Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 32
44 MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ1991. Afmæli Elías Jóhannesson Elías Jóhannesson húsasmíða- meistari, Skarðsbraut 9, Akranesi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Elías fæddist á Akranesi og ólst þar upp og hefur hann dvalið á Akranesi allan sinn aldur. Á ungl- ingsárunum vann hann ýmis störf, við byggingarvinnu og fleira. Hann hóf síðan nám í húsasmíði hjá Akra- neskaupstað en sveinsprófi lauk hann 1964. Elías starfaði hjá Akra- neskaupstað 1960-1975, hjá Húsverk hf. 1976-1977. við byggingu ísl. járn- blendiverksmiðjunnar 1977-1979. Elías hefur síðan starfað hjá ísl. járnblendifélaginu síðan 1979 sem ofngæslumaður. Elías er félagi i Lionsklúbbi Akra- ness. er stjórnarmaður í Golf- klúbbnum Leyni á Akranesi og hef- ur setið i stjórn íþróttabandalags Akraness. Fjölskylda Elias kvæntist 8.5.1965 Dröfn Ein- arsdóttur, f. 19.9.1945, starfsstúlku á dagheimli. Foreldrar hennar eru Einar Magnússon, f. 26.8.1917 á Flat- eyri, d. 28.12.1971, sjómaður og Elín Elíasdóttir, f. 20.2.1920, á Akranesi, húsmóðir. Sonur Elíasar og Drafnar er Jó- hannes, f. 7.7.1967, hárskeri. Systkini Elíasar eru: Pétur Stein- ar, f. 6.8.1942. múrarameistari á Akranesi; Guðrún, f. 26.6.1944, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík; Dagbjartur, f. 25.10.1946, blikksmið- ur í Reykjavik; Ómar Þór, f. 29.4. 1948, blikksmiður á Akranesi; Elísa- bet, f. 18.3.1951, kennari á Akra- nesi; Jóhanna Guðborg f. 17.7.1954, húsmóðir á Akranesi; Hafsteinn, f. 31.10.1952, verkamaðurá Akranesi. Foreldara Eliasar eru Jóhannes Jónsson, f. 3.6.1917, d. 18.8.1985, bakarameistari og Guðborg Elías- dóttir. f. 5.4.1920. húsmóðir. Þau bjugguáAkranesi. Ætt Jóhannes var sonur Jóns Péturs- Elías Jóhannesson. sonar og konu hans, Guðrúnar Jó- hannesdóttur. Jón var lengst af vigt- armaður á Akranesi Guðborg var dótttir Elíasar Borg- arssonar, bónda á Tyrðilmýri á Snæfjallaströnd, en síðar verka- manns á Akranesi, og konu hans, Elísabetar Hreggviðsdóttur. Elías verður að heiman á afmælis- daginn en tekur á móti gestum síðar. Ólína Kristín Jónsdóttir Ólína Kristín Jónsdóttir. Miðhusum í Reykhólahreppi. er sextug í dag. Starfsferill Ólina er fædd í Reykjavik og ólst þar upp. Hún flutti árið 1939, þá átta ára. með foreldrum sínum í Reyk- hólasveit. Hún hóf búskap að Mið- húsum í sömu sveit 1956 og hefur búið þar síðan. Að barnaskóla loknum stundaði hún nám í sérskólum. Síðast í Tón- listarskóla Þjóðkirkjunnar og að því loknu í Húsmæðraskóla Hveragerð- is. Hún hefur sótt tónlistarnámskeið baeði innanlands og í Evrópu. Ólína hefur starfað við ýmis fjöl- breytt störf. Hún fór til Danmerkur og dvaldi í Kaupmannahöfn og vann í einu stærsta tískuverslunarhúsinu þar í borg. Hún kynnti sér einnig hótelstörf og vann um tíma á hóteli í Kaupmannahöfn. Ólína er kirkjuorgelleikari í Reyk- hólaprestakalli og hefur stundað tónlistarkennslu. Hún starfaði í kvenfélaginu Liljunni og var for- maður þess um tíma. Fjölskylda Ólina giftist, í ágúst 1955, Sveini Guömundssyni, kennara og bónda, frá Norðfirði. Foreldrar hans voru Stefanía Jónsdóttir og Guðmundur Sveinsson. Þau bjuggu lengst af á Kirkjubóli í Norðíjarðarsveit. Börn Ólínu og Sveins eru: Jón, f. 1955, sjóliðsforingi og markaðsfræð- ingur að mennt. Guðmundur, f. 1957, d. 1974. Ingibjörg, f. 1960, hjúkr- unarfræöingur. Þrymur, f. 1966, búfræðingur. Guðmundur, f. 1976, nemi. Ólína á þrjú hálfsystkini, sam- feðra, þau eru: Fjóla, Ólafur og Vil- borg. Foreldrar Ólínu eru Jón Daðason, f. 1899, d. 1977, frá Dröngum á Skóg- Ólína Kristín Jónsdóttir. arströnd, og Ingibjörg Ámadóttir, f. 1897, d. 1991, frá Kollabúðum í Reykhólasveit. Ólína verður að heiman á afmæl- isdaginn. Andlát Jón Finnur Kjartansson, Laugarnes- vegi 110, lést lO. júlí. Jarðarfarir Útfór Öldu Björnsdóttur, sem lést 7. júlí, fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 