Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Side 14
14 FIMiyiTUpAGpR^. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglysingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lauáasölu virka daga 105 kr. -- Helgarblað 130 kr. Jeltsín er hættulegur Boris Jeltsín Rússlandsforseti hefur beitt tilskipana- valdi sínu ótæpilega undanfarna daga. Hann gerði sig meðal annars um tíma að yfirmanni sovézka heraflans, þótt sjálfur gegni hann embætti á vegum Rússlands sem lýðveldis, en ekki Sovétríkjanna sem ríkjasambands. Allar þessir gerðir hans kunna að hafa verið nauðsyn- legar við hinar óvenjulegu aðstæður, sem myndast, þeg- ar verjast þarf hallarbyltingarmönnum, sem eru á ólög- legan hátt að reyna að ná undirtökum í þjóðfélaginu. Árás þeirra þarf að svara með gagnárás lýðræðisinna. Hitt er svo gömul saga, að allt vald spillir og gerræðis- vald gerspillir. Einhvers staðar á þessu bili er hið ótæpi- lega tilskipanavald Jeltsíns. Vandinn er sá, að valdið breytir persónu þeirra, sem með það fara, og því miður sjaldnast til góðs, svo sem veraldarsagan sýnir. Nýlegt dæmi er um ríki, sem upprunalega þótti til fyrirmyndar í sínum heimshluta, en lenti fyrir rúmum tveimur áratugum í þeirri óbeinu ógæfu að hafa betur í valdastreitu við nágrannanna. Það er ísrael, sem smám saman hefur breytzt í ruddafengið útþensluríki. Yfirvöld Rússlands hafa boðað, að þau áskilji sér all- an rétt til landamæra gagnvart þeim ríkjum Sovétríkj- anna, sem hggja að Rússlandi og hyggjast segja sig úr ríkjasambandinu eða hafa gert það. Þetta er vegna Rússa í þessum löndum, einkum í Úkraínu og Kazaskhstan. Slæmt er, ef úr rústum Sovétríkjanna rís útþenslu- gjarnt Rússland, sem gerir landakröfur á hendur ná- grönnum sínum og getur stutt þær mesta safni kjarn- orkuvopna, sem til er í heiminum. Því er ljóst, að menn þurfa að vera vel á verði gagnvart Rússlandi Jeltsíns. Yfirlýsing Rússa hefur strax í upphafi slæm áhrif á Serba og Júgóslavíuher, sem eru að reyna að ná undir Serbíu þeim hlutum Króatíu, sem eru byggðir Serbum. Yfirlýsingin styður Serba og Júgóslavíuher í þeirri trú, að ofbeldi þeirra þjóni sanngjörnum þjóðernismálstað. Ekki er núna vitað, hvort Jeltsín muni ná tökum á tilskipanaáráttu sinni, þegar hættan af ofbeldi harðlínu- manna er hðin. En ekki er tímabært að fullyrða, að al- hvítt ljós hafi leyst kolsvart myrkur af hólmi austur í Garðaríki, þótt horfur séu óneitanlega mjög góðar. Alveg eins og góðir hlutir geta falið í sér slæmar hættur, þá geta slæmir hlutir haft í för með sér góð hliðaráhrif. Það getur jafnvel verið ástæða til að fagna slæmum tíðindum, af því að þau muni kalla á nýja at- burðarás, sem leiði til betra ástands en var í upphafi. Meðan aðrir fjölmiðlar grétu hallarbyltingu harðlínu- manna í Sovétríkjunum, var hér í leiðara lýst ánægju með, að haharbyltingin setti andstæður Sovétríkjanna í skýrara ljós, hreinsaði þokuna og sýndi okkur, hverjir væru hinir raunverulegu ráðamenn þar eystra. Haharbyltingin hefur gert lýðræðissinnum kleift að finna þá, sem voru með landráð í hjarta. Hún gerir lýð- ræðissinnum nú kleift að hreinsa í einu vetfangi