Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Page 6
6,
Fréttir
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991.
Týndu Þjóðverjamir tveir gáfu sig fram 1 gærkvöldi:
Skátamir iqjog dular-
fullir við yf irheyrslur
- spurðust fyrir um ferð til Loðmundarfj arðar, segir lögreglan
Þýsku skátarnir tveir, 17 og 18 ára,
sem leitaö hefur veriö um helgina
gáfu sig fram hjá lögreglunni á Egils-
stöðum skömmu eftir kvöldmat í
gærkvöldi:
„Þetta er afar dularfullt allt saman.
Þeir segjast hafa verið í tjaldi við
Lagarfljót, um tvo kílómetra frá Eg-
ilsstöðum," sagði sagði Úlfar Jónsson
lögregluvarðstjóri á Egilsstöðum í
samtali við DV í gærkvöldi. „Við eig-
um eftir að rannsaka þetta mál niður
í kjölin. Það eru allt of margir lausir
endar í þessu. Strákarnir verða mjög
skrýtnir þegar þeir eru spurðir um
ferðir sínar - hvað þá um hvort for-
eldrar þeirra gáfu þeim leyfi til að
fara í ferð til íslands. Þessir strákar
eru mjög sóðalegir í umgengni og illa
lyktandi og þeir líkjast ekki skátum
að því leyti. Þar sem þeir tjölduðu
við Lagarfljót var allt fullt af plast-
pokum og rusli í kringum þá,“ sagði
Úlfar. Skátarnir tveir eru-í sjö manna
hópi sem átti pantað far með Norr-
ænu á fimmtudag.
Lentu í hrakningum
á Fjarðarheiði
Þegar framangreindir tveir Þjóð-
verjar, sem eru 17 og 18 ára, gáfu sig
fram í gærkvöldi hafði ekkert sést til
þeirra með vissu frá því á miðviku-
dag. Fimm drengir úr sama hópi, 12
-14 ára og 19 ára umsjónarmaöur
þeirra, komu fram um það leyti en
þeir voru síðan settir í umsjá björg-
unarsveitarinnar á Egilsstöðum sem
sér þeim fyrir húsnæði og fæði.
ÚJfar sagði að kona á Seyðisfirði
hefði gefið lýsingu um helgina sem
gat komið heim og saman við tví-
menningana. Sagði hún af ferðum
pilta sem voru að spyrjast fyrir um
ferð til Loðmundarfjaröar. „Þessu
haröneita Þjóðverjarnir," sagði Úlf-
ar. Bílstjóri tók einnig, að því er virð-
ist, sömu pilta upp í bíl til sín á
fimmtudag. Þeir piltar höfðu villst í
þoku uppi á Fjarðarheiði á leið til
Egilsstaða. Komu þeir niður hjá
skíðalyftu þeirra Austfirðinga. Þeim
var síðan ekið aftur til Seyðisfjarðar.
Við þetta vildu skátarnir heldur ekki
kannast þrátt fyrir að lýsingum beri
alveg saman við þá.
Annar bílstjóri tók piltana upp í
bíl sinn á miðvikudag skammt frá
Grenisöldu. Hann ók þeim síðan til
Egilsstaða og lét þá út við söluskála.
Við þessar upplýsingar var stuðst við
við leitina. í gærkvöldi kom á daginn
aö piltarnir fóru einmitt með þessum
bíl til Egilsstaða eftir að hafa orðið
viðskila við félaga sina.
Illa útbúnir og tortryggnir
Fyrsta tilkynning til lögreglu um
ferðir drengjanna sjö kom aðfaranótt
föstudags. Guðborg Jónsdóttir. á
Skriðuklaustri hafði þá haldið uppi
spurnum um þá síðan á þriðjudag.
Síðan höfðu þeir hvergi komiö fram.
Frá Skriðuklaustri fóru sjömenning-
amir seint á mánudagskvöld og ætl-
uðu þeir yfir heiðina inn á Jökuldal.
„Þeir yngstu komu hingað á bæinn
á mánudag og spurðu um næstu
verslun," sagði Guðborg við DV.
„Hinir húktu úti viö girðingu langt
frá. Þar sem engin verslun er hér í
nágrenninu tók ég allt sem ég átti
úr búrinu, lagði það á borðið og bauð
þeim að taka þaö sem þeir þyrftu.
Þeir tóku ýmislegt og borguðu mér
tvö þúsund krónur. Mér fannst þeir
fremur illa klæddir, bara í þunnum
skyrtum og stuttbuxum. Ég hálfvor-
kenndi þeim því þeir litu varla út
fyrir að vera eldri en tíu ára sonur
minn. Því bauð ég þeim í kvöldmat
með okkur áður en þeir legðu upp á
heiðina. Þeir komu aftur um sjöleytið
og stoppuðu í tvo tíma. Þeir báðu
mig að taka umbúðirnar af matnum.
Af umbúðunum að dæma höfðu þeir
borðað næstum allt sem þeir fengu
fyrr um daginn, nema gijón og
súpu,“ sagði Guðborg. „Ég spjallaði
viö þá á ensku sem þeir kunnu svona
Höggmyndagarður var formlega opnaður á Viðistaðatúni í Hafnarfirði síðastliðinn laugardag. Garðinn prýða verk sem erlendir og innlendir listamenn unnu
í Straumi í maí og júní og gáfu þeir Hafnarfjarðarbæ öll verk sin. Nemur andvirði gjafarinnar tugum milljóna króna. -DV-mynd S
Strandasýsla:
Sameining tveggja
hreppa fyrirhuguð
Miöbærmn:
Gangandi
vegfarandi
varðfyrir
vélhjóli
Gangandi vegfarandi varð fyrir
vélhjóli á mótum Pósthússtrætis
og Hafnarstrætis um þrjúleytið
aðfaranótt laugardags. Hjólinu
var ekið á lítilli ferð. Ökumaður
slapp óskaddaöur en vegfarand-
inn var fluttur á slysadeild. Hann
reyndist ekki míkið slasaður og
fékk að fara heim að skoðun lok-
inni. -JJ
„Það er á döfinni að sameina tvo
hreppa sunnan til í sýslunni, Óspaks-
eyrarhrepp og Fellshrepp,“ sagði
Einar Magnússon, oddviti Óspaks-
eyrarhrepps, er DV hafði samband
við hann í gær.
