Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Page 17
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991. 25 Iþróttir sem Valsmenn unnu annað árið i röð í gær- ið skoraði Ágúst Gylfason. DV-mynd GS Heimsmeistaramótið í Tokyo í morgun: Þórdís úr leik - O’Brien náði góðri forystu í tugþrautinni Þórdís Gísladóttir hafnaði í 21.-25. sæti af 29 keppendum í há- stökki kvenna á heimsmeistara- mótinu í Tokyo en undankeppnin fór fram í morgun. Þórdís stökk 1,79 metra, eins og fjórar aðrar stúlkur, en tólf þær bestu komust í úrslit. Lágmarkið var 1,92 metrar en þegar ráin var hækkuð í 1,88 metra komust aðeins 12 stúlkur yfir þá hæð, enda var hellirigning í Tokyo í morgun og aðstæður erf- iðar. Dan O’Brien frá Bandaríkjunum náði góðri forystu að loknum þrem- ur greinum í tugþrautarkeppninni sem hófst í morgun. O’Brien sigldi af öryggi í gegn, sigraði í 100 metra hlaupi og langstökki og varð þriðji í kúluvarpi og var þá kominn með 2.897 stig, 182 stigum meira en Mike Smith frá Kanada. Margir þekktir kappar áttu erfitt uppdráttar, svo sem þýski ólympíumeistarinn Christian Schenk og franski Evr- ópumeistarinn Christian Plaziat. Tilkynnt var í morgun að ítalinn Salvatore Antibo, Evrópumeistari í 5000 metra hlaupi, væri hættur við þátttöku í þeirri grein. Antibo varð fyrir áfalli í 10 þúsund metra hlaupinu, vissi ekki af sér síöustu tvo kílómetrana og kom síðastur í mark og talið er að lítið ör á heila, sem hann hlaut eftir bílslys á unga aldri, hafl truflað hann svona illi- lega. -VS „Ætla að brjóta 20 metra múrinn“ segir Pétur Guðmundsson kúluvarpari sem keppir í nótt á HM „Eg þoh ekki langar flugferðir og væri ekki að fara til Japan öðruvísi en að stefna á toppinn. Ég gæti náö verðlaunasæti, hika ekki við að setja stefnuna á það og er kominn hingað til þess. Mér hefur aldrei tekist að kasta yfir 20 metra erlendis og ætla mér að reyna að brjóta þann múr verulega," sagði Pétur Guðmunds- son kúluvarpari í samtali við DV í gær. Pétur keppir í nótt, um klukkan 1.30 að íslenskum tíma, í undan- keppninni í kúluvarpi á heimsmeist- aramótinu í Tokyo. Hann þarf að kasta 19,60 metra eða vera meðal 12 efstu til að komast í úrslitakeppnina sem fram fer á laugardaginn. „Ég er í ágætu formi, er reyndar aðeins tognaður í nára, en þaö á ekki að fcoma að sök. Þó hef ég ekki náð alveg því sem ég vildi en það hefur veriö stígandi hjá mér á æfingum síðustu daga og ég get hitt á góð köst. Aðstæður hér í Tokyo eru ágætar og það hefur ræst mikið úr veðrinu. Mér leist ekki á það þegar við kom- um, þá var loftið svo rakt að það var eins og að vera í gufubaði, en síðan kom hellirigning og eftir það hefur loftið verið gott,“ sagði Pétur. Werner Gunthör frá Sviss er mjög sigurstranglegur í kúluvarpinu enda hefur hann verið nánast ósigrandi undanfarin ár. „Það eru margir góðir mættir til leiks og keppnin verður sterkari en margir halda. Norð- mennimir Georg Anderson og Lars Nilsen hafa verið að kasta yfir 21 metra á æfingum hérna og sömuleið- is ungur Rússi, Klimenko. Þetta verður hörkukeppni," sagði Pétur Guðmundsson. -VS Einar fljótlega í gang? - meiösli Einars Vilhjálmssonar ekki eins alvarleg og taliö var „Batahoríur Einars eru hetri en menn óttuðust í fyrstu og aðgerðin á hnénu virðist hafa heppnast mjög vel,“ sagði Magnús Jakobsson, for- maður Fijálsíþróttasambands ís- lands, í samtali við DV en hann er fararstjóri íslendinganna sem keppa á heimsmeistaramótinu í Tokyo. Einar Vilhjálmsson gekkst undir aðgerð í fyrradag á sjúkrahúsi í Tokyo vegna hnjámeiðslanna sem hann varð fyrir í spjótkastskeppn- inni á mánudaginn. „Meiðslin voru slæm því Einar sleit sin sem er framan á hnéskelinni og tengir hana niður á legginn. En hann var hjá mjög færum lækni sem hefur sérhæft sig í hnjámeiðslum og hann setti gerviefni í sinina sem styrkir hana mjög. Einar er með fótinn í gifsi en fær spelkur fljótlega eftir að hann kemur heim og getur þá smám sam- an farið að byggja sig upp á ný. Hve langan tíma það tekur er ekki hægt að segja enn, við bíðum eftir skýrsl- um lækna um það,“ sagöi Magnús. -VS n bikarmeistarar í knattspymu annað árið í röð: ðveldur sigur [fason tryggöi Val sigurinn gegn FH með glæsilegu marki lega lélegur og nánast ekkert að gerast inni á vellinum langtímum saman. Minnisblaðið var algerlega autt eftir hálfleikinn og ekkert meira um hann að segja. Það var svo fljótlega í upphafi síöari hálfleiks að