Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Síða 31
FIMMÍEUDAGUR 29. ÁGÚST 1991.
39
Veiðivon
Veiðitoppurinn í gærkvöldi:
Þverá í Borgarfirði lang-
efstmeð 1850 laxa
„Þessi veiðitúr í Þverá var góður,
viö fengum 59 laxa og hann var 16
pund sá stærsti. Þetta var annað
besta hollið í sumar í Þverá,“ sagði
Helgi Kr. Eiríksson í gær en fyrir
skömmu voru hann og félagar hans
við veiðar í Þverá í Borgarfirði.
Þverá hefur örugga forystu á veiði-
toppnum og hefur gefið 1850 laxa og
þeir eru tveir 20 punda þeir stærstu.
Veiði lýkur í Þverá, Norðurá og
Laxá á Ásum á laugardaginn en veitt
er í Kjarrá, efri hluta Þverár, til
þriðjudags.
„Það eru komnir tveir 20 punda á
land, sá seinni kom á þriðjudaginn á
maðk í Klapparfljótinu. Hann hefur
Helgi Kr. Eiríksson og félagar með 59 laxa fyrir utan veiðihúsið við Þverá.
Guðmundur Karlsson með staersta
laxinn úr þessu holli, 16 punda fisk,
sem tekinn var i veiðistaðnum
Glanna. DV-myndirHKE
verið stærri þegar hann kom í ána
því hann var grútleginn,“ sagði okk-
ar maður á bökkum Þverár í gær og
bætti við: „Það eru ennþá að koma
nýir laxar í ámar og þær geta bætt
við sig á síðustu klukkutímunum."
Forysta Þverár 1 Borgarfirði em
400-450 laxar á næstu veiðiá svo að
erfitt verður að hagga henni í bih af
veiðitoppnum. Sú veiðiá sem gerir
sig líklega til að hrófla eitthvað við
Þverá er Laxá í Kjós.
„Laxá í Kjós er að komast í 1400
laxa, vantar eitthvað smávegis upp á
það,“ sagði Ólafur Ólafsson, veiði-
vörður í Laxá í Kjós, í gær er við
spuröum frétta af veiðinni.
„í gærdag veiddust 30 laxar og
Bugaðan gaf vel, veiddust nokkrir 10,
12 og 13 punda laxar. Ég veit ekki
hvort við náðum Þveránni, ég held
ekki,“ sagði Ólafur ennfremur en
veitt er í Laxá í Kjós til 10. september.
-G.Bender
Austurá í Miðfirði, Kambsfoss:
Halldór Blöndal
ráðherra opnar
laxastigann í dag
Framkvæmdir við laxastigann í Kambsfossi í Miðfirði hafa staðið yfir í sum-
ar og stigann á að opna i dag. Á myndinni sést Halldór Sigurþórsson í
neðsta þrepi stigans fyrir skömmu en alls eru í honum 34 þrep.
DV-mynd G.Bender
„Áin er að skríða yfir 900 laxa á
þessari stundu og hann er 18 pund,
sá stærsti, en fyrir fáum dögum
veiddist 16 punda lax á fluguna.
Hann veiddist neðarlega í Miðfiarð-
ará,“ sagði Böðvar Sigvaldason á
Barði í Miðfirði í gærdag en í dag
verður laxastiginn í Kambsfossi opn-
aður.
„Klukkan fjögur á fimmtudag mun
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra opna laxastigann í Kambs-
fossi. í þessum laxastiga eru 34 þrep
sem laxinn getur gengiö upp. Við
hleyptum vatni á stigann fyrir
nokkrum dögum og það veiddust
þrír laxar fyrir ofan hann svo hann
hefur strax sannað tilverurétt sinn,“
sagði Böðvar ennfremur.
-G.Bender
Fjölmiðlar efst a baugi:
Sá pennaglaði Víkverji Morgun-
blaðsins gerði sér að umtalsefni fyr-
ir skömmu fréttastuld miUi fjölm-
iðla. Aö því er virtist voru aliir
fjölmiðlar þar undir einum hatti aö
Morgunblaöinu undanskildu. Þar á
bæ fá menn ekki hugmyndir úr öðr-
umfíölmiðlum.
