Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991. Afmæli Þórunn Gestsdóttir Þórunn Gestsdóttir ritstjóri, Kvistalandi 8, Reykjavík, er fimm- tugídag. Starfsferill Þórunn er fædd aö Bíldsfelli í Grafningi í Árnessýslu. Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykja- vík 1958. Þórunn hefur starfað við bankastörf, sem flugfreyja, dag- skrárgerðarmaður hjá RÚV, leið- sögumaður og sem blaðamaður frá 1980. Hún var ritstjóri Vikunnar 1986-87 og stofnaði eigið útgáfufyr- irtæki, Farveg hf., 1988. Þórunn rit- stýrir Farvís, ferðatímariti sém Far- vegur hf. gefur út, og Súlunni sem Félag íslenskra ferðaskrifstofa gef- ur út. Hún ritstýrði afmælisriti Li- onshreyfingarinnar sem nýlega kom út í tilefni 40 ára afmælis Lions álslandi. Þórunn var varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur 1978-90 og hefur setið í mörgum nefndum á vegum borgarinnar og á nú sæti í umhverfismálaráði og er formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkur- borgar. Hún var formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna 1985-89 og sat í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, um tveggja ára skeið. Þórunn hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, m.a. verið formaður málefnanefndar og átt sætiímiðstjórn. Þórunn gekk til liðs við Lions- hreyfinguna á íslandi 1984 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi. Hún var fyrsta kon- an sem tók sæti í fjölumdæmisstjórn Lions en þar gegndi hún embætti kynningarstjóra 1988-90 og nýlega tók Þórunn við embætti svæðis- stjóra i umdæmi 109A og er jafn- framt fyrst kvenna innan Lions- hreyfingarinnar til að gegna því embætti. Fjölskylda Maki Þórunnar er Egill Gr. Thor- arensen, f. 17.11.1944, framkvæmda- stjóri Síldarrétta hf. Foreldrar hans: GrímurE. Thorare' jen frá Sigtún- um ogBryndís Guðlaugsdóttir. Þórunn á 5 börn með fyrrv. maka, Guðmundi Arasyni. Þau eru Elíza, f. 14.11.1962, hótelstjóri á Hótel Blönduósi; Ari, f. 7.12.1963, fram- kvæmdastjóri Fannar hf., maki Jó- hanna Jóhannsdóttir háskólanemi; Gestur Ben, f. 1.9.1966, verslunar- maður; Ingi Þór, f. 1.3.1971, nemi; Hjördís, f. 17.10.1972, nemi. Foreldrar Þórunnar: Jón Elías Jónsson og Hjördís Guðmundsdótt- ir, f. 1.9.1920, fyrrv. ráðskona ís- landsbanka. Kjörfaðir Þórunnar: Gestur Benediktsson, f. 20.7.1904, d. 24.9.1965, veitingaþjónn. Ætt Foreldrar Jóns Elíasar voru Sig- ríður Sigurðardóttir, Ármúla í Ása- hreppi, Rangárvallasýslu, og Jón Oddsson, Þúfu í Landsveit, en hann var sonur Odds Erlendssonar, bónda og hreppstjóra, og Elínar Hjartardóttur. Hjördís er dóttir Þórunnar Odds- dóttur og Guðmundar Jónssonar, skósmiðs í Reykjavík, en foreldrar hans voru Jón Mikael Hannesson Þórunn Gestsdóttir. og Anna Gránz. Þórunn er dóttir Eggrúnar Eggertsdóttur (Eyrarætt í Flókadal) og Odds Þórarinssonar en foreldrar hans voru Þuríður Oddsdóttir og Þórarinn Hafliðason, Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Þórunn verður að heiman á af- mælisdaginn en hún dvelur nú hjá dóttur sinni á Hótel Blönduósi. Guðmundur Snorri Júlíusson Guðmundur Snorri Júlíusson, sjómaður og verkamaður, Dalbraut 18, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Snorri er fæddur að Atlastöðum í Fljótavík í N-ísafjaröarsýslu og ólst þar upp til níu ára aldurs er hann fór í fóstur til Kristins Grímssonar og Guðnýjar Halldórsdóttur í Horni. Hann byrjaði snemma að stunda sjóinn og var meðal annars á úti- legubátum og síðar á ýmsum togur- um í eigu Samvinnufélags ísfirð- inga. Snorri fluttist frá ísafirði 1951 til Reykjavíkur er hann hóf störf hjá Skipaútgerð ríkisins. Hann var í átta ár háseti og dælumaður á olíu- skipinu Þyrli. Hann var síðan há- seti á Esjunni, Heklunni og Öskj- unni þar til hann fór í land 1983. Snorri hóf þá störf hjá Gámadeild Ríkisskipa þar sem hann starfar enn. Fjölskylda Snorri kvæntist 6.10.1952 Sigríði Petrínu Guðbrandsdóttur, f. 31.3. 