Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Blaðsíða 8
38
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
Iþróttir
Lokahófkörfuknattleiksfólks:
Magnús og
Lindabest
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Magnús Matthíasson úr Val og
Linda Stefánsdóttir úr ÍR voru út-
nefnd bestu leikmenn úrvalsdeildar-
innar í körfuknattleik og 1. deildar
kvenna í lokahófi Körfuknattleiks-
sambands íslands sem fram fór í veit-
ingahúsinu K-17 í Keflavík á laugar-
dagskvöldiö. Þaö voru leikmenn liö-
anna sem stóðu'að kjörinu.
Magnús var jafnframt kjörinn besti
nýliði úrvalsdeildarinnar, en hann
kom til Vals fyrir tímabiliö eftir að
hafa stundaö nám í Bandarikjunum.
Jón Otti Ólafsson, Kristbjörn Al-
bertsson og Helgi Jóhannsson.
Dómaranefndin stal senunni
Dómaranefnd KKÍ stal síðan senunni
meö sérstökum verðlaunaafhending-
um. Háværustu stuöningsmenn lið-
anna fengu að gjöf bókina Deilt á
dómarann, eftir Jón Steinar Gunn-
laugsson! Þrír leikmenn voru sæmd-
ir innrömmuðum heftiplástrum,
Bárður Eyþórsson, Snæfelli, sem
fékk gull, ívar Ásgrímsson, Haukum,
sem fékk silfur, og Albert Óskarsson,
Keflavík, sem fékk brons! DV hlaut
gullverðlaun fyrir gáfulegustu um-
sögn um dómara: „Afspyrnuslakir
dómarar voru Bergur Steingrímsson
og Árni Freyr Sigurlaugsson, og var
engu líkara en þeir heföu hreinlega
sprungið í upphituninni!"
• Njarðvíkingar gáfu dómurunum
Jóni Ötta Ólafssyni og Kristni Al-
bertssyni stóra innrammaða litmynd
af þeim með kraftajötninum Magn-
úsi Ver Magnússyni, sem var sérleg-
ur gæslumaður þeirra á síðasta leik
Njarðvíkur og Keflavíkur um ís-
landsbikarinn!
• Friðrik Ingi Rúnarsson, hinn kornungi þjálfari íslandsmeistara Njarðvík-
ur, með verðiaunin sem hann hlaut fyrir nafnbótina besti þjálfarinn í úrvals-
deildinni.
• Rondey Robinson, Njarðvík,
hlaut viðurkenningu sem stigahæsti
leikmaður úrvalsdeildar. Hann var
jafnframt sá leikmaður í deildinni
sem tók flest fráköst.
• Anna María Sveinsdóttir, Kefla-
vík, hlaut viðurkenningu sem stiga-
hæsti leikmaður 1. deildar kvenna.
• Franc Booker, ÍR, skoraöi flestar
3ja stiga körfur í úrvalsdeildinni og
Björg Hafsteinsdóttir, Keflavík, flest-
ar í 1. deild kvenna. Þau voru einnig
með bestu vítanýtinguna.
• Brynjar Harðarson, Snæfelh,
var valinn prúðasti leikmaðurinn.
• Teitur Örlygsson, Njarðvík, fékk
verðlaun sem besti leikmaður úr-
shtakeppninnar frá Víkurfréttum.
• í Nike-hð úrvalsdeildarinnar
voru eftirtaldir valdir: Jón Kr. Gísla-
son og Falur Harðarson frá Keflavík,
Teitur Örlygsson, Njarðvík, Magnús
Matthíasson, Val, og Valur Ingi-
mundarson, Tindastóh.
• Nike-hð 1. deildar kvenna: Björg
Hafsteinsdóttir og Anna María
Sveinsdóttir, Keflavík, Vigdís Þóris-
dóttir og Hafdís Helgadóttir, ÍS, og
Linda Stefánsdóttir, IR.
• Þjálfari ársins var vahnn Friðrik
Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga.
• Kristján Möller frá Njarðvík var
valinn bésti dómarinn.
• Guðmundur Stefán Maríasson
fékk viðurkenningu sem sá dómari
sem sýndi mestar framfarir.
• Kolbeinn Pálsson, formaður
KKÍ, var sæmdur gullmerki ÍSÍ af
Sveini Björnssyni, forseta ÍSÍ.
• Tíu einstakhngar fengu gull-
merki KKÍ, Sveinn Bjömsson, Birgir
Örn Birgis, Helgi Ágústsson, Hilmar
Hafsteinsson, Hrafnkell Johnsen,
Ingvar Jónsson, Jón Eysteinsson,
DV-myndir Ægir Már
• Linda Stefánsdóttir, ÍR, og Magnús Matthíasson, Val, bestu ieikmenn fslandsmótsins, með verðlaunagripi sina.
• Kristján Möller frá Njarðvík var valinn besti dómarinn af leikmönnum
úrvalsdeildarliðanna.
• Verðlaunahafarnir á lokahátíðinni og leikmenn Nike-liðanna ásamt Kolbeini Pálssyni, formanni Körfuknattleiks
sambands íslands.