Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Page 36
52 MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1991. Menning Myndgáta Eitt og annað Eina línu vantaöi í handrit pistilsins sem birtist á laugardaginn. Þar átti að standa: Bjöm Thor. hafði svo frammi sína sérstöku útgáfu af „Autumn Leaves“ meðan undirritaður leitaði útgöngu. - Það var sem sagt ekki Bjöm sem yfirgaf staðinn á einhvern ein- kennilegan hátt, en þannig heföi mátt skilja þetta. Þegar mikið er í boði eins og verið hefur í djas- sveislu undanfarinnar viku, er það því miður þannig að einhverju verður að sleppa. Það hefði veriö gaman að heyra í Kvartett Guðmundar Ingólfssonar og Sext- ett Tómasar R. ásamt söngvaranum James Olsen og básúnleikaranum Össuri Geirssyni, ennfremur Tónskröttum Sunnu Gunnlaugsdóttur og stórsveitum Seltjarnarness og Tónlistarskóla FÍH. Gítarveislan þar sem m.a. Öm Ármannsson kom fram eftir langt hlé, auk fjölda annara, fór einnig að mestu fram hjá pistla- höfundi. * Margir hljóðfæraleikaranna höfðu aldeilis nóg að gera og má t.d. nefna Þorleif Gíslason, Kjartan Valdimarsson og bassaleikarana Bjami Sveinbjörns- son Tómas R. Einarssonn og Þórð Högnason sem léku a.m.k. í 3 hljómsveitum hver um sig. Það er einhvern veginn svo, að djassmúsík syndir einhvers staðar mOli þess að teljast léttmúsík og „al- varleg" tónhst, kannski vegna þess að hann getur ver- ið svo léttúðugur og alvarlegur á víxl og jafnvel í sömu andrá. Sjasstónleikar eru oftar en ekki haldnir á vín- veitingahúsum, sem ekki allir kæra sig um að sækja mikiö né eru sáttir við, að glasaglamur og fosshljóð úr krönum eða ætíð eina og sjálfsögð aukaslagverks- hljóðfæri á djasskonsert. En músíkin er ekki verri fyrir þaö. Ýmsar tegundir djasstónlistar njóta sín ver í háreysum hljómleikasölum, en annar djass virðist ekki eiga eins vel heima á slíkum stöðum. Sú músík Djass Ingvi Þór Kormáksson kann þá jafnvel aö vera svo kraftmikil að hún drekkir þeim aukahljóðum sem öldurhús hafa og á ekki illa við í andrúmslofti þeirra. Af íslensku hljómsveitunum voru það helst bræð- ingasveitirnar Súld, Gammar og Grumbl sem að mestu héldu sig við frumsamiö efni þessa djassdaga, auk Ólafs Gauks sem m.a. kom fram með nýja djasssvítu, sem frumflutt var í sjónvarpi af Scheving-Lasanen kvintettinum. Svo má minna á nýjan geilsdisk og snældu með verkum eftir Tómas R. Einarsson, sem kom út á fóstudaginn, 6. dag í djasshátíð. Andlát Árni Þorgrímur Kristjánsson, fyrr- verandi forstjóri, Bjarmalandi 1, andaðist á heimili sínu 29. maí. Guðmunda Guðjónsdóttir, Hjálm- holti, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 30. maí. Þorleifur Þorleifsson, áður til heimil- is í Gnoðarvogi 32, lést á Hrafnistu 20. maí. Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey. Jana Malena Reynisdóttir lést á Grensásdeild Borgarspítalans 22. maí. Jarðarfórin hefur fariö fram í kyrrþey. Bæring Elísson, Borg, Stykkishólmi, andaðist 30. maí í St. Franciskus- sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Ragnhilfur Óskarsdóttir, Skagfirð- ingabraut 33, Sauðárkróki, lést að- fararnótt 31. maí á Sjúkrahúsi Sauö- árskróks. Guðfinna Árnadóttir, Haðarstig 14, lést í Landspítalanum 25. maí. Jarð- arförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Óskar Halldórsson, Laugarás- vegi 8, Reykjavík, lést 29. maí. Jarðarfarir Svava Valfells,Úthlíð 3, verður jarð- sungin í dag, mánudaginn 3. júní, frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Jóel B. Jacobson húsvörður, Hæða- garði 56, verður jarðsettur frá Bú- staðakirkju í dag, mánudaginn 3. júní, kl. 13.30. Sigurgeir Sigurðsson bifreiðastjóri, Hjallalundi 15b, Akureyri, sem lést 26. maí, verður jarðsunginn frá Ak' ureyrarkirkju í dag, mánudaginn 3. júní, kl. 13.30. Guðlaug Una Þorláksdóttir