Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Page 17
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991.
17
Fréttir
Sauðárkrókur:
Góður árangur í öllum flokkum
BrynjarM. Valdimarss.,DV-ökuleikiii '91:
Ökuleikni fór fram í ágætu veðri
við Skagfirðingabúð þar sem mætt-
ir voru fjölmargir keppendur og
áhorfendur. Keppnin hófst með því
að keppendur í ökuleikni svöruðu
spurningum á meðan bömin hjól-
uðu.
Keppni var hörð í ökuleikni og
hefði svo til hver einasti keppandi
getað lent i efstu sætunum. Að lok-
um sigraði þó Bergur Aðalsteins-
son í karlariðli með 128 refsistig,
þá kom Rúnar Gíslason með 143
refsistig og strax á hæla honum
kom Árni Jónsson með 148 refsi-
stig.
Kvennariðil vann Halla Guð-
mundsdóttir með 168 refsistig, á
hæla hennar kom Katrin M. Andr-
ésdóttir með 176 refsistig og þá kom
Jódís Einarsdóttir með 183 refsi-
stig. Riðil byrjenda vann Sigurður
Ingi Ragnarsson naumlega með 194
refsistig, á hæla hans kom Ægir
Arnarson með 198 refsistig og þriðji
varð Jónas Rafn Tómasson með 226
refsistig.
Árangur keppenda í hjólreiðum
var ekki síður góður en þar sigraði
í eldri riðli Kristinn Traustason
með 43 sek. í brautinni og enga
villu, næstur kom Örvar Pálmason
með 55 refsistig og Hólmar Sigurðs-
Verðlaunahafar í hjólreiðakeppni á Sauðárkróki.
son var aðeins einu refsistigi neðar
með 56 stig og lenti í þriðja sæti.
Yngri riðil vann Atli Björn E.
Levy með 59 refsistig, fast á hæla
hans kom Kristinn Tóbías Björg-
vinsson með 64 refsistig og með
aðeins þrem stigum minna var
Árni Ragnar Steindórsson með 67
refsistig.
Gefandi verðlauna í ökuleikni
var bílaverkstæði KS.
Ökuleikni 1 Búðardal:
Munaði einu stigi
í hjólreiðakeppni
Brynjar M. Valdirnarsson, DV-ökuleikni '91:
Hörð keppni var í eldri riðh á milli
þeirra Inga Magnússonar og Magn-
úsar Kristjánssonar sem lauk með
því að Ingi sigraði naumlega með 57
refsistigum en Magnús fékk 58 refsi-
stig; þriðji var síðan Kristján Magn-
ússon með 73 refsistig. í yngri riðli
sigraði Andrés Magnússon með 109
refsistig, fast á eftir kom Guðmundur
Bergmann Bjarkason með 112 refsi-
stig og þriðji varö Vigfús Baldvin
Heimisson með 115 refsistig.
Unnsteinn Árnason sigraði örugg-
lega í karlariðli ökuleikninnar með
108 refsistig en annar varð Ketilbjörn
Benediktsson meö 134 refsistig, þá
kom Aðalsteinn Rúnar Jörundsson
með 145 refsistig. í kvennariðli sigr-
aði Margrét Jóna Ragnarsdóttir með
138 refsistig og önnur var Hugrún
Reynisdóttir með 191 refsistig. í riðli
byrjenda sigraði Gunnar Sæmunds-
son með 157 refsistig, Sveinbjörn Ól-
afur Sigurðsson var í öðru sæti með
192 refsistig og þá kom í þriðja sæti
Jóhanna S. Ámadóttir með 216 refsi-
stig.
Umboðsmenn Vátryggingafélags
íslands og Sjóvá-Almennra í Búðard-
al, Dalakjör og Svanur Hjartarson
vöruílutningar gáfu verðlaun.
Unnsteinn Arnason sigraði í ökuleikni í Búðardal á Mözdu 323.
Ökuleikni á Hólmavík:
Ökuleikni eftir
nokkurt hlé
Svanhildur Jónsdóttir, sigurvegari í kvennariðli á Hólmavík.
Brynjar M Valdimarss., DV-okuleikiii ’91:
Ökuleikni fór fram á Hólmavík
eftir að hafa fokið út í veður og
vind í orðsins fyhstu merkingu fyr-
ir nokkrum ámm. Að þessu sinni
sigraði Svanhildur Jónsdóttir með
190 refsistig en móðir hennar, Ás-
dís Jónsdóttir, var með 207 refsi-
stig. Karlariðil vann Halldór Jóns-
son með 132 refsistig, á eftir honum
kom Jón Gísh Jónsson með 161
refsistig og þriðji varð Karl Þ.
Bjömsson meö 170 refsistig.
Hjólreiðakeppnin var nokkuð
erfið þar sem keppt var á malar-
plani með lausamöl. Þrátt fyrir það
var árangur keppenda góður. Eldri
riðil vann Guðmundur Þórðarson
með 61 refsistig, þá kom Hjálmar
Guðbjörnsson í öðru sæti með 106
refsistig og í því þriðja varð síðan
Kristján Borgar Samúelsson með
122 refsistig. Yngri riöil vann Agn-
ar Már Kristinsson með 112 refsi-
stig, Aöalheiður Guðbjömsdóttir
varð önnur með 127 refsistig og
þriðja varð Ásthildur Jóna Böð-
varsdóttir með 144 refsistig.
Gefandi verðlauna var Kaupfélag
Steingrímsfjarðar, Búnaðarbanki
íslands og Hólmavíkurhreppur.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINW
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
GRÆNi
SfMINN
-talandi dæmi um þjónustu!
DV
DV