Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1991, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1991, Síða 1
Audi 80 endurbættur og stærri: Núna með betra far- angursrými Eftir tæplega sjö ára tilveru er komið að því að Audi 80 fái endur- bætur og það meiri en eru sjáanlegar við fyrstu sýn. Það sem grípur að vísu augað er nýtt grill að framan, það sama og raunar sást fyrst á stóra Audi með V8-vélinni. Annað sem ekki sést eins vel er að Audi 80 hefur lengst um 8 sentímetra. Eitt af því sem margir fundu núver- andi Audi 80 helst til foráttu var hve farangursrýmið er í raun lítið og illa formað. Ein aðalástæðan til lélegrar nýtingar á því var að bensíntankur- inn stóð upp á endann á millifarang- ursrýmis og aftursætisins. Var því ekki hægt að leggja bak aftursætisins fram og á þann hátt auka nýtingu farangursrýmisins. Nú er búið að setja nýjan afturás í bílinn og breyta fyrirkomulagi aftur- íjöðrunar svo nú getur bensíntank- urinn legið flatur. Þetta þýðir að í nýja bílnum er hægt aö nýta farang- ursrýmið miklu betur. Hvað vélarnar varðar eru grunn- gerðir Audi 80 með íjögurra strokka tveggja lítra vélar sem gefa 90 og 115 hestöfl eftir búnaði. Næsta skref er fimm strokka 2,3 lítra vél sem gefur 133 hestöfl en í toppgerðinni verður nýja 2,8 lítra V6-vélin, sú sama og nú er í Audi 100. Þessi vél gefur heil 174 hestöfl. Síöasttalda vélin er það aflmikil að með henni er Audi 80 ætlað að standa sig í samkeppni við bæði BMW og Benz á heimavígstöðvunum. Að því er Claus Krems, yfirmaður söludeildar VW og Audi í Evrópu, sagði okkur hér á DV-bílum í síöustu viku er von á þessum nýja Audi 80 á markað strax í kjölfar bílasýningar- innar f Frankfurt í haust, eða nánar tiltekið í október. -JR Claus Krems, sölustjóri VWog Audi í Evrópu: Markaðshlutdeildin skiptir mestu máli - sjá viðtal á bls. 26 Nýr skutbíll frá Audi í burðarliðnum Svo virðist sem Audi sé með nýjan, stóran skutbíl í burðarliðnum fyrir 1992 árgerðina. Þessi frumgerð sást í tilraunaakstri einhvers staðar norðarlega á Norðurlöndum seint í vetur þegar verið var að reyna gripinn í vetrar- akstri. Reiknað er með þvi að þessi nýi bill verði með nýrri 4,2 lítra V8-vél sem verður raunar kynnt á alþjóðlegu bílasýningunni i Frankfurt í haust. Reynsluakstur: Mitsubishi 1200 hálfkassabíll Audi 80 með nýja útlitinu sem birtist í haust. Mest ber á nýja grillinu en minna á því að bíllinn er orðinn átta sentímetrum lengri. LAUGARDAG OG SUPiriUDAG KL. 14-17 Gjörbreyttur og glæsilegur Verð frá kr. 869.000,- stgr. NISSAN SUNNY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.