Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
37
Iþróttir
Bikarúrslitaleikur karla í blaki:
Tvöf aK hjá
KA-mönnum
- íslands- og bikarmeistaratitillinn til Akureyrar
s- og bikarmeistara KA 1991, hefur ærna ástæðu til að brosa breitt
úrslitaleiknum. Þetta er í fyrsta sinn sem KA hlýtur þennan titil.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Eg átti von á HK-mönnum miklu
öflugri og satt að segja vonaðist ég eftir
jafnari leik áhorfendanna vegna. Mér
flnnst eins og undirbúningur þeirra hafi
ekki verið alveg réttur. Minni áhersla á
tækniatriði og meiri áhersla á leikgleði
hefði sennilega verið happadrýgri,"
sagði Haukur Valtýsson, fyrirliði ís-
lands- og bikarmeistara KA, eftir sigur
á HK, 3-0, í bikarúrslitaleik karla í blaki
í Digranesi á laugardaginn.
„Uppgjafirnar hjá okkur voru þeim
erfiðar og urðu til þess aö gera spil þeirra
einhæft. Þess vegna varð vörnin ein-
faldari fyrir okkur. Við vorum einfald-
lega betri, það er staðreynd,“ bætti
Haukur við.
• KA-menn eru því tvöfaldir meistar-
ar 1991 og hafa sýnt það og sannað að
þeir eru með öflugasta liðið. Þeir töpuðu
einungis tveimur leikjum í vetur.
• Nokkur fjöldi manna var saman-
kominn í Digranesi til að berja þessa
úrslitaviöureign augum. Fjöldi stuðn-
ingsmanna HK lét í sér heyra og fámenn-
ir en kröftugir aðdáendur KA studdu vel
við bakið á sínum mönnum.
Einungis þrjár hrinur
Hinir ungu leikmenn HK náðu sér engan
veginn á strik í fyrstu hrinunni. Breytt
uppstilling verkaði hreint ekki sem
skyldi, þeir fengu einungis fimm stig og
reyndust íslandsmeisturunum auðveld
bráð.
Onnur hrinan var öllu skemmtilegri.
KA-menn slökuðu aðeins á eftir auöveld-
an 15-5-sigurinn og HK-ingar nýttu sér
það. Hrinan var uppfull af skemmtileg-
um tilþrifum og var það einkum ferskur
varnarleikur HK-manna, sem gladdi
augað. íslandsmeistararnir sóttu fast en
andstæðingunum tókst hvað eftir annað
á ævintýralegan hátt að bjarga knettin-
um frá að lenda í gólfinu.
Klaufaleg mistök
HK-ingar náðu forystunni og áttu mjög
góða möguleika á að gera út um hrinuna
þegar staðan var 14-11 þeim í hag. En
klaufaleg mistök i sókn og uppgjöfum
jarðsettu þá von. KA-menn efldust við
þessa eftirgjöf hinum megin netsins og
tókst aö sigra í hrinunni, 17-15.
Eftirleikurinn var meisturunum auð-
veldur og það virtist sem allur vindur
væri úr HK-ingum eftir afdrifarík mis-
tökin í annarri hrinu. Ágætar úppgjafir
meistaranna reyndust vera andstæðing-
unum ofviða. Slök móttaka leiddi af sér
sljóa sókn, sem baráttuglaðir KA-menn
afgreiddu á sannfærandi hátt. Hrinunni
lyktaði með 15-3 stórsigri KA.
• Liðsheildin var mjög sterk hjá KA
og baráttuviljinn einnig. Haukur Valtýs-
son, uppspilari, lék mjög vel og stjórnaði
leik liðsins af festu. Hjá HK voru mönn-
um nokkuð mislagðar hendur, bestir
voru Vignir Þröstur Hlöðversson og
Stefán Þ. Sigurðsson.
• Marteinn Guðgeirsson og Gunnar
Árnason dæmdu leikinn og stóðu sig
ágætlega.
Fei lék ekki með
„HK-strákarnir voru miklu óstyrkari en
ég bjóst við. Ég átti von á að þeir kæmu
fullir baráttu og myndu ekki vera
hræddir við neitt en reyndin varð önn-
ur. Mínir menn léku ágætlega en þetta
var of auðveldur leikur," sagði Hó Xíaó
Fei, þjálfari KA. Hann sá ekki ástæðu
til aö leika með sjálfur en hann hefur
styrkt liðið í vetur þegar mikið hefur
legið við.
