Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991.
Fréttir
Heimsbikarmót Flugleiða:
Fjörlega tefH í
fyrstu umferðinni
- Karpov, Salov og Ljubo unnu en Jóhann Hjartarson tapaði
Húsfyllir var á fyrstu umferð
heimsbikarmóts Flugleiða á Hótel
Loftleiðum í gær og sýndu meistar-
amir mikil tilþrif. Þeir buðu upp á
glæsilega sóknarskák, æsispennandi
tímahrak, óvenjulegt endatafl og
meira að segja stutta jafnteflisskák
fyrir þá sem vilja að albr menn skilji
sáttir. Það voru Andersson og
Seirawan sem slíðurðu sverðin fyrst-
ir - eftir 17 leiki - en kom ekki að
sök því að gestir höfðu nóg annað
að horfa á.
Eftir stutta tölu Jóns Rögnvalds-
sonar, forseta Skáksambands ís-
lands, sem sér um framkvæmd móts-
ins, tók Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, til máls og
lýsti mótið sett. Björn Theódórsson,
framkvæmdastjóri Flugleiða, lék síð-
an fyrsta leikinn fyrir Anatoly
Karpov við enska stórmeistarann
Jonathan Speelman. Leikur Björns
Skák
Jón L. Árnason
reyndist Karpov vel, hann náði yfir-
burðastöðu og haföi alla þræði í
hendi sér. Það var þó ekki fyrr en
langt var liöið á sjötta tíma að Speel-
man lýsti sig sigraðan, .eftir að hafa
seilst eftir „eitruðu peði“ með bisk-
upi sínum. Karpov vann því sína
fyrstu skák á íslandi og komst um
leið að hlið landa síns Salovs og Júgó-
slavans Ljobojevic, sem tekið hafa
forystu á mótinu.
Jóhann í tímahraki
Eins og vænta mátti voru áhorf-
endur spenntir að vita hvernig Jó-
hanni myndi reiða af gegn Valery
Salov, þriðja stigahæsta manni móts-
ins. Ekki minnkaði eftirvæntingin
er Jóhann bryddaði upp á fremur
sjaldséðu afbrigði af Nimzo-ind-
verskri vörn sem nokkrir fastagestir
skákmóta könnuðust við úr skákum
Friðriks.
Byrjunin gaf Jóhanni góða stöðu
og margir héldu að hann væri að ná
undirtökunum. Þegar Salov braust
fram á miðborðinu var þó eins og
Jóhann ætlaði sér um of. Tailið þró-
aðist ekki alveg eins og hann hefði
kosið og þegar hann svo lék vanhugs-
aðan hróksleik í tímahraki, var öllu
lokið í einu vetfangi. „Þaö má ekki
rétta þessum mönnum litla putta,"
sagði skákunnandi nokkur og var
heldur óánægður með rýra uppskeru
Jóhanns því að hann átti í fullu tré
við rússneska stórmeistarann og
hefði ekki þurft að tapa.
Snilldarskák Ljubo
Gulko og Ehlvest tefldu Grúnfelds-
vörn og gekk á ýmsu þar til þeir þrá-
léku rétt fyrir fyrri tímamörk við 40.
leik. Khalifman og Chandler skildu
einnig jafnir í 46 leikjum eftir að fram
kom hnífjafnt riddaraendatafl. Þá
slapp Nikolic meö skrekkinn gegn
Ivantsjúk - lenti í þrengingum en í
tímahraki náði hann aö einfalda tafl-
ið og komast í hróksendatafl, sem
ógjömingur var fyrir „krónprins-
inn“ að vinna.
Ljubomir Ljubojevic, reið ekki feit-
um hesti frá þátttöku sinni á IBM-
mótinu í Reykjavík fyrir fjórum
árum - varð þá næstneðstur. Þaö var
ekki fyrr en í gær sem hann sýndi
íslenskum áhorfendum að viður-
nefnið „Júgóslavinn sókndjarfi" er
_
Heimsbikarmóf Flugleiða er hafið. Björn Theódórsson leggur drög að fyrstu vinningsskák Karpovs á íslandi, með
þvi að aðstoða hann við upphafsleikinn gegn enska stórmeistaranum Speelman.
DV-mynd BG
ekki út í loftið. Hann tefldi við Tim-
man sem hefur oft reynst honum
erfiður. Ljobjevic tapaði t.a.m. fyrir
honum á fyrmefndu móti í Reykja-
vík 1987 eftir að hafa átt mun betri
stöðu.
