Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1991, Síða 1
Sjónvarp á laugardag:
Borgarljósin
Edda Þórarinsdóttir fjallar um París
ársins 1835.
Rás 1 á sunnudag:
Svipastumí
listaborg-
inni París
árið 1835
Edda Þórarinsdóttir, Friðrik
Rafnsson og Þorgeir Ólafsson bjóða
áheyrendum að ferðast með sér aftur
í tímann.
Áfangastaðurinn er Parísarborg
1835. Af hverju París 1835? Jú, af því
þetta var litríkur og skemmtilegur
tími sem gaman væri að heimsækja.
Menning og listir blómstruðu og
straumar rómantískra hugmynda
runnu saman í eitt. Tónskáld, málar-
ar og rithöfundar gengu um stræti
eða sátu á kaffihúsum og sömdu
ódauöleg listaverk.
Þarna mátti meðal annars sjá tón-
skáldin og vinina Liszt, Berlios og
Chopin ásamt vinkonu hins síðast-
nefnda, rithöfundinn George Sand.
Þeir sem vilja slást í fórina með
þeim Eddu, Friðriki og Þorgeiri
þurfa ekki annað en að koma sér vel
fyrir, kveikja á rás 1 klukkan þrjú á
sunnudaginn og láta ímyndunaraflið
taka við af hversdagsleikanum.
Charlie Chaplin og verk hans
halda áfram í Sjónvarpinu. Að
þessu sinni eru þetta Borgarljós,
sem Chaplin gerði árið 1931, en
hann skrifaði handrit, leikstýrði og
fór með aðalhlutverk að vanda.
Myndin er að sjálfsögðu spunnin
í kringum litla flækinginn, sem að
þessu sinni flakkar einn og yfirgef-
inn um ókunna stórborg, hæddur
og spottaður af hverjum þeim er til
ferða hans sér. Mitt í þessum
þrengingum fellur svo sólargeisli á
veg hans, þar sem fer blind blóma-
sölustúlka. Litli flakkarinn hrífst
mjög af þessum engli í mannsmynd
og er að kjörum hennar kreppir
beitir hann öllum ráðum til að
koma henni til hjálpar.
Bandaríska kvikmyndatímaritið
Variety tók svo til orða um þessa
mynd Chaplins að hér væri á ferð
enn ein gæðasmíðin úr smiðju
hans, en þó væri skeleggri fram-
vindu atburðarásarinnar fórnað
fyrir mærð og væmni. Eigi að síður
getur hér að líta marga af þeim
snilldartöktum sem Charlie Chapl-
in varð heimsfrægur fyrir á sinni
tíð og því ómaksins virði fyrir
aðdáendur hans að tylla sér við
skjáinn.
Auk Chaplins fara hér með hlut-
verk Virginia Cherrill, Florence
Lee, Harry Myers, Allan Garcia og
Hank Mann. Sýning myndarinnar
hefst kl. 21.25.
Chaplin er allt í öllu I Borgarljósum enda skrifaði hann handritið, leikstýrði og fór með aðalhlutverkið.
Sjónvarp á föstudag:
NewKidson
Nafn þessa þáttar hljómar
kunnugiega því hér er á ferð ein
kunnasta samtímahljómsveit
yngri kynsióðarinnar. Sveitin
hefur átt ótrúlegri velgengni að
fagna undanfarin ár og selt rúm-
lega 14 miiljón plötur og 2 milljón-
ir tónlistarmyndbanda um allan
heim.
Fyrir þremur árum urðu New
Kids on the Block fyrstir sveita
til aö ná fjórum lögum af sömu
plötu, Hangin Tough, inn á
bandaríska vinsældalistann en
umrædd plata seldist í yflr 7 miilj-
ónum eintaka.
í marsmánuði i fyrra brugöu
New Kids on the Bloek sér fyrir
fraraan myndavélar breska sjón-
varpsfyrirtækisins Big Pictures
Productions og slógu upp 90 mín-
útna löngum tónleikum er þeir
nefndu In Your House. Upptakan
fór fram i Nassau Coliseum í New
York og var henni dreift um allan
heim.
Sjónvarpið bregöur þessari
upptöku á skjáinn annað kvöld
og hefst sýningin kl. 23.20.
Stöð 2 á sunnudag og mánudag:
Byltingarlestin
Fáar lestarferðir hafa haft jafn
afdrifaríkar afleiðingar í fór með
sér fyrir eina þjóð eins og sú hættu-
fór sem byltingarleiðtoginn Lenín
fór í aprílmánuði 1917. Framtíð
Rússlands var í veði og óvíst hvort
stjórnarbylting kommúnista hefði
átt sér stað ef Lenín hefði ekki kom-
ist á leiðarenda.
Byltingarlestin er evrópsk kvik:
mynd í tveimur hlutum sem fjallar
um þessa örlagaríku ferð. Dular-
full lest, sem er innsigluð, þeytist
í gegnum stríðshrjáð landið að
næturlagi. Áfangastaðurinn er Pét-
ursborg og takmark ferðarinnar er
að framfylgja glæfralegri áætlun
þýsku herstjómarinnar sem vill
binda enda á stríð sitt við Rússa.
Það skal gert með því að koma út-
laganum Lenín inn í land sitt þar
sem vonir eru bundnar við það að
honum takist að ná valdataumum
í landinu og friðmælast við Þjóð-
verja.
Fjöldi þekktra leikara fer með
aðalhlutverkin í Byltingarlestinni.
Þar ber hæst Ben Kingsley í hlut- ley Caron, Dominique Sanda, Ja- Sýning myndarinnar hefst kl. 21.55
verki Leníns. Einnig má nefna Les- son Connery og Timothy West. ásunnudagogkl. 22.20 ámánudag.