Reynsluleysi og mistök
„Það var slæmt hvernig við klúðruðum
annarri hrinunni. Sigur í henni hefði
getað gjörbreytt gangi leiksins. Við vor-
um með unna hrinu í höndunum en
misnotuðum tvær uppgjafir í 14-11,“
sagði Guðbergur Egill Eyjólfsson, fyrir-
liði HK.
• „Ástæðan fyrir því hvernig þessi
leikur spilaðist er reynsluleysi strák-
anna. Þeir urðu of strekktir á taugum
og gerðu ekki nema hluta af því sem
þeir kunna. Vonbrigðin í annarri hrinu
voru líka afdrifarík. Það er hins vegar
enginn vafi á því að KA-menn eru sterk-
asta liöið,“ sagði Skjöldur Vatnar
Björnsson, þjálfari HK.
-gje
Bikarúrslitaleikur kvenna í blaki:
ar titill Víkings
ir sigraði Breiðablik og vann tvöfalt eins og í hittifyrra
ast en ákváðu að svara í sömu mynt.
Þær veittu mótheijunum sams konar
ráðningu í þriðju hrinu, 15-6.
Fjórða hrinan var allan tímann í jám-
um og skiptust liðin á að vinna stig.
Þegar staðan var 5-5 fékk Sigrún Ásta
Sverrisdóttir, uppspilari Víkinga,
hefur átt við þrálát meiðsl að stríða.
Hún harkaði þó af sér, lék áfram og
þetta atvik virðist hafa eflt baráttuhug
meðspilara hennar. Það voru því bar-
áttuglaðir Víkingar, sem gerðu út um
leikinn á skemmtilegan hátt með stór-
góðu 3-ja metra smassi og ágætri há-
„Úthaldið var á þrotum“
„Ég fann eitthvað smella í hnénu og
varð strax laus í liðnum: Þetta var frek-
ar slæmur hnykkur og ég hefði senni-
lega ekki haft úthald í úrshtahrinu fyrst
þetta kom fyrir. Ég er hrædd um að
gömul meiðsl hafi rifið sig eitthvað
upp,“ sagði Sigrún eftir leikinn.
„Skemmtilegur leikur“
„Það var gaman að spila þennan leik
en það var mikið stress á báða bóga.
Hann var spennandi og ég held að hann
hafi verið skemmtilegur á að horfa. Ég
er auðvitað ekkert ánægð með úrslitin
en maður verður víst að sætta sig við
þau,“ sagði Oddný Erlendsdóttir sem
var sterkust Breiðabliksstúlkna.
Elín Guðmundsdóttir lék einnig mjög
vel á köflum en eins og oft áður var
nýting hennar á uppgjöfum afleit. Sig-
urborg Gunnarsdóttir fyrirhði stóð vel
fyrir sínu.
Sterk liðsheild
Það var ágæt liðsheild Víkinga sem
gerði gæfumuninn í þessum leik. Þrátt
fyrir slæman leikkafla í annarri hrinu
tókst þeim að rífa sig upp, hrista af sér
slenið og ná upp góðri baráttu í seinni
hluta leiksins. Það hefði orðið mjög er-
fitt fyrir liðið aö spiia eina hrinu enn
þar sem uppspilarinn hafði orðið fyrir
meiðslum.
• Dómarar voru Þorvaldur Sigurðs-
son og Jón Grétar Traustason. Þeir
stóðusigágætlega. -gje
slæman hnykk á annan fotinn en hún vörn.
• íslands- og bikarmeistarar i blaki 1991. Vikingar unnu deildarkeppnina mjög
sannfærandi og tryggðu sér síðan bikarmeistaratitilinn um helgina. Standandi
frá vinstri: Jóna Lind Sævarsdóttir, Björg Erlingsdóttir, Sigrún Ásta Sverrisdótt-
ir, Jóhanna Katrín Kristjándsóttir fyrirliði og Geir Sigurpáll Hlöðversson, þjálf-
ari. Krjúpandi: Benedikt Steinþórsson, lukkutröll, Björk Benediktsdóttir, Berglind
Þórhallsdóttir, Særún Jóhannsdóttir og Elin Bjarnadóttir. DV-mynd Brynjar Gauti
• Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir, fyrirliði bikar- og islandsmeistara Vik-
ings, heldur hér hátt á loft sigurverðlaunum bikarkeppninnar.
DV-mynd Brynjar Gauti