Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Ás skrift - Dreifing: Sími 27022 Eg er ábyrgur fyr- ir þessu fyrirtæki - sagði ÓIi Kr. Sigurðsson 1 morgun Rannsóknarlögreglan og rann- sóknadeild ríkistollstjóraembætt- isins hafa til meðferðar umfangs- mikiö mál sem snýr að meintum ólöglegum innflutningi heildversl- unarinnar Sunds hf. á nokkrum síðustu árum. Þetta mál snýst að miklu leyti um faktúrusvik eða svokallað „gámasvindl". Samkvæmt heimildum DV er hér um að ræða innflutning á ýmsum vörum fyrír tugi milljóna króna. Grunur hefur leikið á aö vörur hafi ekki verið rétt flokkaðar þegar staðið var að innflutningi þeirra. „Ég er eigandi og ábyrgur fyrir þessu fyrirtæki. Hins vegar eru all- ir þeir sem áttu þátt í þessu máli hættir í fyrirtækinu. Eg hætti í sjálfu fyrirtækinu árið 1986. En ef menn hafa haft rangt við í þessu er ég ábyrgur. Ég hef sjálfur látiö fara i allt bókhald í fyrirtækinu. Það sem kom upp á borðið borgaði ég strax, um tvær milljcmir króna ásamt sektum," sagði Óli Kr. Sig- urðsson i samtali við DV. Að sögn Amars Guðmundssonar, deildarfulltrúa hjá RLR, snýst mál- ið fyrst og síðast um rannsókn á því hvort fyrirtækið hafi borgað lægri aðflutningsgöld en því hefur borið. Amar sagði að málið teygöi anga sína nokkur ár aftur í tímann en þó væm engin mörk dregin í því sambandi. Við rannsóknina þarf því mikla gagnaöflun erlendis frá, svo sem vegna vörureikninga eða faktúra. Rannsóknarlögreglu ríkisins barst gögn frá tollgæslustjóra á seinni hluta síðasta árs vegna Sunds hf. Málið var þá tekið fyrir hjá RLR, Gagnaöflun er ekki lokið ennþá. Menn frá Sundi hf. hafa verið teknir fyrir hjá RLR. Arnar vildi ekki tjá sig um hvort menn hafa gengist við brotum sínum en sagði að ágætt samstarf hefði tekist við þá grunuðu. Hann sagði að í raun hefði málið þó hvílt mun meira á tollgæslunni en RLR. DV haföi samband við Sund hf. vegna málsins. Þar var bent á Óla Kr. Sigurðsson, stjórnarformann fyrirtækisins. Ekki tókst að ná tah af Óla í morgun. Kristinn Ólafsson toligæslustjóri sagði í samtali við DV í gær að embættið hefði haft fleiri fyrirtæki til skoðunar. Hann tengdi það þó ekki beint við Sund hf. Samkvæmt upplýsingum DV hef- ur talsvert borið á því á undanfórn- um misseram að vörar hafi verið boðnar til kaups i heildsölu á grun- samlega lágu verði. í þessu sam- bandi hafa „toppsöluvörur" verið nefndar. -ÓTT Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 12. APRÍL-1991. Veldi Ólafs Laufdals er endanlega fallið: Búist við hundr- aða milljóna kröf- um í þrotabúin - miklar skuldir vegna Sjallans á Akureyri Fjögur fyrirtækja veitingakóngs- ins í Reykjavík síðustu tíu árin, Ól- afs Laufdals, sóttu i fyrradag um að verða tekin til gjaldþrotaskipta hjá borgarfógetanum í Reykjavík og voru úrskurðuð gjaldþrota samdæg- urs. Ekki er langt síðan Búnaðarbanki íslands, helsti lánardrottinn Ólafs, yfirtók Hótel ísland. Veldi Ólafs Laufdals er því endanlega fallið. Bú- ast má við hundraða milljóna króna kröfum. Fyrirtækin fjögur sem hafa verið úrskurðuð gjaldþrota eru Veitinga- húsið Álfabakka 8, Veitingahúsið Ármúla 5, Veitingahúsið Pósthús- stræti 11 og Ólafur Laufdal hf. Veitingahúsið Álfabakka 8 átti meðal annars Hótel ísland og Sjall- ann á Akureyri. Hin þrjú fyrirtækin voru í ábyrgðum fyrir Álfabakka 8 og dragast þannig inn í gjaldþrotið. Þegar veldi Ólafs Laufdals reis hæst rak hann skemmtistaðina Bro- adway, Hótel ísland, Hollywood, Sjallann á Akureyri, Hótel Borg og Hótel