Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991.
Fréttir
Grandi hf. og Hraðfrystihús Stokkseyrar:
Viðræður að hefjast
samvinnu fyrirtækjanna
- segir Brynjólfur Bjamason, framkvæmdastjóri Granda
„Grandi hf. ritaði stjórn Hrað-
frystihúss Stokkseyrar bréf og ósk-
aði eftir viðræðum um samvinnu við
frystihúsiö. Könnunarviðræður um
þetta mál eru nú að hefjast. Aö okkar
mati er möguleiki á að ná fram hag-
kvæmni í rekstri með þvi að reka
báta til humar- og dragnótaveiða en
togarar Granda myndu veiða meira
af botnfiski og afla síðan verða ekiö
til vinnslu á Stokkseyri,“ segir
Brynjólfur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Granda.
Viðræður um sameiningu hrað-
frystihúsanna á Árborgarsvæðinu,
það er Hraðfrystihúss Stokkseyrar
sem Hlutaíjársjóður á um 77 prósent
hlutafjár í, Meitilsins sem sjóðurinn
á um 50 prósent í og Glettings sem er
í eigu ýmissa samvinnufyrirtækja,
hefur mætt mikilli andstöðu heima-
manna á Stokkseyri.
Sambandið hafði dregið sig út út
viðræðunum fyrr í sumar en hefur
nú hafiö viðræður við stjómir hinna
tveggja frystihúsanna.
„Sambandið var búið að gefa frá
sér hugmyndina um sameiningu
þessara þriggja húsa því það náðist
ekki samstaða innan þeirra raða um
málið. Okkur Stokkseyringum
fannst þvi að við ættum aö fara út í
viöræður við Granda hf. og sjá hvað
þeir vildu gera fyrir okkur. Um þetta
var deilt á fundi sem haldinn var
þann 23. þessa mánaðar,“ segir Jón
Haraldsson sem situr í stjóm Hrað-
frystihúss Stokkseyrar.
„Þegar Sambandið frétti af tilboði
Granda um samvinnu við okkur
snerist því hugur og vildi áframhald-
andi viðræðu'r um sameiningu hús-
anna þriggja. Það er verið að kýla
þetta mál áfram gegn vilja heima-
manna og þeirra sem hafa annast
stjórn Hraðfrystihússins.
Hugur heimamanna beinist ekkert
síður í þá átt að taka upp viðræður
við Granda því okkur finnst að það
sé ekki nein bót að því að sameina
fyrirtækið tveimur öðrum fyrirtækj-
um sem era í slæmum rekstri. Að
okkar mati er miklu fýsilegra að fara
út í samvinnu við fyrirtæki sem er í
bullandi uppsveiflu eins og Grandi
er náttúrlega. Við viljum því skoða
þennan kost vel áður en við verðum
neyddir út í sameiningu við þessi tvö
fyrirtæki," segir Jón.
„Samningaviðræður fyrirtækj-
anna á Árborgarsvæðinu ganga
ágætlega en hægt. Það er verið að
vinna í þessum málum núna. Það
verður í fyrsta lagi um miðjan sept-
ember sem þetta mál getur farið fyr-
ir stjómir fyrirtækjanna þriggja,
stjóm Byggðastjómunar og hlut-
hafafundi," segir Sigfús Jónsson,
formaður stjómar.
„Sambandsmenn vora mjög tví-
stígandi í þessum samningaviðræð-
um um daginn. En þeim var stillt upp
við vegg á kurteislegan hátt og þeir
tóku sér nokkra daga í að skoða þetta
og ákváðu síðan að halda áfram
samningaviðræöum.
Sökum þess hversu Hlutafjársjóð-
ur er stór eignaraðili í Hraðfrysti-
húsi Stokkseyrar ræður stjóm hans
ferðinni í þessum málum."
-J.Mar
Skurðurinn, sem liggur rétt fyrir neðan aðalveginn, er alls óvarinn og fullur af klóaki.
