Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 22
38 MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1991. Lífsstm Hverjir hirða gróðann af sölu bjórs? Himinhá álagning veitingastað anna Veitinga- staðir 51,7% Veitinga- staðir 49,7% Veitingastaðir 54,5% Veitingastaðir 53,9% Ríkið 39,9% Rfkið 43,0% Ríkið 42,5% Ríkið 39,6% Framleiðandi 7,3% Framleiðandi 5,8% Framleiðandi 6,13% i\ Framleiðandi 5,9% BMW 320i ’88, 4ra d„ álfelgur. V. 1.680.000, tilboð 1.490.000. Það blandast sennilega fáum hug- ur um að hvergi í veröldinni er bjór eins dýr og hér á landi. Bjór er seld- ur á mjög háu verði frá ÁTVR en verðiö þaðan er þó hátíð miðað við útsöluverð bjórs á veitingastöðun- um. Algengasta verð á 33 cl af bjór er 400 krónur. Veitingastaðirnir selja samkvæmt því kassann af bjór á 9.600 krónur. Hagnaður veitingastaðanna er þó mestur af kranabjór þar sem álagn- ingin er mest. Framleiðendur bjórs- ins leggja í öllum tilfellum til krana á veitingastaðina og öll nauðsynleg tæki sem þarf til að afgreiða krana- bjór. Þar að auki fá veitingastaðimir gefm glös frá framleiöanda eða inn- flytjanda bjórsins sem seldur er úr krönum staðarins. ingastöðunum er 400 krónur flaskan. Þannig fást 9.600 krónur fyrir kass- ann. Spurningin er sú hvað heldur veitingamaðurinn mikilli upphæð eftir af 9.600 og hve stór upphæð rennur til ríkisins? Blaðamaður leit- aði upplýsinga hjá skrifstofustjóra Hótel Loftleiða, Guðrúnu Svein- bjarnardóttur, um uppgjör til ríkis- ins af söluverði bjórs. „Þegar veitingastaðir kaupa bjór frá ÁTVR fá þeir virðisaukaskattinn endurgreiddan. Síðan er virðisauka- skattur greiddur til ríkisins af út- söluverði staðanna,” sagði Guðrún. Skýringarmyndin hér á síðunni er reiknuð út á grundvelh þessara upp- lýsinga. Á henni er sýnd hiutfallsleg skipting milli framleiðenda, ríkisins og veitingastaðanna í endanlegu söluverði bjórs. Vinstra megin er skiptingin í sölu á bjór úr flöskum. Teknar eru tvær algengar, íslenskar tegundir; Egils Gull og Löwenbráu frá Víking-Bruggi. Gengiö er út frá því að hver flaska sé seld á 400 krón- ur. Hlutur veitingastaða og ríkisins er meiri í Egils bjór því söluverð á Egils bjór til ÁTVR er lægra (560 krónur) en söluverð á Löwenbrau bjór (700 krónur). Arður veitinga- staðanna er enn meiri í sölu á bjór úr kútum. Egils Gull bjór er seldur á 19 htra kútum en Löwenbráu á 30 lítra kútum. Gengið er út frá því á skýringarmyndinni að eingöngu séu seldir 33 cl bjórar á 400 krónur af krana. í ljós kemur að arður veit- ingastaðanna er meiri af kranabjór en ríkissjóður ber minna úr být- um. Skoðum eitt reikningsdæmi. Sölu- verð framleiðanda á 30 lítrum af Löwenbráu bjór til ríkisins er 2.225 krónur. Útsöluverð frá ÁTVR er 10.380 krónur. Veitingastaðurinn sel- ur hann til neytenda á 36.364 krónur. Þegar virðisaukaskattur er tekinn inn í dæmið fær veitingastaðurinn 19.600 krónur í arð, ríkiö hirðir rúm- ar 14.500 krónur og framleiðandinn fær sínar 2.225 krónur. Gætu svona hlutfóll eða álagning verið í gildi í einhverju ööru landi en íslandi?' Tekið skal fram að ef bjór er seldur í '/: 1 könnum minnkar arður veit- ingastaðanna eitthvað en þó óveru- lega þar sem álagningin er heldur minni eftir því sem glasið er stærra. En niðurstöðurnar benda th þess að sala á bjór sé sérlega ábatasöm fyrir veitingastaðina. -ÍS Erlentfordæmi Mikil samkeppni er á milli bjór- framleiðenda og innflytjenda bjórs um söluna á veitingastöðunum. Sam- keppnin gerir það að verkum að framleiðendur neyðast til að útvega krana og glös, eigendum veitinga- staða að kostnaðarlausu. Guðlaugur Guðlaugsson er sölustjóri hjá Agli Skallagrímssyni: „Framleiðendur bjórs hér á landi lána í öllum tilfell- um sölustöðunum krana fyrir bjór endurgjaldslaust. Einnig eru gefin bjórglös á veitingastaðina og það miðast við umfang staðarins hve mikiö er gefið hverju sinni,“ sagði Guðlaugur. Magnús Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Víking-Bruggs á Ak- ureyri, haíði svipaða sögu fram að færa. „Kostnaðurinn við uppsetn- ingu tækjabúnaðar vegna krana- bjórs skiptir hundruðum þúsunda. Framleiðendur sjá einnig um hreins- un tækjanna á tveggja vikna fresti. Það er réttlætanlegt vegna þess að viðhalda verður gæðum bjórsins og það borgar sig fyrir framleiðend- urna. Það eru fordæmi fyrir því er- lendis að framleiðendur leggi í þenn- an kostnað. Þegar bjórveitingastaðir eru stofn- settir höfum við gefið glös á staðina i réttu hlutfahi við sætafjölda. Síðan höfum við selt glös á staðina á vægu verði. Reynslan var ekki nógu góð af því að gefa glösin. Nokkuð var um að staðimir misnotuðu glösin og væru jafnvel að afgreiða sterk vín í þeim. Við leggjum einnig mikla áherslu á að bjórinn sé framreiddur á réttan hátt fyrir neytandann en því miður hefur verið misbrestur á því. Við ætlum að fara af stað með námskeið í byijun júní um alhliða meðferð á bjór th þess að reyna að bæta úr þessu,” sagði Magnús. Það gefur augaleið að fjárfestingar framleiðenda í krönum og tækjum tengdum bjórsölu, svo ekki sé minnst á kostnað vegna glasa, eru sérlega áhættusamar. Bjórstaðir spretta upp eins og gorkúlur og sumir eru fljótir að fara á hausinn. Mörg hundruð þúsund króna fjárfesting framleið- enda í tækjabúnaði fyrir þannig staði kemur þá út sem tap. Hlutur framleiðenda lítill Þegar tekið er thlit til þess hvað útsöluverð framleiðanda er lágt fást svimandi upphæðir fyrir bjórinn i smásölu á veitingastað. Egils Gull bjórkassi kostar á söluverði th ÁTVR frá framleiðanda 560 krónur. Algeng- asta söluverð á bjór í flöskum á veit- Betríbílar á betraverði og betríkjörum Renault 19 GTS '90, samlæs., rafrúður. V. 890.000 BMW 3181 '89, sjálfsk., vökvast. hauspúðar. V. 1.650.000. Þú færð góðan bíl hjá okkur á hagstæðari kjörum en þig grunar! Athugið: BMWog Renault bílaríokkareigu eru yfirfarnirá verkstæði okkar. Bílaumboðið hf Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 676833 og 686633 Chevrolet Impala '63, toppein- tak. Tilboð. 1590.000, tilboð 490.000 sfgr. eða j |skbr. Tilboð vikunnar Neytendur RENAULT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.