Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991. 15 Þannig verða góðmál að veruleika Vorið 1988 flutti undirritaður til- lögu til þingsályktunar um löggjöf um forskólastig og áætlun um upp- byggingu dagvistarstofnana. Til- lagan hlaut góðar undirtektir, ekki síst meðal fóstra. Samkvæmt tillögunni var gert ráð fyrir að Alþingi kysi milli- þinganefnd til að undirbúa frum- varp til laga um forskólastig og framkvæmdaáætlun til 10 ára um uppbyggingu dagvistarstofnana með það að markmiði að öll börn á aldrinum 1-6 ára öðluðust rétt á góðri dagvistun með uppeldi og menntun við hæfi. Börnin mikil- vægasta auðlindin Það er löngu úrelt sjónarmið að dagvistarheimili séu einhvers kon- ar neyðarbrauð fyrir börnin. Upp- eldislegt gildi góðra dagvistarstofn- ana er löngu viðurkennt og því eiga þær ekki aðeins að vera opnar fyr- ir börn þeirra sem stunda nám eða vinna utan heimilis, heldur einnig fyrir börn heimavinnandi foreldra. Börnin eru sú auðlind sem mestu máli skiptir fyrir hveija þjóð að vel sé að hlúð. Því á það að vera réttur KjaHariim Hjörleifur Guttormsson alþingismaður hvers barns og forráðamanns þess að eiga kost á forskóla fyrir barnið með vel menntuðu starfsliði og sá réttur ætti að vera jafnsjálfsagður og skóh frá 6 ára aldri. Eðlilegt er að líta svo á að forskólastig barna hefjist þegar fæðingarorlofi lýkur, en væntanlega verður það tljótlega lengt í eitt ár. Með löggjöf um forskólastigið átti samkvæmt tillögunni að stefna að því að skapa ramma um þessa starfsemi að svo miklu leyti sem rétt væri talið að binda ákvæði um hana í lögum. Málið komst í stjórnarsáttmála I aödraganda stjórnarmyndunar haustið 1988 lagði undirritaður til að í stjórnarsáttmála kæmi ákvæði „Eðlilegt er að líta svo á að forskólastig barna hefjist þegar fæðingarorlofi lýk- ur, en væntanlega verður það fljótlega lengt 1 eitt ár.“ 1987-88. - 1057 ár frá stofnun Alþingis. 110. löggjafarþing. - 437. mál. Sþ. 787. Tillaga til þingsályktunar um löggjöf um forskólastig og áætlun um uppbyggingu dagvistarstofnana. Flm.: Hjörleifur Guttormsson. Alþingi ályktar aö kjósa milliþinganefnd til aö undirbúa frumvarp til laga um forskólastig og framkvæmdaáætlun til 10 ára um uppbvggingu dagvistarstofnana meö þaö aö markmiði að öll börn á aldrinum 1-6 ára öðlist rétt á góðri dagvistun með uppeldi og menntun viö hæfi. í nefndinni verö>' fulltrúar frá öllum þingflokkum, en einnig verði leitað eftir tilnefningu á fulltrúum í nefndina frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Fóstrufélagi íslands. Allur kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði. Greinargerð. Samstillt átak nauðsynlegt. Örar þjóðfélagsbreytingar valda því að aðstaða barna er nú öll önnur en áður var. Stórfjölskyldan er að heita má úr sögunni og við hafa tekið kjarnafjölskyldur þar sem börnum fer fækkandi. Fjöldi barna elst upp hjá einstæðu foreldri. oftast mæðrum. Konum hefur fjölgað óðfluga á vinnumarkaði og þær eru ómissandi fyrir atvinnulífið. Þjóðfélagið hefur hins vcgar ekki brugðist við þessum breytingum með viðunandi hætti þar sem börnin Tillagan um löggjöf og forskólastig hlaut góðar undirtektir, ekki sist meðal fóstra. um aö sett skuli löggjöf um for- skólastig. Var á þaö fallist. Síðan gerðist þaö að mennta- málaráöuneytiö kom í hlut Al- þýöubandalagsins í ríkisstjórn. Svavar Gestsson varð mennta- málaráöherra og 25. janúar 1989 skipaöi hann 12-manna nefnd til að endurskoða lög nr. 112/1976 