Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1991, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991. VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a. sími 19555. Asía Laugavegi 10. sími 626210 Askur Suðurlandsbraut 4. sími 38550 Suðurlandsbraut 14, sími 81344. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Borgarvirkið Þingholtsstræti 2-4. sími 13737 Bravó Nybýlavegi 22, sími 46085. Café Amsterdam Hafnarstræti 5. sími 1 3800. Café Garður Garöatorgi. sími 657676 Café Jensen Þönglabakka 6, sími 78060. Café Mílanó Faxafeni 11. sími 678860 Ouus hús ■v/Fischersund. sími 14446. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 651213. Fjörðurinn Strandgötu 30. sími 50249. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Furstinn Skipholti 37. sími 39570. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. simi 11556. Gullni haninn Laugavegi 178. sími 679967. Hafmeyjan Laugavegi 34a, sími 13088. Hallargarðurinn, Húsi verslunarinnar. sími 678555. Hard Ftock Café Kringlunni. sími 689888. Hjá Kim Ármúla 34, sími 31 381. Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hólmi Hólmaseli 4. sími 670650. Hótel Borg Pósthússtræti 11. sími 11 440. Hótel Hoit Bergstaðastræti 37. sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla, sími 6871 1 1 Hótel Lind Rauðarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavikurflugvelli. simi 22322. Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg. sími 25224. Hótel Saga Grillið, sími 25033, Sútnasalur, sími 20221. Skrúöur, sími 29900. Ítalía Laugavegi 11. simi 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4 6. sími 1 5520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4. sími 10292. Kaffivagninn Grandagarði. simi 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sírni 45022. Kína-Húsið Lækjargötu 8, sími 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. L.A.-Café, Laugavegi 45. simi 626120. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2, sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 14430. Madonna Rauðarárstíg 27 29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 421 66 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950. Marinós pizza Laugavegi 28, sími 625540. Njálsgötu 26. sími 22610. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7, sími 688311 Naustið Vesturgötu 6 8. sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. simi 29499. Perlan Öskjuhlíð. sími 620200. Pétursklaustur Laugavegi 73,.sími 23433. Pisa Austurstræti 22. simi 12400. Pizza Hut Hótel Esju. sími 680809 Pizzahúsið Grensásvegi 10. sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119. sími 21066. Pizzusmiðjan Smiöjuvegi 1 4 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 11 690. Rauða Ijónið Eiðistorgi, sími 611414. Rauði sófinn Laugavegi 126. sími 16566, 612095 Setrið Sigtúni 38. sími 689000. Sex baujan Eiðistorgi. sfmi 611414. Siam Skólavörðustíg 22. sími 28208. Singapore Reykjavíkurvegi 68. slmi 54999. Sjanghæ Laugavegi 28, sími 1 651 3. Svarta pannan Hafnarstræti 17. sfmi 16480. Taj Mahal, Tandori og Suhi bar. Hverfisgötu 56. sími 21630 Torfan Amtmannsstíg 1. sími 13303. Trúbadorinn, Laugavegi 73, slmi 622631. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. simi 21255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22. sími 13628. Við Tjömina Templarasundi 3. sími 18666. Viðeyjarstofa Viðey. sími 681045. Salurinn er i eðlilegri og líflegri tengslum við hótelið, því að matargestir verða Iitillega varir við þysinn frammi í móttöku. