Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 15. JÚLl 1991.
Fréttir
__ Eldur í Starmýri 2:
Talsverðar
reykskemmdir
Þaö var klukkan 18.27 í gærkvöldi
sem tilkynnt var um eld í verslun í
Starmýri 2. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var mikill reykur inni í
versluninni og í kjallara á austur-
gafli hússins var töluverður eldur. í
kjallaranum var talsvert af húsgögn-
um sem skemmdust mikið en greið-
lega gekk að slökkva eldinn. Úr kjall-
aranum lá stigi upp í verslunina sem
fylltist öll af reyk en eldurinn náði
ekki þangaö. í versluninni þurfti að
brjóta stóra rúðu á norðurhliðinni
til þess að geta loftræst húsið með
reykblásurum. Miklar skemmdir
urðu á húsgögnum inni í versluninni
vegna reyksins. Slökkvistarfið tók
hálfa aðra klukkustund. Máliö er í
rannsókn hjá RLR en ekki er enn
vitað hvað olli brunanum.
-pj
Siglingamálastj óri:
Of lítil þjóð til að stunda
mengunareftirlit
- vill hert lög um tilkynningaskyldu
„Við sem lítil þjóð getum ekki hald-
ið uppi sama eftirliti með þessum
skipum og stærri þjóðir. Víöa erlend-
is eru notaðar flugvélar til að fylgjast
með þessum skipum og hugsanlegri
mengun frá þeim en möguleikar okk-
ar til þessa eru nánast engir. Við
verðum hins vegar að koma í veg
fyrir þaö að menn geti notfært sér
þetta litla eftirlit til að fara fram hjá
settum reglum,“ segir Magnús Jó-
hannesson siglingamálastjóri.
Magnús segir að enn sé ekki upp-
lýst hvaða skip beri ábyrgð á grútar-
menguninni á Húnaflóa. Til að fyrir-
byggja að svona lagað komi fyrir aft-
ur segir hann mikilvægt að komiö
verði á tilkynningaskyldu hjá öllum
erlendum skipum sem fara um ís-
lenska landhelgi. í dag nær hún ein-
ungis til herskipa. Með þeim hætti
verði auðveldara rekja hugsanlega
mengun frá þeim og þá draga menn
til ábyrgðar. Magnús mun í dag
ganga á fund Halldórs Blöndals sam-
gönguráðherra og gera honum grein
fyrir þessum tillögum. -kaa
Verslunin fylltist öll af reyk og skemmdust húsgögn mikið. Brjóta þurfti stóra
rúðu til að loftræsta húsið með reykblásara DV-mynd S
Skiptar skoðanir um frjálst fiskverð og Verðlagsstofnun:
Taldi að ráðherra myndi
afskrifa þetta „apparat“
- segirÓskarVigfússon,formaðurSjómannasambandsíslands
Ég sé ekki að það geti gerst í einu stökki að leggja niður Verðlagsráð, það
þarf að vera til áfram svo hægt sé að ákveða grunnverð á fiski, segir Arn-
ar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva.
„Ég er þeirrar skoðunar að það
komi illa við marga smábátaeigend-
ur úti á landi ef fiskverö verður gefið
frjálst," segir Örn Pálsson, formaður
Landssambands smábátaeigenda.
„Á mörgum stöðum á landsbyggð-
inni er enginn fiskmarkaöur eða
fiskmiðlun af nokkru tagi og einok-
unaraðstaða því fyrir hendi. Það ætti
frekar að markaðstengja fiskverð en
að gefa það frjálst. Það yrði betra að
gera þetta á þann hátí,“ segir Örn.
Sjávarútvegsráðherra kynnti fyrir
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi hug-
myndir sínar um að breyta störfum
Verðlagsráðs sjávarútvegsins á þá
lund að einfaldur meirihluti í ráðinu
Fréttaljós:
Jóhanna Margrét .
Einarsdóttir
nægði til að hægt væri að ákveða
frjálst fiskverð. Til dagsins í dag hafa
allir fulltrúar í ráðinu þurft að vera
sammála um að gefa fiskverð frjálst
til að það gæti náð fram að ganga.
Verðlagsráð hefur ákveðið lág-
marksverð á fiski en kaupendur hafa
haft frjálsar hendur um að greiða
hærra verð en gildandi lágmarks-
verð. Því vilja margir halda því fram
að verðið hafi í raun verið frjálst því
víðast hvar úti á landi, þar sem fisk-
markaðir hafa ekki verið til staðar,
hefur verið greitt 30 prósent heima-
löndunarálag ofan á lágmarksverðið.
Á fiskmörkuðunum suðvestanlands
hafa sjómenn fengið enn hærra verð
fyrir afla sinn.
Ekki hafa verið teknar neinar end-
aniegar ákvarðanir um hvernig stað-
ið skuli aö frjálsu fiskveröi og á
næstu dögum munu hagsmunaaðilar
í sjávarútvegi funda um tillögur ráð-
herra.
Mikiðvatn til
sj'ávar runnið
„Hugmyndir sjávarútvegsráðherra
eru út af fýrir sig ágætar. Fyrir
tveimur til þremur árum hefði ég
gripið þær feginshendi. En síðan hef-
ur mikið vatn runniö til sjávar varð-
andi fiskverð, bæði með tilkomu fisk-
markaðaflna og þeirra frjálsu verö-
lagningar sem átt hefur sér stað þrátt
fyrir verðlagsráðsverö," segir Óskar
Vigfússon, formaður Sjómannasam-
bandsins.