14. Þuríður Guðjónsdóttir, Ljósaklifi, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 13.30. Útfór Agnars Eylands Halldórssonar, Njörvasundi 5, fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 15. Útfor Þorgríms Kristinssonar, fyrr- verandi bifreiðarstjóra, Sörlaskjóli 17, Reykjavík, sem lést 8. júlí, verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 15. Útför Þóru Guðmundsdóttur ljós- móður, Fellsmúla 22, Reykjavík, fer •fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 16. júlí kl. 13.30. Ásdís Þórðardóttir, Hegranesi 24, Garðabæ, sem andaðist í Landspítal- anum 7. júli, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. júlí kl. 13.30. Elínborg Dagmar Sigurðardóttir, Hamraborg 38, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 10.30. Gunnar Ásgeirsson stórkaupmaður, Efstaleiti 14, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. júlí kl. 15. Útför Agnars Eylands Halldórssonar, Njörvasundi 5, fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 15. Arthur Sigurbergsson, Markarflöt 55, Garðabæ, sem lést 5. júlí sl., verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. júlí kl. 13.30. Jarö- sett verður að Görðum, Álftanesi. Guðrún M. Kristjánsdóttir verður jarðsungin í dag, 15. júlí, kl. 13.30 frá Kópavogskirkju. Einar Eðvaldsson, Gyðufelli 10, verö- ur jarðsunginn frá Fella- og Hóla- kirkju í dag, 15. júlí, kl. 13.30. Tónleikar Tónleikar í Norræna húsinu Hallfriður Ólafsdóttir, flautuleikari og Atalia Weiss, sembal- og píanóleikari, halda tónleika í Norræna húsinu mið- vikudaginn 17. júlí kl. 20.30. Hallfríður stundaði nám í flautuleik hjá Bemharði S. Wilkinson við Tónlistarskóla Kópa- vogs og síðar tónlistarskólann í Reykja- vik og lauk einleikaraprófi þaðan 1988. Hallfríður fór þá til framhaldsnáms við Royal Northern College of Music, Manc- hester og ári seinna við Royal Academy of Music, London. Þar hefur hún verið undir leiðsögn William Bennett sl. tvö ár og útskrifast með Diploma of Advanced Studies. Atalia stundaði nám í píanóleik hjá Hadasah Gonen við Ruben tónlistar- háskólann í Tel-Aviv. Þaðan útskrifaðist hún með B.Mus.-gráðu og hélt fjölda tón- leika í skólanum og víða um ísrael. Atal- ia er nú í framhaldsnámi frá Franck Wibaut við Royal Academy of Music, London og mun ljúka M.Mus.-gráðu það- an nk. haust. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach, Brahms, Messiaen, Pou- lenc, Sancan og Schubert. Tilkyruiingar Sumarhótel í Bifröst í Borgarfirði Hótel Bifröst í Borgarfirði var opnað formlega 15. júní sl. og verður það starf- rækt sem sumarhótel fram til 27. ágúst. Hótelið, sem er rekið af Samvinnuferð- um-Landsýn, er í svipuðum verðflokki og Edduhótelin. Hótelstjórar em Þóra HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ Sumarnámskeið í hraðlestri hefst á morgun, þriðju- daginn 16. júlí nk. Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma? Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir námið í haust? Nú er tækifæri fyrir þá, sem vilja margfalda lestrar- hraða sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturna. Skráning í síma 641091. HRAÐLESTRARSKÓLINN JE 10 ÁRA 2S Myndgáta Lausn gátu nr. 77: Svefnpoki Brynjúlfsdóttir og Sigþrúður Jónasdóttir. 26 tveggja manna herbergi em í hótelinu, 8 með baði og einnig er hægt að fá svefn- pokagistingu fyrir einstaklinga og hópa. Boðið er upp á sérrétta- og barnamatseð- il auk þess sem hægt er að fá rétt dagsins í hádeginu og á kvöldin. Þá er boðið upp á kalt borð alla sunnudaga i sumar frá kl. 18-22. Á fimmtudagskvöldum er boðið upp á kráarstemmingu. Tombóla Nýlega héldu þessir krakkar sem heita Valdís María Emilsdóttir, Karen Emils- dóttir, María Anna Ámadóttir, Katla Jónsdóttir, Örvar Jónsson, Erla Dís Am- ardóttir og Ragna Landro tombólu til styrktar Rauöa krossinum, hinum hungraða heimi. Alls söfnuðu þau kr. 3.430.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.