Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 5
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1991. 5 Landbúnaðarráðuneytið: Taka skal tillit til þarf a og eðlis svína - ný reglugerð um aðbúnað svína eitt síðasta embættisverk Steingríms J. Sigfússonar Eitt af síðustu embættisverkum Steingríms J. Sigfússonar í landbún- aðarráðuneytinu var að setja nýja reglugerð um aðbúnað og heilbrigð- iseftirlit með svínum. Samkvæmt reglugerðinni skal aðbúnaður svína og meðferð þeirra hagað þannig að þörfum þeirra og eðli sé fullnægt að svo miklu leyti sem kostur er. Þess skal gætt að þau þjáist ekki að nauð- synjalausu. Samkvæmt reglugerðinni þarf að sækja um starfsleyfi áður en svín eru sett í nýtt eða verulega breytt hús- næði. Þá ber þeim sem ætla sér að ráðast í byggingu svínahúsa eða gera verulegar breytingar á svínahúsum, sem fyrir eru, að fá umsögn hjá dýra- lækni svínasjúkdóma um fyrirliggj- andi byggingarteikningar. Fram- kvæmdir mega ekki heíjast fyrr en samþykki hans liggur fyrir en skjóta má úrskurði hans til landbúnaðar- ráðherra til endanlegrar umsagnar. Nákvæm útlistun er á því í reglu- gerðinni hvers konar umhverfi og húsakynni svínum teljast boðleg. Þannig skulu aðvörunar- og leiðbein- ingarskilti vera við aðkomu að at- hafnasvæði svínahús og inni í þeim má hitinn ekki vera undir 15 gráðum. í svínahúsum, þar sem grísir eru, á hitastigið þó að vera mun hærra eða á bihnu 26 til 32 gráður. Þá skal raka- stigið vera á bilinu 60 til 80 prósent. -kaá __________Fréttir Skagamenn hlutu prúðu verðlaunin Sigurdur Svenisson, DV, Akranesi: Skólahljómsveit Akraness stóð sig frábærlega á landsmóti skóla- hljómsveita sem fram fór í Stykk- ishólmi um helgina. Til þess að kóróna ferðina hlaut hún sér- stakan bikar fyrir prúðmennsku. Bikar þessi var á sínum tíma gef- inn af Rotaryklúbbi Akraness og nefnist Akranesbikarinn. AUs tóku 700-800 hljómsveitar- meðlimir víðs vegar af landinu þátt i mótinu sem heppnaðist mjög vel. Að sögn fararstjóra Akurnesinganna var skipulagn- ing öll, svo og aðbúnaður, mjög góð. Konráð Eggertsson ber selskinnsslaufu á fundi hvalveiðiráðsins: Eins og frumstæður hausaveiðari - með höfuðleður fómarlambsins hnýtt um hálsinn, segja friðunarsinnar Óvíst er hvort selskinnsslaufa Kon- ráðs Eggertssonar kemur til með að hafa áhrif á niðurstöður fundar hvalveiðiráðsins. Ljóst er þó að hún er og verður umdeild, og það langt út fyrir landsteina íslands. DV-mynd GVA „Ég hef ekki orðið fyrir áreitni frá hvalfriöunarsinnum vegna slauf- unnar. Hins vegar hafa margir þeirra sem skynsamari eru á þessum árs- fundi dáðst að henni. Sjálfur er ég mjög ánægður með slaufuna," segir Konnráð Eggertsson, formaður Fé- lags hrefnuveiðimanna. Konráð situr fyrir íslands hönd ársfund Alþjóða hvalveiðiráðsins sem fram fer í Reykjavík um þessar mundir. Slaufan, sem hann hefur borið um hálsinn á fundum ráðsins, hefur vakið athygli enda gerð úr sel- skinni. Friðunarsinnar hafa litið hálstauið hornáuga og í þeirra hópi er Konráði jafnvel líkt við frumstæðan hausa- veiðara sem gangi um með höfuðleð- ur fórnarlamba sinna hnýtt um háls- inn. Telja þeir þetta óviðeigandi með öllu, einkum í ljósi þess að um sé að ræða fulltrúa þess lands sem haldi ráðstefnuna. Meðal stuðningsmanna hvalveiða þykir mönnum hins vegar ekkert athugavert við slaufu Konráðs og að sögn sumra hefur hún eflt samstöðu þeirra sem vilja hefja veiðar. PAUL McCARTNEY NÝJA PLATAN rarLuaiEi) Nýja platan með Paul McCartncy sem var tekin upp í sjónvarpsþættinum „Unplugged“ á MTV cr komin í búðir núna. A þessari plötu flytur Paul McCartney klassísk Bítlalög og gamla rokkstand- arda í órafmögnuðum útgáfum. Innihcldur einnig fyrsla lagið sem Paul McCartney samdi, lag scm aldrei áður hefur heyrst á plötu. S*K'I*F*A*N Kringlunni • Laugavegi 33 • Laugavegi 96 í samtali við DV í gær kvaðst Kon- ráð vera þeirrar skoðunar að ísland ætti þegar að segja sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu. Þar inni hefðu ís- lendingar ekkert að gera. Hann hafði á orði að það þýddi ekkert aö reyna að telja hvalfriðunarsinnum hug- kvarf. „Það væri alveg eins hægt að fá Indverja til að éta beljur eins og að fá þessa vitleysinga til að samþykkja hvalveiðar. Þeir kunna ekki gott að meta né meðtaka rök. Þeir virðast alsælir með það að éta sótthreinsað- an og endurnýttan úrgang úr sjálfum sér og við því er ekkert að gera. En við eigum enga samleiö með þeim,“ sagöi Konráð. -kaa TÓNLEIKATILBOÐ Poison Flesh & Blood Slaughter Stick it to YA Live Thunder Back Street Symphony Kauptu 5% 10% 15% 20% afsláttur A Bit Of What You Fancy Quireboys Tilboðið stendur í öllum búðum Skífunnar til 1. iúlí. S*K*I*F*A*N Kringlunni • Laugavegi 33 • Laugavegi 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.