Nú var stund hefndarinnar runnin
upp. Ljubojevic tefldi af fítonskrafti
og átti glæsilegustu skák kvöldsins.
Hann kom Timman á óvart með
óvenjulegum kóngsleik í þekktri
byrjun, náði miklum þrýstingi að
stöðu hans og vann síðan mjög lag-
lega úr tafbnu.
Hvítt: Ljubomir Ljubojevic
Svart: Jan Timman
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4. Rc3
dxc4 5. e4 Bb4 6. Bg5 c5
Þetta er svonefnt Vínarafbrigði af
drottningarbragði sem leiðir jafnan
til mikilla sviptinga, hvort heldur
hvítur leikur nú 7. e5 eða 7. Bxc4,
eins og í skákinni.
7. Bxc4 cxd4 8. Rxd4 Bxc3+ 9. bxc3
Da5 10. Bb5+ Rbd7 11. Bxf6 Dxc3+
12. Ke2!?
Þessi kóngsleikur kom Timman
bersýnilega á óvart og raunar ekki
síður öðrum keppendum - Karpov,
Beljavskí og fleiri voru mjög áhuga-
samir um stöðuna. Hér hefur marg-
oft verið leikið 12. Kfl og eftir 12. -
gxf6 er 13. h4!? nýjasta innleggið í
umræðuna. Hugmyndin að koma
kóngshróknum í leikinn um h3 reit-
inn. Það er ótrúlegt að engum skyldi
fyrr hafa komið til hugar að leika
kóngnum á e2. Nú er greið leið fyrir
kóngshrókinn að skerast í leikinn
eftir fyrstu reitaröðinni.
12. - gxfB 13. Hcl Db4
Slæmt er 13. - Da5? 14. Hxc8 + !
Hxc8 15. Bxd7+ og ef 15. - Kxd7 16.
Rb3+ og drottningin fellur. Eftir
textaleikinn kemst hún í milh á d6.
14. Hc4 De7 15. Dcl 0-0 16. Hc7! a6 17.
Ba4 Dd6
Eftir 17. - b5 gæti svartur komist
upp með 18. Rc6 Dc5 en með 18. Bb3
er hann engu bættari.
18. Hdl Re5 19. Rf5! Db4 20. Hd4 Db6
21. Re7+ Kg7 22. Dc3!
Svartur er ekki öfundsverður af
stöðunni og á í mestu erfiðleikum
með að skipa út bði. Ekki gengur nú
22. - Rc6 23. Dc3+ Kh8 24. Rxc6 bxc6
25. Dd6 með vinningsstöðu. Timman
reynir að losna við riddarann fram-
sækna.
22. - Rg6 23. Rxg6 hxg6
8
7
6
5
4
3
2
1
ABCDEFGH
24. e5! fxe5 25. Hd3!
Sterkur leikur. Nú verður e-peðið
ekki varið og hrókurinn er reiðubú-
inn að skjótast yfír á h-línuna.
25. - Kg8 26. Dxe5 Db4 27. Hh3 f6 28.
De3!
Mun betra en 28. Hhh7 Hf7! Hótun-
in nú er 29. Hh8 + ! Kxh8 30. Dh6+
og mát í næsta leik.
28. - Db2+ 29. Kf3! g5 30. Hhh7 Hd8
31. Hcg7+ Kf8 32. Dc5 +
Og mát í næsta leik. Timman gafst
upp.
Sleginn skákblindu
Lengstu skákirnar voru mbb
Karpovs og Speelmans og Beljavskís
og Portisch. Þeir síðarnefndu sömdu
jafntefli er skákin átti að fara í bið
I É. E
á s 1 #
it iii
ÍL mt 1 £
£ A? A A A
eftir fíöruga taflmennsku þar sem
Portisch átti sigurmöguleika.
Karpov tókst snemma að véla
drottninguna af Speelman - reyndar
í skiptum fyrir hrók og tvo biskupa.
Heimsmeistarinn fyrrverandi átti
hins vegar fíögur peð til góða, þar
af þrjá samstæða frelsingja sem Spe-
elman var vandi á höndum að ráða
við. Er þeir höfðu teflt í tæpar sex
stundir hafði erfið vörnin tekið sinn
toll af þreki Englendingsins, hann
missti biskup í hafið og gafst þá upp.
Lítum á stöðuna eftir 51. leik
Karpovs, 51. Ke3-d2:
Eftir 51. - Hd7+ 42. Kc2 Bxg3 er
hætt við að hvítur komi fyrr eða síð-
ar peði upp í borð en svartur getur
barist áfram. Speelman var sleginn
skákbbndu:
51. - Bxg3?? 52. Dd3 +
Biskupinn er falbnn og frekari bar-
átta vonlaus. Speelman gafst því upp.
