Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Blaðsíða 33
MÁNVDAGUR 3. JÚNÍ1991.
49
Smáauglýsingar
DV
Smágrafa. Tökum að okkur ýmiss kon-
ar jarðvinnu, hentar vel í garða o.fl.
Sími 91-39153, 985-23341 og 985-30915.
Geymið auglýsinguna.
Ferðaklúbburinn
4x4
Ferðaklúbburinn 4x4. Síðasti fundur
vetrarins verður í kvöld kl. 20.30 á
Hótel Loftleiðum. Fundarefni:
1. Almenn félagsstörf, 2. Starfsemi
sumarsins kynnt, 3. Myndasýning.
Félagar og annað áhugafólk velkom-
ið. Stjórnin.
H Skernmtanir
Hin frábæra, óviðjafnanlega indverska
prinsessa, söngkona og nektardans-
mær vill skemmta í einkasamkv., fé-
lagsheimilum og á karlakvöldum um
allt Island. Pantið í tíma í s. 91-42878.
Þjónusta
Aprentuð eldspýfnabréf! Auglýsing
sem tekin er með og lesin aftur og
aftur. Prentum einnig nafnspjöld,
boðskort o.fl. Semsa, sími 91-17082.
Gifspússningar - Knauf - alhliða múr-
verk. Löggiltur múrarameistari,
heimas. 650225 og 985-25925.
% ' rl
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA AÐ VERA ÚSKEMMD og þau þarf að hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöð margfalda áhættu í umferðinni. mIumferðar Vráð
Sviðsljós
Matlock mætir aftur
Innan skamms hefur göngu sína í
Sjónvarpinu enn ein þáttaröðin um
lögfræðinginn Benjamín L. Matlock
og baráttu hans við bófa og illþýði.
Þættir þessir hafa um langt skeið
notið mikilla vinsælda bæði hérlend-
is og erlendis. Það er eitthvað heimil-
islegt við sveitamanninn Matlock
sem reiðir sig iðulega á hyggjuvitið
við lausn mála og er ekki yfir það
hafinn að setja fæturna upp á skrif-
borðið og syngja og leika á banjóið,
að vísu alveg hræðilega illa, en það
skerpir hugsunina.
Andy Griffith sem leikur kappann
Matlock er enginn viðvaningur á
sviði og reyndar sveitamaður að upp-
runa sjálfur, fæddur í Norður Karól-
ínu fylki í Bandaríkjunum þar sem
hann býr enn. Á yngri árum íhugaði
hann að gerast predikari en lagði síð-
ar stund á tónlistarkennslu í
menntaskólum og ferðaðist um fylk-
ið með ýmsum listamönnum og söng
og lék á gítar.
Það var síðan árið 1954 sem Griffith
kom fyrst fram í þætti Ed Sullivan
og söng og spilaði. Nokkrum árum
síðar var hann kominn inn á leiklist-
arbrautina með hlutverk í sjónvarpi.
Hann varð frægastur fyrir hlutverk
sitt í The Andy GrifRth Show sem
hóf göngu sína í amerísku sjónvarpi
um 1960. Þar lék Griffith fógeta í
smábænum Mayberry sem hélt uppi
lögum og reglu á sinn sérstaka hátt.
Það hlutverk var að mörgu leyti líkt
hlutverki Matlocks. Sambland af
sveitamanni og spæjara.
Eftir að sýningum á þeim þáttum
var hætt lék Griffith í fjölda sjón-
varpsmynda og gekk á ýmsu allt
fram til 1983. Þá varð Grifíith fyrir
áfalli sem um tíma leit út fyrir að
myndi binda enda á feril hans sem
leikara.
„Ég vaknaði einn morgun við sér-
kennilegan dofa í fótunum og hélt
fyrst að þetta væri náladofi,“ segir
Griffith. „Þegar ég ætlaði að rísa upp
fann ég að ég var næstum alveg lam-
aður og ægilegar kvalir nístu líkama
minn.“
Rannsókn leiddi í ljós að Griffith
var með svokallaðan Guaillin-barr
sjúkdóm sem er sjaldgæfur tauga-
sjúkdómur sem iðulega dregur fólk
til dauða og veldur oft varanlegri
lömun. Griffith var hinsvegar einn
þeirra heppnu. Eftir margra mánaða
þjálfun gat hann gengið óstuddur á
ný með hjálp sérstakra spelkna á
fótunum. Hann var búinn að leika í
mörgum Matlock þáttum þegar hann
loksins lagði spelkunum endanlega
og gengur nú á tveimur eigin fótum
óstuddur.
„Þetta plagar mig talsvert enn í
dag,“ segir Griffith. „Sérstaklega
þegar verið er að taka upp senurnar
í réttarsalnum þar sem ég þarf að
standa upp á endann tímunum sam-
an. Þá fæ ég oft slæma verki í fæt-
urna.“
Andy Griffith er giftur leikkonunni
Cindi Knight sem er 29 árum yngri
en hann. Þau eiga engin börn saman.