DV-mynd GVA
Innbrotin á Noröurlandi á góðri leið með að upplýsast:
Var viss eftir að ég
las fréttina í DV
- sagði þema í Akraborginni sem afgreiddi grunsamlega menn á mánudag
„Ég sá þessa stráka fyrst þegar ég
var að koma um borð í Akraborgina
klukkan hálfátta á mánudagsmorg-
uninn. Þeir vora fjórir um tvítugt og
greinilega hálíþreyttir. Ég spurði þá
hvort þeir væra að koma langt að.
En það virkaði á þá eins og ég hefði
gefið þeim utan undir. Ég lét það því
vera að spyrja þá frekar, fyrst þetta
var svona viðkvæmt. Nokkra síðar
komu þeir upp í sjoppuna til mín og
báðu mig um að skipta smápeningum.
Sá sem kom sagðist hafa unnið pen-
ingana í spilakössum," sagði Halldóra
Sæmundsdóttir, þema um borð í
Akraborginni, í samtali við DV.
Upplýsingar hennar og stýrimanns
um borð urðu til þess að lögreglunni
bárast vísbendingar um fjóra pilta
sem granaðir era um að hafa brotist
inn á fimm stöðum á Norðurlandi
eftir klukkan eitt aðfaranótt mánu-
dagsins.
Eins og fram hefur komiö í DV
bára þjófarnir um 100 kílóa peninga-
skáp út úr kaupfélaginu í Varmahlíð
Halldóra Sæmundsdóttir var vissum
afi hún hefði séö þjófana eftir að
hun las fréttina IDV. DV-mynd JAK
í Skagafirði, auk þess sem þeir brutu
upp annan slíkan á bifreiðaverk-
stæði á Akureyri. Sömu þjófar era
einnig granaðir um að hafa brotist
inn á tveimur öðram stöðum á Akur-
eýri og hjá söluskála Esso á Blöndu-
ósi. Þeir stálu tugum þúsunda króna,
meðal annars talsverðu af skipti-
mynt og ávísunum. Þjófnaðimir áttu
sér stað eftir klukkan eitt aðfaranótt
mánudagsins. Fjórmenningamir
fóru síðan með fyrstu ferð Akraborg-
ar til Reykjavikur um morguninn.
„Strákamir vora heldur skugga-
legir. Ég sá að þeir vora með mikið
af peningum og klinki á sér. Það var
eins og það væri veisla hjá þeim.
Þegar ég skoðaði svo frétt í DV um
innbrot fyrir norðan var ég viss um
aö strákarnir væra innbrotsþjófam-
ir. Síðan kom í ljós að þeir höfðu
framvísað ávísun sem gefin var út á
bílaverkstæði á Akureyri og þannig
var hægt að rekja hana til stráksins
sem skrifaði nafnið sitt aftan á
hana,“ sagði Halldóra.
Rannsóknarlögregla ríksisins hef-
ur nú mál þetta til meðferðar. Rann-
sóknin er komin á talsverðan rekspöl
og er ljóst um hverja þama var að
ræða. Þeir hafa oft komist í kast við
lögináður. -ÓTT
Matvælaframleiðslukauptúnið Hvolsvöllur:
Klóakinu frá þorpinu
veitt út í opinn skurð
- stendur til að gera úrbætur, segir oddvitinn
„Ástandið á Hvolsvefli hefur verið
algjörlega ófullnægjandi í mörg mörg
ár, eða nánast alltaf. Við höíöum af-
skipti af þessu máli í fyrra en þá
haföi Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
þegar vakið máls á því og krafist
úrbóta," sagði Þórhallur Halldórs-
son, forstöðumaður heilbrigðiseftir-
litsdeildar hjá Hollustuvemd ríkis-
ins.
Það hefur aldrei verið nein rotþró
til staðar á Hvolsvelli heldur hefur
klóakið verið leitt út í opinn skurð
fyrir neðan aðalveginn þar sem það
blasir við gestum og gangandi.
