Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
Menning
Myndgátan
DV
Menn, menn og menn
Það var mikil mæða að Stúdentaleikhúsið skyldi
leggja upp laupana eftir blómlegt starf á árunum
1981-65. Sýningarnar frá þeim árum eru margar hverj-
ar mjög eftirminnilegar og árið 1983 hlaut Stúdenta-
leikhúsið Menningarverðlaun DV, og segir það meira
en mörg orð um af hve miklum þrótti og listrænum
metnaði var starfað þessi ár.
En svo lognaðist starfsemin út af og hefur ekki farið
sögum af leikstarfsemi háskólaborgara fyrr en nú að
frumsýndir eru þrír nýir einþáttungar eftir unga höf-
unda úr röðum þeirra.
Frumraun þessa endurreista Stúdentaleikhúss er þó
fremur í ætt viö metnaðarfullar sýningar framhaíd-
skólanna heldur en starfið í byrjun áratugarins, sem
var að ýmsu leyti á mörkum fijálsu leikhópanna. Að
einhveiju leyti kann þetta að stafa af því að höfundar
einþáttunganna eru líka að feta sín fyrstu spor og
verk þeirra bera þess merki.
Með tveimur hléum og nauðsynlegum tilfæringum
á milli verkanna varð sýningin óþarflega langdregin
og guldu þættirnir þannig fyrir sambýlið, þó að þeir
væru athygUsverðir hver á sinn hátt.
Ásgeir Sigurvaldason er leikstjóri og leikaramir eru
áhugafólk úr Háskólanum.
Tveir fyrri þættirnir fjalla báðir um samskipti karls
og konu. Ungt fólk fer að vera saman og sambýlinu
fylgja kröfur, jafnt andlegar sem líkamlegar. Taflið er
grimmt.
Melkorka Tekla Ólafsdóttir er höfundur fyrsta
verksins á dagskránni, Á meðan við snertumst. Már
og Arna eru elskendur en ákaflega ólík eins og geng-
ur. Hann er veraldlega þenkjandi og afbrýðisamur úr
hófi, vegna þess að hún á sér athvarf í skáldskapnum,
og í ljóðum hennar skynjar hann heim, sem hann
hefur ekki aögang að.
Barátta þeirra'er upp á líf og dauða og þátturinn
ansi þéttur í sér, aðeins brotinn upp af innkomu Rósar,
sem talar til Más úr öðrum heimi og reynir að opna
augu hans fyrir því, að hann er á góðri leið með að
eyðileggja líf Ömu.
Höfundi tókst bærilega að sýna einhta manngerð
Más, en Arna náði engan veginn að lifna við eða verða
sannfærandi persóna. Það er heilmikið kjöt á beini í
textanum, sem er víða skáldlegur og vel saminn. En
það vantar í hann meira líf, fleiri fleti, og leikstjórnin
gerði lítið fyrir verkið. Þetta setti mark sitt á frammi-
stöðu leikaranna, Daníels Ágústs Haraldssonar og
Eddu Jónsdóttur, sem fundu ekki alltaf snertifleti sín
í milli 1 textanum.
Sindri Freysson er að fiska á sömu miðum í leik-
þætti sínum, Hungurdansaranum, en hann fer ólíka
leið. Nútímamaöurinn, Finnur, stekkur fram á sviðið,
borubrattur og ánægður með sig. í kvennamálum
tjaldar hann helst til einnar nætur, en svo kemur
óvenjuleg stúlka til sögunnar. Hún heitir Dögg og sam-
skiptin við hana fara á annan veg en Finnur ætlaði sér.
Hungurdansarinn er skemmtilega saminn leikþátt-
ur, mannlegur og hnyttinn. Sindri spilar sniðuglega
úr þeirri hugmynd, að skipta persónu Finns í tvennt,
ytri og innri mann. Þetta er svo sem ekkert nýtt, en
hér skiptir sköpum að textinn er bráðvel skrifaður og
Valur F. Einarsson fer á kostum í hlutverki innri
manns Finns bæði í framsögn og látæði. Samskipti
þeirra félaga Finns ytri og innri eru líka frumlega
samin og Atli Rafn Sigurðsson túlkaði ytri Finn f]ör-
lega og af þrótti.
Telma L. Tómasson vakti athygh fyrir öruggan leik
og góða framsögn í hlutverki Daggar og bæði innkoma
hennar í upphafi og reyndar allt dansleiksatriðið voru
skemmthega unnin.
