Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1991, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1991, Blaðsíða 1
Sjónvarp á föstudag: Þarsemvopnintala Árni Snævarr var í ísrael á dögun- um og á föstudagskvöld verður sýndur í Sjónvarpinu þáttur um þessa ferð. Sjóhvarpsmenn voru á ferð í ísrael og á herteknu svæðunum á dögunum og gerðu þátt sem fjallar um erjur ísraela og Palestínumanna. í þættin- um er horft til fortíðar jafnt sem framtíðar og reynt að skýra deilurn- ar og hugsanlegar pólitískar lausnir. Rætt er við áhrifamenn í báðum fylk- ingum svo sem við Palestínumann- inn Faisal al- Husseini, helsta leið- toga Palestínumanna á herteknu svæðunum, Hanna Siniora ritstjóra, Riyadh Malki verkfræðing og ísrael- ana, Yitzhak Rabin, fyrrum forsætis- og varnarmálaráðherra, Elyakim Haetsny þingmann, Yoram Binur blaðamann, Yehiel Yativ, deildar- stjóra í utanríkisráðuneytinu og Pet- er Gad Naschitz ræðismann. Rás 2 á sunnudögum: Dymar að hinu óþekkta Nýverið kom fyrir sjónir almenn- ings ný kvikmynd eftir Oliver Stone en þar fjallar hann um líf og dauða Jim Morrisons í hljómsveitinni Do- ors. Jim Morrison var átrúnaðargoð í lifanda lífi og enn í dag safnast píla- grímar að gröf hans í París. Rás 2 hefur látið gera þriggja þátta röð um Morrison og hljómsveitina og er hinn fyrsti á sunnudag kl. 16.05. Umsjón með þáttunum hefur Berghnd Gunn- arsdóttir og lesari með henni er Kristján Franklín Magnús. Þáttaröðin heitir Dyrnar að hinu óþekkta og verður í þeim rakinn fer- ill Morrison og bakgrunnur og einnig verður fjallað um hippa, fíkniefni og upplausn samfélagsins á þessum tímum. Lesnir veröa kaflar úr ævi- sögu hans, ljóð og vitnað í blaðavið- Jim Morrison var átrúnaðargoó í lif- anda lífi og enn í dag á hann dygga aðdáendur. töl við Morrison og að sjálfsögðu er tónlist Doors spiluð. Rás 1 á laugardag: María Callas í nærmynd I Tónmenntaþættinúm á rás 1 á laugardag rekur Bohi Valgarðsson lífshlaup söngkonunnar Maríu Önnu Cecehu Kalogeropoulos eða Maríu Cahas eins og hún nefndi sig síðar. Bolh rekur hvernig tak- markalaus metnaður hennar, skaphiti og hæfileikar nýttust henni frá því að hún söng fyrst opinberlega 15 ára gömul þar til hún trónaði ein á hæsta tindi óperuheimsins. Hin mikla vel- gengni á Ustasviðinu fylgdi Maríu CaUas ekki í einkalífinu og það var henni gífurlegt áfall þegar auðskýf- ingurinn Aristóteles Onassis yfir- gaf hana tíl þess að giftast Jackie Kennedy, ekkju Bandaríkjaforseta. Árið 1974 fór María Callas í sitt síðasta stóra söngferðalag um heiminn, sem lauk í Japan, ásamt ítalska tenórnum Guiseppi Di Stef- ano, en hann var einn af fáum vin- um hennar sem aUa tíð stóð við hlið hennar í erfiðu einkalífi. María Callas bjó í París síðustu ár ævinn- ar og þar lést hún árið 1977 þá 54 ára gömul. Aristóteles Onassis dáði Maríu Callas en yfirgaf hana fyrir Jackie Onass- is. Aðdáandinn að baki Maríu er Battsista Meneghini. ufsbjorg .amband fatlaöra Jóhann Pétur Sveinsson verður gestur Eddu Andrésdóttur á sunnudag. Stöð 2 á sunnudag: Inn við beinið - Jóhann Pétur Sveinsson Jóhann Pétur Sveinsson hefur syngur með Skagfirsku söngsveit- verið bundinn við hjólastól frá inni svo eitthvað sé nefnt. Jóhann bamsaldri en lætur það ekki aftra Pétur verður gestur Eddu Andrés- sér. Hann er starfandi lögfræðing- dóttur í þættinum Inn við beinið ur, formaður Sjálfsbjargar, situr í ásamt hópi vina og kunningja. miðstjórn Framsóknarflokksins og . Skagfirska söngsveitin tekur lagið, hljómsveitin Todmobile frumflytur glænýtt lag sem væntanlegt er á markaðinn í sumar en auk þessa verða ýmsar óvæntar uppákomur. Þetta er tólfti og síðasti þáttur Eddu. Luciano Pavarotti heldur upp á 30 ára starfsafmæli sitt með tónleikum. Sjónvarp á mánudag: Pavarotti í 30 ár - bein útsending frá afmælistónieikum Um þessar mundir á stórtenórinn móta með tónleikum í Reggio Emilia ins. Á efnisskra eru lög eftir Doniz- Luciano Pavarotti þijátíu ára söng- á Norður-Ítalíu og mun Sjónvarpið etti, Massenet, Belhni, Puccini, afmæli. Hann minnist þessara tíma- sýna beint frá tónleikum listamanns- Verdi, Mozart og Dalla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.