sigurmark leiksins leit dagsins Ijós. Ágúst Gylfason skoraði þá með glæsilegu langskoti og átti Stef- án Amarsson, markvörður FH, ekki möguleika á að verja skot hans. Flestir áttu nú von á því að FH-ingar myndu sækja í sig veðrið en svo varð ekki og Valsmenn voru nálægt því að bæta við mörkum. Jón Grétar Jónsson skallaði rétt fram hjá af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf Sævars Jónssonar á 66. mín- útu og 11 mínútum síðar varði Stefán Arnarsson glæsilega hjólhestaspymu frá Jóni Grétari. Á lokamínútunum voru Valsmenn miklir klaufar að bæta ekki við mörkum og fengu til þess mörg góð færi. FH-ingar náðu aðeins að klóra í bakkann í lokin og fengu þá tvö dágóð færi. Leiknum lauk síðan nánast með því að Ólafi Kristjánssyni var réttilega vísað af leikvelli eftir gróft brot á Baldri Bragasyni á vítateigslínu er Baldur var að sleppa einn inn fyrir vörn Vals. Valsmenn léku alls ekki eins vel og þeir geta í þessum leik og sérstaklega var fyrri hálfleikurinn daufur. Hafa ber þó í huga að mikil taugaspenna hlýtur að hafa verið hjá leikmönnum fyrir leikinn og haft mikil áhrif. Baldur Bragason var einna bestur í liði Vals og þar fer fljótur og leikinn leikmaöur. Einnig lék Einar Páll Tómasson mjög vel sem aftasti maður. FH-ingar mega muna sinn fífil feng- urri og líklega lék FH-hðið einn sinn slakasta leik í sumar. Leikmenn kom- ust aldrei í gang og gfidir það um alla leikmenn liðsins. Allan kraft vantaði í FH-inga og eftir að Valsmenn höfðu skorað og komist yfir var engan vilja að sjá hjá Hafnfirðingunum til að jafna og voru þeim ótrúlega mislagðir fætur í öllum sínum aögerðum. • Sveinn Sveinsson dæmdi leikinn og var þetta síðasti leikur hans. Dæmdi hann vel og verður eftirsjá í þessum skemmtilega og stórgóða dómara. -SK »Mjög sætur sigur“ - sagði Ingi Bjöm Al- bertsson, þjálfari Vals „Þetta var mjög sætur sigur. Hann þróaðist likt og í þeim fyrri en við vorum sterkari nú og náðum að notfæra okkur það. Það var samt synd að við skyld- um ekki nýta færín betur. Mér fannst við ná ágætum leik og við verðskulduöum að sigra,“ sagði Ingi Bjöm Albertsson, þjálfari Valsmamia, ánægður eftir leik- inn með sigur sinna manna. „Mikilvægasta markió á mínum ferli“ „Það er ekki spuming aö þetta er mikilvægasta markið á ferlin- um. Ég hef áöur skorað falleg mörk og ég held að þetta sé ekki það glæsilegasta þó að það hafi verið ljuft aö sjá hann í netimí. Við hefðum átt að skora annað mark þegar ég gaf inn á Baldur en hann var óheppinn að ná ekki að skora. Ég hefðí kannski átt að skjóta sjálfur en það er of seint að segja þetta eftir á. Við vorum ákveðnir að vinna og það tókst og ég held að sigurinn hafi verið mjög sanngjam," sagði Ágúst Gylfason en hann skoraði sigur- mark leiksins. þetta er annað áriö sem Ágúst leikur með Val og bæði árín hefur hann unnið bik. arinn með liði sínu. „Alltaf jafngaman að lyfta bikarnum“ „Það er alltaf jafngaman að lyfta bikarnum og það var engin breyt- ing á nú. Þetta var sanngjarn sig- ur og viö lékum mun betur en síðast og hleyptum þeím aldrei inn í leíkinn. Við lékum vel og skynsamlega og það getur enginn tekið það af okkur,“ sagði Sævar Jónsson, fyrirliöi Vals, sem hampaði bikarnum annað árið í röö. Sigruðum án mikilia erfíðleika „Þetta er göð tilfinning og alltaT' jafhgaman að vinna svona leik. Mér fannst við hafa þetta nokk- um veginn án mikilla erfiðleika. Þeir náðu aldrei að komast i takl við leikinn og það kom mér á óvart hve bitlausir þeir voru,“ sagði Einar Páli Tómasson, vam- armaðurinn sterki, ánægður með sigurinn í leikslok. Höfðum góð tök á leiknum og sigurinn var sanngjarn „Við höfðum góð tök á leiknum og sigurinn var sanngjarn. Það er alltaf gaman aö vinna og ég vil þakka FH-ingum fyrir góðan og skemmtilegan leik,“ sagði Bjarni Sigurðsson, markvörðurv Vals, eftir leikinn. „Komumst aldrei í gang og fengum fá færi“ „Þetta var mjög slakt hjá okkur. Við komumst aldrei í gang og fengum fá færi. Við urðura að taka áhættu eftir að þeir skoraðu og við það opnaðist vömin illa. Ég óska þeim til hamingju með sigurinn," sagði FH-ingurinn Hallsteinn Amarson, vonsvikinn eftir leikinn. FH-ingar þögulir sem gröfin í leikslok Aðrir FH-ingar vildu lítið sem- ekkert segja um leikinn og það var: augljóst að þeir voru gífur- lega svekktir 'að leik loknum og kannski ekki furða eftir að hafa misst af bikarnum. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.