Þá má geta þess að Sláturfélag Suð-
urlands er nú komið með nær alla
sína matvælaframleiðslu til Hvols-
vallar. „Þetta mál er búið að hafa
ansi langan aðdraganda, en svona
kostar auðvitað miklar framkvæmd-
ir og peninga. Sveitprfélög era mjög
mismunandi stödd fjárhagslega og
það sem hefur hamlað framkvæmd-
um fram að þessu hefur ábyggilega
verið fjárskortur," sagði Þórhallur.
Helga Þorsteinsdóttir oddviti segir
að úrbætur standi fyrir dyram.
„Það á að auglýsa útboð á fram-
kvæmdum næsta sunnudag, að
byggja þarna rotþró í haust. Verklok
eiga að vera fyrir 15. nóvember í ár.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og
Hollustuvemd ríkisins hafa verið
með okkur í ráðum um hvaða lausn
sé best og þetta er nú allt farið í gang.
Það má segja að það sé algjör sér-
staða hérna hjá okkur. Við höfum
hvorki sjó né stóra á. Víða í sveitarfé-
lögum hefur klóakið verið leitt beint
út í sjó, eða næstu á, sem er ekki til
staðar hjá okkur.
Hér er það því leitt út í skurð og
það rennur lækur eftir skurðinum
sem náttúrlega þynnir og hreinsar."
Helga sagði að þetta kæmi til með
að verða mjög gott í framtíðinni því
eftir að þessum fyrsta áfanga lyki,
að byggja rotþró meö svokallaðri
syturlögn, væri ætlunin að byggja
þama hreinsistöð eftir 2^4 ár.
„Þegar þeim áfanga lýkur er ekki
til neitt betra en þaö hér á landi,
a.m.k. ekki í dag,“ sagði Helga.
-ingo
Lélegur ísfiskur sendur
héðan á markað í Hull
„Skýringin á því að ísfiskurinn
er ekki jafngóöur í sumar og und-
anfarin ár er hitabylgjan sem gekk
yfir í júní og júlí. Hitinn hafði slæm
áhrif á fisk sem fluttur var á er-
lendan markað beint, svo og þann
fisk sem tekinn var til vinnslu inn-
anlands. Menn juku ekki ísun þó
að hlýnaði í veðri og því hefur fisk-
urinn ekki'verið allt of góður,“ seg-
ir Vilhjálmur Guðlaugsson hjá Rík-
ismati sjávarafurða.
í nýju fréttabréfi Ríkismatsins
kemur fram að á tímabilinu júní
til júlí voru 60 prósent fglensks
fisks, sem seldur var í Hull, dæmd
í fyrsta flokk, 25 prósent í annan
flokk og 15 prósent í þriðja flokk.
Hér er frádæmdur fiskur ekki með-
talinn.
„Menn hljóta að hafa þaö bak við
eyrað að þeir þurfi að ísa meira í
svo hlýju sumri þó að þeir hafi
ekki gert það. Það er til reglugerð
um vigtun afla og þar er miðað við
lágar tölur. Reglugerðin stangast á
við beiðnir okkar um að fiskurinn
sé vel ísaður. Ef fiskurinn er ísaður
of mikið er ísinn vigtaður sem hluti
af aflanum.
Það era engar tölur til um hvern-
ig ísfiskurinn flokkaðist hér á landi
í sumar því það er búið að leggja
niður ferskfiskmat.
Þó að vinnsluaðilar séu ekki
ánægðir með að fiskurinn sé ekki
nógu mikið ísaður eru þeir þó mjög
fáir sem greiða miðaö við gæði
fisksins. Ef hver einasti vinnsluað-
ili flokkaði sinn fisk þegar hann
kæmi og greiddi seljendum fyrir
afurðina eins og hann fær hana
væri meiri þrýstingur á þá að
ganga betur um hráefnið. Auk þess
fengi seljandinn aö vita aö kaup-
andinn hefði ekki verið ánægður.
Það er því miður ekki allt of gott
samband á milli kaupenda og selj-
enda varðandi ástand fisksins þeg-
ar hann berst. Það er í verkahring
vinnslunnar og sjómanna að kippa
þessuíliðinn." -J.Mar