1914, d. 15.6.1987. Foreldrar hennar voru Guðbrandur Sigurðsson hreppstjóri og Ólöf Gísladóttir hús- móðir. Þau bjuggu lengst af á Hrafn- kelsstöðum á Mýrum. Börn Snorra og Sigríðar eru Guö- rún, f. 6.2.1955, garðyrkjubóndi, Daltúni, maki Jón Ingibergsson vél- fræðingur, þau eiga eina dóttur og Guðrún á tvo syni frá fyrra hjóna- bandi; Hilmar, f. 26.5.1957, skip- stjóri hjá Ríkisskipum, maki Guð- rún Hrefna Guðmundsdóttir skrif- stofustjóri, þau eiga tvö börn. Systkini Snorra eru: Guðfinna Ingibjörg; Geirmundur Júlíus, húsasmiður í Hnífsdal, maki Guð- munda Regína; Sigurlína, maki Gestur Guðbrandsson, látinn; Jón Ólafur sjómaöur, látinn; Jóhann Hermann, útgerðarmaður á ísafirði, maki Margrét Leósdóttir; Guð- mundína, búsett í Bandaríkjunum, maki William Edward Horn; Þórð- ur, framkvæmdastjóri á ísafirði, maki Bára Hjaltadóttir; Friðrika Júdit, maki Stefán Ólafsson, látinn; Júlíana, látin, maki Högni Sturlu- son; Anna, maki Guðmundur Gunn- arsson; Guðmundur, maki Helga Finnbogadóttir. Snorri á fjögur uppeldissystkini: Þau eru Ólína Kristinsdóttir, maki Hreiðar Gunnlaugsson, látinn; Guð- rún Kristinsdóttir, maki Torfi Ólafs- Guðmundur Snorri Júlíusson. son; Magnús EUas Kristinsson, maki Svanhildur Eyjólfsdóttir; Gróa Alexandersdóttir, maki Gísli Han- sen, látinn. Foreldrar Snorra voru Júlíus Geirmundsson bóndi og Guðrún Jónsdóttir húsmóðir. Þau bjuggu að Atlastöðum í Fljótavík. Snorri tekur á móti gestum á af- mælisdaginn, 30. ágúst, í Sigtúni 3, uppi, milU klukkan 20.30 og 24.00. Asdís Guðbjörg Jesdottir, Lauga- rásvegi 47, Reykjavík, er áitræð í dag. Starfsferill Ásdís er fædd í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1932 og var við afgreiðslustörf á Landsímastöð Vestmannaeyja 1932-35. Ásdís var sundkennari að sumarlagi 1929-31 við sundskálann undir Litlu-Löngu. Hún tók við hús- móðurstörfum að Hóli í Heimaey 1935 og hefur sinnt hliðstæðu starfi í Reykjavík frá 1941. Fjölskylda Ásdís giftist 17.2.1934 Þorsteini Einarssyni, f. 2311.1911, kennara við Gagnfræðaskólann í Vest- mannaeyjum og íþróttafulltrúa rík- isins. Foreldrar Þorsteins: Einar Þórðarson og Guðríður Eiríksdóttir. Böm Ásdísar og Þorsteins: Jes Einar arkitekt, maki Ragnhildur Jónina Sigurðardóttir, þau eiga 2 böm; Hildur Sigurlín kennari, maki Guðmundur Hreiðar Sigurðsson skólastjóri, þau eiga 4 börn; Ágúst öryggismálakennari, maki María Helga Hjálmarsdóttir félagsfræð- ingur, þau eiga 3 börn; Guðni lækn- ir, maki Elín Klein hjúkrunarfræð- ingur, þau eiga 2 börn; Ásdís Guð- rún, maki Róbert Bender kaupmað- ur, þau eiga 3 börn; Sólveig bóka- safnsfræðingur, maki Gunnar Val- týsson læknir, þau eiga 4 börn; Guðríöur hjúkrunarfræðingur, maki Ólafur Sæmundsen skógrækt- arfræðingur, þau eiga 4 börn; Eirík- ur tæknifræðingur, maki Hulda Halldórsdóttir tæknitéiknari, þau eiga 2 börn; Gísli Ingimundur lög- gæslumaður, maki Þórdís Þórhalls- dóttir tónlistarkennari, þau eiga 3 börn; Soffia fóstra, maki Gísli Jóns- son húsasmiður, þau eiga 2 börn. Systkini Ásdísar voru 6 en 4 eru Gylfi Jónsson Gylfi Jónsson, bóndi í Miðhús- um, Álftaneshreppi, er fimmtugur ídag. Fjölskylda Gylfi kvæntist 21.11.1981 Þórdísi Ásgerði Amfinnsdóttur, f. 20.3.1955. Móðir hennar: Anna Ólöf Kristjáns- dóttir. Gylfi og Þórdís eiga 2 syni. Þeir eru Einar Ágúst, f. 11.10.1986, og