Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Blaðsíða 23
MÁXÚDAGUR 8. JÚNÍ1991. 39 Ráðinn - rekinn Fátt vakti meiri athygli íjölmiöla viö valdatöku nýrrar ríkisstjórnar og viöskilnaö hinnar fyrri en síð- ustu aögerðir Óla Þ. Guðbjartsson- ar og fyrstu tilþrif eftirmanns hans. Óli réð, Þorsteinn rak Ég þekki ekki til þessara ráön- inga utan einnar og ætla því aö ein- skoröa mig við hana, ráðningu Bjöms Einarssonar sem aðstoðar- manns fanga. Nú er þaö svo að deila má um hvort ráðherra, sem er að standa upp, á að gera mikið að því að ráöa menn til starfa hjá ríkinu. Slíkt er þó ekki ótítt á íslandi og ekki verð- ur hér reynt aö meta hvaða flokkur stendur öðrum ofar á þeirri afreka- skrá. Sá ráðningarsamningur, sem hér er til umræðu, er hins vegar mjög sérstakur. Það var alls ekki verið að ráða Björn Einarsson í nýtt starf. Einungis var verið að reyna að tryggja að hann gæti sinnt áfram því starfi sem hann hefur gegnt undanfarinn áratug. Til að rökstyðja þessa fullyrðingu nánar verður að kanna söguna ör- lítið og rifja hana upp. Björn er sjálfur fyrrverandi fangi sem ákvað upp á eigin spýtur að breyta um lífsstíl og búa sig undir eðlilegt, heiöarlegt líf. Hann rak sig þó fljótt á að aðbúnaður í íslensk- um fangelsum var ekki beinlínis til þess fallinn að hvetja menn til betra lífs. Hann fór því strax að beita sér fyrir ýmsum umbótum í sambandi viö aðbúnað fanga. Með- al annars stofnaði hann fangaráð til að koma fram fyrir hönd fang- anna. Hlutur sem ekki hafði áður þekkst á íslandi þótt fyrirbærið væri vel þekkt meðal siðmenntaðra grannþjóða okkar. Þá skrifaði hann taisvert um málefni fanga og það sem betur mætti fara í þeim efnum. Þótt það verði ekki tíundað hér gaf starf Bjöms innan fangelsisins góöa raun og segir það sína sögu að strax eftir að hann losnaði út, í desember 1981, kallaði þáverandi dómsmálaráðherra, Friðjón Þórö- arson, hann á sinn fund og fól hon- um að starfa áfram að málefnum fanga gegn sérstakri þóknun af opinberu fé. Árið 1982 var Björn svo ráðinn starfsmaður Vemdar og bauðst dómsmálaráðuneytið til að greiða hálf laun hans þar á þeim forsendum að hann sinnti þar áfram sínu fyrra starfi. Þegar miklar deilur komu upp í Vernd fyrir um það bil tveimur árum hætti Bjöm þar störfum og ákvað að hætta að sinna málefnum fanga. Það er þó svo, eins og marg- ir vita, að það er erfitt að venja sig af hugsjón. Bjöm hélt þvi áfram að sinna málefnum fanga enda þótt hann þægi nú engin laun fyrir. Þáttur Óla Ýmsir góðir menn, hæði innan dómsmálakerfisins og utan þess, KjaJIarinn Hafsteinn Einarsson lögfræðingur sem þekktu til starfa Björns og kunnu að meta þau, höföu nú sam- band við dómsmálaráðherra, sem þá var Halldór Ásgrímsson, og fóru þess á leit að Birni yrði skapaður starfsgmndvöllur. Við útvíkkun síðustu ríkisstjómar lentu þessi mál svo í höndum Óla Þ. Guðbjarts- sonar. Hann leysti þau á þann hátt að veita Birni ákveðinn mánaðar- legan styrk. Áður en Óh vék úr embætti hefur hann svo greinilega viljað ganga þannig frá málum að Björn gæti með fjárhagslegu öryggi sinnt áfram sínu starfi. Þess vegna gekk hann frá ráðningarsamningi og gerði Björn að ríkisstarfsmanni. Þetta er sá ráðningarsamningur sem Þorsteinn Pálsson sagði upp. í flestum fréttum af þessu máh var það tíundað rækilega áð aðstoðar- maöur fanga væri flokksbróðir Óla Þ. Það er að vísu alveg rétt að Bjöm var flokksbundinn í Borgara- flokknum og síðan í framboði fyrir Frjálslynda. Alhr eru sammála um það, í oröi, að menn eigi við opin- berar ráðningar ekki að njóta póh- tískra skoðana sinna en þeir eiga þó varla að gjalda þeirra. í ljósi þess sem hér hefur verið rakið hlýtur að verða að færa sterk rök fyrir því að um póhtíska ráðn- ingu hafi verið að ræða. Verði und- irritaður ekki sannfæröur um ann- að með rökum hlýtur hann