meiri- hluta yfirmanna í her, ríkislögreglu og leynilögreglu og vonandi einnig meirihluta yfirmanna hergagnaiðnaðar. Illir atburðir breyttust í andhverfu sína, þegar nú- tímafólk náði undirtökum í vörninni gegn harðlínu- mönnum. Það góða, sem náðst hefur, er ekki varanlegt, fremur en hið illa, ef forustumenn lýðræðissinna láta ekki fljótlega af valdshyggju og útþenslustefnu. Jeltsín fer með kjarnorkuvopn og tilskipanavald. Sagan sýnir, að slíkir menn verða oftast hættulegir, hversu góðir sem þeir virðast vera í upphafi leiks. Jónas Kristjánsson M.yí.y.1.!.';! Sjálfsævisögur eru þrotiaus uppspretta hugleiðinga um manninn og stöðu hans í samfélaginu Sjálfsævisögur og menning Á ráðstefnu, sem efnt var til af Norræna húsinu í Færeyjum fyrir tveimur árum, voru flutt allmörg erindi um sjálfsævisögur stjórn- málamanna á Norðurlöndum. í flestum erindanna kom fram að helstu kostir slíkra ævisagna væru að þar væri að flnna upplýsingar um söguleg atriði sem ekki væri að finna á öðrum stöðum. Góð ævisaga stjórnmálamanns var því sú sem lýsti upp mál frá nýju sjón- arhomi, gæfi áður ókunnar upp- lýsingar um tiltekin viðfangsefni og sýndi almenningi inn í afkima stjórnmálamanna þar sem ákvarð- anirnar eru teknar. Sjálfsævisögurnar ætti því að meta eftir sögulegri þýðingu þeirra. Einn fyrirlesara benti á að ævisögur gætu þegar best lætur verið bókmenntaverk, þar sem höf- undurinn gerir ekki aðeins að lýsa því sem honum finnst máli skipta fyrir þá mynd sem hann vill að les- endur fái af sér, heldur einnig að hann bregði ljósi yfir samtíð sína, vegi og meti samtíðarmenn sína og túlki heimsskoðun sína. Þarna er ekki farið fram á neitt smáræði. Fæstar ævisögur manna mundu standast svo strangt próf. Einstaktfyrirbæri En það er hægt að líta á sjálfsævi- sögur stjórnmálamanna sem ann- arra út.frá enn einu sjónarmiði. Hver og einn af jarðarbörnum er einstakur. Engir tveir einstakling- ar eru eins. Allir eiga sér sögu sem er öðruvísi en allra annarra. Sér- hver upplifir umhverfi sitt og ver- öldina alla á sinn hátt. Sagan er sjaldnast saga einstaklinga heldur hópa. Sjálfsævisaga er þvi einstakt fyr- irbæri að því leyti að hún segir frá einstaklingi sem er einstakur í orðsins fyllstu merkingu. En ein- staklingurinn er líka ávöxtur sam- félagsins, menningar þess hóps sem hann fæðist í, jafnframt að vera sjálfstæð lífvera með eigin hvatii, langanir og eiginleika. Mað- urinn einstaklingurinn sem slíkur verður til í kraftsviði þessara afla: erfða, umhverfis, sérstakra eigin- leika. Sjálfsævisögur eru heillandi lest- ur - oftast. Það er eitthvað spenn- andi við þaö aö lesa frásögn manna af því sem þeim þykir einhveiju varða í lífi sínu og ævistarfi. Ævi- sögur eru heimildir um hugsunar- hátt, viðhorf, skoðanir þess sem segir frá. Þar birtist maðurinn eins og hann er, kostir hans og gallar blasa við augum, trú hans og van- trú, góðleiki hans og illvilji, greind hans og heimska. KjáUarinn Haraldur Ólafsson dósent Það er eiginlega óskiljanlegt hvernig nokkrum manni dettur í hug að segja frá ævi sinni á prenti. Þó verður að undanskilja rit sem eru einungis minnihgar frá