í 2. umferð, sem hefst kl. 17.10 á
morgun, hefur Jóhann hvítt gegn
Seirawan, Portisch gegn Karpov,
Timman gegn Ivantsjúk, Salov gegn
Beljavsky, Ehlvest gegn Ljubojevic,
Speelman gegn Khalifman, Chandler
gegn Gulko og Nikohc stýrir hvítu
mönnunum gegn Andersson.
Suðureyri:
Freyju hót*
magnslokun
„Hvort það verði lokað fyrir
rafmagn hjá okkur er okkar
einkamál. Það er ekkert nýtt að
það séu erfíðleikar í sjávarútvegi.
Annað hef ég ekkert um máhð
að segja," sagði Baldur Jónsson,
forstjóri Freyju á Suðureyri, í
samtah við DV í gærkvöldi.
Samkvæmt heimbdum DV
stendur til að loka fyrir rafmagn
hjá Fiskiðjunni Freyju vegna
skulda. Hótun þessa efnis mun
þegar hafa borist forsvarsmönn-
um fyrirtækisins. Til lokunar
gæti jafnvel komið í dag. Myndi
þá öll fiskvinnsla leggjast niður
hjá fyrirtækinu.
Kristján Haraldsson, orkubús-
stjóri Vestfíarða, vbdi í samtali
við DV í gærkvöldi ekki ræða
opinberlega skuldir Freyju við
stoíhunina. „Það fer hins vegar
ekkert á milb mála ef við lokum
fyrir rafmagnið," sagði hann.
Eins og greint hefur verið frá á
Freyja ásamt dótturfyrirtækinu
Hlaðsvík, sem gerir út togarann
Elínu Þorbjarnardóttur, í mikl-
um rekstrarerfiðleikum. Verið er
að leita að nýju hlutafé eða kaup-
endum að þessum fyrirtækjum.
Búið er að segj a öllu starfsfólídnu
upp störfum, alls hátt í hundrað
manns. Uppsagnarfrestur flestra
er þó enn ekki runninn út. Marg-
ir starfsmanna eiga inni umtals-
verð laun sem ekki liafa fengist
greidd ennþá. -kaa
Kögurás á Suðureyri:
Laun ekki
greidd í nokkr-
arvikur
„Því er ekki að neita að við eig-
um í verulegum rekstrarerfið-
leikum. Um nokkurra vUuia
skeið höfum viö ekki getað greitt
laun. Það er hins vegar hluthafa-
fundar að taka ákvörðun um
hvað gert verður. Enn bggja eng-
ar ákvarðanir fyrir um framhald-
ið,“ segir Sveinbjörn Jónsson,
framkvæmdastjóri fiskverkunar-
fyrirtækisins Köguráss á Suður-
eyri.
■■ Aö jafnaði vinna milli 15 og 25
manns hjá Kögurási, einkum viö
frystingu, en einnig er þar að-
staða til hausaþurrkunar. Fyrir-
tækið á engin skip en á landi eru
eignir þess fyrst og fremst fólgnar
í tveim húseignum ásamt tækj-
um. Eigendur þess eru 32, flestir
búsettir á staðnum.
Sveinbjöm kvaðst ekki hafa
umboö til að greina frá skulda-
stöðu Köguráss. HeimUdir DV
hemia hms vegar að skuldir fyr-
irtækisins séu mun meiri en eign-
ir. Á almennum hluthafafundi,
sem haldinn var á sunnudags-
kvöld, var vandi fyrirtækisins
ræddur án þess að niðurstaða
fengist. Framhald verður á fund-
inum í kvöld og verður þar tekin
ákvörðun um hvort reynt verður
að bjarga fyrirtækinu frá gjald-
þroti. -kaa
Tveir í gæslu-
varðhald
Gyffi Krisíjánsson, DV, Akuxeyri:
Tveir pbtar um tvítugt voru
fyrir helgina dæmdir í tveggja
vikna gæsluvarðhald á Akureyri,
en þeir höfðu verið í innbrotum
ásamt stúlku á svipuðu reki.
Þremenningarnir, sem allir
hafa komiö við sögu hjá lögregl-
unni áður, bmtust inn f Svarf-
dælabúð á Dalvik og á fíórum
stöðum á Akureyri áður en þeir
voru stöðvaðir.