Gahinn við Hungurdansarann var brotakennd fram-
Ur einum einþáttungnum af þremur sem Stúdenta-
leikhúsið sýnir. DV-mynd GVA
Leiklist
Auður Eydal
vinda og allt of margar skiptingar, sem auðveldlega
hefði mátt komast hjá með smá breytingum.
Síðasti þátturinn Ein, tvær, þrjár, jafnvel fjórar, var
á öðrum nótum.
Þar teflir Bergljót Arnalds saman „sekum" konum
frá ýmsum tímum og veltir upp stórum spumingum
um siðferðismat og refsingar.
Þrjár konur bíða aftöku í ótilgreindu fangelsi og það
sem er óvenjulegt, en þó svo ofur eðlhegt í verkinu,
er að ein þeirra er frá 5. öld, önnur frá 16. öld og hin
þriðja frá 19. öld og þær eru allar dæmdar til dauða
fyrir það, sem þykir glæpsamlegt atferli á þeirra tíma.
Þær eru engu að síður samtíðarkonur og þjáningar-
systur í fangelsinu.
Sviðsetningin í þessu verki er mjög vel unnin og
bæði búningar og leikmynd njóta sín th fulls. í þættin-
um kemur sjálfstæð úrvinnsla meira inn í myndina
en í hinum verkunum, og þetta verður því hehdstæð-
asta og jafnframt myndrænasta leiksýningin.
En á hinn bóginn eru efnisleg tengsl í verkinu á
mhli kvennanna þriggja og nútímakonunnar, sem bíð-
ur eftir fóstureyðingu fremur veikburða og verkið
dettur þess vegna í tvo parta.
í þessum þætti léku þær Sigríður Kristinsdóttir og
Brynhhdur Björnsdóttir mjög vel og Mats Jonsson
gerði vel í óvæntum mhliköflum. Hann leikur m.a.
teljara, sem dregur hlaðinn líkvagn fram og aftur og
spyr hvort það skipti meginmáli hversu margir hafi
verið drepnir. Gerir það Hitler og Stalín skárri, ef tala
fórnalamba er eitthvað lægri en álitið var?
Eyþór Arnalds samdi tónhst við verkin. Hún féh vel
að inntaki þeirra og dýpkaði og skerpti það sem viö átti.
Stúdentaleikhúsið sýnir þrjá einþáttunga i Tjarnarbæ undir
samheitinu:
MENN, MENN, MENN
Leikstjórn: Ásgeir Sigurvaldason
Lýsing: Jóhann Pálmason
Tónlist og leikhljóð: Eyþór Arnalds
Leikmynd og búningar: Nemendur úr Myndlista- og handiða-
skóla íslands.
Andlát
Árni Halldór Árnason, Suðurgötu 16,
Akranesi, lést 11. apríl.
Katrín Kristleifsdóttir frá Stóra-
Kroppi andaðist miðvikudaginn 10.
aprh að Dvalarheimili aldraðra í
Borgamesi.
Gísli Ólafsson, fyrrv. bakarameist-
ari, Bergstaðastræti 48, lést í Borgar-
spítalanum 11. aprh.
Lilja Oddsdóttir, Hrafnistu, Hafnar-
firöi, lést í St. Jósefsspítala, Hafnar-
firði, 10. apríl.
Jardarfarir
Jónas Eggertsson lést 1. apríl. Hann
fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1925,
sonur hjónanna Sigurrósar Jónas-
dóttur og Eggerts Guömundssonar.
Jónas starfaði í bókabúð Lárusar
Blöndal í 10 ár. Áriö 1954 gerðist
hann verslunarstjóri í Bókabúð Máls
og Menningar og sinnti því starfi í 8
ár en geröist þá fulltrúi hjá Inn-
kaupasambandi bóksala og veitti
jafnframt forstöðu árlegum Bóka-
markaði bókaútgefenda. Árið 1967
stofnaði hann eigin bókabúð. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Ólöf Magnús-
©003
-£y(?OR-
Tilkyimingar
íslandsmeistarakeppnin í
samkvæmisdönsum 1991
Helgina 13. og 14. apríl verður haldin ís-
landsmeistarakeppni í samkvæmisdöns-
unum. Keppnin fer fram í Ásgarði,
íþróttahúsinu í Garðabæ. Setningarat-
höfn verður kl. 14 á laugardeginum en
keppt verður báöa dagana frá kl. 11-22.
Keppendur eru 700 (350 pör) í 9 aldurs-
hópum frá flokki 7 ára og yngri til 50 ára
og eldri.