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Hlutlausar hótelklisjur Blómasalur Hótel Loftleiða hefur batnað að útliti við að opnast út í anddyri hótelsins. Hann er bjartari en áður og gestum er síður hætt við innijokunarkennd, sem fylgdi staönum áður fyrr. Salurinn er í eðlilegri og líflegri tengslum við hótelið, því að matargestir verða lítillega varir við þysinn frammi í móttöku. Að öðru leyti er salurinn svipað- ur og fyrr, með Drápuhlíðargrjóti á veggjum og stórum glugga út að flugvellinum. Útsýnið er ekki eins kuldalegt og áður, síðan nokkur tré festu rætur utan gluggans. Gróður- inn innan stóra gluggans mætti hins vegar vera ræktarlegri. Kannski er vatnsskorti um að kenna. En það er þó kostur, aö gróðurinn skuli ekki vera úr plasti, eins og nú tíðkast í veitingasölum. Breytingin á svæðinu felst eink- um í, að framan við Blómasal hefur verið komið fyrir öðrum veitinga- sal, Lóninu, í opnum hótelstíl, sem gæti verið í Skrúð á Hótel Sögu eða hvar sem er á Noröurlöndum. Þessi stíll er orðinn að klisju, sem hver étur upp eftir öðrum. Sömu fiskréttir á hverjum degi Matreiðsla á alþjóðlegum hótel- um er líka orðinn að klisju, sem veldur því, að menn vita varla, hvar í heiminum þeir eru að borða. Matreiðslan í Blómasal er undir þessu oki ferðamannaþjónustunn- ar. Sem dæmi um skort á tilfinn- ingu fyrir matargerðarlist má nefna, að á fastaseðli hússins eru nokkrir fiskréttir, sem ekki er hægt að fá ferska á hverjum degi. Blómasalur hefur dagsseðil, en hann er svo stuttur, að þar rúmast aðeins tveir fiskréttir og einn kjöt- réttur, ein súpa, einn forréttur og einn eftirréttur. Samt er meðalverð hans mjög hátt, 3.020 krónur, ef valin er þriggja rétta máltíð með kafíi á eftir. Verðið á fastaseðlinum er svo í himinhæðum, 3.780 krónur á þriggja rétta máltíð. Til saman- burðar má nefna, að þetta er rosa- lega hátt yfír verðlagi Holts. Á þessu verði borðar enginn ís- lendingur, enda er þetta fyrir hótel- gesti, sem treysta sér ekki úr húsi. Svo er um suma, sem eru á faralds- fæti milh landa, að þeir fara helzt ekki lengra en 100 metra frá næsta hótelbar. Fyrir þá eru settar upp matstofur af þessu tagi og heita viðskiptavinimir þá captive audi- ence á kaupsýslumáli. Þá við- skiptamenn mætti á íslenzku kalla viðskiptafanga. í hádeginu er þríréttað með kafíi á 1.930 krónur í Lóninu. Þá er líka boðið upp á fallegt hlaðborð fyrir 1.395 krónur og verður það vonandi prófað síðar. Elskuleg þjónusta Fangar staðarins eru ekki sviknir af þjónustunni. Hún er fyrsta flokks, svo sem tíðkast á vönduðum hótelum og meira að segja elskuleg. Eina undantekningin var, að veit- ingastjórinn, karlmaðurinn í hópn- um, stóð sjaldnast við púltið, svo að gestir urðu stundum að bíða, unz þeim yrði vísað til borðs. Ég var raunar ekki viss um, að reikn- að væri með neinum gestum. Ytri umbúnaður máltíðarinnar er nokkuð góður, þótt húsgögn séu snjáð. Stólar eru nokkuð góðir og þó enn betri frammi í Lóni. Þar er hægt að fá mat úr sama eldhúsi í hádeginu, þegar Blómasalur er lok- aður. Eins rúmt er um borð í Lóninu og þröngt er um þau í Blómasal. Þau eru með marmaraplötum eins og í Skrúð. Þjónusta er eins góð í Lóninu. Þar voru líka einar þær beztu pappírsþurrkur, sem ég hef farið höndum um. Athyglisvert er, að mitt í allri þessari stöðluðu alþjóðahyggju er fátæklegur vínhsti, sem minnir á gömlu tímana í Ríkinu, þegar eng- inn hafði þar minnstu hugmynd um eðli léttra vína og mismun þeirra. Vínseðillinn er nokkurn veginn eins og slíkir hstar voru hér fyrir tíu árum og tekur lítið tillit til aukins úrvals. Kofareykt hreindýr Máltíðum í Blómasal fylgir að- gangur að litlum og einfoldum sal- atbar, sem var alveg laus við að vera þreytulegur, en um leið alveg laus við að vera spennandi. Þar voru líka fjórar tegundir af grófu brauði. Rauðvínsleginn hörpuskelfiskur var nokkuð meyr og góður, borinn fram með svo mildri sósu, að erfitt var að greina bragð, svo og ferskum grænmetisþráðum. Léttsteiktar gellur voru fallega uppsettar á skrautlega diska, með fersku tóm- atmauki, greirúlega ekkert krydd- legnar. Mun betri forréttur var kofareykt hreindýrakjöt, skemmtilega bragö- sterkt og fagurlega fyrir komið eins og gellunum, boriðfram með tærri kryddjurta-ediksósu. Frammi í Lóni prófaði ég í forrétt salatrétt, sem var að mestu kína- kál, skreytt ýmsu grænmeti og ávöxtum. Þar mátti einnig fá afar hversdagslega hveitisúpu, sem hét rjómalöguð sellerísúpa. Einn aðalrétturinn, sem ég fékk, var gljáður skötuselur með bræddri dalayrju, sem yfirgnæfði fiskinn í bragði. Grænmetið var hæfilega lítið soðið. Tómatsósan, sem fylgdi, svo að rétturinn mætti heita Provencale, kom eins og út úr