Akureyri, auk þess að vera aðaleigandi í Ferðaskrifstofu Reykja- víkur og útvarpsstöðinni Stjörnunni. Ljóst er að gjaldþrot Álfabakka 8 skiptir hundruðum milljóna króna. Auk skulda vegna byggingar Hótel íslands við aðra en Búnaðarbankann hvíla miklar skuldir á Sjallanum á Akureyri en á móti kemur húsnæðið sem Sjallinn er í. Búast má við að mun minna fáist fyrir Sjallann en þær skuldir sem hvíla á honum nema. Það var undir árslok 1986 sem Iðnaðarbanki ís- lands bað Ólaf um aö kaupa Sjallann eftir gjaldþrot fyrirtækisins Akurs sem rak hann áður. Ólafur keypti staðinn með því að yfirtaka skuldir. -JGH Arekstrar vegna hálku Snjó kyngdi niður víðast hvar á Suöurlandi og suðvesturhorni lands- ins í morgun og gerði nokkra hálku af þeim sökum. Eitthvað var um árekstra af völdum hálkunnar, enda margir ökumenn búnir að skipta yfir á sumardekk. í Reykjavík voru tveir árekstrar sem rekja má til hálkunn- ar, tveir árekstrar sömuleiðis í Hafn- arfirði og einn í Kópavogi. Á mánudaginn, 15. þessa mánaðar, eiga menn að vera búnir að skipta yfir á sumardekkin. Hjá lögreglunni í Reykjavík fengust þær upplýsingar að ef færðin gæfi tilefni til þess máetti aka nokkuð lengur um á vetrar- dekkjum en reglur segðu til um. Ingi Ú. Magnússon, gatnamála- stjóri í Reykjavík, sagðist hvetja fólk til þess að fara að skipta yfir á sumar- dekk. „Uppákomur sem þessar verða mjög líklega ekki fleiri og auk þess er það góö hálkuvörn innan borgar- markanna 'að engin vandræði ættu að skapast. Snjóinn, sem kyngdi nið- ur í dag, tekur jafnóðan upp og það er lítil hætta þó menn séu á sumar- dekkjum. Það er ekki of snemmt að miða við 15. apríl í þessu sam- bandi," sagði Ingi. ís LOKI Þetta ereins konar tollsund! Veðrið á morgun: Rigning eða slydda Á morgun verður suðaustlæg átt, víða allhvasst eða hvasst. Rigning eða slydda um mestallt land. Hiti verður á bilinu 2-7 stig. Fururnar við Búnaðarbankann á Egilsstöðum skiptu úr grænu yfir í hvítt á einni nóttu á dögunum. Það byrjaði að snjóa á Héraði 3. apríl, bleytusnjór í fyrstu, svo breytingin varð mikil. Siðan hefur heldur bætt á og viða tals- verður snjór eins og glöggt má greina á snjónum á furum bankans þar sem starfsmaður er að hreinsa af stéttinni rétt fyrir opnun. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir, Egilsstöðum. Kæran á Sigrúnu: Líklega vísað frá - segir Davíð Oddsson „Ég get auðvitað ekki fullyrt neitt um málið fyrr en það hefur verið tekið fyrir. Ég á þó frekar von á því að kærunni verði hafnað í borgar- ráði. Hitt er svo annað mál að þeir sem kæra geta haldið áfram meö málið fyrir dómstólum," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri, aðspurður um kjörskrárkæruna á Sigrúnu Magn- úsdóttur borgarfulltrúa, sem borist hefur til borgarráðs. Sigrún Magnúsdóttir og Páll Pét- ursson munu vera einu hjónin á ís- landi sem eiga lögheimili sitt í hvoru kjördæminu. Þau fengu leyfi Hag- stofu íslands til að hafa þetta svona. Það leikur aftur á móti vafi á að Hagstofan hafi, samkvæmt lögum, máttleyfaþeimþetta. -S.dór Skutufriðaðafugla Lögregla á ísafirði haíði afskipti af þremur piltum um tvítugt sem voru að skjóta friðaða fugla í ísafjaröar- djúpi. Piltarnir, sem allir höfðu byssuréttindi, skutu fugla í landi Ögurs og í Hestfirði í landi Þernuvík- ur - skarfa, tjald, blika og kollur. NEYÐARHNAPPUR frA vara fyrir heimabúandl sjúklinga og aldraöa Í® 91-29399 tff Alhliða öryggisþjónusta VARI síðan 1 969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.