barn- æsku og skólagöngu eða þá lýsing- ar á lifnaðarháttum og vinnu- brögðum. Slíkar bækur heyra und- ir þjóðlegan fróðleik og segja fátt af þeim sem ritar. En raunveruleg ævisaga er tilraun manns til að lýsa því sem fyrir augu hans ber á lífsleiðinni, meta verk sín og ann- arra, segja frá því sem valdið hefur honum gleði eða hryggð. Ósjálfráð viðleitni Ævisagan er ætíð persónulýsing, og þeim mun skýrari sem höfund- urinn leynir fleiru af því sem fyrir hann hefur komið. Hin fróðlega og upplýsandi saga er ekki síður fólg- in í því sem er ósagt. Hreinskilin og berorð ævisaga er oftar en ekki ósannari en sú sem rituð er í þeim tilgangi að þegja um það sem máli hefur skipt fyrir viðkomandi. Sjálfsævisagan er'í langflestum tilvikum skrifuð til að gefa fólki þá mynd af viðkomandi sem hann vill að varðveitist. Þar af leiðir að slík saga segir gífurlega mikið um menningu og skoðanir sem ríkja í því samfélagi sem viðkomandi hfir og hrærist í. Og þess vegna hafa mannfræðingar fengið áhuga á þessu formi frásagna. Þar er að finna marga þá leyndu þræði sem byggja upp samfélagið og stööu ein- staklingsins í því. Fátt segir meira um þau viðhorf sem ríkja en það sem menn leitast við að draga fram sér til tekna. Þar með er ekki sagt að menn séu bein- línis að falsa eigin sögu. Miklu fremur er um að ræða ósjálfráöa viðleitni til þess aö sýna aö viðkom- andi hefur verið góður borgari og sæmilegur maður. Þau gildi, sem samfélagiö aðhyllist, birlast í því sem menn hrósa sér af og ekki síð- ur þvi sem þeir finna að hegðun og framkomu annarra. Einkenni flestra ævisagna er hve litla áherslu flestir menn og konur leggja á tilfinningalíf sitt, langanir og þrár. En ætíð er þó unnt að greina hvaða atriði það eru sem menn og konur raunverulega meta, eða réttara s<igt: halda að þau eigi að meta og virða. Orðin blekkja Einhvern tíma var því haldið fram að afmælis- og minningar- greinar lýstu betur en allt annað hvaða eiginleikar það eru sem sam- félagið metur hverju sinni. Ekki fer hjá því að sú hugsun læðist að manni við lestur sjálfsævisagna hér á landi að einmitt þetta vaki fyrir þeim sem taka sér fyrir hend- ur að segja frá lífshlaupi sínu. - En þar sem oftar blekkja orðin. Sá sem viðurkennir að hann hafi verið „stórlyndur" hefur gjarnan verið hinn mesti frekjuhundur, hinn „hlédrægi" hefur verið fram- takslaus og gufulegur, hinn „góð- viljaöi" hefur reynt að þóknast öll- um og þar af leiðandi engum verið trúr, hinn „íhuguli" hefur aldrei getað tekið af eða á um nokkrun hlut o.s.frv. - Manngerðirnar birt- ast í sjálfsævisögunum ef aðeins er reynt að rýna örlítið bak við viðtek- in gildi sem viðkomandi telur sér skylt að virða. Sjálfsævisögur eru þrotlaus upp- spretta hugleiðinga um manninn og stöðu hans í samfélaginu og alveg óvart merkilegar heimildir fyrir mannfræðinga sem vilja skilja bet- ur samspil einstaklings og menn- ingarinnar. Haraldur Ólafsson „En einstaklingurinn er líka ávöxtur samfélagsins, menningar þess hóps sem hann fæöist 1, jafnframt aö vera sjálfstæð lífvera með eigin hvatir, lang- anir og -eiginleika.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.