um byggingu og rekstur dagvistar- heimila fyrir börn í þeim tilgangi aö skapa ramma um nýtt skólastig, forskólastig, fyrir börn undir skólaskyldualdri. Formaður nefnd- arinnar var skipaöur Svandís Skúladóttir, deildarstjóri, sem lengi hefur unnið aö málefnum dagvistarstofnana af miklum áhuga. Auk þess að semja laga- frumvarp var nefndinni faliö aö gera áætlun um uppbyggingu og rekstur dagheimila og leikskóla næstu 10 ár og um æskilegt fyrir- komulag á stofn- og rekstrarkostn- aöi. Lög um leikskóla í höfn Nefndin varö sammála um að nota heitið leikskóli fyrir allar upp- eldisstofnanir á þessu nýja skóla- stigi. Samkvæmt því verða m.a. dagvistarheimili nefnd leikskólar, burtséð frá lengd dvalartíma barn- anna þar. Nefndin samdi tvö frumvörp, annað um leikskóla, hitt um ríkis- framlag til sveitarfélaga vegna leikskóla. Fyrra frumvarpið var lögfest fáum dögum fyrir þinglok í mars 1991, hið síðara hefur aðeins verið kynnt en bíður þess að unnt verði að fylgja því eftir á þingi að loknum kosningum. í upphafi laganna uin leikskóla er kveðið á um að hann annist „að ósk foreldra uppeldi barna fram að skólaskyldualdri undir hand- leiðslu sérmenntaðs fólks í uppeld- ismálum. Leikskóli er samkvæmt lögum þessum fyrir börn frá þeim tíma að fæðingarorlofi lýkur til 6 ára aldurs“. Ástæða er til að óska börnum, foreldrum og fóstrum, sem og þjóð- inni allri til hamingju með þessa nýju löggjöf í uppeldis- og mennta- málum. Ég á von á að til hennar verði litið sem fyrirmyndar af öðr- um þjóðum, m.a. á Norðurlöndum. Hjörleifur Guttormsson Kviksögur úr ráðuneyti: Vindhögg eða kosningagrýla? Karl Steinar Guónason alþm. og vormaður Verkalýðsfélags Suóurnesja. - Staðhæfingar þingmannsins skutu verkafólkinu skelk í bringu. I Morgunblaðinu h. 7. mars sl. er haft eftir Jóni Baldvin Hannib- alssyni að orðrómur um yfirvof- andi fækkun hjá varnarliðinu sé kviksögur raktar til kosningabar- áttu sjálfstæðismanna. Síðan er haft orðrétt eftir honum: „Til mín hafa komið sveitarstjórnarmenn og aðrir af Suðurnesjum, nefnt ýmsar furðusögur um samdrátt og yfir- vofandi fjöldauppsagnir og ekki dregið dul á að þær séu ættaðar úr herbúðum sjálfstæðismanna enda gangi þessar sögur í hvísling- um og fylgi með að utanríkisráð- herra hafi ekkert aðhafst í mál- inu.“ - Ráðherrann fór með ósannindi. Hræðsluáróður við verkafólk Á fyrstu vikum þessa árs hafa starfsmenn varnarliðsins í stétt verkafólks látið í ljós áhyggjur af atvinnuöryggi sínu. Ekki aðeins lausráðnir heldur og fastráðnir verkamenn og ófaglærðir aðstoðar- menn við iönaðarstörf. Þeir töldu sig hafa ástæðu til vegna ummæla formanns stéttarfélags þeirra sem reynst hafa hræðsluáróður. Verkafólkið er nær allt fulltíða menn og konur sem eiga óhægt um vik á vinnumarkaði. Þeim er áhyggjuefni að hverfa til lausa- mennsku nú þegar samdráttar hef- ur gætt um langa hríð í atvinnulífi landsmanna og ríkisstjórn and- vara- og aðgerðalaus í málum þess. Kaldar vatnsgusur Formaður félags þess, jafnframt þingmaður fyrir Reykjaneskjör- dæmi af lista Alþýðuflokksins, KjaUariim Árni Ragnar Árnason formaður Atvinnumálanefndar Keflavíkur. Skipar 4. sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi Karl Steinar Guðnason, sagði á fundi með því á einum af vinnu- stöðum varnarliðsins að nú fengi það kalda vatnsgusu í andlitiö: Varnarliðið hefði ákveðiö að fækka starfsmönnum og segja upp um 250 manns. Fólkið varð felmtri slegið og spurði hvort rétt gætu