafa lagt mikla áherslu á að fá alþjóðlegan stuðning við hugmynd um griðland fyrir Kúrda og hafa hugsað sér að Samein- uðu þjóðirnar gæti fólksins þar. Bush vill þó ekki taka undir hug- myndir um griðland heldur vill hann að þess verði gætt að ekki verði geng- ið á rétt Kúrda í héruðum þeirra. Munurinn á hugmyndum Bush og Johns Major, forsætisráðherra Breta, kann að virðast formsatriði eitt. Sá er þó munurinn að sam- kvæmt hugmyndum Bush taka sam- einuðu þjóðirnar ekki að sér gæslu á svæðinu og þjóðir heims eru ekki skuldbundnar tii að beita íraka her- valdi gangi þeir á rétt Kúrda. Bush vill þannig treysta á að írakar fari að tilmælum og ályktunum um að ráðast ekki á Kúrda. Átök hafa legið niðri í Norður-írak síðustu daga og segja Bandaríkjamenn það sanna að írakar virði ályktanir sameinuðu þjóðanna. í yfirlýsingu í gær sagði Bush að enginn munur væri á stefnu banda- ríkjastjórnar í málefnum Kúrda og stefnu Evrópuþjóða. Hann vildi þó ekki ræða framtíð Kúrda í smáatrið- um en Bandaríkjamenn hafa aldrei ljáð máls á að Kúrdar fái sjálfstjórn í héruðum sínum, hvað þá sjálfstæði. Reuter Sýrlensk yfirvöld: Vilja þátttöku SÞ í friðarráðstefnu Sýrlensk yfirvöld tilkynntu í morg- un að loknum viðræðum við James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, að þau stæðu fast við kröfu sína um þáttöku Sameinuðu þjóð- anna í ráðstefnu um frið í Miðaust- urlöndum. Lýstu yfirvöld yflr and- stöðu sinni við hugmyndir Banda- ríkjamanna um svæðisbundna ráð- stefnu. Farouq al-Shara, utanríkis- ráðherra Sýrlands, talaði á fundi með fréttamönnum í morgun um friðarráðstefnu en ekki alþjóðlega friðarráðstefnu og túlkuðu menn það fyrst sem um stefnubreytingu væri að ræða. Baker tjáði fréttamönnum að viö- ræðurnar í gærkvöldi við Hafez al- Assad forseta hefðu verið gagnlegar og kvaðst hann ánægður með árang- urinn af ferö sinni til Miðaustur- landa. Bæði Shara og Baker sögðu að við- ræðum yrði haldið áfram til að reyna að komast að samkomulagi um frið- arráðstefnu. Reuter við fyrri kröfur sinar. Teikning Lurie. OM-BUM Him OPM Einstakt tækifærí Á laugardag, frá kl. 14 til 16, veitir Ólafur Már Ásgeirsson dúklagningameist- ari persónulága rádgjöf um lagningar á teppum, dúkum og flísum. Árni Svavarsson verður á sama tima og sýnir hreínsun og viðhald á teppum. FILTTEPPI 4 LITIfí, Kfí. 375,. BILATEPPI MARGIfí LITIR, KR. LYKKJU- TEPPI FfíÁ KR. KERA MIKFLÍSA R 10x20. kr. 1560 20x20. kr. 1647 30x30. kr. 1979 BÓMULLARMOTTURI 75x125. kr. 2950 110x170. kr. 4995 VIEÐ BLÓMAMYIISTRI 170x230, kr. 10.800 190x290. kr. 15 .650 Vorum áður í Byggingamarkaði Vesturbæjar, Hringbraut 120 Opið laugardag kl. 10-16 mmu MARLEY GÓLFDÚKURl OQC ensk gæðavara, kr. # Jvv m2 3ja metra breiður - þarf ekki að iíma Fallegar parket- mottur 67x115 1995 100x140 2850 160x230 8470 OM-BUÐIM Grensásvegi 14, sími 68-11-90 Beint á móti Sölunefndinni. Næg bilastæði á baklóð. i f WRHATIÐ KVENNAUSTANS í menningaraiiðstöðmni Gerðubergi laugardaginn 13. apríl kl. 14-17 bæði fyrir böm og fullorðna. Kökubasar, leikjasmiðja, ílóamarkaður, blómasala, pólitískir minjagripir, spákona sem einnig ræður drauma. . . Frambjóðendur flytja ávörp og sitja fyrir svörum. Verið öll velkomin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.