Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1991, Page 6
22
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991.
Stjömubíó:
Tortímandinn 2
Fljótlega mun Stjömubíó taka til sýningar
Tortímandann 2 (Terminator 2: The Judge-
ment Day) sem er ein allra dýrasta kvik-
mynd sem gerö hefur verið. Aðstandendur
myndarinnar tóku mikla áhættu með gerð
þessarar myndar sem kostaði 100 milljónir
dollara, en sú áhætta hefur borgað sig því
að á aðeins þremur vikum var hún búin að
ná upp í kostnaðinn og nú græða sömu menn
á tá og fingri enda lítið lát á aðsókninni.
Það var 1984 sem handritshöfundurinn og
leikstjórinn James Cameron og leikarinn
sterkbyggði Amold Schwarzenegger komu
saman til aö gera kvikmyndina The Termin-
ator. Sú kvikmynd sagði sögu af vélmenni
sem sent var úr framtíðinni til nútímans til
að drepa Söruh Connor.
Ástæðan var að Sarah gekk með barni sem
seinna meir mundi leiða mannkynið í bar-
áttu þeirra gegn vélmennum. För vélmennis-
ins mistókst. í Terminator 2 er enn full-
komnara vélmenni sent í sama tilgangi, nú
á að drepa bam Sömh, John Conner sem
er að komast á táningaaldurinn.
Þau mæðginin þurfa samt ekki að standa
ein gegn vélmenninu. Drengnum til verndar
hefur verið sent úr framtíðinni annað vél-
menni, það sama og átti að drepa móðurina.
Það vélmenni hefur veriö endurforritað og
eina verk þess er að vemda John Connor.
Vélmenniö er aftur á móti langt í frá að vera
jafn fuhkomið og það sem sent er til að drepa
John. Átökin milli þeirra er ójafn leikur, en
framtíö mannkynsins er í húfi og þýöir lítið
að gefast upp.
Það sem er eftirminnilegast fyrir áhorfend-
ur í sambandi við Terminator 2 er vélmenn-
ið T-1000. Sú tækni, sem notuð er til að sýna
áhrifamátt þess, er með ólíkindum. Vél-
mennið, sem látið er vera úr fljótandi stáli,
getur breytt sér að vild og sé því tortímt
rennur það bara saman aftur. Þeir sem sáu
The Abyss, sem James Cameron gerði á
undan Terminator 2, kannast sjálfsagt við
tæknina sem hefur verið fullkomnuð hér.
Það er ungur leikari, Robert Patrick, sem
leikur T-1000 og segir Cameron að hann hafi
valið hann vegna þess að hann var eins og
köttur í öllum hreyfingum. Amold Schwarz-
enegger endurtekur hlutverk sitt frá fyrri
mynd, en vélmennið sem hann leikur, T-800,
er mun ófullkomnara. Cameron hefur sagt
að T-800 sé eins og skriðdreki en T-1000 eins
og Porsche.
James Cameron hefur nú skipað sér á bekk
með Steven Spielberg í gerð ævintýra-
mynda. Enginn þykir snjallari en hann í
gerð mynda þar sem kvikmyndatækninni
er beitt til hins ýtrasta. Cameron er kana-
dískur og vakti fyrst athygli með The Term-
inator 1984. Hann byijaði feril sinn sem
tæknimaður hjá Roger Corman og seinna
sem Ustrænn leikstjóri hjá honum. Eftir að
The Terminator sló eftirminnilega í gegn
voru honum allir vegir færir. Og vegur hans
varð enn meiri þegar hann leikstýrði Aliens
sem var framhald Alien. Sú mynd hlaut
tvenn óskarsverðlaun og fimm aðrar tilnefn-
ingar. Það ár var hann útnefndur leikstjóri
ársins af sambandi kvikmyndahúsaeigenda
í Bandaríkjunum.
The Abyss, sem hann leikstýrði 1989, var
mjög metnaðarfull kvikmynd sem gerist að
öllu leyti neðansjávar. Þótt ekki hafi allir
verið alls kostar ánægðir með hana þá er
um að ræða kvikmynd sem verður flestum
eftirminnileg. Cameron hefur auk þess skrif-
að handrit að öllum þeim kvikmyndum sem
hann hefur leikstýrt.
-HK
Arnold Schwarzenegger endurtekur hlutverk sitt úr fyrri hluta Tortímandans. Munurinn er
áð hann hefur verið endurforritaður til hins betra.
En hándfull tid er önnur tveggja norskra mynda sem sýndar eru með islenskum texta. Hin er Leiðsögumaðurinn
Háskólabíó:
Norsk kvikmyndavika
I tengslum við norska menning-
arviku verður norsk kvikmynda-
vika í Háskólabíói. Sýndar verða
fimm nýlegar kvikmyndir frá og
með laugardeginum til föstudags.
