Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Side 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991.
Utlönd
Nunna á áttræð-
isaldrí sigraði í
kappakstri
„Ég stíg eins fast á bensíngjöfina
og ég get og læt bílinn hafa það alveg
þangað til hann þohr ekki meira. Ég
kann vel við mig á hraðbrautunum
vegna þess að það er hægt að fara
svo hratt,“ segir systír Lidia. Hún er
nunna á áttræðisaldri og vinnur sem
bílstjóri við sjúkrahús í Torino á ítal-
íu.
Þrátt fyrir háan aldur eru litlar hk-
ir til þess að Lidia yfirgefi hraðbraut-
irnar í bráð. Hún tók á dögunum
þátt í kappakstri á vegum Bifreiða-
íþróttafélags Ítalíu og hafnaði í fyrsta
sætí. í sigurlaun hlaut hún sportbíl
af gerðinni Lancia Dedra. Á þeim bíl
má ná á þriðja hundrað kílómetra
hraða á klukkustund.
Lidia segist hafa mikinn áhuga á
kappakstri og helsta hetja hennar við
stýrið er brasilíski ökuþórinn og
heimsmeistarinn Ayrton Senna.
Grimmurguð
íbúar Nepals halda nú hina árlegu
Indra Jatra hátíð. Þar er Bhariab
dýrkaður en hann er eitt helsta tákn
menningar þjóðarinnar. Guðinn er
grimmur á svip og ekki á allra færi
að hafa hann góðan.
Símamynd Reuter
Eitraðirsveppir
urðu banabiti
sextán Rússa
Sextán menn í héraðinu Krasnodar
í Suður-Rússlandi létí lífið eftir að
hafa lagt sér eitraða sveppi til munns
í síðustu viku. Þá veiktust 80 menn
að auki en héldu lífi.
Yfirvöld í héraðinu hafa brugðist
við með þeim hætti að banna sölu á
sveppum úr skóginum þar sem eitr-
uðu sveppirnir fundust. Einnig er
aðgangur almennings að svæðinu
takmarkaður. Þá hafa sýni verið
send til rannsóknar í Moskvu. Eftir
því sem Tass fréttastofan segir át
fólkið ýmist ferska sveppi eða niður-
soðna.
Kín versk stúlka
skoraráheims-
meistarann
Xie Jun, kínversk háskólastúdína
á 21. aldursári, ætlar að freista þess
að hnekkja 64 ára einveldi Sovét-
manna í skák kvenna. Öll þessi ár
hefur heimsmeistarinn verið frá Sov-
étríkjunum. Einvígi um heimsmeist-
aratitil kvenna hefst á Filippseyjum
á morgun.
Núverandi-heimsmeistari er Chi-
burdanidse, 31 árs stórmeistari frá
Georgíu. Hún verður því ekki kepp-
andi fyrir Sovétríkin í framtíðinni
ef svo fer að Georgíumenn segja end-
anlega skiliö við Sovétíð. í einvíginu
við Jun keppir hún þó sem Sovét-
maður.
Þær stöllur ætla aö reyna með sér
í sextán skákum og telst sú heims-
meistari sem fyrr fær 8,5 vinninga.
Chiburdanidse hefur verið heims-
meistari síðustu 13 árin og er því sig-
urstranglegri. Jun varð stórmeistari
árið 1990. Reuter
r
(m
Tímarit fyrir alla
K)‘
Q
Kr. 425
Skop ........................................ 2
Uppáhaldsfuglinn ............................ 3
Afbrýðisemi ................................. 8
Baristviðbanvænanfaraldur .................. 13
Friðmælstvið indiána........................ 19
Hvað gerir karlinn kynþokkafullan? ......... 25
Sigrast á minnimáttarkenndinni ............. 31
Afhverju roðnar maður? ..................... 36
Höndin leiðir flest i ljós ................. 39
Hugsuniorðum ............................... 44
Minnisverðasta manneskjan .................. 46
Geturðu stillt skap þitt? .................. 51
Fangí þagnarinnar .......................... 55
Einbirni.................................... 60
VerndarengillWhitworths..................... 67
Fokið niður afMcKínleyfjalli ............... 73
Ennvexhróðuraspiríns ....................... 79
Hjálpað til að standast þrýstingjafnaldranna. 84
Hindurvitni um hnerra ...................... 89
Morð án ummerkja ........................... 91
15 ráð til að sýnast rikur..................105
FramsýninábakviðPatriot ....................108
Torfi á Klúkum og Sveinn faðir hans ........114
Æðahnútar ..................................122
Ég sé kraft guðs............................128
Flórens - borg fortíðarinnar i nútimanum ...131
Breytist fólk við hjónaband? ...............137
Hafið auga með nýja bílstjóranum ..........143
Lausn á krosstölugátu .....................150
Hvi þurfa þeir að þjást? ...................151
Krosstölugátan..............................156
Ertu þjófheldur ferðamaður? ................157
5. HEFTI - 50. ÁR - SEPTEMBER - OKTÓBER
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
Áskriftar- og pantanasimi 62-60-10