kú. Gufusoðnar smálúðurúllur voru sæmilegar, eins og slíkar rúhur hafa verið í meðalgóðum veitinga- húsum hér á landi um margra ára skeið. Þær voru hvorki tiltakan- lega meyrar né tiltakanlega þurrar, bornar fram með pínulitlu af fenni- kelsósu. Þeim fylgdu kartöflur, sem voru fyrst afhýddar og síðan soðn- ar, svo að þær verða frekar leiðin- legur matur. Lambalundir voru hæfilega htið steiktar, sagðar bornar fram með möndluflögum, sem ég fann ekki og saknaði raunar ekki, þótt ég leit- aði þeirra formsins vegna. í staðinn var dálítið af lauk, sem ég held að hafi hæft betur. Skrúfupasta Lóns var bezt Frammi í Lóni prófaði ég mjög góðan pastarétt, sem vakti mig til meðvitundar um, að hæfileikar leyndu á sér í eldhúsinu. Þetta var hæfilega skammt soðið skrúfu- pasta með Parma-osti, rækjum og grænmetisþráðum, afar hressandi hádegisréttur. Á sama tíma var í Lóninu mjög góður skötuselur, smjörsteiktur, með dillsósu og mjögsoðnum kart- öflum. Einn eftirrétta Blómasalar var steiktur og hkjörsvættur ananas með ís, sósu og skrautlegum ávöxt- um, fagmannslega bálaður við borð gesta. Annar var nokkuð gott anan- as og bláberjakrap. Þriðji eftirrétt- urinn var ágæt súkkulaði- og kafíi- terta, sem var kölluð ostaterta, þótt osthlutinn væri lítill sem enginn. Ljúfur og menningarlegur píanó- leikari hafði vit á að leika hæfilega lágt. J.Kr. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14, sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 1 7. sími 1 3344. Ölver v/Álfheima, sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 2.1818. Fiðlarinn Skipagötu 14, sími 27100. Greifinn Glerárgötu 20, sími 26690. Hótel KEA Hafnarstræti 87 89, sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Landið - vertshús Geislagötu 7, sími 11617 Sjallinn Geislagötu 14, sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9, sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Bjössabar Bárustíg 11. sími 12950. Hallarlundur Vestmannabraut 21. sími 12960. Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Höfðinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1. sími 12577, Skútinn Kirkjuvegi 21, sími 11420. KEFLAVÍK: Edenborg Hafnargötu 30. sími 1 2000. K-17 Vesturbraut 17. sími 14999. Glóðin Hafnargötu 62, sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57, sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19, sími 14601. Veitingahúsið við Bláa Lónið Svartsengi. sími 68283. SANDGERÐI: Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4. sími 37755. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi, sími 22555. Hótei Seltoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1. Hverag.. s. 34700. Kam-Bar, Breiðamörk 2c. Hverag., s. 34988. Veitingahúsið við Brúarsporðinn Eyrarvegi 1. Self.. sími 22899. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18. sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311 Bleiki pardusinn Hjallahrauni 1 3. sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17, sími 15355. Chick King Suóurveri. Stigahlíö 45- 47. s. 38890. Eikagrill Langholtsvegi 89. 39290. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A, sími 1 4248. Fiskur og franskar Austurstræti 6. sími 626977. Gafl-inn Dalshrauni 13. sími 54424. Höfðakaffi Vagnhöfða 11, sími 686075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. simi 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14, sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31 620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múiakaffi v/Haílarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 612030. Norræna húsið Hringbraut, sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. sími 77444. Óli prik Hamraborg 1 4. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 13320 Pítan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d. sími 72177. Sprengisandur Bústaöavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 19380. - Toppurinn Bíldshöfða 12. sími 672025. Vogakaffi Smiöjuvegi 50. slmi 38533. Veitinga- og vöruhús Nings Suðurlandsbraut 6, sími 679899. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.