Við sérstaka setningu kvikmynda-
vikunnar verður sýnd Döden paa
Oslo S (Dauðinn á lestarstöðinni)
sem gerð var í fyrra. Leikstjóri er
Eva Isaksen. Myndin er byggð á
sögu eftir Ingvar Ambjornsen.
FjaUar hún um tvo unglinga í Ósló
sem eru mjög hrifnir af leynilög-
reglusögum. Döden paa Oslo S er
unglingamynd sem endurspeglar
hjartslátt stórborgarinnar með
hlýju og kímni.
En hándfull tid (Tvennir tímar)
er gerð 1989. Leikstjóri er Martin
Asphaug. Aðalpersónan er Martin.
Hann lítur um öxl yfir líf sitt og á
langar samræður við Önnu konu
sína sem dó af barnsförum fyrir 50
árum. í myndinni er fariö frjálslega
milh nútíðar og fortíðar.
Orions belte (Orionsbeltið) er
gerð 1985. Leikstjóri er Ole Solum.
Þetta er spennukvikmynd um fólk
sem er peð á taflborði stórveld-
anna. Kvikmyndin er gerð eftir
sögu Jon Michelet. Atburðarásin
er spennuþrungin og gerist í sér-
kennilegu og fógru landslagi Sval-
barða.
Landstyrkere (Umrenningar) er
gerð 1989. Leikstjóri er Ole Solum.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
Knuts Hamsun. Segir af unga pilt-
inum Edevart og vini hans Ágústi
sem lenda í ævintýrum í Norður-
Noregi.
Veiviseren (Leiðsögumaðurinn)
er þekktasta kvikmynd Norð-
manna á síðari árum. Hún er gerð
1987 og hefur verið sýnd hér á al-
mennum sýningum. Leikstjóri er
Nils Gaup. Þetta er fyrsta kvik-
myndin sem er með samísku tah
og er hún byggð á gamahi þjóð-
sögu. Segir af drengnum Aigin sem
neyddur er af hinum illræmdu
sjúðum til að vísa þeim veginn að
næsta dvalarstað. Hann óttast um
eigið líf og leiðir þá í opinn dauð-
ann. Meðal leikara er Helgi Skúla-
son. Veiviseren var thnefnd til ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
kvikmyndin.
Fjórar sýningar verða á dag á
norsku kvikmyndunum. Sú fyrsta
verður kl. 17.00 á laugardag en sú
síðasta kl. 23.00 föstudaginn 27.
september. -HK
Bíóhöllin:
Hörkuskyttan
Hörkuskyttan (Quigley Down
Under) er nýjasta mynd hins vin-
sæla leikara, Toms Seheck. Þar
leikur hann Matthew Quigley,
mikla skyttu sem yfirgefur Amer-
íku og ferðast um hálfan heiminn
til Ástrahu þar sem kúabóndinn
auðugi, Marston (Alan Rickman),
ræður hann í vinnu.
Auðnir Ástrahu eru ekkert ólíkar
sléttum vhlta vestursins svo Qui-
gley er eins og á heimaslóðum þeg-
ar hann kemur th Ástralíu og er
fljótur að átta sig á hlutunum. Til
dæmis líkar honum ekki við vinnu-
veitanda sinn og enda viðskipti
þeirra á þann veg að Marston vhl
hann dauðan sem fyrst.
Ekki eru samt allir slæmir að
mati Quigleys. Hann eignast einnig
vini og kynnist ótaminni konu sem
kallast Crazy Cora (Laura San
Giacomo).
Allir aðalleikararnir í Hörku-
skyttunni eru bandarískir en leik-
stjórinn, Simon Wincer, er ástr-
alskur og hefur undanfarin ár
starfað í Hollywood. Hörkuskyttan
er að öhu leyti gerð í Ástralíu.
Wincer framleiddi hina vinsælu
kvikmynd The Man from Snowy
River og leikstýrði Phar Lap, en
báðar þessar kvikmyndir hafa
fengið góðar viðtökur á vesturhveli
jarðar. í Ástrahu gerði hann einnig
The Lighthorseman og Harlequin.
í Bandaríkjunum hefur hann leik-
stýrt D.A.R.Y.L og Snapshot. í fyrra
hlaut hann mikið lof fyr leikstjórn
sína á vestramyndinni The Lone-
some Dove sem sýnd var í tveimur
hlutum í sjónvarpi og fékk hann
Emmy-verðlaunin sem besti leik-
stjóri sjónvarpsmyndar. -HK
Tom Selleck og Laura San Giacomo leika aðalhlutverk í Hörkuskyttunni.