Ekki veit ég hvursu langa starfs-
reynslu þessi tiltæki Víkveiji hefur
að baki en hélt að flestir gamal-
reyndir blaðamenn vissu að þó
sömu fréttir birtist á mörgum stöð-
um þarf ekki að vera um fréttastuld
aðræða.
Víkverji þessi tók sérstaklega
fram að síðdegisblaðiö birti fréttir
beint upp úr morgunblöðunura.
Ekki er virman svo auðveld bjá
fréttamönnum DV á morgnana. A
þessari ritsjórn er kapp lagt á aö
birta glænýjar fréttir sem síöan
koma í útvarpi og sjónvarpi og
morgunblöðunum daginn eftir eins
ogofterraunin.
Hins vegar kemur fyrir að frétta-
menn DV hafa lagt mikla vinnu í
ákveðnar fréttir daginn áður en
blaðið kemur út Þeir verða því afar
gramir þegar sú sama frétt heyrist
í kvöldfréttum útvarps samdægurs,
síðan á sjónvarpsstöðvunum og loks
í Morgunblaðinu daginn eftir. Þetta
ætti Víkverji að kannast viö enda
lesendur þess blaðs oft búnir að
heyra fréttiraar á öidúm ijósvakans
áður en þær birtast þeim á prenti -
hvaðan sem þær fréttir eru fengnar.
Þegar ijósvakabyltingin átti sér
stað fyrir fimm áríun uröu miklar
breytingar á aliri framsetningu
frétta. Allt í einu fóru merkilegir
atburðir að heyrast um leið og þeir
áttu sér stað eða „Iive“ eins og
Spaugstoftimenn kaila það. Blöðin
urðu þá seinfti með fréttirnar en
nutu þess í staðinn að geta sagt ítar-
legar frá - og flestir lesa blöðin -
mun færri fylgjast stöðugt með ljós-
vökurn.
Blaðamönnum er gert að fylgjast
með öllum fréttum og áreiöanlega
hafa allir fengið hugmyndir úr öðr-
um íjölmiðlum ánþess beinlínis að
um fréttastuld sé að ræða. Þar eru
biaðamenn Morgunblaðsins ekki
undanskildir.
Hins vegar er það rétt hjá Vi-
kverja aö ein einkastöðin „étur“
fréttir upp úr ÖLLUM öðrum fjölm-
iðlum án þess að vitna til þess eða
leita sér eigin heimilda. Og það er
vissulega dæmi um fréttamennsku
afgrófústugerö.
Elin Albertsdóttir
ISLENSKA
ALFRÆÐI
ORDABOKIX
frjálsíþróttlr frjálsar íþróttir:
íþróttagreinar sem felast í
hlaupum (sjá hlaupagreinar),
stökkum (sjá stökkgreinar),
köstum (sjá kastgreinar),
göngu og fjölþrautum. f voru
þungamiðjan í hinum fornu
ólympíuleikum (776 f. Kr.-394
e. Kr.) en voru nánast óþekkt-
ar á miðöldum. Keppni í f var
endurvakin á 19. öld í enskum
skólum og fyrsta opinbera
frjálsíþróttamótið var haldið
1849 á Engl. f hafa frá upp-
hafi skipað stærstan sess á
ólympíuleikum nútímans og
Íiar er keppt í 27 greinum f. A
sl. var farið að iðka f skömmu
eftir 1900 og fyrst keppt 1909.
Frjálsíþróttasamband íslands
stofnað 1947) er aðili að
iróttassimbandi íslands.
Iþ:
Veður
Fremur hæg vestlæg átt og víða léttskýjað verður
fram eftir degi en þykknar upp með suðaustangolu
eða kalda sunnan- og suðvestanlands siðdegis. i
kvöld fer síðan að rigna um sunnan- og vestanvert
landið en þykknar upp noröanlands og austan. i
nótt verður suðaustankaldi eða stinningskaldi og
rigning sunnanlands og vestan en fer að rigna norð-
anlands. Hiti verður á bilinu 8-15 stig.