Kene Holliday heldur áfram að
leika Tyler Hudson, hinn þeldökka
aðstoðarmann Matlocks sem hefur
ótrúlegt lag á að koma með mikilvæg
sönnunargögn á vettvang á síðustu
stundu. Holhday hefur leikið í þátt-
unum frá upphafi en hann er fyrr-
verandi atvinnumaður í amerískum
fótbolta og spretthlaupum en síðar
lagði hann stund á leiklist við háskól-
ann í Maryland. Hann hefur leikið í
sjónvarpi síðan 1970 og þykir snill-
ingur í matargerð.
Benjamín Matlock er væntanlegur á Tyler aðstoðarmaður hans verður á
skjáinn á ný. sinum stað.
Eldhúsinnréttingar
Glæsilegar eldhúsinnréttingar á algjöru lágmarksverði,
13 mismunandi gerðir. Geri tilboð að kostnaðarlausu.
Afgreiðslutími ca 8 vikur, MarleS eldhÚS
Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 31730, fax 679810
GERUM GÖT A EYRU
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI 13010
YFIR
150 BÍLAR
ÁSTAÐNUM!!!
BILA
HUSIÐ
BIL ASA K_ A
SÆVARHÖFÐA 2 ® 674848 í húsi Ingvars Helgasonar
ÚRVAL BÍLA Á GOÐUM
KJÖRUM, JAFNVEL ENGIN
ÚTBORGUN!! TÖLUVERT
ÚRVALÁGOÐUM
ST AÐGREIÐSLU AFSLÆTTI!!
Nissan Patrol turbo dísil '87, ek-
inn 134 þ. km, 5 gíra, 6 cyl., splitt-
að aftan, spil, björgunarsveitar-
útgáfa! Ath. skipti á ódýrari. Verð
1830 þús. Eigum einnig árgerðir
’84, ’85, '86, '88 og ’89.
MMC Pajero ’89, ekinn aðeins 28
þ. km, 5 gira, útvarp og segul-
band o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 1650 þús. Eigum einnig árg.
1990.
Subaru Legacy 1800 ST 4x4 ’90,
ekinn 22 þ. km, 5 gira, rafrúður,
16 ventla o.fl. Ath. skipti á ódýr-
ari. Verð 1400 þús.
Nissan Sunny 1600 LX Sedan 4x4
’90, ekinn 12 þ. km, 5 gíra, álfelg-
ur o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð
1050 þús. Eigum einnig árgerðir
’87, ’88 og '89.
Nissan 200SX '89, ekinn 33 þ. km,
sjálfskiptur, 16 ventla, turbo int-
ercooler, topplúga, 171 ha, ál-
felgur o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 1790 þús.
Wagoneer limited ’84, ekinn 118
þ. km, sjálfskiptur, rafrúður o.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verö 1250
þús.
Nissan Pathfinder 3, OSE '90,
ekinn 11 þ. km, 5 gíra, álfelgur,
grindur o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 2.580 þús. Eigum einnig
turbo dísil árg. 1990.
Eigum allar árgerðir af Subaru
1800 ST 4x4 á verði og kjörum
við allra hæfi!!!
Nissan Cedric dísil árg. 1987,
ekinn 190 þ. km, 6 cyl., sjálfskipt-
ur, rafrúður o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 1380 þús. Eigum
einnig árgerðir ’84 og ’85.
Subaru Justy J12 4x4 '89, ekinn
21 þ. km, 5 gíra, útvarp o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verö 740 þús.
Ford Econoline 150XL árg. 1988,
ekinn 58 þ. km, sjálfskiptur, 6
cyl., bein innspýting, útvarp o.fl.
Virðisaukakattsbíll. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 1180 þús.
Subaru 1800 ST 4x4 turbo ’87
ekinn 77 þ. km, sjálfskiptur, hæð-
arstilling, 135 hö, rafrúður o.fl..
Ath. skipti á ódýrari. Verð 950
þús.
MMC Colt 1500 GLX '89, ekinn
40 þ. km, 5 gíra, vökvastýri, auka-
dekk o.fi Ath. skipti á ódýrari.
Verð 780 þús.
Volvo 440GLT ’89, ekinn aðeins
29 þ. km, 5 gíra, rafrúður, sam-
læsing o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 1100 þús.
Nissan King Cab 4x4 ’90, ekinn
aðeins 8 þ. km, 5 gíra, brettakant-
ar, veltigrind o.fl. Ath. skipti á
ódýrari. Verð 1380 þús.
Toyota Corolla 1300XL liftback
'89, ekinn aðeins 18 þ. km, 5 gira,
álfelgur, samlæsing o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verö 940 þús.