Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Page 19
MÁNUDAGUR 15. JÚLl 1991. 3,
. i T i . . .III II .mi/l________________________________________________________________________________________
dv Fréttir
A stuttbuxum í Kerlingarfjöllum
„Blíðan vel við hæfi á 30 ára afmælinu,“ segir Valdimar Ömólfsson skíðakennari
Veðurblíóan kom skiðamönnum til
að fækka fötum svo að um munaði.
Mátti sjá léttklætt fólk af öllum
stærðum og gerðum bruna niður
brekkurnar.
aldri í kennslu, stórir og smáir sam-
an í hóp. Tekið er allt niður í íjög-
urra ára í kennsluna svo að maður
þarf ekki aö vera hár í loftinu til að
fá að vera með.
Það var átak að hætta þegar lyft-
urnar lokuðu og mikið hefði verið
gefið fyrir að vera lengur. En allt
tekur enda og þreyttir, sólbrúnir og
sæhr skíðamenn gengu heim að
loknum degi.
Ekki var þó öll nótt úti enn því eft-
ir bað í heitri laug og góða máltíð var
haldið á kvöldvöku með „Kalla
kokki“ og vinum hans. Var stiginn
dans langt fram eftir kvöldi og áttu
menn mislangan svefn að baki þegar
mæting var á skíöi aftur klukkan tíu
morguninn eftir.
-tlt
„Ég þarf ekkert að vera fullorðin til
að kunna á skíði,“ gæti þessi litla
fjögurra ára hnáta verið að segja.
Reyndar var hún mjög góð skíða-
kona og renndi sér af einstakri list
niður stærstu brekkurnar.
DV-myndir tlt
Stund milli stríða. Eyjólfur Kristjánsson, söngvari og skíðakappi, tekur sér örstutt frí frá kennslunni og nýtur blið-
unnar.
„Það þurfti að smala í ferðirnar
fyrstu 10-15 árin vegna þess hversu
lítið íslendingar fóru á skíði. Vin-
sældir hafa smáaukist og nú horfir
öðruvísi við. Eiga fjöllin sér stöðugt
stærri hóp aðdáenda. Er það ekki
síst þeim að þakka sem byggt hafa
upp starfsemina en sama fólkið kem-
ur aftur og aftur sem er geysilegur
stuðningur fyrir skólann. Alhr sem
koma fá bakteríuna."
Og það er ekki erfitt að smitast illi-
lega af þessari ljúfsáru pest þegar
sóUn skýtur geislum sínum yfir mik-
Ufenglegt landslagið og vindurinn
hvín í eyrum þegar brunað er niður
brekkurnar.
MikU natni er lögð í kennsluna en
hún er undirstaðan að námskeiða-
haldinu. Getur fólk á hvaða aldri sem
er komið og notið leiðsagnar.
„í fyrra var hér 72 ára maður sem
aldrei hafði stigið á skíði fyrr,“ sagði
Örnólfur, „og þegar hann fór var
hann orðinn nokkuð klár.“ Ekki var
hægt að rengja þessi töluðu orð því
í brekkunum var að sjá fólk á öllum
Stuttbuxur, sólarkrem í andUti og
hálfnaktir kroppar er það sem fyrir
augu ber á sólarströnd og því er
hætt við að maður rugUst í ríminu
þegar menn bera skíði og viðeigandi
búnað á fótum sér í sömu andrá. Um
helgina brá hins vegar fáum við slíka
sýn í Kerlingarfjöllum og þótti hún
bara mjög eðlileg og engin furða því
að í 20 stiga hita getur verið erfitt
að klæðast hefðbundnum skíðafatn-
aði.
„Þessi blíða er vel við hæfi á 30 ára
afmælinu okkar,“ sagði Valdimar
Örnólfsson en um þessar mundir eru
þrír tugir ára síðan fyrsta ferðin var
skipulögð í Kerlingarfjöllin. Var það
skemmtiferð og þá' gist í skála Ferða-
félagsins.
Langisandur á Akranesi stendur undir nafni:
Hundruð manna í
sól- og sjóböðum
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Akurnesingar hafa undanfarna
daga upplifað stemningu sem varla
á sinn líka í sögu bæjarins, að
minnsta kosti ekki um langt árabil.
Dag eftir dag hafa hundruð manna
notið sólar og sjávar á Langasandin-
um, einhverri fallegustu strönd á
landinu, í steikjandi hita. Sjórinn
hefur verið volgur þegar líða tekur á
daginn og margir hafa lagst til sunds.
Flestum, sem rætt er við, ber sam-
an um að sá fjöldi fólks sem sótt hef-
ur sandinn undanfarna daga eigi sér
enga hliðstæðu. Og það eru ekki bara
Akurnesingar sem hafa nýtt sér
þessa glæsilegu aðstöðu, innlendir
og erlendir feröamenn hafa sótt hana
í nokkrum mæli.
Þórdís Arthursdóttir, ferðamála-
1 ■
gl|||JfgÍjj
Halda mætti að myndin væri tekin á erlendri sólarströndu en svo er þó ekki. Langisandur heitir þessi vinsæli
staður og hafa margir notið veðurblíðunnar í sandinum siðustu daga.
Það er skemmtilegt að grafa sig ofan í heitan sandinn. Fáir krakkar hafa
þó haft tækifæri til að stunda slíkt á íslenskri sólarströnd til þessa.
DV-mynd SS
fulltrúi Akraneskaupstaðar, sagði
erfitt að henda nákvæmar reiður á
hversu margir ferðamenn heföu
komið til bæjarins til þess eins að
njóta aðstööunnar á Langasandi.
Hún sagðist þó hafa vissu fyrir því
að nokkuð hefði verið um það og
höfuðborgarbúar tækju sér far með
Akraborginni til þess að fara í sólbað
á sandinum.