Akureyri skýjað 7
Egilsstaðir hálfskýjað 7
Keflavikurflugvöllur hálfskýjað 6
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 4
Raufarhöfn rigning 4
Reykjavík skýjað 7
Vestmannaeyjar léttskýjað 7
Bergen hálfskýjað 11
Helsinki léttskýjað 13
Kaupmannahöfn léttskýjað 15
Úsló hálfskýjað 10
Stokkhólmur léttskýjað 13
Þórshöfn skúr 12
Amsterdam skýjað 12
Barcelona léttskýjað 22
Berlín rigning 13
Feneyjar þokumóða 17
Frankfurt léttskýjað 14
Glasgow þoka 13
Hamborg léttskýjað 10
London léttskýjað 13
Lúxemborg léttskýjað 13
Madrid léttskýjað 17
Malaga léttskýjað 23
Mallorca hálfskýjað 21
Nuuk alskýjað 7
Paris heiðskírt 15
Róm þokumóða 21
Valencia hálfskýjað 22
Vín skýjað 15
Gengið
Gengisskráning nr. 163. - 29. ágúst 1991 kl. 9.15
J cT
Eining Káup Sala Tollgengi
Dollar 60,960 61,120. 61,720
Pund 103,266 103,537 103,362
Kan. dollar 53,485 53,626 53,719
Dönsk kr. 9,1087 9,1326 9,0999
Norsk kr. 8,9998 9,0234 9,0155
Sænsk kr. 9,6900 9,7155 9.7044
Fi. mark 14,4335 14,4714 14,5996
Fra.franki 10,3594 10,3866 10,3423
Belg. franki 1,7104 1,7149 1,7089
Sviss. franki 40,2509 40,3566 40.3004
Holl. gyiiini 31.2175 31,2994 31,2151
Þýskt mark 35,1658 35,2581 35,1932
Ít. líra 0,04710 0,04722 0,04713
Aust. sch. 4,9977 5,0109 4,9998
Port. escudo 0,4107 0,4118 0,4101
Spá. peseti 0,5645 0,5660 0,5616
Jap. yen 0,44651 0,44768 0,44668
irskt pund 94,046 94,293 94,061
SDR 81,6706 81,8849 82,1172
ECU 72,2102 72,3997 72,2463
Simsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkáðimir
Faxamarkaður
28. ágúst seldust alls 40,083 tonn.
Magn í
tonnum
Verð í krónum
MeAal Laegsta Haesta
Blandað
Gellur
Karfi
Keila
Langa
Lúða
Saltfiskur
Skarkoli
Skötuselur
Steinbítur
Þorskur, sl.
Þorskflök
Ufsi
Undirmál.
Ýsa, sl.
0,053
0,020
5.472
0,121
2,154
0,518
0,118
1,758
0,033
4,793
2.473
0,040
0,269
4,741
17,5128
50,00
250,00
38,92
38,00
61,25
289,53
141,32
69,91
200,00
68,88
93,06
170,00
49,00
70,00
93,78
50,00
250,00
35,00
38,00
38,00
200,00
133,00
68,00
200,00
53,00
87,00
170,00
49,00
70,00
90,00
50,00
250,00
46,00
38,00
69,00
370,00
145,00
76,00
200,00
74,00
94,00
170,00
49,00
70,00
126,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
28. ágúst seldust alls 91,756 tonn.
Undirmál. 1,000 60,00 60,00 60,00
0,134 91,00 91,00 91,00
Lúða 0,517 442,58 345,00 520,00
Keila 0,570 46,00 46,00 46,00
Blandaö 0,250 66,00 66,00 66,00
Ýsa 5,196 90,59 87,00 93,00
Ufsi 42,397 61,50 59,00 64,00
37,935 95,05 88.00 99,00
0,115 56,00 56.00 56,00
Koli 0,171 41,00 41,00 41,00
Karfi 3,470 38,00 38,00 38,00
Fiskmarkaðurinn i Þorlákshöfn
28. ágúst seldust alls 4.80C tonn.
0,079 37,00 37,00 37,00
0,330 52,74 43,00 60,00
Ýsa.sl. 4,391 109.60 108,00 112,00
Fiskmarkaður isafjarðar
28. ágúst seldust alls 0,457 tonn.
Ýsa 0,428 84,00 84,00 84,00
Öðuskel 0,029 11,38 10,00 18,00
TreeMMiz
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI - 653900