Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991. Bílastúdíó sf. Hjallahrauni 11, Hafnarfirði, sími 653340 Tíl sýnis og sölu I Bílastúdíói sf. Daihatsu Charade CS '87, ek. 40 þús., 4 gíra, blásans. V. 470.000. Lada Safir 1300 '87, ek. 60 þús., beige. V. 220.000. M. Benz 190 E '90, sjálfsk., álfelg- ur, ABS, svart m., topplúga o.fl., ek. 29 þús. V. 3.000.000. M. Benz 230 E '90, sjálfsk., raf- topplúga, ABS, álfelgur o.fl., ek. 33 þús., svart m. V. 3.700.000. Suzuki Sidekick JX-JXL '91, nýir bilar. V. frá 1.600.000. MMC Galant GLSi '89, ek. 50 þús., hvítur, 5 gíra. V. 1.190.000. OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 OG LAUGARDAG 12-17 r á næsta sölustað • Askriftarsimi 62-60-10 Utlönd Umskipti 1 valdabaráttu æðstu manna í Sovétríkjunum: Jeltsín lætur undan síga fyrir Gorbatsjov - aðstoðarmenn hans segja hugmyndir um landvinninga Rússa ýktar Mikhaíl Gorbatsjov og ívan Sílajev, helsti áhrifamaður um skipan efnahagsmála i Sovétríkjunum, bera saman bækur sínar í Æðsta ráðinu I gær. Svo virðist sem Gorbatsjov hafi nú stöðvað framsókn Borís Jeltsín til valda. Simamynd Reuter Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hefur ákveðið að slaka á í sókn sinni til valda á kostnað stjórnarinnar í Kreml. Svo virðist sem yfirlýsingar frá honum um rétt Rússa til að leggja undir sig lönd byggð Rússum í Úkra- ínu og Kasakhstan hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Mál þetta hefur valdið uppnámi í lýðveldunum og Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, áminnti Jeltsín í Æðsta ráðinu í gær um að líka hann yrði að fara eftir stjórnarskránni. Anatolíj Sobsjak, borgarstjóri í Len- íngrad og ákafur stuðningsmaður Jeltsíns, lýsti því einnig yfir að kröf- ur Jeltsíns í þessum efnum ættu eng- an rétt á sér. Jeltsín hefur einnig ákveðið að falla frá fyrri hugmyndum um að Rússland fái yfirráð yfir gjaldeyris- málum alls ríkisins og það kæmi í Rússa hlut að semja um viðskipti með demanta og dýra málma. Þessi mál hafa hingað til heyrt undir stjórnina í Kreml og verða það áfram eftir að erlendir bankamenn létu í ljós í gær áhyggjur sínar yfir að Sov- étríkin stæðu ef til vill ekki við íjár- hagsskuldbindingar sínar. Þótt Jeltsín hafi geíið eftir í þessum málum ræður stjórn Rússlands enn mestu um fyrirhugaðar breytingar á efnahagskerfi Sovétríkjanna. ívan Sílajev, forsætisráðherra Rússlands og náinn samstarfsmaður Jeltsíns, er formaður nýrrar efnahagsnefndar sem gera á tillögur um markaðsvæð- ingu efnahagslífsins á skömmum tíma. Gorbatsjov tók í gær af öll tvímæli um vilja sinn til að segja skilið við gömlu áhrifaöflin í Sovétríkjunum. Æðsta ráðið staðfesti vantraust á gömlu ríkisstjórnina sem í raun hafði verið áhrifalaus frá lokum valdaránsins. Gorbatsjov lýsti því yfir síðasta fostudag að stjórnin yrði öll að víkja. Jafnframt var Borís Pankin skipaður utanríkisráðherra. Hann var seinast sendiherra í Prag og neitaði að hlýða skipunum valda- ránsmanna. Þá réðst Gorbatsjov til atlögu við leyniþjónustuna KGB með því að leysa upp yfirstjórn hennar. Áður hefur forsetinn gert upp sakirnar við kommúnistaflokkinn og herinn. Reuter Janajev var f ullur í valdaráninu Nýjar upplýsingar benda til að Gennadíj Janajev, forseti Sovétríkjanna í þrjá daga, hafi verið fullur allan timann sem hann var við völd. Símamynd Reuter Þegar Gennadíj Janajev, forseti Sovétríkjanna í þrjá daga, var hand- tekinn á skrifstofu sinni í Kreml að loknu valdaráninu reyndist erfið- leikum bundið að vekja hann. Þeir sem fyrstir komu á skrifstofuna segja að forsetinn hafi þá verið dauða- drukkinn og ekki með rænu. Það er blaðamaður, breska blaðsins Gardian sem hefur safnað sögum um lifnað valdaránsmanna þá þrjá daga sem þeir voru við völd. Þar kemur fram að Janajev hafi verið drukkinn þegar völdunum var rænt og augljós- lega langdrukkinn þegar hann var handtekinn. Af þessu hefur verið ályktað að ekki hafi runnið af forset- anum þá þrjá daga sem hann var við völd. Það var Venjamín Jarín, einn að- stoðarmanna Gorbatsjovs, sem fyrst- ur kom að Janajev í Kreml eftir valdaránið. Hann segir svo frá: „Það tók mig langan tíma að vekja Janajev og þegar hann loksins vaknaði þekkti hann mig ekki. Mér virtist sem hann hefði veriö búinn að drekka lengi.“ í blaðinu er vísað í heimildarmenn í Kreml sem segja að bæði Janajev og Valentín Pavlov forsætisráðherra hafi verið drukknir aðfaranótt mánudagsins 18. þegar Vladímír Krjutskov, yfirmaður KGB, kallaði valdaránsmennina saman og gerði þeim grein fyrir að það væri nú eða aldrei að ræna völdunum. Pavlov á að hafa látið í ljós efa- semdir um að valdarániö heppnaðist en yfirmaður KGB gerði honum og öðrum efasemdarmönnum það ljóst að völdum yrði rænt með hervaldi ef þeir vikju Gorbatsjov ekki frá völdum. Reuter Arn r 1 Ftön ifoo. aat22G£& A09° í3‘ -®3? hiMforúr J| /iuraf™4,mW(Q)usr9 V-8 '•‘“IKofamli f 1000 fyrír T U v 6 L Hörkuútsala er í gangi í Austurstræti, Mjódd og Borgarkringlunni. Nú er gullið tækifæri til ab nó sér í topptónlist ó botnverði M Ú S I K hljómplötuverslanir AUSTURSTRÆTI 22 © 28.319 • GLÆSIBÆR © 33528 ■ LAUGAVEGUR 24 © 18670 STRANDGATA 37 © 53762 • ÁLFABAKKA 14 MJÓDD © 74848 • BORGARKRINGLAN © 679015

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.