Ólafur Lárus, f. 18.7.1982. Þórdís átti áður Sólveigu Katrínu Hall- grímsdóttur, f. 21.6.1977. Systkini Gylfa: Pétur Valberg, bóndi á Sveinsstöðum, maki Erna Pálsdóttir; Helga, húsmóðir í Reykjavík, maki Jón Guðnason; Baldur, bílstjóri í Borgamesi, maki Arndís F. Kristinsdóttir; Jón Atli, fyrrum bóndi, maki Steinunn G. Guðjónsdóttir; Elísabet, húsmóðir í Reykjavík, maki Leifur Jóhanns- son; Ásta, fóstra í Reykjavík, maki Páll Guðmundsson. Foreldrar Gylfa: Jón Jónsson, f. 13.9.1898, bóndi í Miðhúsum, og Nellý Pétursdóttir, f. 1.6.1903. Gylfi tekur á móti gestum á heim- ,ih sínu 30. ágúst kl. 20.30. Ásdis Guðbjörg Jesdóttir. látin. Á lífi eru Anna tónmennta- kennari, maki Óskar Kárason bygg- ingarfulltrúi, og Gísli Friðrik, íþróttakennari og safnvörður, maki Magnea Þ.M. Sjöberg. Foreldrar Ásdísar voru Jes And- ers Gíslason, f. 28.5.1872, d. 7.2.1961, prestur, og Ágústa Kristjana Ey- mundsdóttir, f. 9.8.1873, d. 13.6.1939. Gylfi Jónsson. Tíl hamingju með afinælið 29. ágúst 80 ára HelgiSveinsson, Óiafsvegi 11, Óiafsfirði. 75 ára Baldvin Bjarnason, Gaiðarsbraut35a, Húsavík. 70 ára__________________ Ólafía Guðmundsdóttir, Stóragerði 12, Reykjavík. Gísíi Kristinsson, Suöurgötu 43, Akranesi. 60 ára__________________ Árni Jónsson, Holtsgötu 13, Hafnarfirði. Halldór Bóas Jónsson, Blómvangi li, Hafnarfirði. Þorleifur Einarsson, Langholtsvegi 138, Reykjavík. Halfdór Hjábnarsson, Mávahlið 37, Reykjavik. 50 ára Reynir Ásgrímsson, Löngubrekku 10, Kópavogi. Böðvar Jóhannesson, Hjaröarholti 3, Akranesi. Einarína Einarsdóttir, Mávabraut lb, Keflavík. Þórhaiiiu- Daníelsson, Hvanneyrarbraut 42, Siglufirði. Jón Snæbjörnsson, Kríuhólum 4, Reykjavík. Ásgeir Jónasson, Stekkjartröð 7, Egilsstööum. 40ára Borghiidur Anna Jónsdóttir, Hringbraut 119, Reykjavík. Guðmundur Jónasson, Eyjavöllum 6, Keflavik. Rúnar Jósefsson, Fellsbraut 7, Skagaströnd. Helgi Sigurjónsson, Hegranesi25, Garðabæ. Hrafnhiidur Hilmarsdóttir, Reykjanesvegi 4, Njarðvík. Vaigerður Ámadóttir, Kjarrhólma 10, Kópavogi. Helga Helgadóttir, HoltaseU 42, Reykjavík. Málfríður Jónsdóttir Málfríður Jónsdóttir, Granaskjóli 17, Reykjavík, er nítíu og fimm ára ídag. Starfsferill Málfríður er fædd á Fögrueyri við Fáskrúðsfjörð og ólst þar upp en fluttist með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur 1903. Fyrsta heimili hennar þar var á Skólavöröustíg 4 og síðar í húsinu númer 45 við sömu götu. Málfríður fór urig til Dan- merkur þar sem hún vann nokkur ár á Rönne Bomholm. Ytra kynntist hún Halldóri Laxness rithöfundi og eignuðust þau dóttur. Málfríður vann víða á heimilum í Reykjavík og um tíma var hún á saumastofu á Vífilsstöðum en hún hafði snemma lært saumaskapinn. Þegar Landspítalinn tók til starfa 1930 réðst hún á saumastofu hans og 1938 tók Málfríður til starfa í Vinnufatagerð í slands þar sem hún vann í 6-7 ár. Málfríður bjó hjá dótt- ur sinni í 43 ár en er nú komin á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Fjölskylda Dóttir Málfríðar og Halldórs Lax- ness er María, f. 10.4.1923, húsmóð- ir í Reykjavik. Fyrri maður hennar var Ragnar Bjarnason. Hann lést af Málfríður Jónsdóttir. slysfórum 1948. Þeirra börn: Bjarni Már, f. 1945, tæknifræðingur, og Ragna María, f. 1948, húsmóðir. Seinni maður hennar var Kolbeinn K.G. Jónsson. Hann lést 1975. Þeirra synir: Halldór, f. 1955, læknir; Krist- inn, f. 1957, viðskiptafræðingur; Þór, f. 1958, húsasmiður. Foreldrar Málfríðar voru Jón Bjarnason, sjómaður og smiður frá Fögrueyri við Fáskrúðsfjörð, og Þórunn Bjarnadóttir frá Núpi á Berufj arðarströnd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.