verið svo váleg tíðindi. - Þingmaður Al- þýðuflokksins í Reykjaneskjör- dæmi og formaður stéttarfélags fundarmanna staðhæfði að hann færi með rétt mál og ítrekaði þessa köldu vatnsgusu sem hann rétti fólkinu. Staðhæfmgar þingmannsins skutu verkafólkinu, umbjóðendum hans, skelk í bringu. Fastráðnir starfsmenn varnarliðsins hafa ver- ið taldir öruggir í starfi og laus- ráðnir jafnan álitnir eiga vísa fast- ráðningu. Það hefur hins vegar ekki gerst allt frá því bann við ráðningum („ráðningafrost") var sett á síðla árs 1989. Það hefur skap- að jarðveg fyrir hræðsluáróður af þessu tagi. Fulltrúi varnarliðsins upplýsti síðar aðspurður aö hann hefði eng- ar upplýsingar um slík fyrirmæli né ráðagerðir varnarliðsins á ís- landi. Krataþingmaðurinn, formaður verkalýðsfélagsins, hélt hinu sama fram einnig aðspurður af félags- mönnum. Skömmu síöar var frá þessu sagt í fjölmiðlum. DV hafði h. 11. febrúar sl. eftif honum sömu fullyrðingar. Þá fylgdi með að hann biði spenntur eftir niðurstöðum viðræðna sem þá færu fram við æðstu menn hersins. Ljóst er af ummælum krataþing- mannsins og verkalýðsleiðtogans að honum var það mikið keppikefli að slá óhug og ótta í brjóst umbjóð- enda sinna, áheyrenda og lesenda. - í hvaða tilgangi? Ráðherrann heyrir! Ekki sáu önnur stéttarfélög ástæðu til slíkra ræðuhalda. En með þessu virðist krataþingmann- inum hafa tekist að ná eyrum ráð- herrans og formanns Alþýðu- flokksins sem fer með öll viðskipti og samskipti okkar við varnarliðið. (Hann var raunar ráðherra líka þegar „ráðningafrostið“ var sett á fyrir um hálfu öðru ári og hefur engu um þokað - hann hefur kannski ekki enn heyrt um þaö talað nógu stórum orðum.) Var til- gangurinn sá að vekja ráðherrann og formann flokksins af Þyrni- rósarsvefni? Það er ömurlegt fyrir verkafólk að þess eigin trúnaðar- og forystu- menn skuli hafa notað það sem áróðursbrúður. Tilefnið er ein- göngu pólitískar hvatir áróðurs- meistaranna, þeirra sömu sem rekja má aðgerðaleysið í atvinnu- málum til. Já, kviksögurnar voru ættaðar frá krötum, meira að segja frá foringjum í þeim herbúðum. Formaðurinn gengur til verks Allt var þetta ljóst, en ráðherrann lét sem ekkert væri fyrr en þing- maðurinn var búinn að margþylja hræðsluáróðurinn við það fólkið sem síst skyldi. Þá loks þóttist ráð- herrann heyra! Ekki lét hann þó taka til meðferðar „ráðningafrost- ið" sem bitnar harðast á íslenskum starfsmönnum varnarliðsins. Hann lét sendiherra fara vestur um haf til yflrboðara stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli til að ræða hvort ekki hefði nú örugglega verið rétt skilið áöur, að 25% samdrátt- urinn skyldi ekki ganga yfir varn- arliðið á íslandi. Auðvitað fékk hann þau svör að svo væri. Það lá alltaf fyrir - engin spenna um þessar viðræður, allt tilbúningur! Bandaríkin stefna að um 25% samdrætti í útgjölduni til varnar- mála fyrir ársbyrjun 1996. Allt hef- ur þetta komið fram í fjölmiðlum. Einnig að ekki er fyrirhugað að sá samdráttur bitni á varnarliðinu á íslandi. Það er vegna mikilvægs eftirlits þess með siglinga- og flug- leiðum um og yflr Atlantshafið og með tilliti til hins stóra hlutverks sem það gegnir í björgunar- og ör- yggisstarfl frá íslandi um stór og erfið hafsvæði. Árni Ragnar Árnason „Ljóst er af ummælum krataþing- mannsins og verkalýðsleiðtogans að honum var það mikið keppikefli að slá óhug og ótta í brjóst umbjóðenda sinna...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.