„Ég hefði ætlað að ráðherra gæti
tekið það skref að afskrifa þetta app-
arat, sem Verðlagsráð er, með öllu.
Hins vegar geri ég mér ljóst aö það
þarf að vera einhver reiknistofnun
starfandi sem getur fylgst með mörk-
uðum og öðru slíku til að menn hafi
einhverja tilfinningu fyrir þróun
verðlags. Að vísu höfum við fisk-
markaöina sem vog í því en það má
kannski segja að það sé ekki nægjan-
legt.
Ég tel að tillaga ráðherra að meiri-
hluti geti ákveðið frjálst fiskverð ein-
faldi ekki á neinn hátt störf Verðlags-
ráðs.
í Verðlagsráöi eru jafnmargir full-
trúar fiskseljenda og fiskkaupenda
og hingaö til hefur það sýnt sig að
menn binda trúss sitt hver við annan
meö tilliti til hagsmuna hverju sinni.
Því sé ég ekki neinn flöt á því að það
geti myndast minnihluti eða meiri-
hluti í ráðinu.
Þá er það sem koma skal sam-
kvæmt hugmyndum ráðherra að þaö
sé hægt að taka þessa ákvörðun í
yfirnefnd Verðlagsráðs. Nefndin er
þannig skipuð að þar eru tveir full-
trúar fiskkaupenda og tveir fulltrúar
fiskseljenda. Síðan kemur putti ríkis-
valdsins sem er fulltrúi Þjóðhags-
stofnunar og er hann oddamaður
nefndarinnar. Hann getur ákveðið
fijálst fiskverð eður ei í krafti odda-
aðstöðu. Það líst mér ekki á,“ segir
Óskar.
LÍÚ sammála ráðherra
„Við tökum undir tillögu ráðherra
að taka það skref að einfaldur meiri-
hluti í Verðlagsráði geti ákveðið
fijálst fiskverð," segir Jónas Har-
aldsson hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna.
„En það vantar hinn hlutann í til-
lögurnar, þann sem snýr að kaup-
endum og seljendum. Við verðum að
komast að samkomulagi um að hafa
samskiptareglurnar í lagi til aö það
myndist ekki verðlagsráösverð um
borð í hverju skipi þar sem handafli
hefur gjarnan verið beitt við að knýja
fram fiskverð. Það þarf að setja ein-
hverjar reglur um hvernig eigi að
standa að fijálsu fiskverði svo hægt
sé að koma því á,“ segir Jónas.
Leggja niöur
yfirnefnd
„Ég er hlynntur því að leggja niður
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins og minnka þar af leiðandi
afskipti hins opinbera af fiskverðs-
ákvörðunum. Fiskmarkaðirnir eru
farnir aö hafa svo mikil áhrif á fisk-
verð að þaö má segja að það sé að
hluta til fijálst í dag,“ segir Amar
Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva.
„Það þarf hins vegar að vera til
eitthvert viðmiðunarverö. Það er að
segja grunnverð Verðlagsráðs.
Grunnverðið þarf að vera til staðar
í einhvern tíma enn.
Ég vil byija á því aö leggja niður
yfirnefnd og ég er sammála því að
það þurfi einfaldan meirihluta til
ákvaröanatöku í ráðinu. Hins vegar
sé ég ekki að það geti gerst i einu
stökki að leggja niður Verölagsráð,
það þarf að vera til áfram svo hægt
sé að ákveða grunnverð á fiski,“ seg-
ir Arnar.
Rétt að fara varlega
„Ég tel rétt að fara varlega í því að
leysa upp Verðlagsráð. Afstaða okk-
ar er sú að það séu engin efni til að
hrófla við þessu verðlagningarkerfi
að neinu verulegu leyti,“ segir Lárus
Jónsson, formaður Félags rækju- og
hörpudisksframleiðenda.
„í rækju og hörpudiski eru allt aör-
ar aðstæöur en almennt gerist í botn-
fisksvinnslunni. Það em engir þró-
aðir markaðir til fyrir þessar afurðir.
Það eru allt önnur eignatengsl milli
þeirra sem eiga fiskiskipin og þeirra
sem eiga vinnsluna. Þannig að þaö
eru einfaldlega misjafnar aðstæður
eftir greinum. Það þarf tíma til að
þróa kerfi frjálsrar verðmyndunar
sem menn era að þreifa sig áfram í
nú.
Hugmynd ráðherra um að einfald-
ur meirihluti nægi til verðákvarðana
í ráðinu eykur líkurnar á því að fisk-
verð verði gefið frjálst. En samt sem
áður er ekki verið aö leggja þetta ráð
af sem menn hafa notað sem viðmið-
un á fiskverði. Fiskmarkaðirnir eru
einu staðirnir sem hafa ekki tekið
neina viðmiðun af verðlagsráös-
verði, allir aðrir hafa gert það. Menn
hafa því veriö að borga mishátt verð
fyrir fiskinn," sagði Lárus.
-J.Mar