frá Veiði- leysu, Köldukinn 30, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaöa- kirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 4. júní. Tilkynningar Svæðisfulltrúi í umferðar- fræðslu á Vesturlandi í júnímánuði fer fram reiðhjólaskoðun á Vesturlandi. Logreglumenn á svæðinu framkalla skoðunina. Öll böm, sem mæta til skoðunar með reiðhjól, fá teinaglit að gjöf frá Sjóvá-Almennum. Jafnframt verða þau sjálfkrafa þátttakendur i happ- drætti. Vinningar í happdrættinu eru öryggishjálmar. Sjóvá-Almennar hafa gefið hjálmana sem verða vinningar á Snæfellsnesi og í Dölum. Vinningana til bamanna á Akranesi og í Borgamesi hafa Landsbanki íslands, Akranesi, Um- ferðarráð og Verslunin Öminn, Reykja- vík, gefið. Þau böm, sem hafa hjólin í lagi, fá jafnframt viðurkenndan skoðun- arrniöa frá Umferðarráði. Skoðunardag- ar verða auglýstir nánar á hvetjum stað fyrir sig. Innritun í skólagarða borgarinnar Skólagaröar borgarinnar starfa á sjö stöðum í borginni: við Sunnuveg í Laug- ardal, í Árbæ, Ásenda, við Jaðarsel og Stekkjarbakka, í Skildinganesi og í Foldahverfi (Kotmýri) fyrir austan Loga- fold. Innritun í þessa garða fer fram dag- ana 3. og 4. júní og hefst hún kl. 8 í hverj- um garði. Skólagarðamir eru ætlaðir fyr- ir böm fædd árin 1978 til 1983. Innritun- argjald er kr. 600. Sumaráætlun á leiðum 2-14 Hinn 3. júní gengur sumaráætlun SVR í gildi á sama hátt og undangengin sumur. Vagnar á leiðum 2-12, að báðum með- töldum, aka á 20 mín. ferðatíðni kl. 7-19 mánudaga til fóstudaga. Akstur kvöld og helgar verður óbreyttur. Vagnar á leið- um 13 og 14 aka á 60 mín. ferðatíðni kvöld og helgar en akstur þeirra er óbreyttur á tímabilinu kl.07-19 mánudaga til fóstu- daga. Jafnframt hættir hraðleið 111 akstri við gildistöku sumaráætlunar. Frönsk sýning í tilefni af 50 ára afmæli Háskólabóka- safns á síðasta ári hefur Franska sendi- ráðið fært safninu bækur að gjöf. Hluti bókagjarinnar er nú til sýnis í anddyri Háskólans ásamt ýmsum öðmm ritum t Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Valgerðar Elíasdóttur, Bröttuhlíð 12, Hveragerði Sérstakar þakkir færum viö þvi góöa fólki sem leit til meö henni meðan hún dvaldi heima og þeim sem önnuðust hana á deildum E6 og B5, Borgarspítalanum. Alfheiöur Unnarsdóttir Elsa A. Unnarsdóttir Unnur V. Ingólfsdóttir Jóhann Ingólfsson Valgeróur Stefánsdóttir Ingólfur Jóhannsson Stefán Valdimarsson Guójón Magnússon Jónina Danielsdóttir Gunnar Þorsteinsson Auðbjörg Stefánsdóttir barnabarnabörn og fleiri gögnum um Frakkland og franska menningu í eigu Háskólabóka- safns og bókasafns Alhance francaise. Á síðasthðnu ári minntust Frakkar þess að 100 ár em Uðin frá fæðingu Charles de GauUe og 20 ár frá andláti hans. Þá vou einnig liðin 50 ár frá því hann kom fyrst fram á sjónarmið franskra stjómmála. Af þessu tílefni hefur Háskólabókasafn komið fyrir á göngum albyggingar 24 veggspjöldum um stjómartíð Charles de Gaulle í Frakklandi, sem Franska sendi- ráðið hefur gefið safninu, svo og sýningu á bókum um de GauUe úr bókasafni All- iance francaise. Sýningamar standa til 20. júní. Félag breiðfirskra kvenna fer í vorferðalag 8. júní. Upplýsingar hjá Önnu, s. 33088, eða EUsabetu, s. 685098. Heym og tal mælt Móttaka verður á vegum Heymar- og talmeinastöðvar íslands á Egilsstöðum dagana 7. og 8. júní nk., Seyðisfirði 9. júní nk„ Neskaupstaö 10. júní nk„ Reyð- arfirði 11. júní nk. og Fáskrúðsfirði 12. júní nk. Þar fer fram greining heyrnar- og talmeina og úthlutun heymartækja. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum hjá við- komandi heUsugæslustöð. Dagsbrún gefur SÁÁ eina milljón króna Bygging hinnar nýju endurhæfingar- stöðvar SÁÁ á Kjalarnesi komst hressi- lega á skrið nýlega þegar Verkamannafé- lagið Dagsbrún afhenti formanni SÁÁ 7 \\ ----------eyFor, - Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Lausn gátu nr. 42: Veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. eina milljón króna að gjöf frá Dagsbrún. Sveinn Rúnar Magnússon afhenti gjöfina í forfóllum Guðmundar J. Guðmunds- sonar, formanns Dagsbrúnar. Við af- hendinguna sagði Sveinn Rúnar að starf- semi SÁÁ hefði ekki síst gagnast lág- launafólki. Hann sagði að eðli málsins samkvæmt kæmi áfengissýki oft harðast niöur á heimUum láglaunafólks þegar ekki mætti við miklum breytingum á aðstæðum til að efnahagurinn færi í rúst. Sveinn sagði að Dagsbrún vildi þakka fyrir sig og sína í verki með því að gefa SÁÁ þessa fjárupphæð. Peningunum verður varið til byggingar endurhæfmg- arstöðvarinnar Víkur á Kjalamesi. Bygg- ingin er nýhafin og ráðgert er að stöðin taki til starfa í nóvember nk. Vík leysir af hólmi endurhæfingarstöðina Sogn í Ölfusi. Safnaðarstarf Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón- usta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Tónleíkar Þriðjudagstónleikar Lista- safns Sigurjóns Fyrstu tónleikarnir i sumartónleikaröð Listasafns Siguijóns Ólafssonar verða þriðjudaginn 4. júní nk. og hefjast kl. 20.30. Þá mun Gunnar Kvaran- sellóleik- ari leika tvær einleikssvítur eftir Johann Sebastian Bach, nr. 1 í G-dúr og nr. 5 í c-moll, og jafnframt rabba um verkin. Tónleikarnir standa í um það bil klukku- tíma og að þeim loknum geta gestir að venju notið veitinga í kaffistofu safnsins. Fundir Aðalfundur Norræna félagsins í Garðabæ verður haldinn fimmtudaginn 6. júní í kennarastofu Garðaskóla kl. 18. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf - önnur mál. Að fundi loknum verðurfarið í skógrækt- arferð í reit félagsins í Smalaholti þar sem bomar verða frám veitingar. Tapað fundið Hvolpur fannst Svartur hvolpur fannst í Seljahverfi 30. maí sl. um miðjan dag. Upplýsingar í síma 77205. Um hvað snýst tannréttingadeilan? - athugasemdir vegna yfirheyrslu heilbrigðisráðherra 1DV 25. maí sl. Þaö er hryggilegt aö lesa orö ráö- herra um tannréttingadeiluna í yfir- heyrslu DV þar sem hann opinberar ókunnugleika sinn á málinu. Þessi deila er e.t.v. ekki stórmál í hans augum, en hún er þó búin aö standa í eitt og hálft ár og valda miklum óþægindum. Það hefði því ekki verið óeölilegt aö nýr ráöherra ræddi viö báöa aðila málsins áður en hann hóf upp merki forvera síns. Ráðherra segir að máliö snúist í hnotskum um endurgreiðslur fyrir lýtalækningar sem séu spurning um útlit frekar en heUbrigöismál. Ef þetta væri rétt væri málinu löngu lokiö. Tannréttingafélag íslands sendi tillögur sínar um reglugerð til Tryggingaráðs 8.2.1990 og gerði ein- mitt ráð fyrir...að greina úr hópi umsækjenda þá sem ekki þurfa með- ferð og fá þar með synjun (tryggin- gatannlæknis)". Hið rétta er hinsveg- ar þvi miður að deilan snýst um að mismuna þeim sem þó er viðurkennt að þurfi í tannréttingu. Eftir reglum ráöherra á að endurgreiða þeim ýmist 35% eða 50% eftir vafasömum forsendum, þó að tækjabúnaður og kostnaður sé sá sami. Ráðherra segir einnig að eyðublað- ið umdeUda hafi veriö hannað í sam- ráði við tannlækna. Hönnun eyðu- blaðsis mun vera einkaframtak tryggingayfirtannlæknis, en fulltrú- ar tannlækna réðu engu um gerð þess. Ráðherra segir réttUega að áskUið sé að nota umrætt eyðublað en lætur þess ekki getið að flokkun- arreitir eyðublaðsins eru undan- skUdir með sérstakri bókun og hnykkt er á þeirri bókun með ann- arri svohljóðandi: „TR tekur að sér að flokka tannréttingasjúklinga“. Dropinn sem fyllti mæhnn og varð til þess að tannréttingasérfræðingar gátu ekki gerst aöilar að samningn- um var mistúlkun TR á ofangreind- um bókunum. Teitur Jónsson tannlæknir, formaður Tannréttingafélags íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.