Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Page 11
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991
11
dv Svidsljós
Johnny Carson ásamt fyrstu konu sinni, Jody, og þremur sonum meðan
þau voru gift og allt lék í lyndi. Innfellda myndin er af Rick sem lést af slys-
förum nýlega.
Johnny Carson:
Lét jarða son sinn án
vitundar móðurinnar
Jody, móðir Ricks Carson, sem lést
í bílslysi nú nýlega, var ekki viðstödd
útfór sonar síns því hún vissi ekki
einu sinni af því að hann væri látinn.
Jody frétti af andláti sonar síns í
sjónvarpsfréttum fjórum dögum eftir
að hann lést en þá þegar hafði faðir
hans, hinn frægi sjónvarpsmaður
Johnny Carson, látið jarða hann. Aö
sögn kunnugra hefur Johnny alla tíð
komið mjög illa fram við þessa fyrr-
verandi eiginkonu sína og eru vinir
og ættingjar hennar mjög reiðir út í
hann. „Johnny hafði ekki fyrir því
að segja henni af slysinu og látinu.
Hann segir henni ekki einu sinni
hvar sonur hennar er jarðsettur,"
sagði einn vina hennar.
Rick Carson, sem var þijátíu og níu
ára er hann lést, var mjög náinn
móður sinni. Það var því mjög mikið
áfall fyrir hana er hún frétti á þenn-
an ömurlega hátt af láti hans.
Einn af vinum Jody, séra Walker,
hefur reynt að tala viö hana en hann
segir að hún hafi lokað sig inni í íbúð
sinni í New York eftir að hún frétti
af látinu. Það eina sem hún sagði við
mig var: „Ég veit ekki einu sinni
hvar hann var jarðsettur og get því
ekki farið að gröf hans.“
Johnny og Jody eignuðust þrjá syni
í hjónabandinu en þau skildu árið
1963 og hafa þau varla talast við síð-
an. Fyrir rúmu ári fór hún fram á
að hið árlega meðlag, sem Johnny
greiðir með henni, yrði hækkað.
Málið fór fyrir dómstóla en hún tap-
aði því.
Það hefur ætíð verið kalt á milli
þeirra síðan þau skildu og þessi fjár-
krafa Jody hefur aukið á óvild
Johnnys gagnvart henni. Kunnugir
segja að hann sé að hefna sína á
henni fyrir að fara fram á þessa
kröfu. Þess vegna hafi hann ekki
haft fyrir því að segja henni frá láti
Ricks.
ÞRIGGJA DAGA STANSLAUS
FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG KL. 10-22
LAUGARDAG KL. 10-17
^uj^e^Sgbundw^koðu^
AFGREIDDIR MEÐ FULLAN RENSÍNTANK
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ KR
GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI
Mfmfíw mi/tp
LAUGAVEGI 174 - SÍMI 695660
i