Plötusnúður ársins 1991
Vikuna 15.-19. apríi verður haldin diskó-
tekarakeppni í félagsmiðstöðinni Frosta-
skjóli. Þar munu keppa unglingar frá fé-
lagsmiðstöðum víðs vegar af landinu og
hlýtur sá er sigrar titilinn plötusnúður
•ársins 1991. Auk þessa titils fær sá er sigr-
ar Polk Audio 100 sínusvatta hátalara
sem tækniverslun Faco, Laugavegi 89,
gefur til keppninnar. Þeir sem lenda í
sætum 2-4 fá hljómplötuútekt að verð-
mæti 5.000 kr. Allar nánari upplýsingar
um keppnina eru veittar í félagsmiðstöð-
inni Frostaskjóli í síma 622120.
Félag eldri borgara
Opið hús í dag frá kl. 13, frjáls spila-
mennska. Kl. 15 verður Alþýðuflokkur-
inn með framboösfund í Risinu. Göngu-
Hrólfar fara af stað frá Risinu kl. 10 á
morgun, laugardag. Farin verður vorferð
að Básum í Ölfusi 20. apríl nk. kl. 18.
Nánari upplýsingar á skiifstofunni.
Samtök gegn astma
og ofnæmi
Aðalfundur Samtaka gegn astma og of-
næmi verður haldinn í Múlabæ, Armúla
34, 3. hæð, laugardaginn 13. apríl kl. 14.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar. Félagar eru kvattir til að
fjölmenna. Gite Neutral ofnæmisprófað-
ar hreinlætisvörur frá a/s Blumöller í
Danmörku verða kynntar á fundinum.
Maður og kona í
Hveragerði
Leikfélagið í Hveragerði sýnir um þessar
mundir hið sígilda leikverk Jóns Thor-
oddsen „Maður og kona“ undir leikstjórn
Emils Gunnars Guðmundssonar. Leikar-
ar eru 15 talsins en 30 40 manna hópur
stendur að sýningunni sem frumsýnd var
við húsfylli og frábærar undirtektir í
Grunnskólanum í Hveragerði 24. mars
sl. Séra Sigvalda, prest á Staö, leikur
Jóhann Sigurðsson. Með önnur veiga-
mikil hlutverk fara þau Ásta Sóley Sölva-
dóttir og Gunnþór Guðfinnsson.
dóttir. Eignuðust þau hjónin fjögur
börn. Útför Jónasar veröur gerð frá
Árbæjarkirkju í dag kl. 13.30.
Safnaðarstarf
Grensóskirkja: Starf fyrir 10-12 ára börn
kl. 17 í dag.
Laugarneskirkja: Mæðra- Og feðra-
morgnar föstudaga kl. 10 í safnaðar-
heimilinu í umsjón Báru Friðriksdóttur.
Myndgátan hér að ofan
lýsir kvenkynsorði.
Lausn gátu nr. 2:
Mælir sér mót.
Leikhús
Lil-ill d íillitl It) tklMúll ÍulEIIil
IjTiitltnlCT ffilSll 17!
'UBSriS 5 ThlT Ti tL’hFiI
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn
KYSSTU
MIG,
KATA!
eftir Samuel og
Bellu Spewack
Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter
Þýðing: Böðvar Guðmundsson
Leikstjór.i: Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Una Collins
Tónlistarstjórn: Jakob Frimann
Magnússon
Dansar: Nanette Nelms
Lýsing: Ingvar Björnsson
Föstud. 12. apríl kl. 20.30.
Laugard. 13. april kl. 15.00.
Laugard. 13. april kl. 20.30, upp-
selt.
Sunnud. 14. april kl. 20.30.
Föstud. 19. apríl kl. 20.30.
Sunnud. 21. apríl kl. 20.30.
Laugard. 27. april kl. 20.30.
Sunnud. 28. apríl kl. 20.30.
Þriðjud. 30. apríl kl. 20.30.
Skrúðs-
bóndinn
Sýningar í Akur-
eyrarkirkju
Miðvikud. 24. apríl kl. 21, frumsýn-
ing.
2. sýn. fimmtud. 25. apríl kl. 21.
3. sýn. föstud. 26. apríl kl. 21.
Aðeins þessar þrjár sýningar
Aðgöngumiðasala: 96-2 40 73.
Miðasalan er opin alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga
kl. 14-20.30.
MUNIÐ PAKKAFERÐIR
FLUGLEIÐA