Ástæða fyrirhugaðrar sameiningar
er mannfæð í hreppunum en í
Óspakseyrarhreppi búa nú aðeins 44
íbúar. Samkvæmt íslenskum lögum
verða íbúar hreppa að vera 50 og er
íbúatala hreppsins því komin niður
fyrir leyfileg mörk. Er miðaö við þá
sem lögheimili eiga á staðnum.
„Eftir sameiningu verða íbúar um
100 og hrepparnir fá nýtt nafn sem
ekki hefur verið tekin ákvörðun um
ennþá. Stefnt er að því að þetta verði
framkvæmt um áramótin en það er
þó ekki vissa fyrir því enn sem kom-
ið er,“ sagði Einar.
Eftir sameiningu verður efnt til
kosninga og valin ný sveitarstjórn.
-tlt
hrafl í. Yngstu strákarnir voru ákaf-
lega kátir, hlógu og skríktu, en út
úr þeim eldri togaðist varla orð. Það
var engu likara en þeir tortryggðu
mig,“ sagði Guðborg. -JJ
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN óverdtr.
Sparisjóðsbækurób. 5-6 Ib.Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 5,5-9 Sp
6mán. uppsögn 6,5-10 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-3 Sp
Sértékkareikningar 5-6 Lb.lb
VISITOLUB. REIKN.
6mán. uppsögn 3-3,75 Sp
15-24 mán. 7-7,75 Sp
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar í SDR6.5-8 Lb
Gengisb. reikningar í ECU 8,7-9 Lb
ÖBUNDNIR SÉRKJARAR.
Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Bb
överðtr. kjör, hreyfðir 12-13,5 Sp
SÉRST. VERÐBÆTUR (innan tímabils)
Vísitölubundnirreikn. 6-8 Lb.lb
Gengisbundir reikningar 6-8 Lb.lb
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Vísitölubundin kjör 6-8 Bb
óverðtr. kjör 15-16 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandarikjadalir 4,5-5 Lb
Sterlingspund 9.25-9.9 SP
Vestur-þýsk mörk 7,5-9,25 Lb
Danskarkrónur 7,5-8,1 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
útlAn óverðtr.
Almennirvíxlar(forv.) 18,5 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 18,5-19,25 Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) ÚTLÁN VERÐTR. 21,75-22 Bb
9.75-10.25 Lb.Bb
AFURÐALÁN
Isl.krónur 18-18.5 Ib
SDR 9,7-9.75 Sp
Bandaríkjadalir 7,8-8,5 Sp
Sterlingspund 13-13,75 Lb.Sp
Vestur-þýsk mörk 10,5-10,75 4.9 Bb
Húsnæðislán
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,0
MEÐALVEXTIR
Alm. skuldabréf júlí 18,9
Verðtr. lán júlí 9.8
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júlí 3121 stig
Lánskjaravisitalajúli 3121 stig
Byggingavisitala júlí 595 stig
Byggingavisitala júlí 185.9 stig
Framfærsluvísitala júnlí 156,0 stig
Húsaleiguvísitala 2,6% hækkun 1. júlí
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,727
Einingabréf 2 3,077
Einingabréf 3 3,756
Skammtímabréf 1,912
Kjarabréf 5.647
Markbréf 3,018
Tekjubréf 2,130
Skyndibréf 1,676
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,762
Sjóðsbréf 2 1,908
Sjóðsbréf 3 1,908
Sjóðsbréf 4 1,667
Sjóðsbréf 5 1,151
Vaxtarbréf 1,9545
Valbréf 1,8292
Islandsbréf 1,200
Fjórðungsbréf 1,109
Þingbréf 1,199
Öndvegisbréf 1.183
Sýslubréf 1,214
Reiðubréf 1,170
Heimsbréf 1,109
HLUTABRÉF
Sölu-'og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,10 - 6,40
Ármannsfell hf. 2,38 2,50
Eimskip 5,63 5,85
Flugleiðir 2,40 2,49
Hampiöjan 1,85 1,94
Hlutabréfasjóður VlB 1,03 1,08
Hlutabréfasjóðurinn 1,63 1,71
Islandsbanki hf. 1,64 1,72
Eignfél. Alþýðub. 1,66 1.74
Eignfél. Iðnaðarb. 2,40 2,50
Eignfél. Verslb. 1,74 1,82
Grandi hf. 2,62 2,72
Olíufélagið hf. 5,45 5,70
Olís 2,15 2,25
Skeljungur hf. 6,00 6,30
Skagstrendingur hf. 4,70 4,90
Sæplast 7,20 7,51
Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05
Utgerðarfélag Ak. 4,51 4,65
Fjárfestingarfélagið 1,35 1.42
Almenni hlutabréfasj. 1,10 1.15
Auðlindarbréf 1,02 1,07
Islenski hlutabréfasj. 1.07 *. 1.12
Síldarvinnslan, Neskaup. 2,90 3,06
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.