að trúa því að Óh Þ. Guöbjartsson heföi staðið eins að þessum málum hvar í flokki sem Bjöm hefði staðið. Þáttur Þorsteins Hér verður ekki rakinn þáttur forstöðumanns Fangelsismála- stofnunar í þessu máh enda væri það nóg efni í aðra grein. Á hitt verður þó að benda að þótt for- stöðumaðurinn telji, án þess að hirða um að færa fyrir því rök, að Bjöm hafi í starfi sínu verið bæði óþarfur og óhæfur þá breytir það ekki þeirri staðreynd að allir fang- ar á Litla-Hrauni utan einn, sem var veikur, hafa þegar sent núver- andi dómsmálaráðherra beiðni um að ráða Björn aftur til starfa. Svip- aða beiðni munu fangar í Kvenna- fangelsinu líka hafa sent. Þorsteini Pálssyni varð á. í mold- viðri n útíma-fj ölmiðlunar og kapp- semi um að skapa nýrri ríkisstjórn ímynd tók hann skyndiákvörðun sem betur hefði mátt bíða og athug- ast nánar. Ef ég man rétt sagði Þorsteinn eftir formannsskiptin í Sjálfstæðisflokknum að ákveðin hætta væri á að flokkurinn fengi harðara yfirbragð. Nú hefur við- kvæmur málaflokkur, sem hann sjálfur stjórnar, fengið harðara yf- irbragð vegna vanhugsaðrar skyndiákvörðunar. Eg veit að það er ósk fjölmargra er þekkja til þessara mála aö dóms- málaráðherra sjái að sér og geri Birni aftur kleift að sinna fyrra starfi. Ég veit líka að það yrði gert í nokkurri andstöðu við forstöðu- mann Fangelsismálastofnunar. Þó vil ég ekki trúa öðru en að Þor- steini Pálssyni takist fljótt að sann- færa Harald Johannessen um að hann og hans stofnun hafi yfir- gnæfandi verkefni þótt Björn fái að starfa áfram. Haraldi hlýtur fyrr eða síðar að lærast að einstakling- urinn Björn Einarsson er ekki í neinni samkeppni við hann og hans stofnun. Shkt er einfaldlega and- stætt eðh einstakhnga og stofnana. Það er af ásettu ráði sem þessi grein er ekki skrifuð fyrr en nú, eftir að fjölmiðlafárinu hefur nokk- uð linnt. Því miður er það svo á íslandi að veikburða, fáliðuðum fjölmiölum tekst oft að feykja upp málum sem falla svo strax í gleymsku og dá. Þetta er auðvitað oft af hinu illa. Sum mál eru þann- ig að þau þarf að brjóta til mergj- ar, fá í þau raunverulegan, viðun- andi botn. Það getur vel verið að í því máh, sem hér um ræðir, hafi stjómvöld sagt sitt síðasta orð. Það breytir þó ekki því að eftir sitja fangar og aðstandendur þeirra með óbættan skaðann. Þeir em hin raunveru- legu fómarlömb í þessu máli. Hafsteinn Einarsson „Allir eru sammála um það, í orði, að menn eigi við opinberar ráðningar ekki að njóta pólitískra skoðana sinna en þeir niga þó varla að gjalda þeirra.“ KENNARAR Okkur vantar áhugasama og hressa kennara að grunnskólanum í Grundarfirði á Snæfellsnesi. Viðfangsefni: Almenn bekkjarkennsla í 4., 5. eða 7. bekk., líffræði, eðlisfræði og hannyrðir. I skólanum eru 150 nemendur í 1 -10. bekk. Að meðaltali 14 í bekk. Skoðið málið. Upplýsingar gefa skólstjóri, Gunnar, í síma 93-86802 eða 93-86637 og yfirkennari, Ragn- heiður, í síma 93-86772. Skólanefnd DIAMOND EXPLOSIVE 26“. 21 gírs fjallahjól, chromolly stell, SHIMANO 200 GS gírar og fylgihlutir, ótaksbremsur, ólgjarðir, standari og brúsi. Mjög gott hjól ó ótrúlegu verði, kr. 29.900,-. Stgr. kr. 28.400,- DIAM0ND TIGER 20“, 10 gíra fjallahjól, ótaksbremsur, ólgjarð- ir, standari, brúsi. Verð aðeins kr. 13.900,-. Stgr. 13.200,- DIAM0ND TIGER 16“ með fót- bremsu. Verð aðeins kr. 8.800,- i.. DIAM0ND LADY 26“ 10 gíra dömuhjól með skítbrettum, bögglabera og standara. Verð aðeins kr. 15.700,-. Stgr. 14.915,- DIAMOND BMX 20“ með fót- bremsu, ólgjörðum, heilli sveif, standara og púðum. Ovenju hagsteett verð ó svo vel útbúnu hjóli, kr. 9.400,-. Stgr. kr. 8.930,- Kreditkort og greiðslusamningar Sendum í póstkröfu. VARAHLUTIR OG VIÐGERÐIR, VANDIÐ VALIÐ OG VERSLID í MARKINU. kérslunin Símar 35320 og 688860 Armúla 40.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.